Morgunblaðið - 27.01.2003, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 25. TBL. 91. ÁRG. MÁNUDAGUR 27. JANÚAR 2003 mbl.is
Afsögn
flokksleiðtoga
Skattamál urðu hinni sænsku
Gudrun Schyman að falli 13
Heiðmar er varamaður
Ólafs Stefánssonar B6
Paradís
ísklifrara
Ísland er að verða eftirsótt
til ísklifurs 4
Í skugga
Ólafs
BARNASPÍTALI Hringsins var formlega opn-
aður í gær við hátíðlega athöfn í anddyri húss-
ins. Þetta sama anddyri mun í framtíðinni
verða vettvangur tónlistarviðburða og ann-
arra uppákoma sem gleðja eiga sjúklinga og
aðstandendur þeirra. Að athöfninni lokinni
bauðst almenningi að skoða húsakynnin og tal-
ið er að um 8.000 manns hafi þegið boðið.
Meðal þeirra sem viðstaddir voru opnunar-
athöfnina voru Ólafur Ragnar Grímsson for-
seti Íslands, ráðherrar, borgarstjóri, starfs-
fólk Landspítala – háskólasjúkrahúss,
Hringskonur og fleiri, en að loknum fjölda
ávarpa blessaði Karl Sigurbjörnsson biskup Ís-
lands húsið.
Fyrsta skóflustungan að nýjum Barnaspít-
ala Hringsins var tekin í nóvember árið 1998
og var hann opnaður í gær fullbúinn. Fjöldi
sjúkrarúma er 80 og eru deildir hans sjö tals-
ins. Kostnaður við bygginguna er um 1,5 millj-
arðar króna. Kvenfélagið Hringurinn er helsti
styrktaraðili sjúkrahússins.
Nú hefst lokaþáttur frágangs í sjúkrahúsinu
sem felst m.a. í uppsetningu tækjabúnaðar,
stillingum og prófunum. Þetta lokaferli tekur
nokkurn tíma og munu því einhverjir dagar
líða áður en fyrsti sjúklingurinn verður færð-
ur af gamla barnaspítalanum og yfir í hið nýja
og glæsilega húsnæði sem arkitektar teikni-
stofunnar Traðar ehf. hönnuðu í samstarfi við
starfsfólkið.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Ingibjörg Pálmadóttir, fyrrverandi heilbrigðisráðherra, skoðaði nýja og rúmgóða vökudeildina ásamt Magnúsi Péturssyni, forstjóra LSH. Ingi-
björg tók fyrstu skóflustunguna að Barnaspítala Hringsins 19. nóvember árið 1998. Mikill fjöldi fólks skoðaði nýja spítalann í gærdag.
Þúsundir skoðuðu barnaspítala
Óskadraumurinn/6
FIMMTA hver kona sem leitaði til
kvennadeildar Landspítalans á ákveðnu
tímabili á árinu 2000 telur sig hafa orðið
fyrir yfirgangi eða jafnvel ofbeldi í heil-
brigðiskerfinu einhvern tímann á lífsleið-
inni. Konur sem hafa áður verið beittar of-
beldi af einhverju tagi eru mörgum
sinnum líklegri en aðrar til að finnast þær
vera beittar ofbeldi eða yfirgangi í heil-
brigðiskerfinu. Helmingur kvennanna tel-
ur sig hafa orðið fórnarlamb einhvers kon-
ar ofbeldis um ævina og 20% segjast líða
fyrir það.
Þetta er m.a. niðurstaða samnorrænnar
könnunar um ofbeldi gegn konum á Norð-
urlöndum og heilsufarslegar afleiðingar
þess, en tæplega 5.000 konur af Norð-
urlöndunum tóku þátt í henni. Þúsund
konur sem heimsóttu kvennadeild Land-
spítalans á ákveðnu tímabili á árinu 2000
voru beðnar um að taka þátt í könnuninni
og 670 þeirra svöruðu. Könnunin var í
formi ítarlegs spurningalista þar sem kon-
urnar svöruðu spurningum um heilsu sína
og hvort þær hafi orðið fyrir einhvers
konar ofbeldi á lífsleiðinni.
„28% af konunum telja sig einhvern
tímann hafa orðið fyrir yfirgangi eða of-
beldi í heilbrigðiskerfinu og um 20% segj-
ast líða fyrir það ennþá,“ segir Þóra Stein-
grímsdóttir, kvensjúkdómalæknir á
kvennadeild Landspítalans, sem sá um
framkvæmd rannsóknarinnar á Íslandi.
Helmingur
orðið fyrir
einhvers
konar ofbeldi
Fimmta hver kona/27
Ofbeldi gegn konum sem
leita til heilbrigðiskerfisins
TALSMAÐUR Ariels Sharons,
forsætisráðherra Ísraels, varaði
við því í gær að Ísraelar kynnu að
hernema allt Gaza-svæðið ef Pal-
estínumenn hættu ekki að skjóta
flugskeytum á Ísrael.
Stjórn Ísraels svaraði flug-
skeytaárásunum með því að senda
hersveitir og skriðdreka inn í
Gaza-borg í fyrrinótt til að eyði-
leggja verkstæði þar sem flug-
skeytin eru sögð hafa verið smíð-
uð. Var það fyrsta árásin inn í
miðborg Gaza-borgar frá því að
palestínsku heimastjórninni var
komið á fót árið 1994. Að minnsta
kosti tólf Palestínumenn biðu
bana og tveir til viðbótar létu lífið
á öðrum stöðum á Gaza-svæðinu í
gær.
„Þessar aðgerðir eru skýr skila-
boð um að Palestínumenn verði að
hætta árásunum og skilji þeir þau
ekki útilokum við ekki neina
möguleika, meðal annars þann að
allt Gaza-svæðið verði hernumið,“
sagði talsmaðurinn, Ranaan Giss-
in. „Við vonum að til þess komi
ekki, því mark-
mið okkar er
ekki að her-
nema byggð
svæði Palest-
ínumanna,
heldur að koma
í veg fyrir flug-
skeytaárásir
sem miðast
einkum að því
að trufla þingkosningarnar í Ísr-
ael.“
Ekkert lát var á árásunum í gær
og að minnsta kosti ellefu flug-
skeytum hefur verið skotið á sunn-
anvert landið síðustu tvo daga.
Ísraelsher kvaðst í gær hafa
lokað alveg Gaza-svæðinu og Vest-
urbakkanum til að koma í veg fyrir
árásir hryðjuverkamanna í Ísrael
fyrir kosningarnar á morgun. Pal-
estínumenn saka Sharon um að
hafa fyrirskipað árásina á Gaza-
borg til að auka fylgi Likud-
flokksins í kosningunum.
Hóta að hernema
allt Gaza-svæðið
Þrettán Palestínumenn/12
Jerúsalem. AFP.
Ariel Sharon
COLIN Powell, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, sagði í gær að
Bandaríkjamenn væru tilbúnir að
heyja stríð í Írak upp á sitt ein-
dæmi ef öryggisráð Sameinuðu
þjóðanna samþykkti ekki nýja
ályktun sem heimilaði valdbeit-
ingu.
„Við látum til skarar skríða jafn-
vel þótt aðrir séu ekki tilbúnir að
ganga til liðs við okkur,“ sagði
Powell í ræðu á alþjóðlegri efna-
hagsráðstefnu í Davos í Sviss. „Við
áskiljum okkur enn rétt til að grípa
til hernaðaraðgerða gegn Írökum,
einir eða í samstarfi við aðra.“
„Förum leið SÞ“
Hans Blix, formaður vopnaeft-
irlitsnefndar Sameinuðu þjóðanna,
og Mohamed ElBaradei, yfirmaður
Alþjóðakjarnorkumálastofnunar-
innar, eiga að leggja fram ýtarlega
skýrslu um vopnaleitina í Írak á
fundi öryggisráðsins í dag.
Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, kvaðst í gær telja að
eftirlitsmenn Sameinuðu þjóðanna
þyrftu meiri tíma til vopnaleitar í
Írak en bætti við að hún ætti ekki
að þurfa að taka marga mánuði.
Blair lagði áherslu á að örygg-
isráðið yrði að standa við hótanir
sínar í garð Íraka, ella myndu önn-
ur ríki, svo sem Norður-Kórea,
telja ráðið veikt og virða það að
vettugi. „Við höfum engar efa-
semdir um að [Saddam Hussein] er
að þróa þessi vopn og að af honum
stafi ógn en við völdum að fara leið
Sameinuðu þjóðanna, förum hana
og höldum okkur við þá leið,“ sagði
Blair.
Þýska blaðið Die Welt segir í
frétt, sem birt var dag, að Banda-
ríkjamenn og Bretar vilji að eft-
irlitsmennirnir haldi leitinni áfram
til 1. mars.
Alþjóðleg stofnun 55.000
frammámanna í viðskiptalífinu,
Institute of Directors (IoD), segir
að verði stutt stríð í Írak geti
heimsmarkaðsverðið á olíu lækkað
um tíu dali á fatið, eða úr 30 dölum
í 20. Stutt stríði auki einnig lík-
urnar á meiri hagvexti í Bandaríkj-
unum.
Stofnunin varar hins vegar við
því að langvinnt stríð geti orðið til
þess að olíuverðið hækki í 80 dali,
gengi bandarískra hlutabréfa
lækki um 30% og verg þjóðarfram-
leiðsla Bandaríkjanna minnki um
2% í ár.
Tilbúnir að heyja
stríð á eigin spýtur
Davos, London. AFP.
Powell sakar/12
Colin Powell Tony Blair