Morgunblaðið - 27.01.2003, Blaðsíða 10
FRÉTTIR
10 MÁNUDAGUR 27. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
KJÖRNEFND Sjálfstæðisflokksins
í Reykjavík gerði smávægilegar
breytingar á framboðslistum sjálf-
stæðismanna í Reykjavík frá niður-
stöðu prófkjörs reykvískra sjálf-
stæðismanna í nóvember sl., en
listarnir í báðum kjördæmunum
voru samþykktir mótatkvæðalaust á
fundi Varðar, fulltrúaráðs sjálfstæð-
isfélaganna í Reykjavík, á laugardag.
Breytingarnar voru þær að Sólveig
Pétursdóttir, dóms- og kirkjumála-
ráðherra, var færð úr þriðja sætinu á
listanum í Reykjavík norður í þriðja
sætið á listanum í Reykjavík suður
og á móti var Guðlaugur Þór Þórð-
arson, borgarfulltrúi, færður úr
þriðja sætinu í Reykjavík suður í
þriðja sætið í Reykjavík norður.
Guðbjörg Sigurðardóttir, formað-
ur kjörnefndarinnar, segir að til-
gangurinn hafi verið sá að gera
listana jafnari því skv. niðurstöðu
prófkjörsins hefðu tveir sitjandi ráð-
herrar, Davíð Oddsson og Sólveig
Pétursdóttir, sem og einn fyrrver-
andi ráðherra, Björn Bjarnason, ver-
ið á listanum í Reykjavík norður en
einungis einn sitjandi ráðherra; Geir
H. Haarde, á listanum í Reykjavík
suður. Með því að færa Sólveigu og
Guðlaug Þór á milli kjördæma væri
verið að jafna þetta.
Auk þess hafi verið tekið tillit til
vægis kynjanna á listunum. Skv. nið-
urstöðu prófkjörsins var ein kona í
sex efstu sætunum í Reykjavík suð-
ur, en þrjár konur í sex efstu sæt-
unum í Reykjavík norður. Með
breytingum kjörnefndarinnar verða
tvær konur í sex efstu sætunum í
báðum kjördæmunum.
Stefanía dró sig í hlé
Stefánía Óskarsdóttir, stjórn-
málafræðingur, lenti í 15. sæti í próf-
kjörinu, en að sögn Guðbjargar
ákvað Stefanía að draga sig í hlé eftir
prófkjörið. Af þeim sökum sóttist
hún ekki eftir sæti á framboðslistun-
um.
Framboðslistar sjálfstæðismanna í Reykjavík ákveðnir
Morgunblaðið/Jim Smart
Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarfulltrúi og Ásta Möller alþingismaður líta yfir framboðslista sjálfstæðismanna
í Reykjavík á fundi fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík á Hótel Sögu um helgina.
Sólveig og Guðlaugur
Þór skipta um sæti
KJÖRDÆMISRÁÐ Framsóknarflokksins í Suðvestur-
kjördæmi hefur samþykkt framboðslista flokksins. Búið
var áður að ákveða að Siv Friðleifsdóttir umhverfisráð-
herra og Páll Magnússon, aðstoðarmaður iðnaðarráð-
herra, yrðu í tveimur efstu sætum listans. Jafnt hlutfall
karla og kvenna er á framboðslistanum, sem er skipaður
eftirtöldum:
Siv Friðleifsdóttir ráðherra, Seltjarnarnesi.
Páll Magnússon aðstoðarmaður ráðherra, Kópavogi.
Una María Óskarsdóttir uppeldis- og menntunarfræð-
ingur, Kópavogi.
Egill Arnar Sigurþórsson skrifstofumaður, Garðabæ.
Hildur Helga Gísladóttir markaðsfulltrúi, Hafnarfirði.
Gestur Valgarðsson verkfræðingur, Kópavogi.
Elín Gróa Karlsdóttir viðskiptafræðinemi, Mosfellsbæ.
Ingvar Kristinsson verkfræðingur, Hafnarfirði.
Guðrún Helga Brynleifsd. lögmaður, Seltjarnarnesi.
Sigurbjörn Rafn Úlfarsson vélvirkjameistari, Bessa-
staðahreppi.
María Jónsdóttir form. FAA, Garðabæ.
Snæfríður Magnúsdóttir háskólanemi, Mosfellsbæ.
Jóhann Skagfjörð Magnússon sagnfræðinemi, Hafnar-
firði.
Ingibjörg Benediktsdóttir tannlæknir, Seltjarnarnesi.
Willum Þór Þórsson rekstrarhagfræðingur, Kópavogi.
Jóngeir H. Hlinason hagfræðingur, Hafnarfirði.
Ellen Sigurðardóttir tannsmiður, Garðabæ.
Eyjólfur Árni Rafnsson aðstoðarforstjóri, Mosfellsbæ.
Sigurbjörg Björgvinsdóttir forstöðumaður, Kópavogi.
Einar Geir Þorsteinsson fv. bæjarfulltrúi, Garðabæ.
Jóhanna Engilbertsdóttir fjármálastjóri, Hafnarfirði.
Sigurður Geirdal bæjarstjóri, Kópavogi.
Listi Framsóknarflokks
í Suðvesturkjördæmi
Frambjóðendur Framsóknarflokksins í Suðvesturkjördæmi kátir á kjördæmisþinginu í síðustu viku. Frá vinstri:
Páll Magnússon, Elín Gróa Karlsdóttir, Una María Óskarsdóttir, Siv Friðleifsdóttir og Egill Arnar Sigurþórsson.
MAGNÚS Þór Hafsteinsson, fiski-
fræðingur og fréttamaður, skipar
efsta sæti framboðslista Frjálslynda
flokksins í Suðurkjördæmi, skv. til-
lögu kjördæmisráðs flokksins um
skipan sjö efstu sætanna. Tillagan
var kynnt í gær en gert er ráð fyrir
því að hún verði samþykkt á mið-
stjórnarfundi flokksins á fimmtu-
dag. Samkvæmt tillögu flokksins
verða sjö efstu sætin skipuð á eft-
irfarandi hátt:
1. Magnús Þór Hafsteinsson,
fiskifræðingur og fréttamaður.
2. Grétar Mar Jónsson,
skipstjóri og fyrrverandi for-
maður Farmanna- og fiski-
mannasambandsins.
3. Arndís Ásta Gestsdóttir,
fóstra og forstöðumaður Vist-
heimilis fyrir alvarlega fötluð
börn í Álftarima.
4. Hanna Birna Jóhannsdóttir,
stuðningsfulltrúi.
5. Stefán Brandur Jónsson,
rafeindavirkjameistari.
6. Kristín María Birgisdóttir,
sjálfboðaliði í hjálparstarfi
í Afríku.
7. Benóní Jónsson,
líffræðingur hjá Veiði-
málastofnun.
Magnús efstur
í Suðurkjördæmi
Frjálslyndi flokkurinn
FRAMBOÐSLISTI Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavíkurkjördæmi
suður:
1. Geir H. Haarde,
fjármálaráðherra.
2. Pétur Blöndal, alþingismaður.
3. Sólveig Pétursdóttir,
dóms- og kirkjumálaráðherra.
4. Guðmundur Hallvarðsson,
alþingismaður.
5. Birgir Ármannsson,
framkvæmdastjóri.
6. Lára Margrét Ragnarsdóttir,
alþingismaður.
7. Guðrún Inga Ingólfsdóttir,
hagfræðingur.
8. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson,
borgarfulltrúi.
9. Kolbrún Baldursdóttir,
sálfræðingur.
10. Auður Björk Guðmundsdóttir,
fjölmiðlafræðingur, MBA.
11. Vilborg Anna Árnadóttir,
íslenskufræðingur.
12. Helga Árnadóttir,
háskólanemi.
13. Sveinn Jónsson, bifvélavirki.
14. María Gísladóttir,
hjúkrunarfræðingur.
15. Jón Eyjólfur Jónsson,
læknir.
16. Inga Lára Þórisdóttir,
íþróttakennari.
17. Marta Árnadóttir,
kaupmaður.
18. Jón Þórarinsson, tónskáld.
19. Garðar Ingvarsson,
hagfræðingur.
20. Hörður Sigurgestsson,
rekstrarhagfræðingur.
21. Björg Einarsdóttir,
rithöfundur.
22. Guðmundur H. Garðarsson,
fyrrverandi alþingismaður.
Listi sjálfstæðismanna
í Reykjavík suður
FRAMBOÐSLISTI Sjálfstæðis-
flokksins í Reykjavíkurkjördæmi
norður:
1. Davíð Oddsson,
forsætisráðherra.
2. Björn Bjarnason,
alþingismaður og borgarfulltrúi.
3. Guðlaugur Þór Þórðarson,
borgarfulltrúi.
4. Sigurður Kári Kristjánsson,
lögmaður.
5. Ásta Möller, alþingismaður.
6. Katrín Fjeldsted,
læknir og alþingismaður.
7. Ingvi Hrafn Óskarsson,
lögfræðingur.
8. Soffía Kristín Þórðardóttir,
hugbúnaðarsérfræðingur.
9. Vernharð Guðnason, formaður
Landssambands slökkviliðs- og
sjúkraflutningamanna.
10. Lilja Stefánsdóttir,
hjúkrunarfræðingur.
11. Helga Guðmundsdóttir,
framkvæmdastjóri.
12. Jóna Lárusdóttir, flugfreyja.
13. Atli Rafn Björnsson,
háskólanemi.
14. Ólafur Stefánsson, handknatt-
leiksmaður og háskólanemi.
15. Sigurður Pálsson,
dúklagningameistari.
16. Daði Guðbjörnsson, listmálari.
17. Torfi Arason, veitingamaður.
18. Unnur Jónasdóttir, húsmóðir.
19. Erla Wigelund, kaupmaður.
20. Hanna Johannessen,
hárgreiðslumeistari.
21. Magnús L. Sveinsson,
fyrrverandi formaður VR.
22. Ragnhildur Helgadóttir,
fyrrverandi ráðherra.
Listi sjálfstæðismanna
í Reykjavík norður
MARGRÉT Sverrisdóttir, fram-
kvæmdastjóri Frjálslynda flokksins,
sækist eftir því að leiða framboðslista
Frjálslynda flokksins í Reykjavíkur-
kjördæmi suður í komandi alþingis-
kosningum. Margrét staðfesti þetta í
samtali við Morgunblaðið í gær.
Margrét segir að gera megi ráð
fyrir því að framboðslistar flokksins í
Reykjavíkurkjördæmunum verði
kynntir um og upp úr næstu mánaða-
mótum. Listar flokksins í öðrum kjör-
dæmum verða einnig kynntir á næstu
vikum, en kjörnefnd flokksins í Suð-
urkjördæmi kynnti tillögu að fram-
boðslista flokksins í kjördæminu í
gær. Magnús Þór Hafsteinsson
fréttamaður er þar í efsta sæti.
Margrét vill
leiða frjáls-
lynda í Reykja-
vík suður
ELDUR kom upp í fiskimjöls-
verksmiðjunni Fiskimjöl og
Lýsi við Ægisgötu í Grindavík
um áttaleytið á sunnudags-
morguninn. Eldurinn mun hafa
kviknað í þaki verksmiðjunnar
og er talið líklegt að hann hafi
kviknað út frá reykháf fiski-
mjölsverksmiðjunnar.
Einn fluttur á sjúkrahús
vegna reykeitrunar
Að sögn lögreglunnar í
Reykjanesbæ gekk nokkuð
greiðlega að slökkva eldinn en
hins vegar þurfti að flytja einn
mann á sjúkrahús og mun hann
hafa fengið snert af reykeitrun.
Eldur
laus í
Grindavík