Morgunblaðið - 27.01.2003, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 27.01.2003, Blaðsíða 25
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. JANÚAR 2003 25 ATVINNU- AUGLÝSINGAR I I Blómaverslun Ein virtasta blómaverslun landsins óskar eftir starfsfólki. Reynsla í blómaverslun nauðsyn- leg. Umsóknir sendist til auglýsingadeildar Mbl. eða í box@mbl.is fyrir 31. janúar, merktar: „Blóm — 13274“. R A Ð A U G L Ý S I N G A R TILBOÐ / ÚTBOÐ Arnarnesvegur milli Breiðholtsbrautar og Reykjanesbrautar Kynningarfundur Umhverfis- og tæknisvið Reykjavíkur og Vega- gerðin halda almennan kynningarfund um nið- urstöður mats á umhverfisáhrifum vegna Arn- arnesvegar, sem tengja á Breiðholtsbraut og Reykjanesbraut austan Seljahverfis í Reykjavík og sunnan Salahverfis í Kópavogi. Fundurinn verður haldinn fimmtudaginn 30. janúar kl. 20:30 til 22:30 í Fellaskóla við Norðurfell (Tónlistarstofu, gengið inn um aust- urinngang við hlið mötuneytis). Stutt framsaga hefst kl. 20:45. ÝMISLEGT Peningar í boði fyrir jólaskeiðar, postulín, silfur, gull, úr, exportdósir, þjóðlega muni, mánaðarbolla, krúsir, kistur, húsgögn og margt fleira. Geymið auglýsinguna. Antikbúðin, sími 867 5117. SMÁAUGLÝSINGAR FÉLAGSLÍF I.O.O.F. 19  1831278  I mbl.is G LF í Túnis Ferðaskrifstofa Vesturlands býður upp á 11 daga golfferðir til Túnis, þar sem ekkert er til sparað til að gera ánægjulega og eftirminnilega ferð.  Golf við kjöraðstæður í þægilegu loftslagi.  Fyrsta flokks strandhótel, góður matur og þjónusta.  Sérlega áhugaverður menningarheimur.  Brottfarir 21. febrúar og 25. apríl. Fararstjóri er Sigurður Pétursson, golfkennari. Verð frá kr. 135.500 í tvíbýli innifalið: flug, fararstjórn, akstur, gisting, hálft fæði og 8 vallargjöld. Ferðaskrifstofa Vesturlands, sími 437 2323. Sími 437 2323, fax 437 2321. Netfang travest@simnet.is NÝLEGA hefur umhverfisráðherra skipað nefnd til að vera til ráð- gjafar um stofnun verndarsvæðis eða þjóðgarðs norðan Vatnajökuls. Formaður nefndarinnar er Magnús Jóhannesson ráðuneytisstjóri en aðrir í nefndinni eru þingmennirnir Arnbjörg Sveinsdóttir, Magnús Stefánsson, Steingrímur Sigfússon og Össur Skarphéðinsson. Starfs- menn nefndarinnar eru Sigurður Þráinsson líffræðingur og Ingi- björg Halldórsdóttir lögfræðingur. Nefndin átti fund með sveit- arstjórnarmönnum úr Skútustaða- hreppi, Öxarfirði, Kelduhverfi og Þingeyjarbyggð á Sel Hótel Mý- vatni. Fundurinn var haldinn til að kynnast sjónarmiðum sveitar- stjórnarmanna á þeim svæðum sem verndarsvæði hugsanlega tekur til. Nefndin hefur ekki mótaðar hug- myndir varðandi umfang svæðis og tegund verndar, því var erfitt fyrir heimamenn að átta sig á hvað hér er á ferðinni. Vel kom það fram að þingeyskir sveitarstjórnarmenn eru afar var- færnir í stuðningi við áform um verndarsvæði. Meðal annars eru flestar náttúruperlur hugsanlegs svæðis nú þegar verndaðar sem náttúruvætti, friðlönd o.s.frv. Hver er þörfin á meiri afskiptum ríkisins og hvaða nýting verður heimiluð á slíku svæði? Vandséð er hvar fjár verður aflað til að gera hugmynd meira en nafnið eitt, því ekki þekkja menn hér um slóðir að nauð- synlegustu fjármunir til bættra vega, aðstöðusköpunar eða annars sem til þarf hafi legið á lausu hing- að til. Ljóst var að fundarmenn töldu rétt að fara sér hægt í þessu efni. Bent var á að skynsamlegt verður að telja að beðið verði eftir nið- urstöðum úr starfi óbyggðanefnd- ar. Einnig var bent á að heimamenn á Austurlandi og í Þingeyjarsýslum vilja gjarnan hafa frumkvæði í máli sem þessu. Má minna á merkilega ráðstefnu í þeim anda á Egils- stöðum skömmu fyrir jól. Hreinskiptin og gagnleg skoð- anaskipti fóru fram á fundinum um málefnið enda byggja menn hér á nokkurri reynslu af verndarsvæð- um, friðlöndum og a.m.k. einum þjóðgarði. Morgunblaðið/BFH Fjallað var um fyrirhugað verndarsvæði norðan Vatnajökuls á fundi í Mývatnssveit. Hugsanlegt verndarsvæði norðan Vatnajökuls Mývatnssveit. Morgunblaðið. Þingeyskir bændur varfærn- ir í stuðningi SÝNINGAGERÐ safna er yfir- skrift námskeiðs sem Endur- menntun HÍ og FÍSOS, Félags íslenskra safna og safnamanna, standa fyrir. Dagskrá námskeiðs- ins er fjölbreytt og verður m.a. fjallað um tilgang, stefnur og strauma í sýningagerð, hvernig sýning verður til og umgjörð sýninga, segir í tilkynningu. Meðal fyrirlesara verða Simon Hill, sýningarhönnuður frá Eng- landi, Hannes Sigurðsson, for- stöðumaður Listasafnsins á Ak- ureyri, Eggert Þór Bernharðs- son, aðjúnkt við sagnfræðiskor HÍ, Steinþór Kári Kárason, kennari við LHÍ, Guðrún Guð- mundsdóttir, sýningarstjóri Þjóðminjasafns Íslands, Björn G. Björnsson leikmyndahönnuður, Guðmundur Oddur Magnússon, prófessor við LHÍ, Þorvaldur Sverrisson textagerðarmaður, Halldór Gíslason, deildarforseti hönnunardeildar LHÍ, og Alfreð Sturla Böðvarsson, sérfræðingur í lýsingu. Námskeiðið er einkum ætlað starfsfólki safna, jafnt minja-, lista- og náttúrugripasafna, en er öllum opið. Námskeiðið er haldið dagana 20. og 21. febrúar kl. 8– 16. Námskeið um söfn og sýningar Fundur Vinnuvistfræðifélagsins um vinnuvernd og forvarnir verð- ur haldinn þriðjudaginn 28. janúar kl. 16.30 í fundarsal Vinnueftirlits- ins, Bíldshöfða 16. Á fundinn koma alþingismennirnir Katrín Fjeldsted og Ögmundur Jónasson og reifa sjónarmið sín varðandi vinnuvernd og forvarnir og að því loknu verða opnar umræður. Á fundinum verður heimasíða félagsins formlega opnuð, svo og heimasíða norrænu vinnuvist- fræðiráðstefnunnar (www.vinnis.is/ nes.2003) sem haldin verður í Reykjavík dagana 10.–13. ágúst 2003. Alfa-námskeið í Háskóla Íslands Haldin verður ókeypis kynning á fyrirhuguðu Alfa-námskeiði fyrir há- skólanemendur, þriðjudaginn 28. janúar kl. 19–21, í stofu 101 í Odda. Námskeiðið sjálft byrjar viku seinna og verður haldið á þriðjudags- kvöldum í 10 vikur (4. febrúar–8. apríl). Alfa-námskeiðið fjallar um kristna trú og þar er tekist á við spurningar lífsins án þess að nokkr- ar kröfur séu lagðar á námskeiðs- gesti. Umræður verða eftir kennsl- una og heit máltíð er innifalinn í námskeiðsgjaldi. Kynningin er óbindandi og eru allir háskólanemendur sem leiða hugann að tilgangi lífsins velkomnir. Léttar veitingar verða á boðstólum. Kenn- arar verða sr. Ólafur Jóhannsson og Ragnar Snær Karlsson. Nánari upp- lýsingar er að finna á www.alfa.is og hægt er að skrá sig á námskeiðið á netfangið ksf@hi.is fyrir 1. febrúar. Á MORGUN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.