Morgunblaðið - 27.01.2003, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 27.01.2003, Blaðsíða 28
DAGBÓK 28 MÁNUDAGUR 27. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM- AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug- lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Krossgáta LÁRÉTT 1 laun, 4 hörfar, 7 rófa, 8 sútað skinn, 9 nóa, 11 ávana í fasi, 13 kvennafn, 14 vanfær, 15 spýta, 17 keyrir, 20 að, 22 súld, 23 hlussulegur kvenmaður, 24 ójafnan, 25 við- burðarás. LÓÐRÉTT 1 herkví, 2 gangur hests, 3 brúka, 4 sívala pípu, 5 sprengiefni, 6 rugga, 10 rassfjöðrum, 12 áhald, 13 borða, 15 veiða, 16 látin, 18 ýldir, 19 sefaði, 20 ætt- göfgi, 21 blíð. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU Lárétt: 1 bandingja, 8 tuddi, 9 gúrka, 10 gil, 11 gifta, 13 ansar, 15 spons, 18 hissa, 21 err, 22 rætni, 23 önnur, 24 barnungur. Lóðrétt: 2 andóf, 3 deiga, 4 nagla, 5 járns, 6 stag, 7 maur, 12 tón, 14 nei, 15 strá, 16 ostra, 17 seinn, 18 hrönn, 19 sunnu, 20 aura. Skipin Reykjavíkurhöfn: Brúarfoss fer í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Brúarfoss kemur í dag til Straumsvíkur. Mannamót Aflagrandi 40. Vinnu- stofa og leikfimi kl. 9, boccia kl. 10, vinnu- stofa kl. 13, félagsvist kl. 14. Árskógar 4. Kl. 9–12 opin handavinnustofa, kl. 11 boccia, kl. 13– 16.30 opin smíðastofa/ útskurður, opin handavinnustofa, kl. 13.30 félagsvist, kl. 16 myndlist. Bólstaðarhlíð 43. Á morgun kl. 9–16 handavinna, kl. 9–12 bútasaumur, kl. 9–17 fótaaðgerðir, kl. 10–11 samverustund, kl. 13.30–14.30 söngur við píanóið, kl. 13–16 bútasaumur. Upplýs- ingar í síma 568 5052. Eldri borgarar í Mos- fellsbæ, Kjalarnesi og Kjós. Félagsstarfið opið mánudaga og fimmtudaga. Mánu- dagur kl. 16 leikfimi. Félag eldri borgara í Kópavogi. Félagsvist í Gullsmára 13 kl. 20.30. Fótaaðgerða- stofan opin frá kl. 10. Skrifstofan Gullsmára 9 er opin kl. 16.30–18, s. 554 1226. Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Kl. 8 böðun, kl. 9 fótaaðgerðir og myndlist, kl. 10–12 verslunin opin, kl. 11.30 hádegisverður, kl. 13 föndur og handavinna, kl. 13.30 enska, framhalds- flokkur, kl. 14.30 kaffiveitingar. Félagsstarfið Dal- braut 18–20. Kl. 10 leikfimi, kl. 11.15 há- degismatur, kl. 13 brids, kl. 15 kaffiveit- ingar. Félagsstarfið Dal- braut 27. Kl. 9–16 handavinnustofan op- in, kl. 9–12 myndlist, kl. 13–16 körfugerð, kl. 11–11.30 leikfimi, kl. 13–16 spilað, kl. 10–13 verslunin opin. Félagsstarfið, Hæð- argarði 31. Böðun kl. 9–12, almenn handa- vinna kl. 9–16.30, fé- lagsvist kl. 14, hár- greiðslustofan opin 9–14. Félag eldri borgara Hafnarfirði, Hraun- seli, Flatahrauni 3. Púttað kl.10, kóræfing kl. 10.30, tréskurður og félagsvist kl. 13.30. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði Glæsibæ. Brids kl. 13. Línudanskennsla fyrir byrjendur kl. 18. Sam- kvæmisdansar fram- hald kl. 19 og byrj- endur kl. 20.30. Silfurlínan opin á mánudögum og mið- vikudögum kl. 10–12. Skrifstofa félagsins er í Faxafeni 12, sími 588 2111. Gerðuberg, fé- lagsstarf. Kl. 9–16.30 vinnustofur opnar, frá hádegi spilasalur op- inn, kl. 15.15 dans. Allar upplýsingar um starfsemina á staðn- um og í síma 575 7720. Gjábakki, Fannborg 8. Handavinnustofan opin, leiðbeinandi á staðnum kl. 9–17, kl. 9.30 gler- og postu- línsmálun, kl. 10.50, róleg leikfimi, kl. 13 skák. Gullsmári, Gullsmára 13. Kl. 9 vefnaður, kl. 9.05 leikfimi, kl. 9.55 stólaleikfimi, kl. 10 ganga, kl. 13 brids, kl. 15.15 enska, kl. 20.30 félagsvist. Hraunbær 105. Kl. 9 perlusaumur og fóta- aðgerðir, kl. 10 bæna- stund, kl. 13.30 sögu- stund og spjall, kl. 13 postlínsmálun og hár- greiðsla. Hvassaleiti 56–58. Kl. 9 föndur, kl. 9 og kl. 10 jóga, kl. 13 spilað, kl 13.30 ganga, fótaað- gerðir. Allir velkomn- ir. Norðurbrún 1. Kl. 10– 11 ganga, kl. 9–15 fótaaðgerðir, kl. 9–12 myndlist, kl. 13–16.45 opin handavinnustofa. Vesturgata 7. Kl. 9– 16 fótaaðgerðir og hárgreiðsla, kl. 9.15– 12 postulínsmálun, kl. 9.15–15.30 alm. handa- vinna, kl. 9.30–10.30 boccia, kl. 10.30–11.30 jóga, kl. 12.15–13.15 danskennsla, kl. 13–16 kóræfing. Lyfjafræð- ingur á staðnum kl. 13 fyrsta og þriðja hvern mánudag. Vitatorg. Kl. 8.45 smíði, kl. 9 hár- greiðsla, kl. 9.30 bók- band, bútasaumur og morgunstund, kl. 10 fótaaðgerðir og boccia – æfing, kl. 11.30 mat- ur, kl. 13 handmennt – almennt, gler- bræðsla og frjáls spil, kl. 14.30 kaffi. Gullsmárabrids. Brids í Gullsmára 13 mánu- daga og fimmtudaga. Skráning kl. 12.45, spil hefst kl. 13. Félag eldri borgara Suðurnesjum. Bingó í Selinu, Vallarbraut 4, Njarðvík, öll mánu- dagskvöld kl. 20. Sjálfsbjörg, félag fatl- aðra á höfuðborg- arsvæðinu, félags- heimilið Hátúni 12. Kl. 19 brids. Í dag er mánudagur 27. janúar, 27. dagur ársins 2003. Orð dags- ins: Ég vil lækna fráhvarf þeirra, elska þá af frjálsum vilja, því að reiði mín hefur snúið sér frá þeim. (Hósea, 14, 5.) 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16     NÚ á dögunum, þegar framsóknarmenn áttu undir högg að sækja í skoðanakönnunum, fannst þingmönnunum Hjálmari Árnasyni og Ís- ólfi Gylfa Pálmasyni kom- inn tími til að snúa blaðinu við. Sennilega hefur verið sagt við þá á þingflokksfundi: „Svona strákar, komiði nú með eitthvað. Þetta gengur ekki lengur.“ Svo hafa þeir félagar lagst undir feld saman, í leit að bráð- snjallri lausn, sem myndi sópa fylginu að flokknum og snúa við þeirri óheillaþróun að Fram- sóknarflokkurinn yrði valdaminni í íslensku samfélagi.     Og hvert skyldi svo snjall- ræðið hafa verið? Jú, á þriðjudaginn í síðustu viku birtist grein eftir þá félaga í Morgunblaðinu, undir hinni grípandi fyr- irsögn „Skíðasvæði – opið allt árið!“ Með þessari grein slógu Hjálmar og Ís- ólfur Gylfi tvær flugur í einu höggi. Þeir vita jú að áhugafólk um skíðaíþrótt- ina hefur kosningarétt, a.m.k. þeir sem komnir eru á kosningaaldur, en að auki sýndu þeir fram á að Framsóknarflokkurinn er flokkur hugsjóna.     Og hver skyldi þessi hug- sjón þá vera? Hún er ekki flókin. Hana má reyndar setja fram í einu slagorði, sem Framsóknarflokk- urinn hyggst án efa nota mikið í kosningabarátt- unni. Þetta slagorð hljóm- ar svona: „Skíðasvæði – opið allt árið!“     Hugmynd þeirra fóst- bræðra gengur út á þá fögru hugmyndafræði að Tindfjallajökull verði nýttur til vetraríþrótta – allan ársins hring! En þótt hún sé hljómfögur er ekki svo að skilja að um hana hafi ekki verið barátta innan flokksins. Þeir framsóknarmenn sem ekki stunda skíði hafa barist hatrammlega gegn framkvæmdinni á síðustu árum. Innan flokksins hefur farið fram mikil og vægðarlaus umræða um það, hvort þessi tillaga myndi aðeins hafa þær já- kvæðu afleiðingar að auka fylgi hans meðal skíðamanna, eða þá hvort þeir skattborgarar sem ekki hafa gaman af íþrótt- inni myndu um leið snúast gegn flokknum.     Hjálmar og Ísólfur Gylfi unnu rökræðuna. Auðvit- að er það þannig að hags- munir þeirra sem frekar kjósa aðra dægrastytt- ingu eru miklu dreifðari en skíðamannanna. Aukin skattlagning á þá er hlut- fallslega miklu minni en ávinningur skíðafólksins af þessum opinberu fram- kvæmdum. Hver fer að væla út af fjörutíu króna skattahækkun? Sá sem það gerði yrði samstundis stimplaður sem leið- indapúki og það réttilega. Svona gerast kaupin á eyrinni. Skíðahugsjónin lifir. STAKSTEINAR Skíðahugsjónin lifir góðu lífi FYRIR hönd starfsfólks Bláa lónsins hf. vil ég þakka Maddý fyrir bréf hennar er birtist í Velvakanda mánu- daginn 20. janúar sl. Virðing við náttúrulegt umhverfi Bláa lónsins er okkur mikilvæg sem og góð umgengni og snyrti- mennska. Vegna þeirra ábendinga sem fram komu í bréfinu vil ég upplýsa eftirfarandi: Stundum er baðgestum boðin hressing út í baðlónið í litlum plastglösum. Er lögð mikil áhersla á að gest- ir skili plastglösunum til starfsmanna aftur. Það get- ur brunnið við að öll plast- glös skili sér ekki til baka. Starfsfólk okkar hreinsar lónsvæðið daglega og er sérstaklega hugað að því að gæta þess, að plastglös, sem ekki hefur verið skilað, séu fjarlægð. Því miður hefur okkur yfirsést í þessu tilviki. Við munum reyna að gera enn betur. Botn Bláa lónsins er sandbotn og blandast kísill, sem fellur úr lónvatninu, sandinum í botni lónsins. Gestum er ekki ráðlagt að nota kísil af botni lónsins, en eins og réttilega var bent á í fyrrnefndu bréfi, er ekki aðlaðandi að bera sandblandaðan kísilinn á andlit. Til að auðvelda gestum okkar aðgengi að hreinum Bláalónskísli höfum við fyr- ir alllöngu komið honum fyrir í merktum trékössum, sem staðsettir eru við lónið. Auðveldast er að fá upplýs- ingar hjá starfsfólki um, hvernig best sé að nálgast Bláalónskísilinn, en bættar merkingar og leiðbeiningar þar um í og við baðlónið eru væntanlegar. Magnea Guðmundsdóttir, markaðsstjóri Bláa lónsins hf. Mótmæli ÉG heit Franz Jónas og er 9 ára. Ég hef séð í sjón- varpi og dagblöð- um að fólk er að mótmæla eitthvað út af Kárahnjúk- um og sá ég mót- mælaspjöld þar sem að stóð SOS, hálendið kallar! Mér finnst að það ætti heldur að standa SOS, störf- in vantar! Pabbi minn sem er með góða menntun, hefur haft lítið að gera undanfarna mánuði og vildi ég svo mikið að hann gæti farið að fá fasta vinnu. Þess vegna skrifa ég þetta bréf til að mótmæla þessum mótmælum, því það er svo mikið atvinnuleysi á Íslandi og í staðinn fyrir að mót- mæla virkjun og álveri ætti þetta fólk að búa til fleiri störf fyrir atvinnulaust fólk á Íslandi. Franz Jónas, 9 ára. Óvandaðar greinar MIG langaði til þess að gagnrýna greinina um poppstjörnur nútímans sem var birt 19. janúar síð- astliðinn. Var greinin skrif- uð frá einni hlið, skorti þekkingu á efninu og ekki síst illa skrifuð. Oft er eins og gagnrýnendur gagnrýni frá sinni hlið, ef þeim líkar ekki tónlistin þá er efnið ófrumlegt og óvandað. Með von um umhugsað- ari, dýpri greinar sem eru hugsaðar frá fleiri hliðum. Kær kveðja, Arnar. Tapað/fundið Vasi og ljóðabækur HREINN úr Mosfellsbæ, þú sem auglýstir að þú lag- aðir flísar og fleira, ef þú ert búinn að laga vasann eftir Guðmund frá Miðdal fyrir mig, þá vinsamlegast hafðu samband við Ástu í síma 553-8237. Einnig lang- ar mig að athuga hvort ein- hver á ljóðabókina Móður Jörð eftir Sigurstein Magn- ússon skólastjóra frá Ólafs- firði og kvæðabók Teits Hartmanns frá Ísafirði. Dýrahald Læðu vantar heimili NÍU vikna blíða og góða læðu vantar gott heimili. Hún er svört og hvít. Vin- samlegast hafið samband í síma 551-9761. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15  Netfang velvakandi@mbl.is Bláa lónið Morgunblaðið/Golli Stuð í Ártúnsbrekkunni. Víkverji skrifar... ÞAÐ er auðvitað synd að Íslenskerfðagreining og Friðrik Skúla- son skyldu ekki ná að opna aðgang að Íslendingabók á Netinu fyrir jól. Víkverji er nefnilega sannfærður um að þá hefðu umræður um ættfræði tröllriðið öllum jólaboðum, verið hinn endanlegi samkvæmisleikur. Víkverji hefði þá til að mynda get- að montað sig af því að vera í sjötta lið tengdur Halldóri Ásgrímssyni ut- anríkisráðherra, í sjöunda lið tengd- ur þeim Davíð Oddssyni forsætis- ráðherra, Steingrími J. Sigfússyni, formanni Vinstri grænna, og Sverri Hermannssyni, formanni Frjáls- lynda flokksins. Víkverji þarf hins vegar að fara lengra aftur til að rekja sig saman við Össur Skarphéðinsson, formann Samfylkingar, þ.e. níu liði. Þykir Víkverja ástæða til að taka fram að þessi mismiklu tengsl segja ekkert um það hvert hann hallast í pólitík! Víkverja þótti athyglisvert að fá nú staðfest að hún stenst fyllilega, kenningin um að allir Íslendingar séu afkomendur Jóns biskups Ara- sonar; a.m.k. hvað hann varðar. Vík- verji er nefnilega kominn af Jóni í fjórtánda lið. Síðan vakti það athygli Víkverja að hann skuli tengdur Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, í sjöunda lið en sameiginlegir for- feður eru þeir sömu og tengja Vík- verja við formann Vinstri grænna! Uppflettingar í Íslendingabók hafa almennt gengið vel hjá Vík- verja, þó að álagið hafi greinilega verið býsna mikið fyrstu dagana því nokkrum sinnum komu upp tækni- leg vandkvæði. Þá vill Víkverji kvarta ofurlítið yfir því að stundum skuli birtast melding sem segir: „Þessi leit er full víðtæk. Fleiri en 150 einstaklingar fundust, fyrstu 150 eru birtir.“ Þannig gat Víkverji ekki rakið sig saman við Ingibjörgu Sólrúnu Gísla- dóttur, fráfarandi borgarstjóra, þar sem hún féll undir þessa skilgrein- ingu. Kannski er Víkverji þó bara of vitlaus til að átta sig á því, hvernig framhjá þessu má komast. x x x VÍKVERJI hefur haft einstaklegagaman af því að horfa á Tutt- ugustu öldina, heimildaþætti þeirra Hannesar Hólmsteins Giss- urarsonar og Ólafs Þ. Harðarsonar í sjónvarpinu. Einkum og sér í lagi er gaman að sjá sjónvarpsmyndir, sem ekki ber svo ýkja oft fyrir augu þessi seinni misserin. Til að mynda hefur verið áhugavert að fá að sjá stjórn- málamenn fyrri tíma tala upphátt, en augljóst er að hinn nýi miðill – sjónvarpið – átti ekki jafnvel við þá alla, þegar það kom fram á sjón- arsviðið hér á Íslandi á sjöunda ára- tugnum. Þá gat Víkverji ekki varist hlátri þegar sýnt var í þættinum um Við- reisnarárin brot úr umræðuþáttum sem Ólafur Ragnar Grímsson stjórnaði á sínum tíma, en þeir ku hafa þótt byltingarkenndir. Hið eina sem setur skugga á gleðina, þegar svona brot eru sýnd, er að ekki skuli hægt að hafa þau ögn lengri. HALLDÓR Laxness tekur við Nób- elsverðlaununum í bókmenntum. Úr sjónvarpsþáttunum 20. öldin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.