Morgunblaðið - 27.01.2003, Blaðsíða 7
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. JANÚAR 2003 7
LEIKUR
2
2
Taktu þátt í leiknum
Dregið verður úr réttum svörum á morgun.
Vinningshafinn fær flugmiða að eigin vali til
einhvers af áfangastöðum Icelandair í Evrópu.
Ein spurning daglega frá 26. janúar til 2. febrúar.
Vinningur fyrir hverja spurningu: Einn flugmiði að eigin vali
vinningshafa til einhvers af áfangastöðum Icelandair í Evrópu.
Icelandair og Morgunblaðsins
spurning:
Hvað heitir þessi leikmaður?
Farðu á íþróttavef mbl.is og svaraðu spurningu dagsins fyrir miðnætti í kvöld.
www.icelandair.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
I
C
E
20
04
4
0
1/
20
03
JÓNAS Erlendsson, bóndi í Fagra-
dal, hefur búið til kamínu úr bobb-
ingum. „Þessir bobbingar liggja í
þúsundatali í fjörum hringinn í
kringum landið,“ segir Jónas. Sjálf-
ur hefur hann hirt nokkra sem hann
fann í Fagradalsfjöru og farið með
heim. Hann segist hafa fengið hug-
myndina þegar hann sá bobbing not-
aðan sem grill. Hafði hann þá verið
sagaður í tvennt og grind sett ofan
á. Síðan þá hafi hann frétt af nokkr-
um álíka kamínum annars staðar.
Bobbingar eru járnkúlur sem
festar eru á lengju á neðri hluta
botnvörpu togara og rúlla eftir sjáv-
arbotninum. Oft losna þeir af og
rekur þá að landi.
Mesta vinna Jónasar fór í að pússa
bobbingana enda vel ryðgaðir eftir
volkið í sjónum. Hann gerði gat til
að koma eldiviði inn í bobbinginn og
lokar fyrir með sterku gleri. Járn-
rör sem hann átti safnar öskunni í
skúffu og standurinn er gerður úr
öðrum minni bobbing sem skorinn
er í tvennt. Eldstæðið er því mjög
stöðugt og öruggt. Síðan er reyk-
urinn leiddur með strompi út um
gluggann og upp fyrir húsið.
Jónas segir hlýlegt að kynda upp í
stofunni með kamínunni og mikill
hiti komi frá henni þegar vel logi.
Hún gefi því hita og huggulegt ljós
inn í húsið í vetrarskammdeginu.
Kamínur eru vinsælar í nýjum og
gömlum húsum í dag og kosta tugi
þúsunda út úr búð. Jónas segir
mögulegt að láta ryðið halda sér
sem geti gefið skemmtilega áferð.
Sjálfur hafi hann valið að hafa kam-
ínuna svarta en sé opinn fyrir öllum
hugmyndum.
Morgunblaðið/RAX
Jónas Erlendsson, bóndi í Fagradal,
yljar sér við kamínuna.
Býr til kamínu
úr bobbingum
HEIMSFERÐIR hafa ákveðið að
bjóða upp á vikulegt flug til Alic-
ante á Spáni í sumar líkt og und-
anfarin sumur. Verðið hefur lækkað
um rúm 10% síðan í fyrra og kostar
flugmiðinn nú 29.950 krónur með
sköttum. Ef greitt er með VR- eða
Mastercard-ávísunum lækkar flugið
niður í 24.650 krónur með sköttum.
Samkeppni í flugi til Alicante hef-
ur aukist mjög að undanförnu. Eins
og nýlega var skýrt frá í Morg-
unblaðinu bjóða Sumarferðir, ný
ferðaskifstofa, einnig leiguflug til
Alicante í sumar á tæpar 30.000
krónur með sköttum, miðað við að
bókað sé á Netinu.
Flug Heimsferða verður vikulega
á tímabilinu 13. apríl til 22. október.
Fyrirtækið sér meðal annars um
sölu á flugsætum fyrir félag húseig-
enda á Spáni. Sala á ferðunum
hófst í byrjun janúar og nú þegar
hafa á annað þúsund sæta verið
bókuð. Flogið verður á miðviku-
dagsmorgnum. Azzurra-flugfélagið
sér um að flytja farþega til Spánar
líkt og í fyrra og nú bætist einnig
við Futura-flugfélagið. Bæði flug-
félög nota nýjar Boing 737-flugvél-
ar sem geta flutt samtals 337 far-
þega.
„Þetta er ellefta árið sem við
fljúgum til Benidorm og Alicante.
Við höfum ávallt verið með lægsta
verðið og munum halda því áfram,“
sagði Andri Már Ingólfsson fram-
kvæmdastjóri Heimsferða. Andri
sagði ennfremur að fyrirtækið ótt-
aðist ekki aukna samkeppni. „Við
höfum sterkan grunn til að byggja
á og erum alveg til í slaginn.“
Samkeppni
eykst í
leiguflugi
til Alicante
C vítamín 400 mg
með sólberjabragði
Bragðgóðar tuggutöflur.
Eflir varnir.
Nýtt frá Biomega
Fæst í apótekum
alltaf á föstudögum
ÞYRLA Landhelgisgæslunnar
flaug í gærmorgun með sjó-
mann af mótorbátnum Valdi-
mar frá Rifi að Landspítala –
háskólasjúkahúsi (LSH). Talið
var að sjómaðurinn hefði feng-
ið hjartaáfall. Veikindi sjó-
mannsins reyndust hins vegar
ekki alvarleg og var hann út-
skrifaður af bráðadeild LSH
við Hringbraut upp úr hádegi í
gær.
Beiðni barst um aðstoð frá
mótorbátnum Valdimar um
fjögurleytið aðfaranótt sunnu-
dagsins en báturinn var þá
staddur ellefu sjómílur suður
af Malarrifi. Þar sem veður var
vont og skyggni lélegt var ekki
talið ráðlegt að sækja sjó-
manninn með þyrlu Landhelg-
isgæslunnar. Báturinn hélt því
til Ólafsvíkur og þaðan var sjó-
maðurinn fluttur að Rifi þar
sem þyrla Landhelgisgæslunn-
ar beið eftir honum og flutti á
Landspítalann.
Sjúkraflug
með veikan
sjómann