Morgunblaðið - 27.01.2003, Qupperneq 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. JANÚAR 2003 9
Snorrabraut 38, sími 562 4362
Stórútsala
30-70% afsláttur
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00–18.00, laugardaga frá kl. 10.00–15.00.
Útsalan í fullum gangi
20% aukaafsláttur
af allri útsöluvöru
Laugavegi 4, sími 551 4473
www.lifstykkjabudin.is
Póstsendum
Stór-
útsalan
í fullum gangi
30-70%
afsláttur
Enn meira úrval
Kringlunni, sími 588 1680,
v. Nesveg, Seltjarnarnesi,
sími 561 1680.
iðunn
tískuverslun
Monar i
20% AUKAAFSLÁTTUR
Á ÚTSÖLUVÖRUM
Útsala
30-70% afsláttur
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
s. 557 1730 s. 554 7030
Opið mán.—fös. frá kl. 10—18
lau. kl. 10—15
Hverfisgötu 6 • 101 Reykjavík • sími 562 2862
ÚTSALA
50-80%
af öllum
útsöluvörum
Bæjarlind 12,
Kópavogi, sími 544 2222
Opið: mán.-fim. frá kl. 10-18.30 -
fös. frá kl. 10-19.30 - lau. frá kl. 10-16.30
Útsala
Enn meiri verðlækkun
Kringlunni - Sími 568 1822
JÓN Rögnvaldsson hefur verið
skipaður vegamálastjóri frá 1. mars
nk. til næstu fimm ára. Hann tekur
við starfinu af Helga Hallgrímssyni
sem skipaður var í embætti vega-
málastjóra árið 1992 og lætur nú af
störfum fyrir aldurs sakir.
Jón er fæddur 19. febrúar árið
1939 í Flugumýrarhvammi í Akra-
hreppi í Skagafirði. Foreldrar hans
eru Rögnvaldur Jónsson, bóndi og
kennari í Flugumýrarhvammi og
Ingibjörg Jónsdóttir. Maki er Ásdís
Björnsdóttir bankamaður og eiga
þau tvö uppkomin börn.
Hjá Vegagerðinni hefur hann
starfað frá árinu 1964 en sama ár
lauk hann námi í byggingarverk-
fræði frá Tækniháskólanum í Stutt-
gart. Afskipti hans af vega- og sam-
göngumálum ná þó enn lengra
aftur í tímann. Á námsárum sínum í
Menntaskólanum á Akureyri var
hann í vegavinnu og brúarvinnu á
Norðurlandi auk þess sem hann
fékkst við ýmis önnur störf. Hann
segir brúarvinnuna hafa verið
áhugavert starf sem án efa hafi ýtt
undir þá ákvörðun hans að leggja
verkfræðina fyrir sig.
Á árunum 1966–69 var Jón um-
dæmisverkfræðingur Vegagerð-
arinnar á Vesturlandi. „Það sem
blasti við mér þá var að ekki einn
einasti vegspotti á Vesturlandi var
með bundnu slitlagi,“ segir Jón og
bendir á að raunar hafi Reykjanes-
brautin sem þá var í byggingu verið
eini vegarkaflinn hér á landi sem
var með bundnu slitlagi.
Á þeim tíma voru umdæmisverk-
fræðingar á landsbyggðinni með
aðsetur í Reykjavík. Jón segir að
þetta fyrirkomulag hafi útheimt
mikil ferðalög.
„Það var næstum því að maður
byggi í bíl á þessum árum,“ segir
hann.
Upp úr 1970 hófust fram-
kvæmdir við lagningu vega út frá
Reykjavík sem Alþjóðabankinn lán-
aði fjármuni til, bæði austur yfir
Hellisheiði og í Kollafjörð, auk ann-
arra verkefna. Stofnuð var sérstök
brautardeild innan Vegagerð-
arinnar og starfaði Jón þar við
hönnun vega. Árið 1976 varð hann
yfirmaður þeirrar deildar sem
raunar hafði þá fengið nýtt nafn,
áætlunardeild. Á árunum1992–94
var hann forstöðumaður tæknisviðs
Vegagerðarinnar og frá 1994 að-
stoðarvegamálastjóri.
Engar stórar breytingar
Jón segir mestu umskiptin sem
orðið hafi í samgöngumálum frá því
hann tók til starfa hjá stofnuninni
að nú sé bundið slitlag komið á stór-
an hluta af aðalvegakerfi landsins.
Enn sé þó nokkuð í að því verkefni
sé lokið.
„Það hefur verið tekið ansi gott
skref í þá átt að við fáum nútíma
vegakerfi og maður hefur átt því
láni að fagna að fá að taka þátt í
þeirri uppbyggingu,“ segir hann.
Spurður hvort einhverra breyt-
inga sé að vænta innan stofnunar-
innar þegar hann tekur til starfa
sem vegamálastjóri segir Jón að
hugsanlega verði einhverjar breyt-
ingar en að engin umbylting muni
þó eiga sér stað innan stofnunar-
innar.
„Ég hef unnið náið með núver-
andi vegamálastjóra sem hefur
unnið ákaflega gott starf hér,“ seg-
ir Jón.
Hann segir að verkefni Vega-
gerðarinnar í næstu framtíð verði
að halda áfram að byggja upp vega-
kerfi landsins.
„Það er heilmikið eftir enn þá við
að byggja upp vegakerfið þannig
að það sé hægt að segja að við bú-
um við nútímalegt kerfi. Og auðvit-
að verður að halda því áfram og
sérstaklega að koma almenna vega-
kerfinu í það horf að það geti talist
mannsæmandi.“
Hann bendir á að áfram verði
unnið að stærri verkefnum, eins og
jarðgöngum og stórum verkefnum
á höfuðborgarsvæðinu. Einnig sé
mikilvægt að halda áfram að huga
að því að stofnunin lagi sig að þjóð-
félaginu hverju sinni, m.a. með
innri skipulagsbreytingum.
Jón Rögnvaldsson hefur verið skipaður í
embætti vegamálastjóra frá og með 1. mars nk.
Mikilvægt að stofnunin lagi
sig að þjóðfélaginu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Jón Rögnvaldsson er fimmti vega-
málastjórinn frá því fyrst var skip-
að í stöðuna árið 1918.
Síðumúla 24 • Sími 568 0606
Tauáklæði
52.900,-
Amerískur Hvíldarstóll