Morgunblaðið - 27.01.2003, Page 12
ERLENT
12 MÁNUDAGUR 27. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Kynning á háskólamenntun á Bretlandseyjum
sunnudaginn 2. febrúar 2003
á Radisson SAS, Hótel Sögu, Reykjavík
klukkan 16.00 -19.00
16.00-16.30 Kynning á háskólamenntun á Bretlandseyjum.
16.30-17.00 Kynning á háskólanum í Warwick.
17.00-17.30 Umsóknir um grunnnám og framhaldsnám.
17.30-18.00 Fyrirspurnir úr sal.
18.00-19.00 Léttar veitingar. Tækifæri til samræðna
við Ben Plummer.
Ben Plummer frá alþjóðaskrifstofu háskólans í Warwick
býður alla velkomna
sem hafa áhuga á ofangreindri kynningu.
Ef þú hefur áhuga á einkaviðtali við Ben Plummer,
vinsamlegast hafðu samband
við Susan Dallas á netfangi S.Dallas@warwick.ac.uk
eða hringdu í síma 00 44 24 7652 8143
og pantaðu tíma.
Hefur þú áhuga á námi á Bretlandseyjum?
ÍSRAELSKAR hersveitir, sem réð-
ust inn í Gaza-borg í gær, urðu tólf
Palestínumönnum að bana og særðu
67 í aðgerðum sem sagðar voru mið-
ast að því að eyðileggja litlar vopna-
verksmiðjur. Varnarmálaráðherra
Ísraels sagði að hann útilokaði ekki að
allt Gaza-svæðið yrði hernumið.
Ísraelsku hersveitirnar réðust
lengra inn í Gaza-borg en nokkru
sinni fyrr frá því að uppreisn Palest-
ínumanna hófst fyrir rúmum tveimur
árum. Palestínumenn sökuðu Ariel
Sharon, forsætisráðherra Ísraels, um
að hafa fyrirskipað árásina til að auka
fylgi Likud-flokksins í þingkosning-
unum í Ísrael á morgun, þriðjudag.
Drengur skotinn til bana
Palestínumenn sögðu að ísraelsku
hersveitirnar hefðu eyðilagt 130
verslanir og verkstæði og aðeins sjö
þeirra hefðu verið málmsmiðjur.
Talsmaður Ísraelshers sagði að her-
mennirnir hefðu eyðilagt yfir 100
rennibeki sem hefðu verið notaðir til
að smíða vopn. Einnig hefðu fundist
nokkur flugskeyti, meðal annars til
árása á skriðdreka.
Sjö ára palestínskur drengur beið
einnig bana í skothríð hermanna þeg-
ar hann var að leik við varðstöð Ísr-
aelshers nálægt flóttamannabúðum í
Rafah á Gaza-svæðinu, að sögn ætt-
ingja drengsins. Sex ára bróðir hans
særðist.
Ísraelsher sagði að engir hermenn
væru á svæðinu en verið væri að
kanna málið. Herinn er með nokkrar
varðstöðvar við landamærin að
Egyptalandi. Herinn kvaðst ætla að
loka alveg Vesturbakkanum og Gaza-
svæðinu í þrjá daga til að koma í veg
fyrir að palestínskir hryðjuverka-
menn gætu truflað þingkosningarnar.
Þegar aðgerðunum lauk í gær-
morgun voru Palestínumennirnir tólf,
sem létu lífið, bornir til grafar í Gaza-
borg, að 30.000 Palestínumönnum
viðstöddum.
Þeir sem féllu voru í palestínskum
öryggissveitum eða vopnuðum hóp-
um. Er þetta mesta mannfall í Gaza-
borg frá því að átökin hófust.
Hersveitirnar réðust inn í borgina
eftir að Palestínumenn skutu flug-
skeytum á ísraelska bæinn Sderot á
Negev-eyðimörkinni, nálægt Gaza-
svæðinu, á föstudag. Flugskeytaárás-
unum var haldið áfram í gær.
Reuters
Palestínumenn bera einn tólf Palestínumanna, sem biðu bana í árás
Ísraelshers í gær, til grafar í Gaza-borg.
Þrettán Palest-
ínumenn falla í
árásum á Gaza
Gaza-borg. AP.
COLIN Powell, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, sagði í gær að
Bandaríkjastjórn hefði rétt til að
beita Íraksstjórn hervaldi þar sem
hún hefði ekki orðið við kröfu Sam-
einuðu þjóðanna um að gera grein
fyrir gereyðingarvopnum sínum.
Hann varaði við því að stjórn Sadd-
ams Husseins Íraksforseta kynni að
notfæra sér aðgerðaleysi Sameinuðu
þjóðanna með því að beita gereyð-
ingarvopnum eða aðstoða hryðju-
verkasamtök á borð við Al-Qaeda við
að koma sér upp slíkum vopnum.
„Því lengur sem við bíðum þeim
mun meiri líkur eru á því að þessi
einræðisherra með skýr tengsl við
hryðjaverkahreyfingar, meðal ann-
ars al-Qaeda, sjái þeim fyrir vopnum
eða beiti þeim aftur. Tengslin milli
harðstjóra og hryðjuverka, hryðju-
verkamanna og gereyðingarvopna,
eru mesta vá okkar tíma,“ sagði
Powell í ræðu á árlegum fundi World
Economic Forum í Davos í Sviss.
Telur ekki að vopnaleitin
beri árangur
Yfir 2000 stjórnmálamenn og
frammámenn í viðskiptalífinu sátu
fundinn og margir þeirra vöruðu við
því að stríð í Írak gæti haft alvar-
legar afleiðingar fyrir efnahag
heimsins, leitt til hærra olíuverðs og
aukinnar verðbólgu.
Hans Blix, formaður vopnaeftir-
litsnefndar Sameinuðu þjóðanna, og
Mohamed ElBaradei, yfirmaður Al-
þjóða kjarnorkumálastofnunarinnar
(IAEA), eiga í dag að gefa örygg-
isráði Sameinuðu þjóðanna skýrslu
um vopnaleitina í Írak. Talsmaður
IAEA sagði í gær að ElBaradei
myndi óska eftir því að eftirlits-
mennirnir í Írak fengju meiri tíma,
að minnsta kosti nokkra mánuði, til
að ljúka vopnaleitinni. Rússar,
Frakkar og Þjóðverjar og fleiri þjóð-
ir sem eiga fulltrúa í öryggisráðinu
hafa einnig hvatt til þess að vopna-
leitinni verði haldið áfram og lagst
gegn því að látið verði til skarar
skríða gegn Írökum strax.
Powell hvatti ekki beinlínis til þess
að vopnaleitinni yrði hætt en kvaðst
ekki hafa neina trú á því að hún bæri
árangur. „Hversu mikinn tíma þurfa
Írakar? Þetta er ekki spurning um
tíma, heldur um sannsögli, og Sadd-
am Hussein svarar enn með undan-
brögðum og lygum,“ sagði utanríkis-
ráðherrann. „Saddam ætti að segja
sannleikann – núna.“
Blair vill frekari vopnaleit
Tony Blair, forsætisráðherra
Bretlands, sagði í gær að eftirlits-
mennirnir ættu að fá þann tíma sem
þeir þyrftu til að leita að gereyðing-
arvopnum í Írak. Þegar Blair var
spurður hvort eftirlitsmennirnir
ættu að fá nokkrar vikur eða mánuði
svaraði hann: „Ég tel ekki að það
taki þá mánuði að komast að því
hvort Saddam er samvinnuþýður, en
þeir ættu að fá þann tíma sem þeir
þurfa.“
Jean-Pierre Raffarin, forsætisráð-
herra Frakklands, sagði að Saddam
yrði að auka samvinnuna við eftir-
litsmenn SÞ, ella stæði hann frammi
fyrir stríði sem myndi hafa ófyrirsjá-
anlegar afleiðingar. Hann lagði þó
áherslu á að reyna yrði til þrautar að
leysa málið með friðsamlegum hætti.
Powell sagði að Bandaríkjamenn
áskildu sér rétt til árása á Írak, einir
eða í samstarfi við aðra. Hann gaf þó
til kynna að Bandaríkjastjórn myndi
ekki láta til skarar skríða strax. „Við
ætlum að leiða þessi mál til lykta af
þolinmæði og einurð með vinum okk-
ar og bandamönnum,“ sagði hann.
Powell ræddi ýmis önnur mál í
ávarpinu og sagði að hann teldi
möguleika á því að stofnað yrði „lýð-
ræðislegt og lífvænlegt“ Palestínu-
ríki árið 2005 ef Palestínumenn
„skæru upp herör gegn hryðju-
verkastarfsemi“. Bandaríkjastjórn
væri tilbúin að hefja viðræður við
N-Kóreumenn um að þeir hættu
þróun kjarnavopna og hún hefði eng-
in áform um hernað í Norður-Kóreu.
Powell sakar Saddam
um tengsl við al-Qaeda
Segir Banda-
ríkjastjórn
áskilja sér rétt til
árása á Írak
Davos. AP, AFP.
AP
Colin Powell, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, flytur ræðu á al-
þjóðlegum fundi um efnahagsmál í
Davos í Sviss í gær.
ÍBÚAR Fílabeinsstrandarinnar
ganga framhjá brennandi hjólbörð-
um í Abidjan þar sem tugir þúsunda
manna mótmæltu í gær friðarsamn-
ingi sem náðist fyrir milligöngu
Frakka. Óeirðaseggir réðust á
franska sendiráðið til að mótmæla
samningnum sem þeir segja að
Frakkar hafi þröngvað upp á for-
seta Fílabeinsstrandarinnar. Sam-
kvæmt samningnum á forsetinn að
deila völdum með uppreisnar-
mönnum sem hafa barist gegn
stjórnarhernum í fjóra mánuði.
Reuters
Friðarsamningi mótmælt