Morgunblaðið - 27.01.2003, Side 14
LISTIR
14 MÁNUDAGUR 27. JANÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
KÁTT Á HJALLA
Í HAFNARBORG!
Vegna mikillar aðsóknar verða aukatónleikar
í kvöld og annað kvöld kl. 20 í Hafnarborg.
Gleðin ræður ríkjum þar sem Tríó Reykjavíkur
og söngvararnir Sigrún Hjálmtýsdóttir
og Bergþór Pálsson flytja skemmtitónlist
úr ýmsum áttum.
Missið ekki af
þessari einstöku skemmtun!
Miðasala í síma 555 0080 frá kl. 11-17 í Hafnarborg
LITLI leikklúbburinn á Ísafirði og
Tónlistarskóli Ísafjarðar standa
nú sameiginlega að æfingum á
söngleiknum Söngvaseið (Sound
of music) sem frumsýndur verður
um miðjan mars. Leikstjóri er
Þórhildur Þorleifsdóttir. Messíana
Tómasdóttir hannar leikmynd og
búninga, Janusz Frach tónlistar-
kennari stýrir hljómsveitinni og
Beáta Joó tónlistarkennari og
kórstjóri er tónlistarstjóri.
Leikhópurinn er skipaður bæði
nýgræðingum og vanara fólki.
Guðrún Jónsdóttir óperusöngkona
fer með hlutverk Maríu, barn-
fóstrunnar ungu. Guðmundur
Óskar Reynisson fer með hlutverk
Von Trapps höfuðsmanns en börn
hans voru valin úr hópi um 50
ungmenna af öllum aldri sem
sóttu prufur. Í hlutverkum nunn-
anna í klaustrinu eru söngnem-
endur tónlistarskólans og annað
vant söngfólk og fyrir þeim í hlut-
verki abbadísinnar er Ingunn Ósk
Sturludóttur óperusöngkona.
Þetta er í fyrsta skipti sem
áhugaleikfélag setur upp þetta
margfræga verk á Íslandi og í
fjórða skiptið sem það er sett upp
hér á landi, en áður hefur Þjóð-
leikhúsið sett það upp tvisvar og
Leikfélag Akureyrar einu sinni.
Guðrún Jónsdóttir æfir hlutverk Maríu og hluti barnanna fylgist með. Frá
vinstri: Anna, Ingibjörg, Þórunn Arna, Helgi Þór og Andri.
Samstarf um
Söngvaseið á Ísafirði
LISTAHÁTÍÐIN
Circuit í Barcelona,
sem haldin verður 7. til
9. febrúar, verður að
þessu sinni helguð Ís-
landi. Mun hún kallast
„It’s up to Reykjavík“.
Circuit var fyrst
haldin árið 2000 og
hefur verið haldin
tvisvar á ári síðan og
er hver hátíð tileinkuð
einu landi. Síðast var
hátíðin tileinkuð
Portúgal og voru
portúgalskir og
spænskir listamenn og
hönnuðir saman með
sýningar í þá þrjá daga
sem hátíðin stóð.
„Upphafsmaður Circuit er Paul-
inha Rio en hún er þekktur fatahönn-
uður á Spáni. Yfirskrift hátíðarinnar
er „tíska, list, tónlist“ og brýtur
Circuit upp gamlar hefðir í list-tján-
ingu og fatahönnun en stór hluti há-
tíðarinnar er tískutengdur.
Á síðustu hátíð voru tíu tískusýn-
ingar frá bæði Portúgal og Spáni
ásamt innsetningum, listsýningum,
tónleikum, danssýningum og öðrum
uppákomum,“ segir Hólmfríður
Ólafsdóttir sem skipuleggur hátíðina
frá Reykjavík ásamt Önnu Maríu
McCrann. Að sögn þeirra hefur
Circuit notið mikillar athygli á Spáni
og eru um 300 innlendir sem erlendir
aðilar frá fjölmiðlum sem fylgjast
með hátíðinni sem þykir einkar
glæsileg og fagmannlega unnin.
Um nýliðna helgi voru staddir hér-
lendis dagskrágerðarmenn frá TV2 á
Spáni og tóku viðtöl við þá tískuhönn-
uði sem verða á Circuit. Fókusinn
verður á Reykjavík og er ætlunin að
fjalla um fatahönnun, tónlist, kvik-
myndagerð, myndlist og annað sem
gerir Reykjavík að menningarborg.
„Circuit er haldin á sama tíma á
vorin og Gaudi-tískusýningin sem er
ein sú stærsta í heimi. Undanfarin ár
hafa Circuit og Gaudi verið í góðri
samvinnu og eru sölusýningar frá
báðum aðilum undir sama þaki. Þetta
hefur opnað dyr fyrir fjölmarga
tískuhönnuði sem hafa gert góða
samninga að listahátíðinni lokinni,“
segir Hólmfríður.
Tuttugu og fjórir listamenn frá Ís-
landi fara til Barcelona. Hljómsveit-
irnar Gusgus og Trabant munu halda
tónleika og DJ Þór (Þórhallur Skúla-
son) spilar á uppákomum. Þeir lista-
menn sem fara með verk á sýninguna
eru Gabríela Friðriksdóttir, Ás-
mundur Ásmundsson og Magnús
Jónsson. Einnig munu nokkrir fata-
hönnuðir taka þátt í sýningunni,
Steinunn Sigurðardóttir, Bára og
Hrafnhildur Hólmgeirsdætur og
Þuríður Sigurþórsdóttir og Hugrún
Árnadóttir. Einnig verður verk eftir
Finnboga Pétursson á sýningunni og
Halldóra Emilsdóttir með verk úr
húfum.
Þeir sem hafa lagt Circuit og ís-
lensku listamönnunum lið eru Höf-
uðborgarstofa, menningarmálanefnd
Reykjavíkurborgar, iðnaðarráðu-
neytið, menntamálaráðuneytið og
Flugleiðir.
Nánari upplýsingar eru á slóðinni
www.circuitonline.net.
Listahátíð í Barcelona
tileinkuð Reykjavík
Gabríela
Friðriksdóttir
Finnbogi
Pétursson
MARGRÉT Bóasdóttir, sópran, og
Miklós Dalmay, píanóleikari, halda
tónleika í Þórshafnarkirkju á morg-
un, mánudagskvöld, kl. 20.
Flutt verða sönglög eftir Atla
Heimi Sveinsson, Elínu Gunnlaugs-
dóttur, Þorkel Sigurbjörnsson, L.
Bernstein og Modest Mussorgsky og
fjalla lögin öll um leiki og reynsluheim
barna. Miklós leikur píanóverkið
„Myndir á sýningu“ eftir Muss-
orgsky, þar sem tónskáldið dregur
upp tónmyndir myndverka frá sýn-
ingu vinar síns í Rússlandi á 19. öld.
Flytjendur munu fjalla lítillega um
verkin. Tónleikarnir eru samstarfs-
verkefni Þórshafnarhrepps og Félags
íslenskra tónlistarmanna, með styrk
frá menntamálaráðuneyti.
Tónleikar
fyrir börn
á Þórshöfn
Miklos Dalmay Margrét Bóasdóttir
PÍKUSÖGUR eftir Eve Ensler
slógu eftirminnilega í gegn hér á landi
í hittifyrra. Þær voru sýndar fyrir
fullu húsi mánuðum saman enda er
hér um að ræða verk sem varla á sinn
líka í leikbókmenntunum. Tilurð
verksins er þannig tilkomin að höf-
undurinn tók viðtöl við ríflega 200
konur, á öllum aldri og af ólíkum upp-
runa, þar sem hún reyndi að fá þær til
þess að tjá sig um viðhorf sín til lík-
ama síns og kynlífs. Ensler samdi ein-
þáttung, The Vagina Monolouges,
upp úr viðtölunum þar sem hún dreg-
ur fram hugmyndir og ranghug-
myndir þær sem hafa verið ríkjandi
um konur og líkama þeirra, og sér-
staklega fjallar hún um þennan
„leynda stað“ sem lengi vel mátti ekki
nefna upphátt meðal „siðaðra“
manna, en til eru um ótal niðrandi
heiti og uppnefni. Einleikur Ensler
snertir á flestu því sem tengist
reynslu kvenna af því að vera kynver-
ur – jafnt jákvæðum sem neikvæðum
hliðum: ást og ótta, umhyggju og mis-
notkun, nautn og ofbeldi, stolti og
sjálfsfyrirlitningu, svo fátt eitt sé
nefnt. Verkið er frábærlega skrifað
og spannar allt litróf tilfinninganna,
allt frá blíðu og nautn til misnotkunar
og ofbeldis. Umfram allt er verkið óð-
ur til kvenlíkamans og þeirrar fjöl-
breytilegu reynslu og tilfinninga sem
hann getur rúmað.
Sú útgáfa af Píkusögum sem flutt
var á Baksviði Borgarleikhússins síð-
astliðið laugardagskvöld er nokkuð
stytt og var gerð sérstaklega fyrir
leiklistarhátíð í Þórshöfn í Færeyjum
síðastliðið sumar. Sýningin í Færeyj-
um vakti mikla athygli og tók fær-
eyski leikflokkurinn Gríma verkið til
flutnings í fullri lengd og sló sú sýning
öll aðsóknarmet um leið og hún vakti
ákafar deilur meðal eyjaskeggja.
Það voru fjórar norrænar leikkon-
ur sem fluttu þessa „norrænu“ útgáfu
Píkusagna (Ginusögur) í Borgarleik-
húsinu á laugardagskvöldið. Krist-
björg Kjeld flutti sinn hluta á ís-
lensku, færeysku töluðu þær Birita
Mohr og María Ellingsen og hin
danska Charlotte Bøving lék á sínu
móðurmáli. Að vissu leyti má segja að
sú staðreynd að leikið var á þremur
tungum í stað einnar gefi verkinu
auka slagkraft; það er einmitt mark-
mið höfundar að koma á framfæri
reynslu og tilfinningum sem allar
konur eiga sameiginlega, án tillits til
uppruna, stöðu, stéttar, aldurs, kyn-
þáttar eða þjóðernis. Leikkonurnar
fjórar voru samstilltar og allar hríf-
andi. Kristbjörg Kjeld lýsti fæðingu á
ógleymanlegan máta, Charlotte Bøv-
ing snerti mann djúpt í flutningi sín-
um á ólýsanlegu ofbeldi, og færeyska
þeirra Maríu og Biritu var fögur og
heillandi þótt maður skildi kannski
ekki hvert orð – nóg til að halda þræði
þó. Hinn stórkostlegi (og alþjóðlegi)
„stunu-kafli“ verksins var fluttur
nokkuð styttur (því miður) af Maríu,
sem uppskar fagnaðarlæti áhorfenda
fyrir vikið.
Þessi sýning verður ekki endurtek-
in, en þeir sem hana sáu skemmtu sér
konunglega og rúsínan í pylsuendan-
um var færeyska söngkonan Eivör
Pálsdóttir sem kom fram að sýningu
lokinni og flutti nokkur lög, flest
frumsamin. Eivör er frábær laga-
smiður, gítarleikari góður og hefur
guðdómlega rödd sem vonandi á eftir
að heyrast sem oftast hér á landi sem
annars staðar.
Norrænt
kvennasamstarf
LEIKLIST
Borgarleikhúsið
Eftir Eve Ensler. Stytt útgáfa á færeysku,
dönsku og íslensku. Leikarar: Birita
Mohr, Charlotte Bøving, Kristbjörg Kjeld
og María Ellingsen. Baksvið Borgarleik-
hússins 25. janúar
Ginusögur
Soffía Auður Birgisdóttir
„Leikkonurnar fjórar voru samstilltar og allar hrífandi,“ segir í umsögn.