Morgunblaðið - 27.01.2003, Side 21

Morgunblaðið - 27.01.2003, Side 21
gengni við börn sem fullorðna. Skip- aði ekki fyrir en stakk upp á verk- efnum og lausnum. Það var mikil fjölskyldustemmning í starfsliði skólans. Við Svarfdælingar höfðum gengið í gegnum erfitt sundurlynd- istímabil. Svo gerðum við Björn að oddvita, rígurinn hvarf og menn undu sáttir. Birni Þórleifssyni var svo margt gefið að helmingurinn var meira en nóg. Hann vann hluti fljótt og vann sér þá leikandi létt, hvort sem það var að setja saman stundaskrár, mat- búa til veislu, semja greinargerðir eða stjórna verkum í skóla og fé- lagsmálum. Hann var afar næmur og minnugur á tónlist og gamansöngv- ari af guðs náð sem söng af sannri músík. Hann var sá hraðkvæðasti maður sem ég hef nokkurn tíma kynnst eða mun kynnast. Ég held líka sá minnugasti á allt mögulegt, merkilegt og ómerkilegt. Og lét lítið yfir öllu sem hann gerði. Hann leysti verkefni sín eins og sjálfkrafa í krafti náðargáfu en ekki af kappsemi eða metnaði. Kannski var sá styrkur í raun veikleiki hans. Þegar verkið var unnið gerði hann um það brandara og hló að. Björn hafði ytra borð sem hann hélt að heiminum. Það var fullt af glensi og hlátri. Í góðra vina hópi og góðu tómi var hann stundum eins og síflæðandi brunnur fyndni og snjall- yrða. Áreynslulaust. Sáldraði kring- um sig gullkornum með eftirhermi, skopsögum og vísum, oft um við- stadda. Maður var staddur í revíu. Aðrir gátu bara hallað sér aftur, hlegið og notið náðargjafarinnar. Hann gat líka alveg vent kvæðinu í kross og talað í alvöru, sýndi þá næman skilning á mönnum og mál- efnum, nærfærni við náungann og fundvísi á kjarna mála. Þá var ekki síður gott að hlusta á hann og hlýða hollum ráðum. Ég vissi þó að hann var bæði skap- ríkur og viðkvæmur. Og líklega voru dökkir blettir í sálinni sem gátu stækkað. En hann faldi þá og faldi vel. Aldrei myndi hann bera harma á torg, og ógjarnan biðja um hjálp. Líklega var það annar veikleiki hans. Leiðin lá fram á svarta bakkann. Eitthvað rak hann þar fram af. Eng- inn veit hvað. Einkunnarorðin gætu því verið hið fornkveðna: Glaður og reifur skyli gumna hver uns sinn bíður bana. (Úr Hávamálum.) Þórarinn Hjartarson. Það var mikið reiðarslag að fá fréttirnar af andláti Björns föstudag- inn 17. janúar. Svo margt sem þaut í gegnum hugann. Björn og Júlla og foreldrar mínir hafa verið miklir vinir frá því að ég man eftir mér. Þau hafa eytt ófáum stundum saman og þegar við börnin vorum að alast upp fengum við alltaf að vera með. Ógleymanlegar eru all- ar ferðirnar norður í Svarfaðardal. Þar var alltaf svo gaman og gott að vera. Allir höfðu nóg fyrir stafni, hvort sem það var utan eða innan dyra. Tvö sumur, rétt áður en ég komst á unglingsaldurinn, fékk ég að vera barnapía á Húsabakka. Þá var ég ein af fjölskyldunni á Húsabakka og Björn lét það skýrt í ljós að ef ég ætl- aði að fá að giftast honum Lárusi þá yrði ég að fara að borða fisk. Vorið 1998 ákvað ég að prófa að flytja ein til Akureyrar og kenna við Brekkuskóla. Ég vissi að ég fengi að vera inni á gafli hjá fjölskyldunni í Holtagötu og þar sem ég var ein var visst öryggi í því að vita til þess að ég ætti þar fjölskyldu. Um sumarið var Björn svo ráðinn skólastjóri við sama skóla. Það gladdi mig mikið þegar ég vissi að Björn yrði yfirmaður minn í þessu nýja starfi. Núna finnst mér það svo mikils virði að hafa ekki ein- ungis fengið að vera mikið inni á heimili hans þessa þrjá vetur sem ég bjó fyrir norðan heldur líka að hafa fengið að starfa með honum allan tímann. Þegar ég útskrifaðist úr Háskóla Íslands var haldin veisla og Björn sagði þar nokkur orð. Hann byrjaði á því að þakka Gumma fyrir að sjá til þess að ég yrði lengur fyrir norðan. Mér þótti svo vænt um þessi hnyttnu orð Björns. Hann var aldrei í vand- ræðum með að koma fyrir sig orði. Sagnagleðin var mikil og milli jóla og nýárs las ég sögu eftir hann, sem nú er komin á prent, um það þegar lúsin kom í Holtagötuna. Ég hafði oft heyrt þessa sögu og nú er svo mikils virði að hún skuli vera komin í bók. Ég sé Björn fyrir mér að horfa á fótbolta með bauk í hendi, stýra kennarafundum, elda mat í Holtagöt- unni, segja skemmtilegar sögur … myndirnar í huganum eru ótal marg- ar. Þegar ég horfi á myndirnar er mér efst í huga þakklæti fyrir að hafa þekkt Björn, vænan mann sem var til staðar fyrir mig og átti þátt í uppeldi mínu. Elsku fjölskylda, hugir okkar eru hjá ykkur. Guð veri með ykkur. Ásdís Arnalds. Hann byrjaði sem hver annar dag- ur, föstudagurinn 17. janúar, en seinnipartinn fengum við þær skelfi- legu fréttir að vinur okkar, hann Björn, hefði kvatt þetta líf. Kvatt fjölskylduna, vinina og lífið. Eftir stöndum við og spyrjum en fáum engin svör. Við sumu er engin svör að hafa. Þau Björn og Júlla höfðu verið ná- grannar okkar í um 12 ár í Holtagöt- unni þegar þau fluttu sig yfir ána á síðasta ári. Margt hefur verið gert á þessum árum, en upp úr standa allar okkar gleðistundir. Mikið grín og sprell hefur verið gert t.d. á stóraf- mælum okkar hér í götunni. Mörgum helgum á sumrin eyddum við saman á „hverfispallinum“, morg- unmatur ekki óalgengur, sem teygð- ist yfir í grill um kvöldið með sjálfan grillmeistarann Björn við kolin. Spjall, grín, stökum fleygt og sagðar sögur. Þriggja daga stórhátíðin okk- ar, „Halló Holtagata“, eins og Björn nefndi hana, er hefð og skiptir engu þótt burt sé flutt, hátíðin síðast bara færð í Borgarsíðuna og þar gist. Jólagleði, þorragleði, Illugastaða- ferðir, alltaf fjör, sögur, skyldusögur og söngur. Við höfum upplifað ým- islegt saman: barnauppeldi (lúsina), fermingar, stúdenta, giftingar, afa og ömmutitla og nú sorgina. Björn var mikill gleðimaður en bar ekki tilfinningar sínar og innstu hugsanir á torg. Eitthvað brast á bak við grímu gleði og kátínu. Nú er hann farinn og stórt skarð höggvið í okkar hóp, en við yljum okkur við góðu minningarnar um vænan vin og kveðjum hann með trega. Áfram munum við halda okkar stundir án hans, og jafnvel segja sögurnar hans, með hann í hugum okkar. Elsku Júlla, vonandi getum við stutt þig og styrkt um ókomna tíð. Sigga Ásta, Þórhildur, Lárus, Héðinn og Tolli, megi minningin um góðan pabba veita ykkur styrk. Holtagötugengið: Ester – Nói, Þóra – Sigurjón, María – Ágúst, Ása – Einar og börn. Stundum verður framvinda lífsins með öllu óskiljanleg, eins og þegar við heyrðum af skyndilegu fráfalli Björns vinar okkar. Við erum þrumu lostin og botnum ekki neitt í neinu. Síðan þá hafa minningar frá 30 ár- um ruðst fram. Í huganum höfum við hlustað á Björn flytja listilega frum- samda bragi með einstökum orða- leikjum og orðgnótt. Oft söng hann þá með sinni fallegu rödd og flutti með tilþrifum sem hver lærður leik- ari væri fullsæmdur af. Hann var svo sannarlega fremstur meðal jafningja í vinahópnum sem skemmti sér sam- an í þrettándaveislunum í Byggða- veginum. Hugurinn hefur leitt okkur í bóka- leik í jólaveislunum á Húsabakka og við höfum endurlifað Evrópuferðina með Birni og Júllu, þar sem snilling- urinn batt ferðasöguna í rím og stuðla með einni limru á dag. Við höfum setið með kaffibolla á Bláu könnunni með vínarbrauðsdrengja- kórnum, verið í ævintýralegu fer- tugsafmæli Björns og Júllu á Grund- inni og snætt gómsæta rétti listakokksins Björns í Holtagötunni. Einnig höfum við síðustu dagana gengið í huganum í fylgd göngu- garpsins Björns upp að Nykurtjörn, inn á Skíðadal og svo auðvitað á Skálakambinn. Og ennþá fyrr var Björn náinn vinur á stúdentabænum á Kringsjá. Auk alls þessa leita á hugann bjartar minningar um snjall- an og afkastamikinn fagmann og hugmyndaríkan vinnufélaga. Minningarnar taka engan enda og rauði þráðurinn er glaðværð og snilld. Nú ræður djúp sorg ríkjum í hugum okkar, ásamt spurningunni stóru um það af hverju svona hafi þurft að fara. En við erum umfram allt afar þakklát fyrir að hafa átt svona góðan og gjöfulan vin. Elsku Júlla, Þórhildur, Sigga Ásta, Tolli, Héðinn, Lárus og Hörð- ur. Við sendum ykkur og öðrum ást- vinum Björns okkar innilegustu sam- úðarkveðjur. Valgerður og Teitur. Við minnumst ótal góðra stunda í litlum vinahópi hérna við Eyjafjörð- inn. Þetta byrjaði löngu áður en við fluttum norður og var eitt af því sem heillaði okkur til að flytja hingað. Við minnumst síðustu Þorláksmessu. Við tókum þátt í friðargöngu frá Akur- eyrarkirkju og niður á Ráðhústorg. Þetta var ganga gegn stríði. Um kvöldið sátum við saman og spjöll- uðum um heimsmálin, stríðshætt- una, um allt milli himins og jarðar. Þrátt fyrir að hörmungarnar vofðu yfir var skemmtilegt þetta kvöld. Þetta var eitt af þessum kvöldum fullt af alvöru og gamni. Björn var þar að vanda hrókur alls fagnaðar þótt stríðið væri honum ofarlega í huga. Kannski var þessi dagur lýs- andi fyrir Björn. Hans lífsstarf var á sviði mann- legra samskipta, mannúðarmála og skólastarfs. Hann var alls staðar far- sæll í starfi, skemmtilegur og hlýr í samskiptum og kom öllum málum til betri vegar. Hann var þekktastur fyrir snjallar ferskeytlur og gaman- kvæði. Þrátt fyrir léttleikann á ytra borði ólgaði undir samúðin með þeim sem minna mega sín, samúð með þeim sem líða fyrir illa meðferð, of- sóknir og stríð. Það er stórt skarð höggvið í vina- hópinn með fráfalli Björns. En hann lifir samt áfram með okkur, hann lifir í skáldskap sínum og skemmtilegum sögum og hann lifir í söknuðinum. Ekkert verður sem fyrr en samt heldur lífið áfram. Minningin um yndislegan mann mun tengja okkur enn sterkari böndum en áður. Elsku Júlla og börn. Við stöndum frammi fyrir dapurlegri staðreynd og gerum best með því að reyna að nýta okkur þá erfiðu reynslu okkur öllum til góðs. Innilegustu samúðar- kveðjur. Ingibjörg Hjartardóttir og Ragnar Stefánsson. Það var á sólfögrum ágústdegi ár- ið 1998 sem Björn Þórleifsson hringdi til mín og spurði hvort ég gæti fundið sig að máli. Spurning Björns kom mér nokkuð á óvart þar sem við á þessum tíma vorum varla meir en málkunnugir. Báðir áttum við það þó sameiginlegt að við höfð- um sóst eftir að verða skólastjórar við Brekkuskóla þegar staða skóla- stjóra var auglýst nokkru fyrr um sumarið og hafði Björn hreppt hnossið. Erindi hans var að kanna hvort ég gæti hugsað mér að starfa með honum sem aðstoðarskólastjóri alla vega næstu tvö árin, en honum lá á svari, tíminn var naumur þar sem skóli hæfist senn. Eitthvað gerði það að verkum að ég taldi mig ekki þurfa að hugsa mig lengi um. Það var ým- islegt í fari þessa manns sem gerði mig vissan um að ég væri að gera rétt. Betri og elskulegri samstarfs- og yfirmann gat ég ekki hugsað mér. Strax í upphafi samstarfs okkar kom í ljós að við höfðum býsna líkar skoð- anir á því hvernig staðið skyldi að skólahaldi og með hvaða hætti best væri að umgangast börn og unglinga og raunar fólk yfirleitt. Það var Birni afar kært að sjá þegar viðkvæm mál nemenda okkar fengu farsælan endi og það voru forréttindi að fá að fylgj- ast og læra af með hvaða hætti hann tók á málum þegar mest á reyndi. Það má segja að þá hafi honum farn- ast best. Brekkuskóli var í raun ný stofnun sem hafði aðeins starfað í eitt ár. Því þurfti víða að taka til hendi við að samhæfa og samræma. Til þessara verka gekk Björn af mikilli einurð en jafnframt sérstakri nærgætni og skilningi á því að ekki voru allir á eitt sáttir um réttmæti þess að gömlu skólarnir væru sameinaðir. Því var alls ekki vandalaust að stýra því upp- byggingarstarfi sem framundan var. Það er mín bjargfasta skoðun að án Björns Þórleifssonar hefði ekki tek- ist jafn vel til og raun ber vitni. Þar vó þungt einstakur léttleiki hans og kímnigáfa ásamt afburða hæfni til að laða fram það jákvæða og góða í hverjum einstaklingi. Síðastliðið vor hafði Björn ákveðið að fara í námsleyfi og setjast á skóla- bekk við Háskólann á Akureyri til að auka enn við þekkingu sína á stjórn- unarsviðinu. Ekki síst fyrir orð Björns og fullvissu um að hann kæmi aftur til starfa tók ég að mér að stýra Brekkuskóla í fjarveru hans. Fram undan voru krefjandi tímar þar sem tekin hafði verið ákvörðun um að byggja við skólann og breyta eldra húsnæðinu á óvenjulegan og spenn- andi hátt. Ég vissi að Björn hlakkaði til að takast á við að móta skólann í nýju húsnæði og leysa margháttuð og ögrandi verkefni á undirbúnings- tímanum. Því til staðfestingar starf- aði hann af miklum áhuga með verk- efnisliðinu að undirbúningi fram- kvæmda þrátt fyrir að vera í leyfi frá störfum. En á einu augnarbliki hefur sú vissa um að okkur auðnaðist að vinna áfram með okkar öfluga starfsliði að vexti og viðgangi Brekkuskóla orðið að engu. Eftir stendur allt skólasam- félagið hnípið með óteljandi spurn- ingar sem aldrei verður svarað. En minningin um góðan vin og félaga stendur eftir. Ég kveð kæran starfs- félaga og vin sem ég gat óhræddur leitað til og fengið hjá stuðning og leiðbeiningu sem ég þurfti á að halda hverju sinni. Fyrir hönd okkar allra í Brekku- skóla, jafnt starfsfólks sem nemenda, þakka ég fyrir réttsýna og mannbæt- andi leiðsögn. Júlíönu og öðrum að- standendum votta ég mína dýpstu samúð og bið Guð að blessa þau öll. Sigmar Ólafsson. Haustið 2000 settist sundurleitur hópur kennara saman á skólabekk í HA með einbeitta sýn á meistara- gráðu í fyllingu tímans. Skóladagur- inn var oft langur og í hádeginu þeg- ar flest okkar settust niður til að nærast skrapp brosmildur Björn frá til að stjórna skólanum sínum af alefli í klukkutíma. Svo var hann mættur á ný og dró tebrúsann sinn upp úr brúnni skjóðu og gerði okkur hinum skömm til þegar kennararnir hlýddu okkur yfir. Á föstudögum áttu klukkugarm- arnir það til að hægja á sér og þegar doði sótti að mannskapnum, oftast um fjögurleytið þegar aðferðafræðin varð þreyttum heilabúum ofviða, gát- um við treyst því að brátt myndi Björn slengja fram vísukorni andan- um til upplyftingar. Þannig verður minningin: Klukkan að verða fjögur á föstudegi, Björn og brosið, tebrús- inn, brúna taskan og vísurnar. Við söknum góðs drengs og minn- ingin um hann mun lifa með okkur áfram í námi og starfi. Við sendum eiginkonu, börnum og aðstandendum okkar dýpstu samúðarkveðjur. Bekkjarsystkini í HA. Fallinn er frá á besta aldri öðling- urinn Björn Þórleifsson, skólastjóri Brekkuskóla á Akureyri. Björn tók við skólanum í brotsjó- um sameiningar Gagnfræðaskóla Akureyrar og Barnaskóla Akureyr- ar. Mörg okkar höfðu haft spurnir af þessum glaða og reifa dreng gegnum hans góðu konu, Júlíönu Lárusdótt- ur, sem kenndi við skólann lengi, og kom svo aftur til starfa með okkur eftir nokkurt hlé, svo og þeirra mannvænlegu börn, sem stunduðu hér nám um árabil. Breytingarnar voru óeðlilega örar á þessum tíma. Fór Björn fyrir liði sínu af mikilli festu en þó af fullri kurteisi og vann að því markmiði að gera Brekkuskóla að góðum skóla sem skipaði sér í raðir hinna fremstu. Þegar mest mæddi á stóð hann við stýrið líkur sjósóknurum fortíðar, rýnandi í stórhríðarbylinn og gætti jafnt að áhöfn sem ágjöf, enda þrælsjóaður í fyrri störfum í mennta-, félags- og öldrunargeira. Þegar lendingu var náð, vildu margir „Lilju kveðið hafa“. Baráttan var hörð fyrir bættri að- stöðu við skólann og gladdi það Björn mjög þegar ákvörðun var tekin um veglega nýbyggingu seint á síðasta ári. Björn var ekki maður æsinga eða hávaða, en brá gjarnan fyrir sig kímni og hinu bitra vopni, ferskeytl- unni, enda var maðurinn yfirlýstur „öryrki“ í hópi kvæðamanna. Ófáar vísur og jafnvel kvæðabálkar liggja eftir hann í skólanum ortar af marg- víslegu tilefni, svo sem auglýsingar um kennarafundi, spaugileg afrek starfsmanna og frásagnir af misvitr- um ákvörðunum yfirvalda. Stjórn Björns á skólanum var sér- lega góð og farsæl, hann treysti sínu starfsfólki og var hann því mjög góð- ur. Fyrir það þökkum við nú. Mikill harmur er að fjölskyldunni kveðinn. Við biðjum um styrk fyrir Júlíönu, börnin og aðra aðstandend- ur í sorg þeirra. Starfsfólk Brekkuskóla. Og sjálfur vísdómssæði í tímans skaut ég sáði líka – og þennan ávöxt hlaut af allri minni ræktun, vökva og von: „Sem vatn ég kom og fer sem gola á braut.“ (Omar Khayyam: úr Rubaiyat.) Eins og garðyrkjumaðurinn hlúir að og vökvar sprota sína, sem eiga að vaxa og dafna, hlúir skólafólk að ung- um skjólstæðingum sínum. Nemendur Björns Þórleifssonar eru orðnir æði margir í gegnum tíð- ina. Þeir eiga eftir að minnast kenn- ara og skólastjórnanda með virðingu, ánægju og þökk. Björn var ötull við að benda nemendum á að allt nám ætti eftir að nýtast til góðs, þó svo að þeir hygðu ekki á langskólanám. Einnig lagði hann mikið upp úr því að rækta með nemendum víðsýni, sam- viskusemi og benda á að hver ein- staklingur væri mikilvæg fyrirmynd þeirra sem yngri væru í skólasam- félaginu. Mannræktarstarf af þessu tagi hefur aldrei verið auðvelt en enginn velkist í vafa um mikilvægi þess. Við sem störfuðum með Birni sem skólastjórnendur á Akureyri vitum að stundum gefur á bátinn og róð- urinn getur verið okkur erfiður um tíma uns við komumst aftur á lygnari sjó. Þá er gott að koma saman, ræða málin og heyra skoðanir samstarfs- manna. Björn var lítið fyrir það að flækja mál eða velta þeim á undan sér og var oft fljótur að finna góðar lausnir á hinum ýmsu viðfangsefnum sem allir gátu unað við. Samhugur hefur verið góður í hópnum okkar og það var ekki síst Birni að þakka. Oftast sá hann skoplegar hliðar á hinum ýmsu málum sem við vorum að fást við, þannig að fundirnir okkar voru skemmtilegir, ekki síður en gagnleg- ir. Allt of fljótt er komið að kveðju- stund. Skarð er höggvið í hóp okkar og við söknum vinar í stað. Við þökk- um Birni fyrir samstarf og góðar stundir og biðjum honum guðs bless- unar. Við sendum Júlíönu og fjölskyld- unni allri okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Skólastjórnendur á Akureyri. Kveðja frá Kór Akureyrarkirkju Hann var hrókur alls fagnaðar. Húmorinn aldrei langt undan. Vísna- gerðin eins og að drekka vatn. Söng fyrsta bassa. Björns Þórleifssonar er sárt sakn- að. Hann var einstakur félagi sem við öll höfðum miklar mætur á. Fyrir nokkrum árum gekk hann í raðir okkar félaga í Kór Akureyrarkirkju og æ síðan var hann ómissandi bassi, var lengi vel sjálfkjörinn raddfor- maður. Björn hafði yndi af söngnum og inn á milli atriða skaut hann fram húmorískum vísum eða limrum. Ekkert var honum óviðkomandi í MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. JANÚAR 2003 21

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.