Morgunblaðið - 27.01.2003, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. JANÚAR 2003 29
DAGBÓK
HEIMILISIÐNAÐARSKÓLINN
Laufásvegi 2, 101 Reykjavík, s. 551 7800, fax 551 5532.
NETFANG hfi.@islandia.is
Handverk
Stutt og löng námskeið
Þjóðbúningar kvenna: 27. jan. - 7. apríl, mán. kl.19.30 - 22.30
Þjóðbúningar kvenna: 30. jan. - 10. apríl, fim. kl 15.00 - 18.00
Möttull: 30. jan. - 27. feb., fim. kl 15.00 - 18.00
Þjóðbúningar karla: 3. feb.-14. apríl, mán. kl 15.00 - 18.00
Tóvinna: 4. feb. - 4. mars. þri. kl. 19.30 - 22.30
Knipl: 5. feb.-26. mars, mið. kl. 16.00 - 19.00
Knipl: 5. feb.-26. mars, mið. kl. 19.30 - 22.30
Myndvefnaður: 6. feb. - 27. mars, fim. kl. 19.30 - 22.30
Orkering: 12. feb. - 12. mars, mið. kl. 19.30 - 22.30
Baldýring: 17. feb. - 7. apríl, mán. kl. 15.00 - 18.00
Baldýring: 17. feb. - 7. apríl, mán. kl. 19.30 - 22.30
Fatasaumur: 27. feb. - 10. apríl, fim. kl. 19.30 - 22.30
Útskurður: 10. feb. - 10. mars, mán. kl. 10.00 - 13.00
Útsaumur: 12. feb. - 12. mars, mið. kl. 19.30 - 22.30
Sauðskinnsskór: 22. feb. -1. mars, lau. kl 10.00 - 13.00
Skautbúningur og kyrtill: fyrirlestur 2. mars, sun. kl. 14.00
Vattarsaumur: 11. mars - 20. mars, þr. og fim. kl. 19.30 - 22.30
Þæfing: 7. mars. - 4. apríl, fö. kl. 14.00 - 17.00
Þæfing: 8. mars - 5. apríl, lau. kl. 10.00 - 13.00
Þæfing: 8. mars - 5. apríl, lau. kl. 14.00 - 17.00
Hekl: 19. mars - 9. apríl, mið. kl. 19.30 - 22.30
Spjaldvefnaður: 3. apríl - 22. mai, fim. kl. 19.30 - 22.30
Vattarsaumur: 1. apríl - 22. apríl fim. kl. 19.30 - 22.30
Krók- og spaðafaldur: fyrirlestur: 29. apríl, þri. kl. 20.00
Faldbúningur: námskeiðaröð í gangi, laus pláss.
Ódagsett námskeið á vorönn.
Fótvefnaður - Keðjugerð - Víravirki
Prjón - Lopapeysur - Leppar - Sjöl
Gjafabréf - tilvalin tækifærisgjöf
Upplýsingar og skráning virka daga frá kl. 10-19
Sími 551 7800 • Fax 551 5532
Netfang: hfi@islandia.is
www.islandia.is/~heimilisidnadur
verða með Biblíulestra í Breiðholtskirkju
í umsjón dr. Sigurjóns Árna Eyjólfssonar, tíu fimmtudaga
frá 30. janúar til 3. apríl 2003 kl. 20:00-22:00. Verð kr. 4.000.
Skráning á Biskupsstofu í síma 535 1500.
www.kirkjan.is/leikmannaskoli/
Leikmannaskóli þjóðkirkjunnar og
Reykjavíkurprófastsdæmi eystra
Upledger höfuðbeina- og
spjaldhryggjarmeðferð
„Introduction to CranioSacral Therapy“ námskeið verður
haldið 31. janúar og 1. febrúarí Lionshúsinu, Sóltúni 20 Rvík.
Einnig 8. og 9. febrúar á Akureyri. Námskeiðið er ætlað
almenningi, sem vill fræðast um meðferðina og læra
grunnhandtök til að nota á sína nánustu, og fagfólki, sem vill
kynna sér þetta frábæra meðferðarform.
Kennarar eru Erla Ólafsdóttir, sjúkraþjálfari, og Birgir
Hilmarsson, nuddfræðingur, en þau hafa réttindi frá
Upledger Institute. Verð kr. 15.000, kennslubók innifalin.
Upplýsingar í s. 566 7803, Erla, eða 864 1694, Birgir.
Námið Upledger CST-1 verður 1. til 4. mars.
Cranio Sacral Therapy á Íslandi. www.craniosacral.is
Bankastræti 11
sími 551 3930
Útsala
20-50%
afsláttur
VIÐ skulum líta á enn eina
þraut, sem Þórður Sigfússon
valdi úr safni sínu og setti á
heimasíðu Bridssambands-
ins. Spilið fann Þórður í
grein eftir Sylviu Philipson í
sænska tímaritinu Bridge-
tidningen frá árinu 1969:
Norður
♠ KG108
♥ KD
♦ 65
♣D7643
Vestur Austur
♠ 432 ♠ 5
♥ ÁG8 ♥ 96432
♦ G432 ♦ K109
♣852 ♣KG109
Suður
♠ ÁD976
♥ 1075
♦ ÁD87
♣Á
Suður spilar sex spaða og
fær út tromp. Hvernig er
hægt að ná í tólf slagi?
Þegar búið er að berja
þetta spil augum í nokkurn
tíma liggur ljóst fyrir hver
vandinn er: Það er útspilið!
Vestur mun trompa aftur út
þegar hann kemst inn á
hjartaás og þá verður aðeins
hægt að fá sjö slagi á tromp.
Og þrílitur vesturs í trompi
gerir það að verkum að erfitt
er að nýta fimmta laufið, þótt
það á endanum fríist.
En spilið er einkennilegt
að því leyti að við borðið gæti
byrjandi hæglega unnið það
„óvart“. Það spilar sem
nefnilega nokkurn veginn
sjálft. Tígli er svínað í öðrum
slag og síðan er laufásinn
tekinn. Hjarta er að spilað að
hjónunum og vestur tekur
með ás og trompar aftur út.
Það er tekið í borði, lauf
trompað, hjartakóngur tek-
inn og lauf trompað aftur. Þá
er tígulás tekinn og tígull
stunginn í borði.
Staðan er nú þessi:
Norður
♠ K
♥ –
♦ –
♣D7
Vestur Austur
♠ 4 ♠ –
♥ G ♥ 96
♦ G ♦ –
♣– ♣K
Suður
♠ Á
♥ 10
♦ 8
♣–
Lauf úr borðinu er tromp-
að og við það þvingast vestur
í þremur litum, þar á meðal í
tromplitnum! Ef hann hend-
ir öðrum rauða gosanum,
spilar sagnhafi þeim lit og
endurtekur þvingunina. Í
borði bíða hæsta trompið og
frílauf.
Þessi fágæta staða er köll-
uð „Sidney-þvingun“, en
Ástralinn Tim Seres er sagð-
ur hafa uppgötvað hana
fyrstur manna.
BRIDS
Umsjón Guðmundur
Páll Arnarson
ÁRNAÐ HEILLA STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
VATNSBERI
Afmælisbörn dagsins:
Afmælisbarn dagsins er
skipulagt og jákvætt en
á það til að hafa of miklar
áhyggjur út af engu.
Það skemmir.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Það er vandi að velja og því
meiri þeim mun fleira sem í
boði er. Vertu óhrædd/ur við
nýjar hugmyndir. Þær geta
orðið að raunveruleika.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Með réttum ákvörðunum átt
þú að geta komið málum svo
fyrir að þú þurfir ekki að hafa
fjárhagsáhyggjur.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Skipuleggðu tíma þinn svo að
þú komir sem mestu í verk á
sem skemmstum tíma.
Gakktu samt ekki fram af
sjálfri/um þér.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Gefstu ekki upp þótt í móti
blási. Hafirðu eftirsjá get-
urðu aðeins kennt sjálfum/ri
þér um svo það er ekki eftir
neinu að bíða.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Það er nauðsynlegt að gefa
sér tíma til þess að setjast
niður með sínum nánustu og
ræða málin. Þér liði betur ef
þú reyndir að vera örlítið já-
kvæðari.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú hefur slegið pappírsvinnu
á frest en getur nú ekki leng-
ur skotið þér undan henni.
Það mun reynast þér auð-
veldara en þú bjóst við í upp-
hafi.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Það er ekki nóg að sýna
áhuga í orði ef hann er ekki á
borði líka. Vertu fyrri til að
rétta fram sáttahönd, því
sjaldan veldur einn þá tveir
deila.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Tilboðin berast til þín úr öll-
um áttum svo þú ert í mestu
vandræðum með að ákveða
hverjum þú átt að taka og
hverjum ekki. Rístu upp!
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Nú reynir aldeilis á þig í
starfi og eins gott að þú sért
með þitt á hreinu. Við-
urkenndu takmörk þín og
einbeittu þér að starfinu.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Stundum stendur maður
frammi fyrir fleiri mögu-
leikum en hægt er að sinna.
Vertu áfram alæta á bækur.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Eitthvað á eftir að koma þér
svo á óvart að þú munt undr-
ast þín eigin viðbrögð. Þau
eru fullboðleg og aðrir geta
lært margt af vinnubrögðum
ykkar.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þér kann að sýnast langt í
milli þess sem þú hefur og
þess sem þig dreymir um.
Vertu óhrædd/ur við breyt-
ingar því þær eru nauðsyn-
legur þáttur af tilverunni.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Ljósmyndaverið Skugginn
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 10. ágúst 2002 í Sel-
fosskirkju af sr. Gunnari
Björnssyni þau Jóhanna
Snædís Hermannsdóttir og
Sigurður Örn Gunnarsson.
Leggðu þig á láðið
Leggðu þig á láðið,
hvar lækjarbunur hvína.
Farðu svo að þenkja þar
um þig og sköpunina.
Horfðu á jörð og himinsfar,
hafsins firna díki.
Gættu að rétt, hver þú ert þar
í þessu stóra ríki.
Við þá skoðun, vinur minn,
verður lyndið hægra,
og daginn þann mun drambsemin
duftinu hreykja lægra.
Sigurður Breiðfjörð
LJÓÐABROT
1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. d4 cxd4
4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 e5 6.
Rdb5 d6 7. Bg5 a6 8. Ra3 b5
9. Bxf6 gxf6 10. Rd5 f5 11.
Bd3 Be6 12. 0-0 Bxd5 13.
exd5 Re7 14. c3 Bg7 15. Dh5
e4 16. Bc2 0-0 17. Hae1 Dc8
18. Bb3 a5 19. Dg5 Db7 20.
f3 h6 21. Dg3 a4 22. Bc2 b4
23. Rc4 Dxd5.
Staðan kom upp í A-flokki
Corus skákhátíðarinnar sem
fram fór í Wijk aan Zee.
Alexey Shirov
(2.723) hafði
hvítt gegn Vlad-
imir Kramnik
(2.807). 24. fxe4!
Dxc4 25. exf5
Rd5 26. f6 Rxf6
27. Hxf6 Hvítur
hefur nú end-
urheimt manninn
sinn með vöxtum
þar eð kóngs-
staða svarts er
afar veik en mis-
litu biskuparnir
hjálpa honum í
sóknaratlögunni.
27. … Hae8 28.
Hef1 He2 29.
Bd3 Dc5+ 30. Kh1 He3 31.
H6f3 Hxf3 32. Dxf3 bxc3 33.
bxc3 De5 34. c4 Kh8 35. Bc2
Da5 36. Dd3 f5 37. Dxd6
Dc3 38. Bd3 Dd2 39. c5
Dxa2 40. c6 Hg8 41. Dg6
Hf8 42. c7 Dg8 43. Dc6 Hc8
44. Ba6 og svartur gafst
upp.
SKÁK
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
50 ÁRA afmæli. Í dag,mánudaginn 27. jan-
úar, er fimmtug Bára H.
Sigurðardóttir, Lyng-
brekku, Dalabyggð. Bára
og eiginmaður hennar, Sig-
urður B. Hansson, verða að
heiman í dag.
MORGUNBLAÐIÐ
birtir tilkynningar um
afmæli, brúðkaup,
ættarmót og fleira les-
endum sínum að
kostnaðarlausu. Til-
kynningar þurfa að
berast með tveggja
daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga
fyrirvara fyrir sunnu-
dagsblað. Samþykki
afmælisbarns þarf að
fylgja afmælistilkynn-
ingum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og
símanúmer. Fólk get-
ur hringt í síma 569-
1100, sent í bréfsíma
569-1329, eða sent á
netfangið ritstj
@mbl.is.
Einnig er hægt að
skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1,
103 Reykjavík
Ljósmyndaverið Skugginn
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 27. júlí 2002 í Selfoss-
kirkju af sr. Úlfari Guð-
mundssyni þau Kristín
Arna Hauksdóttir og Stef-
án Ingimar Þórhallsson.
Ljósmyndaverið Skugginn
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 10 ágúst 2002 í Lága-
fellskirkju af sr. Pálma
Matthíassyni þau Íris Lind
Ævarsdóttir og Bjarki Þór
Atlason.
Ókeypis lögfræðiaðstoð
öll fimmtudagskvöld milli kl. 19.30 og 22.00 í síma 551 1012
frá okt.-apríl Orator, félag laganema