Morgunblaðið - 27.01.2003, Síða 33

Morgunblaðið - 27.01.2003, Síða 33
BEDDAN – kvikmyndaverðlaun Bíó-Reykjavík, samtaka innlendra sem og erlendra kvikmyndagerðar- manna og áhugamanna – voru af- hent á þriðjudaginn. Hlutskarpast- ur var FAMU 8-hópurinn og fékk hann samtals ellefu Beddur. FAMU 8 er íslensk-alþjóðlegur fjöllistahópur sem starfar í Tékk- landi en í honum eru m.a. Íslend- ingarnir Starkaður Barkarson, Erpur Sigurðsson og Sigurður Hallmar Magnússon. Postac var tekin upp í Prag og fjallar um póst- mann sem kynnir og tengir sögu- persónurnar í myndinni. Postac var valin sem besta mynd hátíðarinnar og FAMU 8-hópurinn bestu alþjóð- legu kvikmyndagerðarmennirnir. Einnig vann myndin öll verðlaun í sínum flokki; kvikmyndatöku, klippingu og besta handrit. Þá vann Lortur-hópurinn ís- lenski sjö verðlaun á hátíðinni fyrir myndirnar Leitin að heiðarlega Arabanum og Íslenska herinn. Norðmaðurinn Gunnar Knutsen var valinn vinsælasti erlendi kvik- myndagerðarmaðurinn og fékk þrenn verðlaun og Gus Gus-hópur- inn sigraði með besta tónlistar- myndbandið fyrir lagið „David“. Hlynur Magnússon sigraði í flokki tilraunamynda með mynd- inni Digital Jesus og Árni og Hrönn Sveinsbörn (Í skóm drekans) og Lortur fengu sérstök stofnenda- verðlaun frá Bíó-Reykjavík fyrir að stuðla að bættri neðanjarðarmenn- ingu hvað innlenda kvikmyndagerð áhrærir. Frekari upplýsingar má nálgast á heimasíðu Bíó-Reykjavík en verð- laun voru afhent í samtals 34 flokk- um. Úrslit Beddunnar – verðlaunahátíðar óháðra kvikmyndagerðarmanna Postac fékk 11 verðlaun Starkaður Barkarson, einn með- lima hins sigursæla FAMU 8- hóps, sem starfar í Prag. TENGLAR .................................................. www.bioreykjavik.com MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 27. JANÚAR 2003 33 ÁLFABAKKI ÁLFABAKKI Sýnd kl. 10 Sýnd kl. 8 og 10 Sýnd kl. 8 Sýnd kl. 8 og 10 KEFLAVÍK / / Sýnd kl. 5. ísl. tal. / Sýnd kl. 8. Enskt. tal. Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. / Sýnd kl. 5 og 7. / Sýnd kl. 6. ÁLFABAKKI KRINGLAN AKUREYRIÁLFABAKKI KRINGLAN AKUREYRI Sýnd kl. 6, 8 og 10. B. i. 14. / Sýnd kl. 5, 7, 8, 9 og 10. B. i. 14. / Sýnd kl. 6, 8 og 10. B. i. 14. Inni held ur e fni s em þú h efði r ald rei feng ið a ð sj á í sjón varp i. Sjúklegasta grínmynd ársins er komin í bíó. Kvikmyndir.is AKUREYRI KEFLAVÍKKEFLAVÍK Sími 552 3030 HUGMYNDIN er í senn frumleg, djörf og góð: Hvernig eldast grúppí- ur? (Grúppa+píur, er nýyrði yfir lagskonur popptónlistarmanna). Lítið hefur verið fjallað um þessa ómissandi herdeild lausgyrtra stelpu glyðra sem eiga eitt markmið í lífinu; að liggja sem flestar rokk- stjörnur. Þær settu ekki síst svip sinn á poppsveifluna á sjöunda ára- tugnum, en þá voru söguhetjur myndarinnar, Suzette (Goldie Hawn) og Lavinia (Susan Sarandon), í blóma lífsins. Urðu sögufrægar af bólfimi sinni og fangbrögðum við flestar goðsagnir poppsögunnar og fengu viðurnefnið Bangersystur, frá sjálfum Frank Zappa! Í byrjun myndarinnar hafa tveir áratugir runnið sitt skeið síðan stöll- urnar gerðu garðinn frægan. Suzette er enn að myndast við fyrri iðju en aldur og fyrri störf farin að setja mark sitt á þessa valkyrju baksviðs- ins. Þegar henni er sagt upp vinnunni á bar í Los Angeles minnist Suzette vinkonu sinnar, sem hún hef- ur hvorki heyrt né séð í áraraðir en hefur fregnað að vegni vel í Phoenix. Hún heldur til fundar við Laviniu á bílgarmi sínum og tekur upp mis- lukkaðan rithöfund (Geoffrey Rush) á leiðinni. Nær fundum við Laviniu sem fyrst vill hvorki sjá né heyra neitt sem rifjað getur upp bakföll hennar á árum rokksköndlanna enda orðin fín frú. Á tvær dætur á tánings- aldri með lögfræðingnum manni sín- um og nánast allt sem hugurinn girn- ist af veraldlegum gæðum. Handritshöfundurinn og leikstjór- inn Bob Dolman er vissulega með gott efni í höndunum en tekst ekki að koma því frá sér á viðunandi hátt. Fundir vinkvennanna, sem nú eru hvor á sínum enda þjóðfélagsstigans, verða aldrei meira en nokkrar bros- legar uppákomur. Allar aukapersón- urnar eru til vandræða, einkum er rithöfundurinn til óþurftar og hefur lítið annað að gera í atburðarásinni en flækjast fyrir. Eiginmaður Livin- iu er einnig ólánlega skrifaður, er hvorki fugl né fiskur þótt hann sé nauðsynlegur sögunni. Gjörspilltar dætur Liviniu eru notaðar til að und- irstrika innihaldsleysi og falska tón- inn í núverandi tilveru fyrrverandi gjálífiskonu en rista ekki djúpt frek- ar en sá meginboðskapur myndar- innar að maður eigi að vera maður sjálfur á hverju sem gengur. Hawn er í sínu besta formi sem hin ráðvillta, allslausa, fyrrum blóma- barn sem hefur hresst upp á ára- fjöldann með fullmikilli barmfyllingu af silíkóni. Hún er enn villt og klár í kollinum á sinn barnalega hátt. Sar- andon fer einnig í gang þegar hún er búin að kasta af sér millistéttargrím- unni, þá glittir í gömlu góðu Louise. Hawn og Sarandon eru stórkost- legar leikkonur og þó að hlutverkin séu hálfköruð er ánægjan að sjá þessar goðsagnir kvikmyndaborgar- innar skemmta sér saman á tjaldinu ein þess virði að sjá myndina. Endurkoma Bangersystra Susan Sarandon og Goldie Hawn sem gömlu grúppíurnar. KVIKMYNDIR Sambíóin Leikstjórn og handrit: Bob Dolman. Kvik- myndatökustjóri: Karl Walter Lindenlaub. Tónlist: Trevor Rabin. Aðalleikendur: Goldie Hawn, Susan Sarandon, Geoffrey Rush, Erika Christensen, Robin Thomas, Eva Amurri. 95 mín. Fox Searchlight Pictures. Bandaríkin 2002. THE BANGER SISTERS (GRÚPPÍURNAR) ½ STJ Sæbjörn Valdimarsson Á TÍMUM epískrar kvikmynda- gerðar og dramatíseraðra veruleika- sjónvarpsþátta, er þáttaröðin Jackass eða Kjánaprik, vissulega tilbreyting. Þáttaröðin, sem hóf göngu sína á MTV-sjónvarpsstöðinni, gengur út á kjánaskap og vitleysisgang, punktur basta. En ólíkt svo mörgum öðrum þáttum og kvikmyndum í afþreying- arlandslagi samtímans, sem ganga út á lágkúru, neðanbeltishúmor og létt- an sadó/masókisma, er engin tilraun gerð til að búa til drama eða eitthvert merkingarsamhengi í kringum asna- skapinn í Jackass-þáttunum. Verk- efni sjömenninganna sem koma fram í þáttunum er einfalt: Að finna upp á fáranlegustu asnastrikum og fram- kvæma þau hvernig sem viðrar. Flest beinast asnastrikin að þátttakendum sjálfum, sem framkvæma hinar ýmsu hugdettur af hreinni forvitni. Hvernig tilfinning skyldi það vera að láta krókódílsunga bíta í geirvörtuna á sér? Látum á það reyna. Já, mjög vont ... Það er þetta fyrirhyggjuleysi, og hlægilega fífldirfska sem gerir Kjánapriks-konseptið bráðfyndið, og kvikmyndina 50% sprenghlægilega. Kvikmyndinni Jackass: The Movie, fylgja engin sérstök tilþrif, þar er ein- faldlega um að ræða lengri útgáfu af þáttunum, sem byggjast á mislöngum senum eða gamanatriðum. Og það er nokkurn veginn helmingurinn af at- riðunum, sem hittir í mark og fær áhorfendur til að hlæja dátt að ein- feldningslegum sjálfheldunum sem persónurnar ana sjálfviljugar út í. Fyrrnefnt krókódílaatriði, sem og önnur atriði er tengjast krókódílum, eru bráðskondin, óbilandi partíandi „partídrengsins“ er hryllilega fynd- inn og hinn algeri skortur á hæfileik- anum til að hugsa hlutina til enda, eins og t.d. þegar lagt er af stað gang- andi á höndum niður brattan stiga í pöndubúningi, vekja hlátur sem er upprunninn á aulalegustu sviðum taugakerfisins. En í atriðum þar sem líkamsvessar og afturendar eru orðn- ir mjög fyrirferðarmiklir er kvik- myndin farin að nálgast það hvimleiða tískufyrirbæri sem gelgjulegur groddahúmor er orðinn í nær flestum gamanmyndum sem Hollywood send- ir frá sér um þessar mundir. Sumir þessara brandara sleppa reyndar fyr- ir horn í krafti þess létta og ósérhlífna húmors sem svífur yfir vötnum, en aðrir fara langt yfir strikið, þannig að eftir stendur lágkúran ein. Sem kvikmyndaverkefni er Jack- ass kvikmyndin hrein ósvífni, a.m.k. í ljósi þeirrar miklu aðsóknar sem hún hefur hlotið hingað til. Kostnaður er næstum enginn, tæknilegur metnað- ur enginn, í raun gengur allt út á grunnhugmyndina og ólíkar út- færslur hennar. Í algjörum skorti sín- um á frásagnarformgerð, á þessi kvikmynd meira skylt við fjölleika- húsið en frásagnarkvikmyndir nú- tímans og sver sig þar reyndar í ætt við þá sirkuslegu kvikmyndagerð sem ríkti í árdaga miðilsins. Það er athygl- isvert að sjá nafn leikstjóra á borð við Spike Jonze, sem gerði Being John Malkovich og leikstýrir Adaptation, einni af hinum lofuðustu kvikmynd- um ársins, í aðstandendalistanum fyr- ir Jackass: The Movie. Sá ágæti leik- stjóri virðist eiga það sameiginlegt með hinum fífldjörfu „leikurum“ myndarinnar að vera algjörlega laus við faglega spéhræðslu. Botnlaus fífldirfska Kjánaprikin íhuga sjaldnast afleið- ingar uppátækja sinna til enda. Heiða Jóhannsdóttir KVIKMYNDIR Sambíóin Leikstjórn: Jeff Tremaine. Handrit: Jeff Tremaine, Spike Jonze og Johnny Knox- ville. Fram koma: Johnny Knoxville, Bam Margera, Chris Pontius, Steve-O, Dave England, o.fl. Lengd: 87 mín. Bandaríkin. Paramount Pictures, 2002. JACKASS: THE MOVIE (KJÁNAPRIK: KVIK- MYNDIN)

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.