Morgunblaðið - 17.02.2003, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 17.02.2003, Blaðsíða 5
Morgunblaðið/Júlíus Húsið sjálft er ekki mikið skemmt en innbúið mjög illa farið. Myndin er tekin á 1. hæð þar sem eldurinn var mestur. ALLT tiltækt slökkvilið, eða um 100 manns, var kallað út vegna bruna í þriggja hæða timburhúsi við Skólastræti í miðbæ Reykja- víkur á laugardag. Betur fór en á horfðist og tókst fyrstu slökkvi- liðsmönnunum sem komu á vett- vang að ná stjórn á eldinum. Hátt í 60 slökkviliðsmenn fóru í útkallið, en Hrólfur Jónsson slökkviliðs- stjóri segir að menn hafi viljað hafa vaðið fyrir neðan sig vegna staðsetningar og þar sem um gam- alt timburhús var að ræða. Hrólfur segir að aldrei hafi þó verið hætta á að eldurinn breiddist í nærliggjandi hús, en húsið stend- ur á bak við verslun Hans Pet- ersen í Bankastræti. Menn hafi þó viljað vera viðbúnir fyrir það versta. Hann segir að vel hafi gengið að ráða niðurlögum eldsins, en slökkviliðsmenn hafi fengið greinargóðar upplýsingar um hvar mesti eldurinn væri frá manni sem bjargaðist úr húsinu. „Þannig fóru menn strax í aðaleldinn og komu í veg fyrir að hann breiddist um húsið. Miklar skemmdir urðu þó af sóti, reyk og vatni. Eldurinn var fyrst og fremst á fyrstu hæð húss- ins, aðallega í kringum eldhúsið,“ segir Hrólfur. Húsið ekki mikið skemmt en innbú illa farið Tilkynning um eldinn barst slökkviliðinu um hádegi á laug- ardag og var strax brugðist við með því að kalla út menn af þeim fjórum stöðvum sem slökkvilið höfuðborgarsvæðisins er með. Síð- an hafi verið hringt í alla starfs- menn slökkviðiliðsins, alls hafi um 60 manns verið kallaðir út. Hrólfur segir að það hafi tekið 30–45 mín- útur að ráða niðurlögum eldsins, en slökkviliðið hafi verið að störf- um á vettvangi til klukkan fjögur þennan dag. Hrólfur segir að maðurinn sem bjargaðist úr húsinu hafi fengið minni háttar reykeitrun og hann hafi verið fluttur á slysadeild. Hann segir húsið sjálft ekki mikið skemmt og að auðvelt verði að gera við það. Innbúið, sérstaklega á fyrstu hæð, sé illa farið. Þá hafi mikið af verðmætum hlutum skemmst, á borð við málverk og gömul kort, sem voru í einni íbúð hússins. Óskar Sigurðsson lögreglu- fulltrúi segir eldsupptök enn ókunn, en lögreglan vinni nú að rannsókn málsins. Gerir hann ráð fyrir því að niðurstaða í rannsókn- inni muni liggja fyrir síðar í dag, eða á morgun. Stórútkall í bruna við Skólastræti FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. FEBRÚAR 2003 5

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.