Morgunblaðið - 17.02.2003, Síða 5
Morgunblaðið/Júlíus
Húsið sjálft er ekki mikið skemmt en innbúið mjög illa farið. Myndin er tekin á 1. hæð þar sem eldurinn var mestur.
ALLT tiltækt slökkvilið, eða um
100 manns, var kallað út vegna
bruna í þriggja hæða timburhúsi
við Skólastræti í miðbæ Reykja-
víkur á laugardag. Betur fór en á
horfðist og tókst fyrstu slökkvi-
liðsmönnunum sem komu á vett-
vang að ná stjórn á eldinum. Hátt í
60 slökkviliðsmenn fóru í útkallið,
en Hrólfur Jónsson slökkviliðs-
stjóri segir að menn hafi viljað
hafa vaðið fyrir neðan sig vegna
staðsetningar og þar sem um gam-
alt timburhús var að ræða.
Hrólfur segir að aldrei hafi þó
verið hætta á að eldurinn breiddist
í nærliggjandi hús, en húsið stend-
ur á bak við verslun Hans Pet-
ersen í Bankastræti. Menn hafi þó
viljað vera viðbúnir fyrir það
versta. Hann segir að vel hafi
gengið að ráða niðurlögum eldsins,
en slökkviliðsmenn hafi fengið
greinargóðar upplýsingar um hvar
mesti eldurinn væri frá manni sem
bjargaðist úr húsinu. „Þannig fóru
menn strax í aðaleldinn og komu í
veg fyrir að hann breiddist um
húsið. Miklar skemmdir urðu þó af
sóti, reyk og vatni. Eldurinn var
fyrst og fremst á fyrstu hæð húss-
ins, aðallega í kringum eldhúsið,“
segir Hrólfur.
Húsið ekki mikið skemmt
en innbú illa farið
Tilkynning um eldinn barst
slökkviliðinu um hádegi á laug-
ardag og var strax brugðist við
með því að kalla út menn af þeim
fjórum stöðvum sem slökkvilið
höfuðborgarsvæðisins er með. Síð-
an hafi verið hringt í alla starfs-
menn slökkviðiliðsins, alls hafi um
60 manns verið kallaðir út. Hrólfur
segir að það hafi tekið 30–45 mín-
útur að ráða niðurlögum eldsins,
en slökkviliðið hafi verið að störf-
um á vettvangi til klukkan fjögur
þennan dag.
Hrólfur segir að maðurinn sem
bjargaðist úr húsinu hafi fengið
minni háttar reykeitrun og hann
hafi verið fluttur á slysadeild.
Hann segir húsið sjálft ekki mikið
skemmt og að auðvelt verði að
gera við það. Innbúið, sérstaklega
á fyrstu hæð, sé illa farið. Þá hafi
mikið af verðmætum hlutum
skemmst, á borð við málverk og
gömul kort, sem voru í einni íbúð
hússins.
Óskar Sigurðsson lögreglu-
fulltrúi segir eldsupptök enn
ókunn, en lögreglan vinni nú að
rannsókn málsins. Gerir hann ráð
fyrir því að niðurstaða í rannsókn-
inni muni liggja fyrir síðar í dag,
eða á morgun.
Stórútkall í bruna
við Skólastræti
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. FEBRÚAR 2003 5