Morgunblaðið - 17.02.2003, Side 6

Morgunblaðið - 17.02.2003, Side 6
FRÉTTIR 6 MÁNUDAGUR 17. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ SAMKVÆMT skoðanakönnun Fé- lagsvísindastofnunar fyrir Morgun- blaðið ætlar tæpur helmingur kjós- enda Framsóknarflokksins árið 1999 að kjósa flokkinn nú, eða 45,9%. Tæp 80% þeirra sem kusu Samfylkinguna í síðustu kosningum ætla að kjósa hana nú, tæp 70% ætla áfram að styðja Sjálfstæðisflokkinn, 43,2% Vinstri hreyfinguna – grænt framboð og 43,8% Frjálslynda flokkinn. Könnunin var gerð dagana 6. til 10. febrúar sl. í síma þar sem stuðst var við 1.200 manna slembiúrtak úr þjóð- skrá. Úrtakið náði til fólks af öllu landinu á aldrinum 18–80 ára. Alls svöruðu 813 manns, eða 67,8%, 20% neituðu að svara og 12% náðist ekki í. Nettósvarhlutfall var 71%. Spurt var: Ef Alþingiskosningar yrðu haldnar á morgun, hvaða flokk eða lista heldurðu að þú myndir kjósa? Ef fólk sagðist ekki vita það var áfram spurt hvaða flokk eða lista líklegast væri að það kysi og ef svar fékkst ekki við því var spurt hvort líklegra væri að það kysi Sjálfstæð- isflokkinn eða einhvern annan flokk. Fylgi flokkanna skiptist þannig að 40,1% sögðust styðja Samfylkinguna, 35,8% Sjálfstæðisflokkinn, 13,5% Framsóknarflokkinn, 7,4% Vinstri græna og 2,9% Frjálslynda flokkinn. Könnunin sýnir ennfremur að 22,5% kjósenda Framsóknarflokks- ins árið 1999 ætla að kjósa Samfylk- inguna núna, 5,4% ætla að kjósa Sjálfstæðisflokkinn, 6,3% Vinstri græna og 0,9% Frjálslynda flokkinn. Sem fyrr segir ætla tæp 70% kjós- enda Sjálfstæðisflokksins fyrir fjór- um árum að kjósa flokkinn áfram, 12,3% ætla að kjósa Samfylkinguna, 4,3% Framsóknarflokkinn, 2,2% Vinstri græna og 1,8% Frjálslynda flokkinn. Rúmur þriðjungur kjós- enda Vinstri grænna í síðustu kosn- ingum, eða 34,1%, ætlar að kjósa Samfylkinguna núna, 4,5% Fram- sóknarflokkinn, 2,3% Frjálslynda flokkinn en enginn stuðningsmanna VG ætlar að kjósa Sjálfstæðisflokk- inn nú. Kjósendur Samfylkingarinnar eru flokkshollir, samkvæmt könnuninni, eða 79,1% sem kusu flokkinn 1999 ætla að kjósa flokkinn áfram, 4,3% ætla að kjósa Vinstri græna, 3,6% Framsóknarflokkinn, 1,4% Sjálf- stæðisflokkinn og 1,4% flokk þjóð- ernissinna. Kjósendur Frjálslynda flokksins fyrir fjórum árum eru frekar óákveðnir í afstöðu sinni nú, 43,8% ætla að kjósa flokkinn aftur, 25% ætla að styðja Samfylkinguna, 25% eru óákveðnir eða neita að svara og 6,3% ætla að kjósa Sjálfstæðisflokk- inn. Félagsvísindastofnun vekur at- hygli á því að þó svo að lægra hlutfall kjósenda Sjálfstæðisflokksins árið 1999 segist ætla að kjósa Samfylk- inguna heldur en hlutfall Framsókn- arflokksins, eða 12,3% á móti 22,5%, eru fjöldatölurnar á bakvið þessi hlutföll hærri fyrir Sjálfstæðisflokk- inn en Framsókn. Fjöldinn á bakvið hlutfall kjósenda Sjálfstæðisflokks- ins sem ætlar að kjósa Samfylk- inguna er 34 einstaklingar en hjá Framsóknarflokknum er hann 25. Þetta þýðir, að mati stofnunarinnar, að ef skoðaðir eru sérstaklega þeir kjósendur sem gefa upp hvaða flokk þeir kusu 1999 og ætla að kjósa Sam- fylkinguna núna, þá kemur í ljós að um 58% þeirra kusu Samfylkinguna síðast, 18% þeirra kusu Sjálfstæðis- flokkinn, 13% kusu Framsóknar- flokkinn, 8% Vinstri græna og 3% annað. Félagsvísindastofnun hefur einnig greint svör kjósenda í könnuninni eftir aldri, kyni og starfi. Kemur þá í ljós að flestir karlar, eða 40,8%, styðja Sjálfstæðisflokkinn, 33,1% karla styðja Samfylkinguna, 15,1% Framsóknarflokkinn og 6,5% Vinstri græna. Meðal kvenna nýtur Sam- fylkingin mest stuðnings, eða 46,9%, 31,7% þeirra styðja Sjálfstæðisflokk- inn, 11,4% Framsóknarflokkinn og 8,4% Vinstri græna. Þetta eru svip- aðar niðurstöður og í könnun Fé- lagsvísindastofnunar í ágúst 2002. Samfylking vinsælust í öllum aldurshópum nema þeim yngsta Skipt eftir aldri nýtur Sjálfstæð- isflokkurinn mest stuðnings meðal yngstu kjósendanna, eða 41,5%. Samfylkingin nýtur mest stuðnings í öðrum aldurshópum, frá 35,8% stuðnings í elsta aldurshópnum, 60– 80 ára, til 43,9% á aldrinum 35–44 ára. Séu fleiri stjórnmálaflokkar skoðaðir er Framsóknarflokkurinn með mesta fylgið meðal 45–49 ára kjósenda, 19,3%, og Vinstri grænir hafa flesta stuðningsmenn meðal 60– 80 ára kjósenda, eða 11,7%. Frjáls- lyndi flokkurinn höfðar sömuleiðis mest til elstu kjósendanna. Miðað við starfsvettvang fólks í könnuninni eru flestir stjórnendur og æðstu embættismenn í hópi kjós- enda Sjálfstæðisflokksins, flestir sér- fræðingar og kennarar styðja Sam- fylkinguna og flokkurinn er sömuleiðis með mesta fylgið meðal iðnaðarmanna og sérhæfðra, véla- fólks og ófaglærðra, námsmanna og þeirra sem ekki eru útivinnandi. Sjálfstæðisflokkurinn nýtur mest stuðnings meðal tækna og skrifstofu- fólks, þjónustu- og afgreiðslufólks, sjómanna og bænda. Hjá öðrum flokkum skiptist þetta þannig að Framsóknarflokkurinn er oftast nefndur meðal sjómanna og bænda, eða 24,1%, en til samanburðar mæld- ist flokkurinn með 13,5% fylgi í könn- uninni. Frjálslyndi flokkurinn sækir mesta stuðninginn í sömu stéttir, þ.e. sjómenn og bændur, 12,1%, til sam- anburðar við 2,9% heildarfylgi í könnun Félagsvísindastofnunar. Vinstri grænir eru oftast nefndir meðal þeirra sem ekki eru útivinn- andi, 14,7%. Kjósendur Framsóknarflokksins í skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar HÍ      !  "    " #     #   $     %      &   "   '  (                                                       ) &     *+,-.+ /..0             *.,1. 23,34 03,22 /3,02 -1,/2      "! +    + + "&    (      +! 5!     +! 6  +  &  "!   $& ! !  '  7      !      "                                                                                             Tæpur helmingur hyggst kjósa flokkinn áfram Konur styðja helst Samfylkinguna en flestir karlar styðja Sjálfstæðisflokkinn MUN fleiri íbúar EFTA-landanna þriggja segjast hafa hafið atvinnurekstur nýlega eða hafið undirbúning að því en íbúar aðild- arríkja Evrópusambandsins og Bandaríkj- anna. Þá gerir fólk á Íslandi og í Liechten- stein og minna úr skorti á fjárhagslegum stuðningi og hindrunum vegna skrifræðis vegna nýsköpunar en íbúar hinna landanna. Þetta kemur fram í könnun sem Gallup gerði á síðasta ári fyrir framkvæmdastjórn Evrópusasmbandsins. Könnunin náði til 7.500 íbúa Evrópusambandsins, 500 íbúa frá hverju hinna þriggja landa EFTA, það er að segja Noregs, Íslands og Liechtenstein, og 500 Bandaríkjamanna. Spurt var um viðhorf fólks til stofnunar atvinnurekstrar. Evrópumenn vilja vera launþegar Könnunin leiddi í ljós að mun meiri vilji er meðal Bandaríkjamanna en Evrópubúa að stofna eigin atvinnurekstur. Þótt verulegur áhugi sé einnig í Evrópu virðast Evrópubú- ar kjósa í ríkari mæli að vera launþegar. Áberandi meiri vilji er meðal þeirra sem spurðir voru í Liechtenstein og á Íslandi fyrir atvinnurekstri en íbúa Evrópusam- bandins í heild en Norðmenn hafa aftur á móti mestan áhuga á að starfa sem launþeg- ar. Þess ber þó að geta að viðhorf eru afar mismunandi innan ríkja Evrópusambandsins og í sumum þeirra er ríkur vilji til að starfa við eigin atvinnurekstur, eins og til dæmis í Portúgal. Færri Íslendingar virðast vera að hugsa um að stofna fyrirtæki um þessar mundir en íbúar annarra landa þar sem viðhorfin voru könnuð, eða 13% Íslendinga á móti 22% íbúa ríkja Evrópusambandsins og 34% þátttak- enda frá Bandaríkjunum. Aftur á móti virðast fleiri Íslendingar og íbúar hinna EFTA-landanna hafa stundað atvinnurekstur en íbúar hinna landanna, það er að segja 29% Íslendinga, 26% Norðmanna og 22% íbúa Liechteinstein á móti 15% íbúa í ríkjum ESB og 14% Bandaríkjamanna. Íbúum allra landanna finnst takmarkaður fjárhagslegur stuðningur standa því fyrir þrifum við að stofna til atvinnurekstrar. Þó kvarta íbúar EFTA-landanna minna undan því en íbúar Evrópusambandsins og Banda- ríkjanna. Áberandi er hins vegar hvað mikið færri þátttakendur á Íslandi og í Liechten- stein en í hinum löndunum telja að skrif- finnska hjá hinu opinbera hindri þá í að hrinda í framkvæmd áformum um að efna til atvinnurekstrar. 37% þátttakenda á Íslandi og 40% í Liechtenstein nefna þessa hindrun en 60–70% íbúa hinna landanna. Íslendingar virðast ekki alveg eins um- burðarlyndir og aðrir gagnvart þeim sem hefur mistekist í atvinnurekstri. 70% þátt- takenda héðan vildu gefa slíkum mönnum annað tækifæri en 83–84% þátttakenda í Evrópusambandinu og Bandaríkjunum voru jákvæð fyrir slíku. Hræddir við gjaldþrot Hræðslan við að tapa eignum sínum (50%) og að verða gjaldþrota (44%) eru þeir áhættuþættir sem flestir þátttakendur innan Evrópusambandsins nefna varðandi það að hefja atvinnurekstur um þessar mundir. Íbúar annarra landa nefna sömu þætti og bæta við óvissunni um tekjur. Íslendingar og Bandaríkjamenn eru hræddari við gjald- þrot en íbúar hinna landanna og nefndu um 51% Íslendinga þann áhættuþátt og 49% Bandaríkjamanna en 39–44% þátttakenda í öðrum ríkjum og ríkjasamböndum sem könnunin tók til. Þess ber þó að geta að af- staða fólks innan Evrópusambandsins er nokkuð mismunandi til þessara þátta, eins og annarra í þessari könnun. Sem dæmi má nefna að Danir, Írar og Bretar höfðu heldur meiri áhyggjur af því að verða gjaldþrota við það að stofna til atvinnurekstrar en Ís- lendingar. Meiri vilji á Íslandi til að stofna til atvinnurekstrar en í ESB STJÓRN Landverndar hefur sent Siv Frið- leifsdóttur umhverfisráðherra bréf þar sem hún er hvött til að beita sér fyrir því að í áform- uðum aðgerðum til að efla atvinnu fái brýn verkefni á sviði náttúruverndar og þjóðgarða hlutdeild. Segir í bréfinu að á sviði náttúru- verndar séu mörg brýn tímabundin verkefni sem muni auka eftirspurn eftir vinnuafli. Nefnd eru dæmi í bréfinu, þar á meðal að í þjóðgarðinum á Snæfellsnesi, sem stofnaður var árið 2001, hafi lítið sem ekkert verið gert til að byggja upp þá aðstöðu sem er almennt talin nauðsynleg í þjóðgörðum. Í þjóðgarðinum í Jökulsárgljúfrum liggi fyrir áætlanir um upp- byggingu á aðstöðu sem ekki hafi komist til framkvæmda. Framundan sé stofnun Vatna- jökulsþjóðgarðs og augljóst að undirbúa megi stofnun þjóðgarðsins með uppbyggingu á að- stöðu sunnan jökuls. Á Vestfjörðum bíði mik- ilvæg verkefni til að bæta aðstöðu fyrir nátt- úruunnendur, m.a. á Hornströndum. Stjórn Landverndar minnir á að náttúra Ís- lands er ein mikilvægasta auðlind þjóðarinnar. Með því að veita náttúruverndarverkefnum að- gang að tímabundnu átaki ríkisstjórnarinnar til að efla atvinnu er jafnframt verið að leggja grunn að meiri hagsæld í landinu. Benda á atvinnutæki- færi við náttúruvernd

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.