Morgunblaðið - 17.02.2003, Side 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. FEBRÚAR 2003 9
Laugavegi 4, sími 551 4473
www.lifstykkjabudin.is
Póstsendum
Ný sending
Litir: Beinhvítt,
ljósbrúnt, svart
Stærðir: B 75-90
C-F 75-100
G 75-95
Buxur - skyrtur - bolir
stærðir 36—56
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
s. 557 1730 s. 554 7030
Opið mán.—fös. frá kl. 10—18
lau. kl. 10—15
Snorrabraut 38, sími 562 4362
Útsölulok
enn meiri
afsláttur
v. Nesveg, Seltjarnarnesi,
sími 561 1680.
iðunn
tískuverslun
Lagersala
á Nesinu
50-90%
afsláttur
Tökum upp vorvörurnar
Lokað 17., 18. og 19. febrúar
Opnum 20. febrúar með fulla
búð af nýjum vörum
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Pelsfóðurjakkar
og -kápur
Fyrir flottar konur
Bankastræti 11 • sími 551 3930
ÁÆTLAÐ er að um 1.600 manns
hafi sótt friðarfundi sem fram
fóru í Reykjavík, Akureyri og Ísa-
firði á laugardag til að mótmæla
hugsanlegri innrás í Írak.
Samkvæmt mati lögreglu tóku
um eitt þúsund manns þátt í fund-
inum í Reykjavík á Ingólfstorgi.
Geir Jón Þórisson yfirlög-
regluþjónn sagði mótmælin hafa
farið fram í mjög góðum anda og
var hann ánægður með fram-
kvæmd þeirra.
Eftir fundinn gengu fund-
armenn Austurstrætið og afhentu
síðan ályktun við Stjórnarráðið.
Þá var gengið að breska sendi-
ráðinu og því bandaríska og látin í
ljós andúð á hugsanlegri innrás.
Enn fremur fordæmdi fundurinn
stuðning íslenskra stjórnvalda við
árásaraðilana og krafðist þess að
þau breyti um stefnu.
Í ályktun fundarins segir meðal
annars: „Íslenska þjóðin getur
ekki sætt sig við að forsvarsmenn
hennar taki þátt í glæpastarfsemi
af þessu tagi. Árásaraðilarnir
beita fyrir sig tylliástæðum sem
eru út í hött. Raunverulegt mark-
mið þeirra er að sölsa undir sig ol-
íuauðæfi Íraks og auka völd sín og
áhrif í Mið-Austurlöndum.“
Það voru samtökin Átak gegn
stríði sem stóðu að útifundinum á
Ingólfstorgi.
Um 500 hundruð manns tóku
þátt í mótmælunum sem fram fóru
á Ráðhústorginu á Akureyri. Eru
þetta ein fjölmennustu mótmæli á
Akureyri hin síðari ár. Fundurinn
lýsti yfir eindreginni andstöðu við
árás gegn Írak ásamt aðild Íslands
að hugsanlegrum stríðsrekstri.
„Skorað er á ríkisstjórn Íslands að
fylkja sér undir fána friðar fjöl-
margra ríkja og hvetja þannig til
friðsamlegrar lausnar á deilunni
um meinta gjöreyðingavopnaeign
Íraka. Við viljum frið en ekki
stríð,“ segir í ályktun fundarins.
Á Ísafirði tóku hátt í 90 manns
þátt í friðarfundinum sem fram
fór í Edinborgarhúsinu. Sigurður
Pétursson sagnfræðingur flutti
þar ávarp. Í ályktun sem fund-
urinn sendi frá sér segir meðal
annars: „Fundur friðarsinna á Ísa-
firði hvetur ríkisstjórn Íslands til
að hlusta á raddir almennings í
landinu og skipa sér í hóp með
þeim ríkjum í Evrópu sem hafa
lýst því yfir að þau muni ekki
styðja stríð Bandaríkjamanna
gegn Írak, stríð þar sem efna-
hagshagsmunir stórveldanna ráða
ríkjum.“ Fundurinn hvatti rík-
isstjórnina einnig til að beita sér
gegn hernaði í öllum heims-
hlutum.
Mótmæli sem þessi voru haldin í
hundruðum bæja og borga víðs
vegar um heim á laugardag.
Sextán hundruð manns
mótmæltu stríði
Morgunblaðið/Kristinn
Morgunblaðið/Júlíus
Lögreglan áætlar að um eitt þúsund manns hafi sótt friðarfundinn á Ingólfstorgi sem fram fór á laugardaginn.
INNANLANDSFLUG lá niðri til
klukkan 19:30 í gærkvöldi vegna
hvassviðris. Þá var loks hægt að
fljúga til Vestmannaeyja og Akur-
eyrar.
Þá þurftu tvær farþegaþotur með
um 200 manns innanborðs að lenda
á Egilsstaðaflugvelli um klukkan
átta í gærmorgun vegna slæmra
veðurskilyrða á Keflavíkurflugvelli.
Þær þurftu þó ekki að bíða lengi
heldur lentu í Keflavík rúmum
tveimur tímum síðar.
Flutningavél Flugleiða þurfti að
lenda á Akureyri af sömu ástæðum
en hún flaug til Keflavíkur stuttu
síðar. Þoturnar urðu allar frá að
hverfa eftir aðflug að Keflavíkur-
flugvelli í gærmorgun vegna hvass-
viðris.
Að öðru leyti fór millilandaflug að
mestu samkvæmt áætlun í gær.
Ferðum Herjólfs var með öllu af-
lýst í gær vegna veðurs.
Innanlandsflug lá
að mestu leyti niðri