Morgunblaðið - 17.02.2003, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. FEBRÚAR 2003 23
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
I
I
Ræstingar — barngóð
40—50% starf eftir hádegi. Þrif, aðstoð og
afgreiðsla á augnlæknastofu og í sérhæfðri
barnagleraugnaverslun.
Umsóknir sendist til auglýsingadeildar Mbl.,
merktar: „RB — 13354.“
Sölumaður óskast
Ein stærsta fasteignasala landsins óskar eftir
harðduglegum og heiðarlegum sölumanni til
starfa nú þegar. Árangurstengt launakerfi.
Spennandi starf og miklir tekjumöguleikar.
Umsóknir sendist til auglýsingadeildar Mbl.
eða í box@mbl.is merktar: „Sölumaður —
13156“.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
ATVINNUHÚSNÆÐI
Til leigu atvinnuhúsnæði
1. Við Hjallabrekku/Nýbýlaveg. Ca 820 m²
jarðhæð m/2 stórum innkeyrsludyrum. Góður
möguleiki á að skipta upp í 3-5 ein. 5 m lofthæð.
Í húsinu er fyrir stór og virtur förðunarskóli.
2. Við Tranavog. Á 2. hæð ca 435 m². Stór
bjartur salur sem hægt er að skipta upp í smærri
ein. Tilvalið fyrir skrifstofur eða léttan iðnað.
3. Við Barðastaði í Grafarvogi. 2 verslun-
arbil 68 m² og 136 m². Í þetta 1500 manna
hverfi vantar ýmsa þjónustu.
4. Við Bolholt — skrifstofuhæð. Á 4. hæð
í lyftuhúsi ca 545 m² hæð sem skipta má upp
í smærri einingar. Hagstætt leiguverð.
5. Við Bergstaðarstræti — verslunar- eða
þjónustuhúsnæði. 2 einingar, ca 60 m² og
ca 50 m² á jarðhæð. Hægt að sameina. 200 m
frá Skólavörðustíg.
Upplýsingar gefur Snorri í síma 892-3797 og
tsh@islandia.is.
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR
Sjálfstæðisfélagið Kári
í Rangárþingi eystra
Aðalfundur og almennar
stjórnmálaumræður
Aðalfundur Sjálfstæðisfélagsins Kára verður
haldinn að Hlíðarenda á Hvolsvelli miðviku-
daginn 19. febrúar kl. 20.30.
Venjuleg aðalfundarstörf og kosning fulltrúa
á landsfund. Frambjóðendur Sjálfstæðisflokks-
ins í Suðurkjördæmi, Árni Ragnar Árnason,
Drífa Hjartardóttir og Kjartan Ólafsson,
ræða stjórnmálaviðhorfið.
Mætum vel.
Stjórn Sjálfstæðisfélagsins Kára.
TILKYNNINGAR
Óskilamunir
Í vörslum lögreglunnar í Reykjavík er nokkur
peningaupphæð sem nýlega fannst á víða-
vangi í Reykjavík.
Eigandi gefi sig fram á lögreglustöðinni við
Hverfisgötu.
14. febrúar 2003,
Lögreglustjórinn í Reykjavík.
SMÁAUGLÝSINGAR
KENNSLA
CRANIO-NÁM
2003-2004
A-hluti 22.-27.feb. Námsefni á
ísl. Ísl. leiðbeinendur. Uppl.
Gunnar, s. 564 1803/699 8064.
www.canio.cc
FÉLAGSLÍF
I.O.O.F. 19 1832178
ATVINNA
mbl.is
PAKISTANINN Zia Mahmood
skráði nafn sitt í gestabókina á Hótel
Loftleiðum sl. laugardag með eftir-
minnilegum hætti eins og svo oft áð-
ur. Hann og ungur félagi hans, Boye
Borgeland, hreinlega stálu fyrsta
sætinu í rúmlega 130 para tvímenn-
ingi sem lauk um kl. 19. Allt mótið
eða þar til í síðustu umferð höfðu Sví-
arnir Björn Fallenius og Roy Well-
and leitt mótið og lengi vel með mikl-
um mun.
Fyrir síðustu umferðina gat fátt
komið í veg fyrir sigur þeirra nema
undramaðurinn Zia Mahmood. Björn
og Roy höfðu þá 927 stig en Zia og
Boye 845. Björn og Roy höfðu spilað
mótið af miklu öryggi og úrslitin
komu ekki á óvart í fyrstu. Björn
Fallenius og Roy Welland fengu
1.033 stig og Zia og Boye urðu aðrir
með 916. En þessi úrslit stóðu aðeins
skamma stund þar sem í ljós kom að
skor úr einu spili hafði verið ranglega
skráð á fyrsta borði þar sem Björn og
Roy spiluðu nær allt mótið. Þeir
höfðu ranglega skráð sér toppskor í
stað andstæðinganna sem gerði það
að verkum að þeir enduðu í öðru sæti
en Zia og Boye sigruðu með minnsta
mun.
Lokastaða efstu para í mótinu varð
annars þessi:
Zia Mahmood – Boye Brogeland 918
Björn Fallenius – Roy Welland 906
Hrannar Erlingsson – Júlíus Sigurjónss. 775
Hermann Friðrikss. – Guðm. Þ. Gunnarss./
Magnús Torfason/Garðar Hilmarsson 763
Peter Bertheau – Fredrik Nystrom 613
Aðalst. Jörgensen – Sverrir Ármannss. 592
Lars Blakset – Sören Christiansen 578
Ásmundur Pálss. – Guðm. Páll Arnarson 558
Janet De Botton – Geir Helgemo 550
Guðm. Hermannss. – Helgi Jóhannss. 549
Íslensku pörin geta vel við unað.
Júlíus og Hrannar eru miklir tví-
menningsspilarar. Þeir voru í topp-
baráttunni nær allt mótið og áttu
þriðja sætið fyllilega skilið. Hermann
Friðriksson á einnig hrós skilið.
Hann var í vandræðum með að finna
sér meðspilara og spilaði 10 fyrstu
umferðirnar við Magnús Torfason,
næstu fimm við Garðar Hilmarsson
og í lokaumferðunum við Guðmund
Þ. Gunnarsson og vantaði þá aðeins
herzlumuninn til að ná þriðja sætinu.
Í gær hófst svo sveitakeppni með
þátttöku tæplega 70 sveita. Spilaðar
verða 10 umferðir með Monrad-fyr-
irkomulagi og er sýningartafla fyrir
áhorfendur. Erlendu sveitirnar eru
firnasterkar en það verður enginn
krýndur sigurvegari fyrr en í móts-
lok og margar íslenzkar sveitir sem
eiga eftir að velgja atvinnumönnun-
um undir uggum.
Eins og svo oft áður var það Pakistaninn Zia Mahmood sem stal senunni.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Morgunblaðið/Kristinn
Óvænt endalok í
tvímenningnum
Listamannaspjall verður í Þjóð-
mennningarhúsinu á morgun,
þriðjudag kl. 16.30, en þar munu
rithöfundarnir Þórarinn Eldjárn og
Sigrún Eldjárn auk Jóhanns G. Jó-
hannssonar tónlistarmanns ræða
um samvinnu listamanna. Þórarinn
er skáld mánaðarins í Þjóðmenn-
ingarhúsinu og er þetta lista-
mannaspjall hluti af því verkefni.
Gestum gefst kostur á að skoða
sýningu á verkum Þórarins og í lok
listamannaspjallsins verða umræð-
ur og fyrirspurnir. Aðgangur er
ókeypis, en sýningin á vegum Þór-
arins stendur út mánuðinn. Þjóð-
menningarhúsið er opið alla daga
frá 11 til 17.
Bólusetningar gegn ofnæmi
Astma- og ofnæmisfélagið heldur
fræðslufund fyrir almenning um
bólusetningar gegn ofnæmi. Fund-
urinn er haldinn á morgun, þriðju-
daginn 18. febrúar kl. 20 í húsa-
kynnum SÍBS, Síðumúla 6
(hliðarinngangur), 108 Reykjavík.
Erindi halda: Björn Rúnar Lúð-
víksson læknir, dósent í klíniskri
ónæmisfræði, og Sigurveig Þ. Sig-
urðardóttir, sérfræðingur í barna-
lækningum. Í framhaldi af fyr-
irlestrunum verða umræður og
fyrirspurnir. Fundurinn er öllum
opinn sem áhuga hafa á ofnæmi.
Aðgangur er ókeypis.
Á MORGUN
Miskunnarverk íslenskra
kvenna er heiti málstofu í guð-
fræði sem haldin verður í dag,
mánudag, kl. 12.15 í stofu V í Að-
albyggingu Háskóla Íslands (2.
hæð). Á málstofunni flytur Inga
Huld Hákonardóttir fyrirlestur
sem hún nefnir „Guð mun launa á
efsta degi“. Fjallað verður um mis-
kunnarverk íslenskra kvenna frá
1800 til 1930. Aðgangur er ókeypis
og öllum heimill.
Rannsóknir á fötluðum verða við-
fangsefni rannsóknarmálstofu í fé-
lagsráðgjöf í dag, mánudag. Mál-
stofan er haldin í stofu 422 í
Árnagarði, og hefst kl. 12.03 og
stendur til 13. Umræðuefni mál-
stofunnar er í tilefni af Evrópuári
fatlaðra, en þar kynnir María Ját-
varðardóttir félagsráðgjafi tvö
verkefni, annað um ungt fólk með
klofin hrygg, og hitt um ungt fólk
með alvarlega vöðvasjúkdóma.
Í DAG
TAFLFÉLAGIÐ Hellir býður upp á
ókeypis skákæfingar fyrir börn og
unglinga á mánudögum klukkan
17:15. Æfingarnar eru opnar öllum
15 ára og yngri, bæði drengjum og
stúlkum. Allir sem kunna mann-
ganginn eru velkomnir. Félagið út-
vegar töfl og klukkur, þannig að ekk-
ert þarf að hafa með sér. Auk þess
sem teflt er á æfingunum verður get-
raunaskák a.m.k. einu sinni í mánuði.
Þá er stefnt að því að hafa viðburð
sambærilegan við keppnisferðir sem
farnar hafa verið tvo síðustu vetur.
Æfingarnar eru haldnar í félags-
heimili Hellis í Álfabakka 14a í
Mjódd. Þær standa í tæpa tvo tíma
og lýkur um klukkan 19. Umsjón
með unglingaæfingunum hefur Vig-
fús Ó. Vigfússon
Ókeypis skák-
æfingar hjá Helli
Hestakerru stolið
sögn. Hún er hvít að lit, en með grá-
an topp og undirvagn. Kerran er
þýsk og af gerðinni Homar Stallion.
Skráningarnúmerið á kerrunni er
UY-629.
Lögreglan hefur látið lýsa eftir
kerrunni víða um land, að sögn Ein-
ars, og biður hann fólk sem telur sig
hafa séð kerruna að hafa annaðhvort
samband við sig eða lögreglu.
FIMM hesta hestakerru var stolið
frá Viðarhöfða 4 í Reykjavík, líklega
aðfaranótt fimmtudagsins. Einar
Indriðason, eigandi kerrunnar, segir
kerru á borð við þá sem hvarf kosta
mörg hundruð þúsund krónur.
Hann vonar að kerran eigi eftir að
koma í leitirnar þar sem hún sé mjög
auðþekkjanleg en kerran er á þrem-
ur öxlum, sem er óvenjulegt, að hans
Bakvöktum neyðar-
vaktar tannlækna hætt
TANNLÆKNAFÉLAG Íslands hef-
ur hætt bakvöktum neyðarvaktar ut-
an opnunartíma tannlæknastofanna.
Verður neyðarvakt félagsins fram-
vegis sinnt milli kl. 11 og 13 á tann-
læknastofum viðkomandi tannlækna
á laugardögum og sunnudögum, eins
og verið hefur, og með bakvakt virka
daga á þeim tíma sem tannlæknastof-
an er opin. Ekki er lengur um bak-
vakt að ræða um kvöld og nætur.
Í mörg ár hefur Tannlæknafélag
Íslands skipulagt neyðarvakt á höf-
uðborgarsvæðinu, þar sem tannlækn-
ar skipta með sér vöktum viku í senn.
Neyðarvakt hefur til þessa verið með
tvennum hætti, annars vegar er um
að ræða formlegan opnunartíma milli
kl. 11 og 13 á laugardögum og sunnu-
dögum og hins vegar bakvakt frá kl.
16 á föstudegi til kl. 16 næsta föstu-
dag þar á eftir. Á bakvakt hafa tann-
læknar opinn farsíma sinn allan sólar-
hringinn og sinna neyðartilvikum
þegar um slíkt er að ræða.
Ástæður breytinganna eru eftirfar-
andi:
1. Beiðni um útkall um kvöld og
nætur er í fæstum tilvikum bráðnauð-
synleg og hefur í mörgum tilvikum
aðeins í för með sér ónæði fyrir fjöl-
skyldu viðkomandi tannlæknis sökum
símhringinga á þeim tíma sólar-
hringsins.
2. Reynslan sýnir að einvera tann-
læknis með sjúklingi utan opnunar-
tíma stofunnar, einkum seint á kvöld-
in og um nætur, er í sumum tilvikum
(fáum) ekki með öllu hættulaus. Af
þeim sökum telur Tannlæknafélagið
óverjandi að tannlæknar sinni neyð-
arvakt einir og án nærveru annars
fólks utan hefðbundins vinnutíma.
3. Árið 1999 óskaði Tannlækna-
félagið eftir viðræðum við heilbrigðis-
og tryggingamálaráðuneyti um
skipulag neyðarvaktar vegna tann-
lækninga. Bréfinu hefur ekki verið
svarað.
4. Tannlæknafélag Íslands óskaði á
árinu 2001 tvívegis eftir viðræðum við
fulltrúa Landspítala um neyðarvakt.
Bréfum hefur ekki verið svarað, segir
í fréttatilkynningu.