Morgunblaðið - 17.02.2003, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 17.02.2003, Qupperneq 24
DAGBÓK 24 MÁNUDAGUR 17. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM- AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug- lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið. Skipin Reykjavíkurhöfn: Baltimar Notos kemur í dag. Árni Friðriksson og Selfoss fer í dag. Hafnarfjarðarhöfn: Selfoss kemur til Straumsvíkur í dag. Mannamót Aflagrandi 40. Vinnu- stofa og leikfimi kl. 9, boccia kl. 10, vinnu- stofa kl. 13, söngstund á morgun kl. 14. Árskógar 4. Kl. 9–12 opin handavinnustofa, kl. 11 boccia, kl. 13– 16.30 opin smíðastofa/ útskurður, opin handa- vinnustofa, kl. 13.30 fé- lagsvist, kl. 16 mynd- list. Bólstaðarhlíð 43. Kl. 9–16 handavinna, kl. 9– 12 bútasaumur, kl. 9– 17 fótaaðgerð, kl. 10– 11 samverustund, kl. 13.30–14.30 söngur við píanóið, kl. 13–16 búta- saumur. Félagsstarf eldri borg- ara í Mosfellsbæ, Kjal- arnesi og Kjós. Fé- lagsstarfið opið mánu- og fimmtudaga. Mánu- dagur. Kl. 16 leikfimi. Félag eldri borgara í Kópavogi. Félagsvist í Gullsmára 13 kl. 20.30. Fótaaðgerð frá kl. 10. Skrifstofan Gullsmára 9 er opin kl. 16.30–18, s. 554 1226. Félagsstarfið, Löngu- hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 9 fótaaðgerð og mynd- list, kl. 10–12 verslunin opin, kl. 13 föndur og handavinna, kl. 13.30 enska, framhalds- flokkur. Félagsstarfið Dalbraut 18–20. Kl. 10, leikfimi, kl. 13 brids. Félagsstarfið Dalbraut 27. Kl. 9–16 opin handavinnustofan, kl. 9–12 myndlist, kl. 13– 16 körfugerð, kl. 11– 11.30 leikfimi, kl. 13–16 spilað, kl. 10–13 versl- unin opin. Félagsstarfið, Hæðar- garði 31. Bað kl. 9–12, handavinna kl. 9–16.30, félagsvist kl. 14, kl. 9– 14 hárgreiðsla. Félag eldri borgara, Garðabæ. Æfing hjá Garðakórnum mánu- daga kl. 17.30 í safn- aðarheimilinu Kirkju- hvoli. Söngfólk er hvatt til að koma og taka þátt í starfi með kórnum. Stjórnandi kórsins er Kristín Pjetursdóttir. Félag eldri borgara, Hafnarfirði, Hraunseli, Flatahrauni 3. Pútt kl. 10, kóræfingar kl. 10.30, tréskurður kl. 13, félagsvist kl. 13.30. Félag eldri borgara, Reykjavík, Ásgarði, Glæsibæ. Brids kl. 13, línudans fyrir byrj- endur kl. 18. Dans- kennsla í samkvæm- isdönsum framh. kl. 19 og byrjendur kl. 20.30. S. 588 2111. Gerðuberg, félags- starf. Kl. 9–16.30 vinnustofur opnar kl. 10.30 sund og leik- fimiæfingar í Breið- holtslaug, frá hádegi spilasalur opinn, kl. 15.15 dans. Allar upplýsingar um starfsemina á staðnum og í síma 575 7720. Gjábakki, Fannborg 8. Handavinnustofan op- in, kl. 9.30 gler- og postulínsmálun, kl. 10.50, leikfimi, kl. 13 skák og lomber, kl. 20 skapandi skrif. Gullsmári, Gullsmára 13. Kl. 9 vefnaður, kl. 9.05 leikfimi, kl. 9.55 stólaleikfimi, kl. 10 ganga, kl. 13 brids, kl. 15.15 enska, kl. 20.30 félagsvist. Hraunbær 105. Kl. 9 perlusaumur og fótaað- gerð, kl. 10 bænastund, kl. 13.30 sögustund og spjall, kl. 13 postulíns- málun og hárgreiðsla. Hvassaleiti 56–58. Kl. 9 föndur, kl. 9 og kl. 10 jóga, kl. 13 spilað, kl. 14.15 spænska, fótaað- gerðir. Norðurbrún 1. Kl. 10– 11 ganga, kl. 9–15 fóta- aðgerð, kl. 9–12 mynd- list, kl. 13–16.45 opin handavinnustofa. Vesturgata 7. Kl. 9–16 fótaaðgerð og hár- greiðsla, kl. 9.15–12 postulínsmálun. kl. 9.15–15.30 handavinna, kl. 9.30–10.30 boccia, kl. 11–12 leikfimi, kl. 12.15–13.15 dans- kennsla, kl. 13–16 kór- æfing. Vitatorg. Kl. 8.45 smíði, kl. 9 hárgreiðsla, kl. 9.30 bókband, búta- saumur og morgun- stund, kl. 10 fótaaðgerð og boccia, kl. 13 hand- mennt, glerbræðsla og spilað. Gullsmárabrids. Brids í Gullsmára. Skráning kl. 12.45, spil hefst kl. 13. Félag eldri borgara, Suðurnesjum. Bingó í Selinu, Vallarbraut 4, Njarðvík, öll mánu- dagskvöld kl. 20. Sjálfsbjörg, félag fatl- aðra á höfuðborgar- svæðinu, félagsheim- ilið, Hátúni 12. Kl. 19 brids. Minningarkort Hrafnkelssjóður (stofnað 1931) minn- ingarkort afgreidd í símum 551-4156 og 864-0427. Í dag er mánudagur 17. febrúar, 48. dagur ársins 2003. Orð dags- ins: Því hvar sem fjársjóður yðar er, þar mun og hjarta yðar vera. (Lúk. 12, 34.)     Steingrímur J. Sigfús-son treystir sér ekki til að fagna hugmyndum Davíðs Oddssonar um skattalækkanir. Að minnsta kosti ekki fullum rómi. Hann virðist skipta efnahagslífinu í tvennt í málflutningi sínum. Ann- ars vegar er „lág- tekjufólkið“, hins vegar fyrirtækin, eða „rótgróin gróðafyrirtæki“.     Í frétt Morgunblaðsins,þar sem formaður Vinstri grænna var spurður álits á hug- myndum forsætisráð- herra, segir að Vinstri grænir vilji hlífa lág- tekjufólki við óhóflegri skattlagningu en ekki lækka skatta enn frekar á „rótgróin gróðafyr- irtæki“. „Ég vil minna á að þessi ríkisstjórn hefur verið dugleg við að lækka skatta en því mið- ur fyrst og fremst hjá þeim sem betur mega sín,“ er haft eftir Stein- grími í fréttinni.     Steingrímur segir aðskattar hafi verið lækkaðir hjá „há- tekjufólki, stóreignafólki og gróðafyrirtækjum“. Á sama tíma hafi skatt- byrði láglaunafólks þyngst vegna þess að skattleysismörk hafi ekki fylgt verðlagsþróun.     Vissulega er það rétthjá Steingrími, að góð og gild rök eru fyrir skattalækkunum á ein- staklinga, ekki síður en fyrirtæki. En er það svo, að hagsmunir þessara tveggja hópa þjóðfélags- ins fari lítt eða alls ekki saman? Gagnast lækkun fyrirtækjaskatta ekki al- menningi í landinu?     Skattalækkanir á fyr-irtæki auka grósku í atvinnulífinu. Atvinnu- rekstur verður líf- vænlegri, hagnaður meiri og hvati til að framleiða eykst. Lægri skattar gera fyrirtækjum kleift að borga hærri laun en ella. Í raun má segja að hagur fyr- irtækja og almennings sé að langmestu leyti hinn sami, enda er það grund- vallaratriði í rekstri fyr- irtækja að greiða starfs- mönnum góð laun.     Mismunun fyrirtækjaog einstaklinga í skattamálum er hins veg- ar óeðlileg, eins og Stein- grímur bendir réttilega á. Auðvitað ætti ekki að borga sig að stofna hlutafélag um rekstur, sem einstaklingur gæti allt eins sinnt sjálfur. Slíkt skrifræðisfyr- irkomulag er óhag- kvæmt.     Þess vegna ber aðfagna yfirlýsingum forsætisráðherra, um að stefna beri að lækkun skatta á almenning í landinu. Ætti Stein- grímur ekki líka að taka undir tillögur Davíðs? STAKSTEINAR Fara hagsmunir almennings og fyrirtækja saman? Víkverji skrifar... ÞAÐ var ekki mikið um það fjallaðí fréttum en sambandsríkið Júgóslavía leið undir lok fyrir nokkr- um dögum þegar þing þess sam- þykkti að framvegis skuli lýðveldin Serbía og Svartfjallaland, sem sam- an mynduðu Júgóslavíu, aðeins vera í lauslegu ríkjasambandi. Samn- ingur þess efnis er til þriggja ára og flestir telja líklegt að full sam- bandsslit komi til að þeim tíma liðn- um. Lengstum var Júgóslavía skipuð sex lýðveldum (auk tveggja sjálf- stjórnarhéraða, Kosovo og Vojvod- ina). Króatía, Slóvenía, Makedónía og Bosnía-Herzegóvína sögðu hins vegar skilið við Júgóslavíu í upphafi síðasta áratugar og ættu raunar flestir að muna þá atburði, því sann- arlega settu Júgóslavíustríðin 1991– 1995 og 1998-1999 svip sinn á frétta- tíma vestrænna fjölmiðla. Raunar má segja að þeir hafi einokað fyr- irsagnir dagblaðanna. Kannski er það einkum með þetta í huga sem Víkverja finnst það pínu- lítið kaldhæðnislegt að sagt skuli hafa verið frá endalokum Júgóslavíu í lítilli tveggja dálka frétt á bls. 16 í Morgunblaðinu fyrir tæpum tveimur vikum. Svona er veröldin skrýtin. x x x AUGLÝSING sem birtist í Morg-unblaðinu fyrir rúmri viku vakti athygli Víkverja. Spurt var í fyr- irsögn: Ert þú með fótaóeirð? Forvitni Víkverja hafði verið vak- in og hann velti fyrir sér hvað hér gæti eiginlega verið á ferðinni. Orðið fótaóeirð hljómaði eitthvað skringi- lega. Víkverji sá sig því knúinn til að lesa áfram, en næsta spurning í aug- lýsingunni hljómaði svona: Finnur þú oft fyrir mikilli löngun til að hreyfa fæturna þegar þú situr kyrr eða liggur? Nei, heyrðu mig nú, hugsaði Vík- verji; hvað er hér á ferðinni? Er ver- ið að gera grín? x x x ÁDAGINN kemur hins vegar aðhér er full alvara að baki. Aug- lýsingin var frá Íslenskri erfðagrein- ingu og samstarfslæknum á Land- spítala – háskólasjúkrahúsi, sem óska eftir þátttakendum í umfangs- mikilli rannsókn á erfðum og far- aldsfræði fótaóeirðar. Kemur fram í auglýsingunni að fótaóeirð (e. Rest- less Leg Syndrome) sé algengur kvilli sem hrjái 5–10% Vest- urlandabúa. Helstu einkenni séu pirringur og óþægileg tilfinning eða verkir í fótum. Oft fylgi löngun eða þörf til að hreyfa fæturna og eru ein- kennin sögð koma helst fram við hvíld; eru þau verst á kvöldin og á nóttunni. Víkverji vill ekki gera lítið úr þessum kvilla, eða mikilvægi rann- sóknarinnar sem á að ráðast í. Hann vill þó segja: Margt er nú skrýtið í kýrhausnum! Reuters Zoran Djindjic, forsætisráðherra Serbíu (t.h.), fagnar endalokum Júgóslavíu ásamt Dragisa Pesic (t.v.), forsætisráðherra Júgóslavíu, sem nú er embættislaus. Strætógjöld hækka ÉG vil koma á framfæri kvörtun vegna hækkunar á strætógjöldum. Ég er fast- ur viðskiptavinur strætó, nota strætó í og úr vinnu. Er ég mjög óánægður með að græna kortið hafi hækk- að úr 3.800 í 4.500 kr. Ég fékk smáhækkun á launin um síðustu mánaða- mót, skatturinn hirti sitt og strætó restina. Það eru að- allega öryrkjar, aldraðir og námsfólk sem nota strætó, þ.e. þeir lægstlaunuðu og þeir mega síst við þessari hækkun. Vestarr Lúðvíksson. Skoðanakannana- fylliríið FRÉTTABLAÐIÐ hefur um langt skeið flutt dular- fullar fréttir af miklu fylgi Samfylkingar. Nú síðast eru þeir taldir með meira fylgi en Sjálfstæðisflokkur- inn og Framsóknarflokkur- inn samanlagt. Að vísu er tekið fram að 1⁄3 neitar að svara sem sjálfsagt skiptir litlu máli, eða hvað? En þessi fíflalæti vekja mikla kæti hjá sumum fréttastofum sem smjatta sífellt á þessu rugli. Það virðist sem sagt kominn tími til að þjóðin jafni um Davíð og Halldór, enda hafa þeir rotað gjörsam- lega verðbólgudrauginn og þar að auki tryggt stöðug- leika langt umfram það sem áður hefur þekkst. Þjóðin afber naumast lengur svona svívirðilegt stjórnarfar. Kjósandi. Línudans – hvar er æft? MÉR þætti voðalega gott að komast að því hvar hægt væri að fara og æfa sig með öðrum að dansa línudans? Þeir sem gætu gefið mér upplýsingar vinsamlega sendið mér línu á: sih@centrum.is Hulda Rós. 20. öldin Í sjónvarpsþættinum 20. öldin sem sýndur var á sunnudagskvöld var greint frá að Jónas Kristjánsson hefði stofnað DV. Það er ekki rétt, hann var ritstjóri blaðsins en það var Sveinn Eyjólfsson sem stofnaði DV. Ragnhildur. Ásjóna Alþingishússins SÁ í sjónvarpsútsendingu frá Alþingi um daginn að kaffikanna stóð í glugga öðrum megin við stól for- seta þingsins. Finnst það ósmekklegt. Það sama má segja þeg- ar horft er að þinghúsinu frá Austurvelli. Hélt það væri afdrep fyrir a.m.k eina kaffikönnu í glæsilegri og örugglega tímabærri við- byggingu þessa fallega húss. Alþingishúsið er ekk- ert venjulegur vinnustaður. H.M. Tapað/fundið Gullarmbandskeðja týndist Gullarmbandskeðja með öryggislæsingu týndist 31. janúar frá Reykjavíkurvegi 50, Hafnarfirði, líklega í eða við Iðnskólann, Lækna- miðstöðina í Smáranum eða í Fjarðarkaupum. Eigandi saknar armbandsins mikið því það hefur mikið tilfinn- ingalegt gildi. Skilvís finn- andi hafi samband í síma 555 0923. Íþróttataska týndist BLÁ íþróttataska, merkt Manchester United, með íþróttaskóm og enska bún- ingnum og handklæði, týndist líklega í strætó á leiðinni úr FG í Garðabæ í Hafnarfjörð sl. miðviku- dag. Taskan er merkt Jón Alexander Guðmundsson. Skilvís finnandi hafi sam- band við Kristrúnu í síma 897 3086. Barnaskautar í óskilum HVÍTIR barnaskautar fundust fyrir 2 vikum við Austurbæjarbíó, ásamt poka með bolum. Eigandi getur haft samband í síma 554 0652 eða 552 5379. VELVAKANDI Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15  Netfang velvakandi@mbl.is ÉG HEF margsinnis í gegnum tíðina gagnrýnt skipulag Reykjavík- urborgar og um leið lagt fram tillögur að öðruvísi skipulagi m.a. varðandi þéttingu byggðarinnar með niðurrifi og nýrri upp- byggingu eldri hverfa. Flöt útþensla borgarinnar er orðin svo dýr að borgin hefur ekki efni á að halda úti nauðsynlegri þjónustu. Undirtektirnar hafa frem- ur litlar verið og nú er skýringin fundin. Nú hefur Davíð Odds- son, sem var borgarfulltrúi í 20 ár og borgarstjóri, upplýst að skipulag borg- arinnar hafi komið honum á óvart þegar honum var sýnt það vegna ætlaðra framkvæmda. Er það virki- lega svo að borgarfulltrúar þekki ekki skipulag borg- arinnar og að borgarstjór- arnir hafi aldrei séð það? Í hvaða heimi lifa slíkir stjórnendur? Jón Kjartansson frá Pálmholti. Skipulag borgarinnar LÁRÉTT 1 gagnlegur hlutur, 8 sterk, 9 auðugur, 10 verkfæri, 11 aulana, 13 sigruðum, 15 svívirða, 18 málms, 21 löður, 22 dökkt, 23 byggt, 24 sam- komulag. LÓÐRÉTT 2 sníkjudýr, 3 afturkerta, 4 kopta, 5 klæðlaus, 6 kvenfugl, 7 örg, 12 eykta- mark, 14 veiðarfæri, 15 sæti, 16 fiskana, 17 að baki, 18 askja, 19 töldu, 20 pest. LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU Lárétt: 1 rétta, 4 þrasa, 7 ylinn, 8 lítil, 9 ill, 11 anna, 13 frár, 14 sukki, 15 þykk, 17 skúm, 20 hal, 22 klípa, 23 Jót- ar, 24 rotna, 25 tinna. Lóðrétt: 1 reyna, 2 teikn, 3 asni, 4 þoll, 5 aftar, 6 aular, 10 lokka, 12 ask, 13 fis, 15 þokar, 16 klínt, 18 kátan, 19 merja, 20 hana, 21 ljót. Krossgáta 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.