Morgunblaðið - 17.02.2003, Qupperneq 28
„Það var alveg ótrúlegt hvað það var mikil stemmning í salnum,“ sagði
Birgitta Haukdal, en Háskólabíó var þéttskipað áhugafólki og aðdáendum.
BIRGITTA Haukdal virð-ist hafa sungið sig inn íhjörtu landsmanna íundankeppni Söngva-
keppni evrópskra sjónvarps-
stöðva með lagi sínu „Segðu mér
allt“. Keppnin fór fram á laug-
ardagskvöld og voru þeir margir
sem fylgdust með keppninni. Í
símakosningu um sigurlagið voru
greidd 70.000 atkvæði. Lag Birg-
ittu og Hallgríms Óskarssonar,
„Segðu mér allt“, hlaut rúmlega
21.000 atkvæði.
Í öðru sæti var lag Botnleðju:
„Eurovísa“, en Þórey Heiðdal
söng sig í þriðja sæti með lagið
„Sá þig“.
Draumur lítillar
stelpu á Húsavík
Birgitta var enn í skýjunum
þegar blaðamaður ræddi við
hana: „Þetta er eins og draumur.
Ég er ekki enn búin að gera mér
fyllilega grein fyrir þessu, ekki
ennþá komin niður á jörðina,“
sagði Birgitta. „Ég hefði aldrei
trúað þessu. Þetta er eitthvað
sem ég er búin að láta mig
dreyma um síðan ég var lítil
stelpa að horfa á Evróvisjón
heima á Húsavík.“
Lagið er afsprengi samstarfs
Birgittu og Hallgríms Ósk-
arssonar en þau fengu Þorvald
Bjarna Þorvaldsson, sem er best
þekktur sem liðsmaður Tod-
mobile, til að útsetja lagið fyrir
sig. Hallgrímur sagðist hafa feng-
ið innblástur þar sem hann dvald-
ist í Stokkhólmi ásamt nýfæddu
barni sínu, steinsnar frá þeim
stað þar sem flest Abba-lögin
urðu til. „Birgitta kom síðan að
málinu og bætti við textann svo
hann varð einlægari og fallegri,“
sagði Hallgrímur.
„Það var aldeilis mikill fengur í
að fá Þorvald til að útsetja lagið.
Sumir segja líka að Eurovision-
keppnin hafi að hluta til farið
fram á eldhúsbekknum hjá Birg-
ittu, en hún valdi lagið úr sjö eða
átta öðrum sem henni stóð til
boða að syngja í keppninni.“
Söng eins og Sandra Kim
Birgitta hefur undanfarið gert
það gott með hljómsveitinni Íra-
fári, en Eurovision hefur eflaust
átt sinn þátt í að þessi frísklega
stúlka lagði sönginn fyrir sig: „Af
sigurlögum hefur uppáhaldslagið
mitt alltaf verið „J’aime la vie“
sem Sandra Kim söng. Þegar hún
vann keppnina [1986] var ég á
aldur við hana og var fljót að
drífa mig inn í herbergi þar sem
ég söng fyrir framan spegilinn og
ímyndaði mér að ég væri hún,“
sagði Birgitta. „En af íslensku
lögunum er það auðvitað Nína
sem hefur lifað best.“
Henni bregður óneitanlega
þegar blaðamaður minnist á það
við hana að nú sé hún að feta í
fótspor Cliff Richards, Julio Igl-
esias, Abba og Celine Dion. „Guð,
þegar þú segir þetta! Þetta er svo
stórt alltsaman. Ég ætla að taka
þessu eins og það stóra ævintýri
sem það er: fara og gera mitt
allra besta. Ég ætla ekki að fara
þarna endilega með það að mark-
miði að finna mér einhverja
tengiliði og auglýsa sjálfa mig,
heldur bara njóta þess að vera
þarna, hafa ógeðslega gaman af
og gera eins vel og ég get svo ég
geti verið stolt af mér í framtíð-
inni.“
Verður líklega
sungið á ensku
„Það fylgir auðvitað alltaf eitt-
hvað persónulegt með þegar
maður semur lag,“ sagði Birgitta
þegar hún var spurð um boðskap
lagsins. „Þetta lag stendur ná-
lægt mér og segir frá hvað það
er mikið betra að opna sig og tjá
tilfinningar sínar en loka sig
inni.“
Hallgrímur tekur undir þetta:
„Það er alltof algengt hjá okkur
Íslendingum að við tölum ekki
nógu mikið saman. Það þekkja
það líka allir að einhverju marki
frá vinum sínum og fjölskyldu að
fólk er ekki alltaf nógu duglegt
að segja sannleikann.“
Þeim Birgittu og Hallgrími
hafði ekki enn gefist næði til að
ákveða hvort lagið verður sungið
á ensku eða íslensku. „Það er
ekki búið að semja enskan texta,“
sagði Birgitta. „En það er líkleg-
ast að lagið verði flutt á ensku,
þótt það sé ekki fullvíst.“
„Þetta var allt rosalega gaman
og alveg ótrúlegt hvað það var
mikil stemmning í salnum. Ég
held ég hafi aldrei verið jafn-
stressuð á ævinni, en maður
vandar sig bara meira við það.
Umgjörðin var flott og kynn-
arnir, Gísli Marteinn og Logi
Bergmann, fóru á kostum svo
keppnin varð öll létt og skemmti-
leg.“
Birgitta segist jafnvel vera í
vafa um hvar á kortinu Lettland
er, en keppnin fer þar fram, í
höfuðborginni Riga. „Ég hlakka
alveg rosalega til og er með fiðr-
ing í maganum. Ég ætla bara að
vona að Íslendingar geti verið
stoltir af mér, hvort sem ég lendi
í háu eða lágu sæti í keppninni.
Ég ætla að gera mitt besta. – Það
er auðvitað stefnan að halda Ís-
landi áfram í keppninni!“ bætir
Birgitta glettnislega við.
„Stefnan að halda Ís-
landi áfram í keppninni“
Logi Bergmann og Gísli Marteinn kynntu keppnina og voru auðvitað jafn
spaugsamir og þeir eiga að sér að vera.
Morgunblaðið/Kristinn
Birgitta syngur sigurlagið, „Segðu mér allt“.
„Segðu mér allt“ vann forkeppni Eurovision sem haldin var í Háskólabíói á laugardagskvöld
28 MÁNUDAGUR 17. FEBRÚAR 2003 MORGUNBLAÐIÐ
leonardo dicaprio tom hanks
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
HK DV
2
Tilnefningar til Óskarsverðlauna
Aukahlutverk karla: Christopher Walken
Besta tónlistin: John Williams
Kvikmyndir.com
SV MBL
Radíó X
OHT Rás 2
Hann hafði draumastúlkuna
við hlið sér... ...en áttaði sig
á því þegar hún var farin
Sýnd kl. 6.Sýnd kl.10
ÓHT Rás 2
Sýnd kl. 6. Síðustu sýningar.
Sýnd kl. 8 og 10. E. texti. Stranglega bönnuð innan 16.
H.K DV Kvikmyndir.is
H.L MBLDV
Sýnd kl. 6 og 8.
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10.
Náðu þeim í bíó í dag.
Í mynd eftir Steven Spielberg
Radíó X
SV MBL
HK DV
ÓHT Rás 2
Kvikmyndir.com
ÁLFABAKKI AKUREYRI
2Tilnefningar til ÓskarsverðlaunaAukahlutverk karla: Christopher WalkenBesta tónlistin: John Williams
Sýnd kl. 8 og 10. / Sýnd kl. 8.