Morgunblaðið - 07.03.2003, Page 2

Morgunblaðið - 07.03.2003, Page 2
FRÉTTIR 2 FÖSTUDAGUR 7. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ Skákkempan Viktor Kortsnoj lenti upp á kant við stjórn- völd í Rússlandi og flúði land. Skapti Hallgrímsson rabb- aði við þennan gamla og glaðlega skákref. Feður í fæðingarorlofi Um 80% íslenskra feðra fara nú í fæðingarorlof. Ragna Sara Jónsdóttir ræðir við feður í orlofi og fjallar um áhrif þessarar breytingar á jafnrétti kynjanna. Margrét Árnadóttir Hún er komin á 75. aldursár og rekur eigið hönnunarfyr- irtæki með ullarfatnað. Anna G. Ólafsdóttir ræddi við Margréti Árnadóttur um lífshlaupið. Skákrefurinn Kortsnoj á sunnudaginn VILL AÐGERÐIR Ögmundur Jónasson, þingflokks- formaður Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs, krafðist í gær að- gerða stjórnvalda er fyrirbyggðu undanskot undan skatti með flutn- ingi fjármagns milli landa. Kom þetta fram í umræðum utan dag- skrár á Alþingi um skattaskjól Ís- lendinga í útlöndum. 102 fórust í Alsír Eitt hundrað og tveir fórust og einn lifði af er alsírsk farþegaþota fórst í flugtaki í Suður-Alsír síðdegis í gær. Talið er að bilun hafi orðið í vélinni, sem var af gerðinni Boeing 737-200, í eigu alsírska flugfélagsins Air Algerie. Sá sem lifði af er lífs- hættulega slasaður. Bretar bjóða tilslakanir Utanríkisráðherra Bretlands sagði í gær að Bretar væru tilbúnir til að gera breytingar á álykt- unardrögum þeim sem þeir hafa ásamt Bandaríkjamönnum lagt fyrir öryggisráð Sameinuðu þjóðanna um afvopnun Íraka. Þá segjast Bretar ekki telja nauðsynlegt að Saddam Hussein Íraksforseti fari frá. Ellefu biðu bana Að minnsta kosti ellefu Palest- ínumenn biðu bana og 110 særðust í fyrrinótt, er ísraelskar hersveitir réðust inn í flóttamannabúðir á Gaza-svæðinu. Meðal þeirra sem biðu bana voru börn. Ísraelar neita því að þeir hafi vísvitandi orðið óbreyttum borgurum að bana. Undir væntingum Hagnaður Samherja hf. á síðasta ári var minni en fjármálafyrirtækin höfðu spáð. Nam hagnaður fyrirtæk- isins 1.879 milljónum króna, en spáin hafði hljóðað upp á 2.331 milljón. Fleiri skila rafrænu Fjöldi þeirra sem skila skatt- framtali á Netinu hefur stóraukist undanfarið. Á síðasta ári skiluðu 74% einstaklinga rafrænu framtali og 90% lögaðila. Frestur til að skila skattframtalinu er til 24. mars, en þeir sem telja fram á Netinu geta fengið frest til 8. apríl. Y f i r l i t Í dag Sigmund 8 Kirkjustarf 39 Viðskipti 14/17 Umræðan 42/43 Erlent 20/21 Bréf 46 Höfuðborgin 22/23 Skák 47 Akureyri 24 Brids 47 Suðurnes 26 Dagbók 48//49 Landið 27 Íþróttir 50/53 Menntun 28 Leikhús 54 Listir 29/31 Fólk 54/61 Forystugrein 32 Bíó 58/61 Viðhorf 36 Ljósvakamiðlar 62 Minningar 36/41 Veður 63 * * * Kynningar – Blaðinu í dag fylgir aug- lýsingablaðið Sjónvarpsdagskráin frá Sonet ehf. Blaðinu er dreift um allt land. TVEIR nýir meðlimir hafa bæst við lið lögreglunnar. Nýr lögregluhundur er nú að hefja þjálfun ásamt því að lögreglan fékk Volvo-skutbíl afhentan í gær. Bílnum hefur verið breytt til þess að að skapa aðstöðu fyrir hunda aftur í. „Við tökum í raun bara mið af því hvernig svona bílar eru hannaðir á Norðurlöndunum,“ sagði Karl Steinar Valsson aðstoðaryfirlögregluþjónn. Hann sagði kosti bílsins þá að hægt sé að hafa tvo hunda aftast í bílnum auk þess að hafa pláss í aftursæti. „Þetta gjörbreytir vinnuaðstöðunni fyrir lögregluna. Við höfum haft bíla fyrir hundana sem hafa ekki gefið tækifæri til þess að vinna þessi hefðbundnu lög- reglustörf samhliða þeim störfum sem hundarnir hafa aðallega verið í. Þetta er liður í þeirri áætlun okkar að hafa alltaf þjálfaða lögregluhunda til taks og við sjáum það markmið nást á næstu mánuðum,“ sagði Karl Steinar. Stefnt er að því að sjö hundar verði í liðinu sem allir hafa þjálfun í að þefa uppi fíkniefni. Að auki hafa sumir þeirra sérstaka hæfileika í að þefa uppi sprengiefni og sumir þeirra eru góðir sporhundar. „Á síðastliðnum vikum og mánuðum höfum við verið að fjölga hundum. Þeir hafa fundið talsvert af efnum í bílum sem við erum að hafa afskipti af á úti á vegum út af ýmsum brotum. Starf hundanna er því farið að skila sér mjög vel. Fyrir utan það fá þeir þjálfun til lögreglustarfa,“ sagði Karl Steinar. Agnar Hannesson, forstöðumaður þjónustuverk- stæðis lögreglunnar, tekur hér í loppuna á Barthez við afhendingu nýja lögreglubílsins. Geir Jón Þórisson yf- irlögregluþjónn og Karl Steinar fylgjast með. Morgunblaðið/Júlíus Nýir meðlimir í lögregluna Þjálfaðir lögregluhundar verði alltaf til taks JÓNATAN Garðarsson, formaður dómnefndar Söngvakeppni Sjón- varpsins, forkeppni Evróvisjón 2003, segir að á þessu stigi komi ekki til greina að hætta við að senda Birg- ittu Haukdal og lag Hallgríms Ósk- arssonar „Segðu mér allt“ til Lett- lands í maí. Niðurstaða trúnaðarmanna STEFs, Sambands tónskálda og eig- enda flutningsréttar, er sú að ekki sé hægt að mæla með laginu í núver- andi mynd því það líkist um of laginu „Right Here Waiting“ frá árinu 1989 með bandaríska tónlistarmanninum Richard Marx. „Niðurstaðan er ekki það óyggjandi að við getum tekið slíka ákvörðun. Það er búið að velja þetta lag. Ef það er ekki hægt að skera úr um að um lagastuld sé að ræða teljum við að við höfum ekki forsendur til þess að fella niður ákvörðun þjóðarinnar,“ segir Jón- atan. Hann segir málið í höndum Hall- gríms. „Þessir tveir aðilar [Örn Ósk- arsson og Ríkharður Örn Pálsson] gefa ekki út með óyggjandi hætti yf- irlýsingu um að þarna sé um laga- stuld að ræða heldur eingöngu vara við því að lagið sé þannig að það geti komið til málsóknar. Og þeir gefa það jafnframt upp að þetta sé ráð- gefandi álit, ekki beint úrskurður. Málið er í höndum Hallgríms. Hann getur, án þess að breyta höfund- arverkinu, gripið til ákveðinna að- gerða og gert lagið þannig úr garði að það líkist ekki jafnmikið þessu er- lenda lagi. Að það falli undir þá skil- greiningu að ekki sé um lagastuld að ræða heldur sé um líkindi að ræða sem er ekki óalgengt.“ Jónatan segir að verið sé að vinna lagið á ensku og við það muni það geta tekið breytingum. Hallgrímur vísaði málinu áfram til móðursamtaka STEFs, Nordisk Copyright Bureau. „Komi til þess að málsókn verði út af þessu lagi, að einhver geri kröfu um að höfund- arskráningu verði breytt, þá er kom- in upp ný staða. En mér skilst að NCB komi ekki til með að gefa út öðruvísi úrskurð en nú er, hann yrði galopinn.“ Jónatan leggur áherslu á að höf- undurinn sé ábyrgur og Sjónvarpið sé ekki beinn aðili að málinu. „End- irinn er alltaf sá að höfundurinn sem biður um úrskurðinn er ábyrgur. Hann verður að taka sína eigin ákvörðun. Þetta er ekkert mál milli Sjónvarpsins og STEFs heldur Hall- gríms og STEFs. Hann leitar álits, við erum enginn aðili að málinu.“ Dómnefnd telur álit STEFs ekki óyggjandi Ekki hætt við að senda lag Hallgríms Óskarssonar UM 1.000 manns munu starfa við gerð frárennslisganga og stíflu við Kárahnjúkavirkjun. Þetta kom fram í máli Robertos Velos, fulltrúa ítalska verktakafyrirtækisins Impregilo, á málþingi um viðskipti Íslands og Ítal- íu sem Ítalsk-íslenska verslunarráðið stóð fyrir í gær. Velo sagði að starfsmennirnir yrðu frá nokkrum ríkjum. Auk íslensks vinnuafls kæmu hingað starfsmenn frá Impregilo og starfsmenn á vegum undirverktakafyrirtækja. Hann sagði von á 40–80 Ítölum hingað til lands vegna verkefnisins, bæði starfsmönn- um Impregilo og fjölskyldum þeirra. Velo sagði að framkvæmdir myndu hefjast um leið og búið væri að ganga frá samningsgerð við Landsvirkjun en stefnt er að undirritun hinn 17. þessa mánaðar. Hann sagði áætlað að stíflugerð yrði lokið í desember 2006 og gerð frárennslisganga í janúar 2007. Hann lagði áherslu á að fyrirtækið myndi verja hluta fjármagnsins sem fer til virkjanaframkvæmda í undir- verktakaþjónustu, efniskaup og kaup á þjónustu frá innlendum fyrirtækj- um. Hann sagði að Impregilo hefði nú þegar reitt fram verklokatryggingu sem útgefin er af Landsbanka Íslands og verður afhent Landsvirkjun. Fulltrúi Impregilo um framkvæmdir við Kárahnjúka Þúsund manns í vinnu við ganga- og stíflugerð

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.