Morgunblaðið - 07.03.2003, Side 4

Morgunblaðið - 07.03.2003, Side 4
FRÉTTIR 4 FÖSTUDAGUR 7. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ SAMKVÆMT skoðanakönnun sem birt var í DV í gær um fylgi flokka í næstu alþingiskosningum bætir Sjálf- stæðisflokkurinn við sig fylgi, er nú með 42,3% en Samfylkingin með 34,5% fylgi í könnun DV. Úrtakið var 600 manns, jafnt skipt milli kynja og hlutfallslega milli höf- uðborgarsvæðisins og landsbyggðar- innar. Meira fylgi meðal kvenna Framsóknarflokkurinn með 12,3%, Vinstri-grænir með 7,7% og Frjáls- lyndi flokkurinn 3,3%. Miðað við síðustu könnun DV tapar Framsóknarflokkurinn 4,9% og Vinstri-grænir 1,6%. Sjálfstæðis- flokkur bætir við sig 3,5%, Frjálslyndi flokkurinn 2,2% og Samfylkingin 0,8%. Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig fylgi á höfuðborgarsvæðinu og meðal kvenna, en 7% fleiri konur ætla að kjósa flokkinn en í síðustu könnun DV. Framsókn tapar stuðningi 8% karla en Samfylkingin tapar fylgi 7% kvenna. Samfylkingin styrkir hins vegar stöðu sína meðal karla um rúm 7%. Mun fleiri konur eru óákveðnar í könnun DV nú samanborið við síðustu könnun, eða 34,3% og munar þar tæp- um tíu prósentustigum. 23,7% karla eru óákveðin eða svara ekki sem er sama hlutfall og í síðustu könnun. Skoðanakönnun DV um kosningarnar Fylgi Sjálfstæðis- flokksins eykst ATKVÆÐI féllu jafnt milli tvegga presta í síðari umferð kosninga til vígslubiskups á Hól- um, séra Jóns Aðalsteins Bald- vinssonar og séra Kristjáns Vals Ingólfssonar. Á kjörskrá voru 63 og bárust 62 atkvæði alls. Atkvæðin skiptust jafnt og fékk hvor 30 atkvæði en tveir seðlar voru auðir. Samkvæmt 10. grein starfs- reglna um kosningu biskups Ís- lands og vígslubiskupa skal, ef at- kvæði falla jafnt við endurteknar kosningar, veita embættið öðrum hvorum þeirra sem voru í kjöri. Heimilt er að kæra kosningu og skulu kærur hafa borist kjör- stjórn kirkjunnar eigi síðar en sjö dögum eftir að atkvæði eru talin. Málinu vísað til kirkjumálaráðherra Kjörstjórn leggur þær fyrir yf- irkjörstjórn þjóðkirkjunnar til úr- skurðar ásamt athugasemdum sínum. Yfirkjörstjórn úrskurðar innan viku um kæruna. Berist engar kærur mun kjörstjórn vísa málinu til kirkjumálaráðherra. Jöfn atkvæði í vígslubiskupskjöri Á SÍÐASTA ári fjölgaði komum til Stígamóta um 13,3% samkvæmt nýrri ársskýrslu samtakanna. Hef- ur þeim stöðugt fjölgað síðastliðin fjögur ár. Árið 2001 leituðu 410 manns til Stígamóta en 440 í fyrra. Langflestir skjólstæðingar Stíga- móta eru konur og var kynferðisof- beldi framið af 320 körlum og 16 konum. Af 440 komum til Stígamóta voru 225 ný mál tekin upp. Fjöldi ofbeld- ismanna var 336 og heildarfjöldi viðtala 1.715. Athygli vekur hversu miklu fleiri ofbeldismennirnir eru en þeir sem beittir eru ofbeldi. Að mati Stígamóta er ástæðan meðal annars sú að margir höfðu fleiri en eina ofbeldissögu að segja. Stund- um geta líka sömu ofbeldismenn- irnir verið margtaldir, hafi þeir beitt fleiri en eina konu ofbeldi. Alls voru sjö hópnauðganir til- kynntar til Stígamóta á síðasta ári sem er meira en nokkru sinni fyrr. Þær dreifðust nokkuð jafnt yfir ár- ið. Þær konur sem urðu fyrir hóp- nauðgunum voru oftast yngri en tvítugar. Þeim sem leituðu sér hjálpar vegna nauðgana fjölgaði um 40,2% á milli ára. Hins vegar fjölgaði þeim sem nauðguðu um 66%. Skýr- ingin á því að gerendur séu fleiri en þolendur er fjöldi hópnauðgana ásamt því að sumir þolenda verða fyrir fleiri en einni nauðgun. Í sex tilfellum töldu konur sig hafa orðið fyrir lyfjanauðgunum. Alvarlegar líkamsmeiðingar í tengslum við nauðganir hafa einnig aukist. „Við höfum miklar áhyggjur af þessum lyfjanauðgunum sem reyndar hafa ekki verið staðfestar með lyfja- prófum því skjólstæðingarnir hafa komið hingað of seint. Við höfum einnig áhyggjur af þessum hóp- nauðgunum og þeim alvarlegu lík- amsmeiðingum þegar konum er nauðgað. Þetta bendir til grófs of- beldis sem konur skemmast alvar- lega af,“ sagði Rúna Jónsdóttir, fræðslu- og kynningarfulltrúi Stíga- móta. 90% af nauðgununum voru ekki kærð til lögreglu. Ný tegund ofbeldis þar sem myndir eru teknar af þolanda og honum hótað að þær verði settar á Netið jókst ásamt því að alvarleiki þeirra jókst. Þá leituðu sex íslenskar konur úr kynlífsiðnaðinum hjálpar hjá Stíga- mótum. Rúna sagði þær konur oft bera mikla skömm og sektarkennd og þær ættu mjög erfitt með að vinna úr reynslu sinni. Margar treystu sér ekki til að koma til Stígamóta og fengju því aðstoð í gegnum síma. Vill að forvarnir komi frá körlunum sjálfum Undanfarin 13 ár hefur 3.371 kona leitað til Stígamóta sem er 2,34% íslenskra kvenna. „Ég held að síðastliðin 20 ár höfum við eytt mikilli orku í að aðvara konur, tala um afleiðingarnar og eðli ofbeldis- ins en við höfum of lítið beint kast- ljósinu að þeim sem fremja ofbeldið og hafa í hendi sér hvort það verði framið eða ekki. Ég held að for- varnir verði að beinast að litlum strákum, ungum og gömlum körl- um og það þurfi að benda þeim á ábyrgðina sem felst í því að vera karlmaður. Þess vegna þurfa karlar að rísa upp sjálfir og vinna í þess- um málum. Ef við kæmumst þang- að væri það mikið og stórt skref. Það er orðin til samráðsnefnd gegn kynferðisofbeldi og hana skipa fulltrúar fjögurra ráðuneyta og Sambands íslenskra sveitarfélaga. Með mikilli virðingu fyrir því fólki finnst mér nefndin ekki koma inn sjónarhorni eins og okkar og ég þekki ekki fordæmi þess á hinum Norðurlöndunum. Þar eru starfs- systur okkar á kafi í nefndavinnu af þessu tagi,“ sagði Rúna. Rúna sagði ennfremur að flestar konurnar sem leiti til þeirra hafi fleiri en eina ofbeldissögu að segja. Eftir sem áður leituðu þó nokkrar konur sem urðu fyrir sifjaspellum sem börn eða unglingar sér að- stoðar. Það bendir til þess að of- beldið byrji snemma og hafi mikil áhrif á konur. Þá er ljóst að 75% nauðgana fóru fram á heimilum og voru framin af vinum og kunn- ingjum í 53% tilfella, 15,5% af ókunnugum og í 10% tilfella voru þær framdar af mökum. Rúna telur að þessa jöfnu fjölgun á skjólstæðingum þeirra megi að hluta til rekja til aukinnar klám- væðingar í þjóðfélaginu. Hún segir börn og unglinga til að mynda hafa ólíka mynd af kynlífi í dag og var fyrir 20 árum. ZONTAKLÚBBARNIR á Íslandi gangast í dag fyrir landssöfnun til styrktar starfsemi Stígamóta gegn mansali og vændi. Sam- tökin munu selja rósanælu á 500 krónur fyrir utan helstu stór- markaði landsins. Vonast Dögg Pálsdóttir, félagi í Zontaklúbbn- um Emblu í Reykjavík, til að ágóðinn nái 3,5 milljónum króna. 10% hagnaðarins renna til Aflsins, systursamtaka Stíga- móta á Akureyri. Zontaklúbbarnir á Íslandi eru aðili að alþjóðlegum samtökum Zonta sem stofnuð voru í Banda- ríkjunum 1919. Fyrsti klúbb- urinn á Íslandi var stofnaður 1941 og sá nýjasti í Hafnarfirði fyrir nokkrum vikum. Um 230 konur eru í íslenskum Zonta- klúbbum. Safna fyrir baráttu gegn mansali og vændi Komum til Stígamóta fjölgaði fjórða árið í röð og nú um þrettán prósent Aldrei fleiri hópnauðganir Morgunblaðið/Árni Sæberg Rúna Jónsdóttir, fræðslu- og kynn- ingarfulltrúi Stígamóta, kynnti árs- skýrslu samtakanna í gær. Í bak- grunni sést mynd sem notuð verður í herferð gegn mansali og vændi. ÍSLANDSMÓT kaffibarþjóna hófst í gær í Kringlunni og keppa 18 þjónar um meistaratitilinn. Sex þjónar komast í úrslit og verður sigurvegarinn krýndur á morgun laugardag að lokinni úrslitakeppn- inni. Mikil áhersla er lögð á hina al- þekktu espressó- og cappuccino- kaffidrykki en einnig keppa þjón- arnir í framreiðslu kaffidrykks að eigin vali. Sex manna úrvalið mynd- ar landsliðshóp kaffibarþjóna sem keppir á heimsmeistaramótinu í Boston í apríl. Þetta er í 4. skipti sem Íslandsmót kaffibarþjóna er haldið og sigraði Ragnheiður Gísla- dóttir hjá Kaffitári í fyrra. Kaffibar- þjónar keppa Morgunblaðið/Júlíus Hjörtur Matthías frá Kaffitári keppir hér undir vökulu auga dómara. BÆNDUR vita vel af ákvæð- um samkeppnislaga um að framleiðendum sé óheimilt að koma sér saman um að draga úr framboði eða grípa til að- gerða sem geti haft áhrif á verð til hækkunar. En þeir vita einn- ig að að það er hægt að veita undanþágu frá þessu ef sýna má fram á með veigamiklum rökum að slík leið sé skynsam- leg út frá heildarhagsmunum. Þetta segir Ari Teitsson, for- maður Bændasamtakanna, í til- efni ummæla lögmanns Sam- keppnisstofnunar í Morgun- blaðinu í gær þess efnis að samkeppnislögin banni bænd- um slíkt samráð. Segir gjaldþrota- leiðina ekki duga „Ég sagði við upphaf Búnað- arþings að það væri um þrjár leiðir að velja út úr vandanum og það er vissulega eitt af stóru málum þingsins hvernig eigi að bregðast við ástandinu á kjöt- markaðinum. Ef þingið kemst að þeirri niðurstöðu að rétt sé að stefna að því að draga skipu- lega úr framboði þá munum við að sjálfsögðu snúa okkur til Samkeppnisstofnunar og gera grein fyrir stöðunni og skoða í samráði við þá með hvað hætti það gæti gerst og hvað sé leyfi- legt í þeim efnum. Það hefur alltaf legið fyrir,“ segir Ari. Ari segist þeirrar skoðunar að „gjaldþrotaleiðin“ dugi ekki til að draga úr offramboði. Ari Teitsson um kjötframleiðslu Myndum hafa samráð

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.