Morgunblaðið - 07.03.2003, Qupperneq 6
Fjárfest-
ingar-
stofan til-
nefnd til
verðlauna
FJÁRFESTINGARSTOFAN,
sem starfrækt er af iðnaðar- og
viðskiptaráðuneytinu, Lands-
virkjun og Útflutningsráði, er
tilnefnd til fernra verðlauna
sem blaðið Strategic Direct
Investor, SDI, stendur í fyrsta
sinn að meðal evrópskra fjár-
festingarstofa fyrir árið 2002.
Óákveðið er hvenær verðlaunin
verða afhent en SDI er í eigu
útgefenda tímaritsins Euro-
money.
Afhenda á verðlaun í 20
flokkum og eru þrír aðilar til-
nefndir í hverjum flokki. Fjár-
festingarstofan er í fyrsta lagi
tilnefnd fyrir að vera í hópi
þeirra sem best er stjórnað í
Evrópu. Er þar m.a. miðað við
skilgreiningar á atvinnulífinu,
kynningu til valinna fyrirtækja,
samningagerð og hve stofan er
fáliðuð, en þar starfa sjö
manns.
Þá er stofan tilnefnd fyrir
samningagerð, fyrst og fremst
vegna aðstoðar við samninga
við Alcoa og hve það mál var
klárað á skömmum tíma. Einn-
ig er stofunni talið til tekna
samstarf við Norðurál og
samningagerð um stálpípugerð
í Helguvík.
Markviss stefnumörkun
Fjárfestingarstofan er enn-
fremur tilnefnd fyrir markvissa
stefnumörkun og hvernig þarf-
ir fyrirtækja hafa verið upp-
fylltar. Loks er Garðar Ingv-
arsson, framkvæmdastjóri
orkusviðs Fjárfestingarstofu,
tilnefndur fyrir starf sitt að
þessum málum á undanförnum
áratugum.
Páll Magnússon, stjórnarfor-
maður Fjárfestingarstofu, seg-
ir það mikinn heiður fyrir stof-
una að hljóta þessar
tilnefningar. Síðasta ár hafi
verið annasamt og mikill árang-
ur náðst. Ánægjulegt sé að það
starf veki athygli erlendis en
mikil samkeppni eigi sér stað
landa í milli um stóra fjárfesta.
FRÉTTIR
6 FÖSTUDAGUR 7. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ALLS fá 184.000 einstaklingar sent skattframtal
í ár á pappír en dreifing framtala til landsmanna
hófst síðastliðinn mánudag. Þá var vefframtal
opnað í vikunni.
Frestur til að skila skattframtali er til 24.
mars. Gildir það um alla einstaklinga, bæði
launamenn og menn með rekstur og hvort sem
skilað er á pappír eða á Netinu. Ef skilað er á
Netinu er hægt að sækja um framlengdan frest
til 8. apríl. Ekki er hins vegar hægt að fá viðbót-
arfrest vegna pappírsskila.
35.000 einstaklingar sem telja fram á Netinu
hafa óskað eftir að fá ekki sent pappírsframtal
og fá þeir einungis sent bréf með veflykli vegna
vefskila. Stór hluti þeirra sem biðja um að fá
sent pappírsframtal telur engu að síður fram á
Netinu og hefur fjöldi þeirra sem skila rafrænu
framtali aukist stórum skrefum. Á síðasta ári
töldu 74% einstaklinga fram á Netinu og rúm-
lega 90% lögaðila notfærðu sér rafræn framtals-
skil á seinasta ári.
Meiri upplýsingar forskráðar
Forsvarsmenn Ríkisskattstjóraembættisins
kynntu skattframtal ársins 2003 og ýmsar nýj-
ungar á rafrænum skattskilum á fréttamanna-
fundi í gær. Þar kom fram að meiri upplýsingar
eru nú forskráðar á skattframtali en áður til að
auðvelda framteljendum að telja fram. Auk for-
skráðra upplýsinga um laun og starfstengdar
greiðslur, lífeyri, fasteignir, íbúðarskuldir, öku-
tæki og skuldir við LÍN eru nú einnig for-
skráðar skuldir við kaupleigur, vegna kaup-
leiguíbúða og verð ökutækja á framtali ársins
2003.
Meðal helstu nýjunga við framtalsgerð í ár er
að einstaklingar sem eru með eigin atvinnu-
rekstur og veltu allt að 20 milljónum króna geta
talið fram á Netinu.
Aðgangur að framtali síðasta árs
Sú nýjung verður einnig varðandi vefframtöl í
ár, að aðgangur er veittur að framtali síðasta ár.
Einnig er hægt að fá sent staðfest rafrænt afrit
af framtali 2003 vegna umsýslunar gagnvart t.d.
fjármálstofnunum.
Þá er í undirbúningi að senda álagningarseðla
út á rafrænu formi og að hægt verði að skila
kærum vegna framtals og annarra skatterinda á
rafrænu formi. Meðal annarra nýjunga sem boð-
ið er upp á í ár er að hægt verður að senda inn
leiðréttingar við vefframtöl eftir á eða allt þar til
kærufrestur er útrunninn og jafnframt munu
endurskoðendur og bókarar sem taka að sér
framtal fyrir einstaklinga fá aðgang að for-
skráðum gögnum á Netinu en á síðasta ári skil-
uðu endurskoðendur og bókarar framtölum fyrir
um 56 þúsund framteljendur.
Laun og skuldir forskráðar
Á framtöl hafa verið forskráðar ýmsar upplýs-
ingar, svo sem laun að upphæð samtals 343
milljarðar, starfstengdar greiðslur að upphæð
9,5 milljarðar, lífeyrir upp á 51 milljarð, aðrar
tekjur upp á 17,5 milljarða eða samtals 423,5
milljarða tekjur.
Þá eru forskráðar fasteignir að verðmæti
1.010 milljarðar, íbúðarskuldir upp á 303 millj-
arða, skuldir við Lánasjóð íslenskra námsmanna
upp á 51 milljarð.
Frestur til að skila skattframtali ársins 2003 rennur út 24. mars
Sífellt fleiri skattgreiðend-
ur skila rafrænu framtali
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kynntar voru í gær ýmsar nýjungar í tengslum við skattframtal ársins 2003. Við borðið eru Indriði H.
Þorláksson ríkisskattstjóri (til hægri) og Ingvar J. Rögnvaldsson vararíkisskattstjóri.
Fjölmargir vilja ekki
fá sent pappírsframtal
LANDEIGENDUR, og lögmenn
þeirra, sem ríkið stefndi fyrir Hér-
aðsdóm Suðurlands vegna þjóð-
lendumála í uppsveitum Árnes-
sýslu eru ósáttir við að lögaðilum
sé ekki veitt gjafvörn af ríkinu
heldur aðeins einstaklingum. Hef-
ur gjafsóknarnefnd hafnað beiðni
lögmanna um að ríkið greiði máls-
kostnað.
Unnið er að því með þingmönn-
um að sérstök heimild fáist af fjár-
lögum til að greiða málflutnings-
kostnað þeirra sem ríkið stefndi, á
grundvelli þess hve málin eru sér-
staks eðlis. Á þetta einnig við um
gjafsókn þar sem sömu aðilar hafa
stefnt ríkinu vegna tiltekinna at-
riða í úrskurðum óbyggðanefndar
um Árnessýslu. Málflutningur
vegna þessara mála fer væntan-
lega fram fyrir Héraðsdómi Suður-
lands næsta haust en lögmenn eru
um þessar mundir að skila grein-
argerðum.
Ólafur Björnsson, lögmaður á
Selfossi, fer með nokkur þessara
mála, m.a. fyrir hönd sveitarfé-
laga, og segir nokkurt ósamræmi
vera í einkamálalögum. Þau veiti
aðeins einstaklingum heimild til að
fá greiddan málskostnað en ekki
lögaðilum, s.s. sveitarfélögum og
einkahlutafélögum.
„Menn hafa bent á að málin séu
svo sérstök að það sé eðlilegt að
allir varnaraðilar, hvort sem það
eru einstaklingar eða lögaðilar, fái
gjafsókn eða gjafvörn, enda er rík-
isvaldið sjálft að sækja málin af
öllum sínum þunga. Það á ekki að
skipta máli í þessu hvort einhver
jörð sé í eigu einstaklings eða
einkahlutafélags. Þetta er einnig
mjög íþyngjandi fyrir sveitarfélög-
in sem eiga í hlut en sum þeirra
standa ekki vel fjárhagslega,“ seg-
ir Ólafur en telur menn vongóða
um að sérstök heimild fáist í fjár-
lögum til að greiða þennan kostn-
að.
Lögmenn landeigenda hafa sent
fjármálaráðuneytinu bréf vegna
þessa máls. Að sögn Baldurs Guð-
laugssonar ráðuneytisstjóra er
svars að vænta en hann vildi ekki
tjá sig um innihald þess að svo
stöddu.
Málflutningur vegna þjóðlendumála
Ríkið veitir lög-
aðilum ekki gjaf-
vörn eða gjafsókn
Skattskil á árinu 2003
Verðmæti fasteigna
rúm billjón króna
219 þúsund framteljendur.
532 þúsund blöð send í pósti.
184 þúsund einstaklingar fá sent framtal
á pappír.
35 þúsund fá eingöngu sendan veflykil.
Framtalsfrestur er til 24. mars.
Verðmæti fasteigna landsmanna for-
skráðar á framtal rúmlega ein billjón kr.
(1.010 milljarðar).
Tekjur sem forskráðar eru á framtal 424
milljarðar.
Verð ökutækja landsmanna sem forskráð
er á framtal 55,4 milljarðar kr.
Íbúðarskuldir forskráðar á framtal 303
milljarðar.
Tjaldi dæmd-
ar 22 millj-
ónir vegna
kvótakaupa
HLUTAFÉLAGIÐ Birnir í
Bolungarvík var í Héraðsdómi
Vestfjarða í gær dæmt til að
greiða Útgerðarfélaginu Tjaldi
ehf. rúmar 22 milljónir króna
vegna kvótakaupa.
Upphaf málsins var að Birnir
keypti af Básafelli hf. varanleg-
ar veiðiheimildir fyrir 83 millj-
ónir króna sumarið 1998. Málið
reis vegna ágreinings um til-
högun á greiðslu eftirstöðva
kaupverðsins.
Málið höfðaði Básafell í ágúst
síðastliðnum en við aðalmeð-
ferð málsins tók útgerðarfélag-
ið Tjaldur við málsaðild eftir að
Básafell var sameinað því fé-
lagi. Stefnandi krafðist rúm-
lega 25 milljóna auk vaxta og
málskostnaðar en dómurinn
féllst ekki á þá kröfu. Dómur-
inn var hins vegar í samræmi
við kröfur stefnda um lækkun
upphæðarinnar, en hann hafði
einnig krafist þess að máls-
kostnaður félli niður.
Erlingur Sigtryggsson dóm-
stjóri kvað upp dóminn.