Morgunblaðið - 07.03.2003, Síða 12

Morgunblaðið - 07.03.2003, Síða 12
FRÉTTIR 12 FÖSTUDAGUR 7. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ KÆRUNEFND jafn- réttismála hefur frá stofnun sinni 1991 tvisvar sinnum kom- ist að þeirri niður- stöðu að Reykjavík- urborg hafi gerst brotleg gegn jafnrétt- islögum og í öðru til- fellinu var niðurstöð- unni síðan snúið við fyrir dómstólum. Þetta segir Hildur Jónsdóttir, jafnréttis- ráðgjafi Reykjavíkur- borgar, sem telur vill- andi að tala um kærur vegna jafnrétt- ismála á hendur Reykjavíkurborg í sömu mund og rætt er um brot Ak- ureyrarbæjar á jafnréttislögum. Í Morgunblaðinu í fyrradag var fjallað um niðurstöður kærunefnd- arinnar og dómsstóla hvað varðar brot á jafnréttislögum hjá Akur- eyrarbæ en bærinn hefur á liðnum árum greitt milljónir króna í bætur til kvenna sem brotið hefur verið á. Í samtali við blaðið sagði Valgerð- ur H. Bjarnadóttir, framkvæmda- stjóri Jafnréttisstofu og bæjarfulltrúi á Ak- ureyri, að þetta væri ekkert nýtt því Reykjavíkurborg, Kópavogsbær, Hafnar- fjarðarbær og ríkis- valdið hefðu einnig fengið á sig kærur. Fimm kærur frá árinu 1991 Hildur, sem hefur kynnt sér alla úrskurði kærunefndar jafnrétt- ismála, segir að þarna sé tvennu ólíku saman að jafna. Frá stofnun nefndarinnar árið 1991 hafi Reykjavíkurborg í allt fengið á sig fimm kærur og þar af hafi í þrem- ur tilfellum verið úrskurðað henni í hag en í tveimur tilvikum hafi hún komist að þeirri niðurstöðu að jafn- réttislög hefðu verið brotin. „Í fyrra tilvikinu var það vegna sumarráðningar hjá strætisvögnum Reykjavíkur árið 1993,“ segir Hild- ur. „Seinna tilvikið varðar ráðningu í stöðu forstöðumanns Skólaskrif- stofu Reykjavíkurborgar sem var undanfari Fræðslumiðstöðvar en sú ráðning fór fram árið 1994. Reykjavíkurborg var ekki sátt við niðurstöðuna og fór því með málið fyrir dómstóla sem sneru þeim úr- skurði við þannig að það var dæmt að Reykjavíkurborg hefði ekki brotið gegn jafnréttislögum. Eftir situr eitt mál sem varðar sum- arráðningu á vagnstjóra á árinu 1993.“ Hvað varðar Hafnarfjörð og Kópavog leiddi skoðun Hildar í ljós að frá árinu 1991 hafi eingöngu tvö mál komið upp á hendur þessum tveimur sveitarfélögum. „Ein kæra var gagnvart þeim sameiginlega vegna sameiginlegrar heilbrigðis- nefndar og í því tilviki, sem er frá árinu 1997, var komist að þeirri niðurstöðu að það væri ekki brot. Þar fyrir utan er bara eitt annað dæmi sem er frá árinu 2000 og varðar Kópavogsbæ en þar var komist að þeirri niðurstöðu að um brot væri að ræða. Þannig að þessi þrjú sveitarfélög, sem eru saman- lagt 10 sinnum stærri en Akureyr- arbær, hafa frá árinu 1991 aðeins verið talin hafa brotið gegn jafn- réttislögum í tveimur tilvikum.“ 55 mál á hendur ríkinu Stærsti atvinnurekandinn sem kemur til kasta kærunefndarinnar er hins vegar ríkið, að sögn Hildar, en í ljós kom að á umræddu tíma- bili hafi 51 kæra komið á hendur ríkinu eða stofnunum þess. Þar af hefur niðurstaðan verið sú að brot- ið var gegn lögunum í 26 tilvika. Hildur hefur þó ekki tekið saman hversu mörg þeirra mála fóru fyrir dómstóla né hver niðurstaðan varð þar. „Á sama tíma eru sjö kærur á hendur Akureyrarbæ og þar af kemst kærunefndin að þeirri nið- urstöðu að bærinn hafi brotið gegn lögunum í fimm tilvikum. Þá eru ekki meðtaldar þær sáttagerðir og bótagreiðslur sem eiga sér stað eða hafa átt sér stað utan dómstóla en á grundvelli dóms í sambærilegu máli. Ég veit a.m.k. um tvö tilvik um það og svo er núna þriðja málið í gangi,“ segir Hildur. Hún bendir á að sé gert ráð fyrir að Akureyrabær sé hlutfallslega jafn stór atvinnurekandi og Reykjavík er í sínu sveitarfélagi hefði borgin átt að fá á sig um 55 kærur á þessu tímabili. Hún segir því ljóst að það, að vísa til Reykja- víkur, Hafnarfjarðar og Kópavogs í tengslum við kærur á hendur Ak- ureyrarbæ, sé villandi um stöðu mála í samanburði þarna á milli. Þá gagnrýnir Hildur einnig um- mæli Valgerðar um að skýringa á fjölda kæra fyrir norðan sé hugs- anlega að finna í því að á Akureyr- arbæ sé starfandi jafnréttisfulltrúi og því sé meðvitund og hvatning þar kannski meiri en gengur og gerist. „Í öllum þessum sveitar- félögum sem hún nefnir eru líka starfandi jafnréttisfulltrúar. Þann- ig að það skýrir ekki þennan mun,“ segir Hildur. „Þetta er í annað skiptið á stutt- um tíma sem framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu vísar til Reykjavík- urborgar á villandi átt og í báðum tilvikunum að því er virðist í ein- hverju afbötunarskyni fyrir Akur- eyrarbæ.“ Jafnréttisráðgjafi borgarinnar segir ekki hægt að bera saman Reykjavík og Akureyrarbæ þegar kemur að kærum er varða jafnréttismál                                            Aðeins eitt mál Reykjavík í óhag Hildur Jónsdóttir BÆJARRÁÐ Ísafjarðarbæjar hefur samþykkt að láta auglýsa lausar til umsóknar nokkrar byggingarlóðir í grónum hverfum á Ísafirði. Lóðirnar eru m.a. við göturnar Seljaland og Múlaland í Seljalandshverfi, en það hverfi hefur til þessa verið skilgreint snjóflóðahættusvæði. Halldór Halldórsson, bæjarstjóri á Ísafirði, segir að forsenda þess að byggt verði á þessum lóðum í Selja- landshverfi sé að snjóflóðavarnar- garður rísi í Seljalandsmúla fyrir of- an hverfið. Slíkur garður, um 700 metra langur og mest 16 metra hár, hefur verið hannaður og farið í gegn- um mat á umhverfisáhrifum en fyrir um fjórum árum var tekin sú ákvörð- un að slá framkvæmdunum á frest. Einnig var gert ráð fyrir níu keil- um í Seljalandshlíð til að draga úr krafti mögulegra snjóflóða. Sam- kvæmt áætlun frá árinu 1999 var reiknað með að garðurinn kostaði rúmar 330 milljónir en Ofanflóða- sjóður greiðir 90% við kostnað slíkra mannvirkja. Halldór segir að Ofan- flóðasjóði hafi verið sent bréf frá Ísa- fjarðarbæ þar sem fram komi vilji til þess að hefja framkvæmdir. Kom sá vilji skýrt fram á bæjarstjórnarfundi nýlega auk þess sem ákveðið var að óska eftir úttekt Veðurstofu á því hvaða áhrif stytting varnargarðs hefði á gildi snjóflóðavarna í Selja- landshverfi. Tómas Jóhannesson á snjóflóða- varnarsviði Veðurstofu Íslands, sem tók þátt í að meta hættusvæði á Ísa- firði og víðar, segir að það komi sér á óvart að Ísafjarðarbær áformi frek- ari byggingar í Seljalandshverfi. Ekki sé hægt að byggja þarna nema að setja upp varnargarð og endur- meta þá hættumat Veðurstofunnar með tilliti til þess. Á meðfylgjandi korti sést að um- ræddar götur í Seljalandshverfi eru innan hættusvæðis C, en reglugerð segir að þar megi ekki byggja ný hús nema með mjög ströngum skilyrðum um búsetu og fleira. Hættan er svo minni á svæðum B og A og ekki jafn- ströng skilyrði þar um nýfram- kvæmdir. Rísi snjóflóðavarnargarð- ur í Seljalandsmúla og -hlíð gera forráðamenn Ísafjarðarbæjar sér vonir um að Seljalandshverfið verði metið á minnsta hættusvæði, eða svæði A. Fleiri lóðir lausar Aðrar lóðir, sem á að auglýsa, eru einbýlishúsalóðir við Hjallaveg 18 og 20, Fjarðarstræti 30 og 36 og Sól- götu 6, svo og parhúsalóð við Fjarð- arstræti 27. Þá eru íbúðahúsa- og iðnaðarlóðir lausar á Flateyri, Þing- eyri og Suðureyri. Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörns Fyrirhuguð snjóflóðamannvirki eiga að koma í Seljalandshlíð fyrir ofan byggðina í Seljalandshverfi. Auglýsa lóðir á snjó- flóðahættusvæði                             !         !  "         #  VIGDÍS Finnbogadóttir, fyrrver- andi forseti Íslands, var sæmd heiðursdoktorsnafnbót við Université de Paul Valéry í Mont- pellier í Frakklandi nýlega. Í ræðu sem Michelle Verdelhan, prófessor í frönsku fyrir erlenda stúdenta við skólann, hélt við þetta tækifæri, sagði hún að skól- inn væri stoltur af því að vera sextándi erlendi háskólinn sem gerði Vigdísi að heiðursdoktor. Verdelhan sagði Vigdísi þekkja mikilvægi tungumála, sjálf hefði hún kennt frönsku á Íslandi og einnig unnið að verndun tungu- mála sem fáir töluðu. Einnig hefði Vigdís barist fyrir jafnrétti kynjanna, gegn kynþátta- fordómum og óréttlæti. Samstarfssamningur hefur ver- ið í gildi milli Háskóla Íslands og Université de Paul Valéry síðustu tólf ár og hafa árlega milli 5 og 15 Íslendingar stundað nám í skólanum síðustu ár, að sögn Torfa Tulinius, prófessors í frönsku við Háskóla Íslands. Université de Paul Valéry er einn þriggja háskóla í borginni og eru við hann kennd hug- og fé- lagsvísindi. Vigdís sæmd heið- ursdoktorsnafnbót Pixmon/David Crespin Vigdís Finnbogadóttir var nýlega sæmd heiðursdoktorsnafnbót við háskóla í Frakklandi. LANDSÞING Frjálslynda flokksins hefst í Ársal Hótels Sögu klukkan 18 í dag. Eftir þingsetningu mun Sverrir Her- mannsson, formaður flokksins, halda ræðu og opnuð verður ný heimasíða. Á morgun er svo á dagskrá málefnastarf í nefndum, af- greiðsla ályktana og kosning í stjórn flokksins. Guðjón A. Krist- jánsson þingmaður sækist eftir formannssætinu en Sverrir Her- mannsson hefur tilkynnt að hann gefi ekki kost á sér til endur- kjörs. Landsþinginu lýkur annað kvöld með móttöku fyrir þingfull- trúa í kosningamiðstöð Frjáls- lynda flokksins. Frjálslyndi flokkurinn Landsþing haldið í Reykjavík

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.