Morgunblaðið - 07.03.2003, Blaðsíða 14
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
14 FÖSTUDAGUR 7. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Aðalfundur SÍF hf. verður haldinn föstudaginn
21. mars 2003, í Súlnasal, Radisson SAS Hótel
og hefst fundurinn kl. 14.00.
Á dagskrá fundarins verða:
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. samþykktum félagsins, gr. 4.03.
2. Tillaga um heimild til kaupa á eigin bréfum skv. 55. grein
hlutafélagalaga.
3. Önnur mál.
Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram á aðalfundinum, skulu
vera komnar í hendur stjórnarinnar eigi síðar en 7 dögum fyrir
aðalfundinn.
Dagskrá aðalfundarins, ársreikningur félagsins og endanlegar
tillögur munu liggja frammi á skrifstofu félagsins hluthöfum til
sýnis sjö dögum fyrir aðalfundinn.
Fundargögn og atkvæðaseðlar verða afhentir á fundarstað fyrir
fundinn.
Um kvöldið verður haldið aðalfundarhóf fyrir hluthafa, gesti þeirra,
framleiðendur og starfsmenn SÍF hf. á Radisson SAS Saga Hótel og
hefst hófið kl. 20.00. Húsið verður opnað kl. 19.30. Miðapantanir
eru í síma 550 8000.
Hafnarfjörður, 4. mars 2003
Stjórn SÍF hf.
SÍF HF.
AÐALFUNDUR
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
|
Y
D
D
A
•
N
M
0
8
8
6
6
/
s
ia
.i
s
Athygli er vakin á því að vegna mistaka
birtist röng auglýsing í blaðinu
í gær um aðalfund SÍF
ÓLAFUR Jóhann Ólafsson hefur
tekið við ráðgjafarhlutverki hjá
AOL-Time Warner og starfar um
þessar mundir náið með forstjóra
fyrirtækisins, Richard Parsons.
„Hlutverk mitt er í því fólgið að að-
stoða Parsons við að móta stefnu
fyrirtækisins og leggja mitt af
mörkum til að koma henni í fram-
kvæmd,“ sagði Ólafur í samtali við
Morgunblaðið í gær.
Ólafur hefur lítið komið að fyr-
irtækinu í rúmt ár en setið þess í
stað við skriftir. „Þetta er tíma-
bundið áhlaup sem kemur sér
ágætlega því ég er nýbúinn að
ljúka við handrit að bók. Meðan
sagan liggur í salti get ég einbeitt
mér að AOL-Time Warner.“
Að sögn Ólafs fjarlægðist hann
fyrirtækið stuttu eftir samruna
AOL og Time Warner. „Ég sagði
að mestu leyti skilið við fyrirtækið
seinni part árs 2001. Á þeim tíma
var þónokkur ágreiningur um
stefnu þess og þar að auki var ég
búinn að fá nóg af viðskiptum og
vildi sinna skriftum alfarið. Þegar
það gerðist, mörgum að óvörum, að
Dick Parsons settist í forstjórastól
og var svo nýlega skipaður stjórn-
arformaður í ofanálag þá bað hann
mig að vera sér til ráðuneytis um
eitt og annað. Við höfum verið vinir
og samherjar lengi.“
Allt gengur vel nema AOL
Ólafur segir töluverða tiltekt
framundan. Sjálfur kemur hann
ekki beint að rekstri heldur ein-
beitir sér að stefnumótun. „Þetta
fyrirtæki er mikið bákn, veltir um
40 milljörðum dala á ári og hefur
um 80 þúsund starfsmenn. Fyr-
irtækin innan vébanda AOL-Time
Warner eru öll leiðandi á sínu sviði
og reksturinn gengur í raun ágæt-
lega nema hjá AOL. Það þarf að
horfa framhjá stærðinni núna og
stýra þessu skipi eins og það sé
skúta en ekki slíkt bákn að von-
laust sé að færa það úr stað. Fyr-
irtækið þarf að lækka skuldir og til
þess þarf að selja þær eignir sem
eru ekki nauðsynlegar fyrir það.“
Fjölmiðlar vestra hafa velt mikið
fyrir sér hvaða eignir AOL-Time
Warner verði seldar. Líklegar
þykja bókaútgáfa, smærri eign-
arhlutir í kapalstöðvum, íþrótta-
félög í eigu fyrirtækisins og jafnvel
tónlistardeildin. „Við höfum sagst
ætla að greiða niður skuldir um 2–4
milljarða dala á þessu ári,“ segir
Ólafur en gefur ekkert frekar upp
um með hvaða hætti það verði gert.
„Yfirstjórn fyrirtækisins er lík-
lega sterkari en hún hefur nokkru
sinni verið. Það er oft í svona fyr-
irtækjum sem persónur manna
þvælast fyrir verkefnunum. Egóið í
þessum bransa er jafnan fyrirferð-
armikið en hér eru menn sem eru
lausir við slíkt og vilja bara koma
fyrirtækinu á réttan kjöl.“
Samruninn var klúður
Spurður að því hvort enn sé
gremja í mönnum innan AOL-
Time Warner vegna slakrar af-
komu segir hann vissulega svo
vera. „Laun starfsmanna og
stjórnenda eru mjög tengd gengi
hlutabréfa og margir hafa því glat-
að verðmætum. Það er ekki hægt
að líta framhjá því að þessi sam-
runi var algjört klúður. Við breyt-
um ekki fortíðinni en getum snúið
við núna og séð til þess að fyr-
irtækið verði blómlegra þegar
fram líða stundir. Ég vona að okk-
ur takist að leika þá leiki á taflborð-
inu sem þarf til að rétta stöðuna.
Mér sýnist allt stefna í þá átt. Hvað
ég verð hérna lengi er óvíst. Ég er
svona eins og sjómaður í túr – og
allir túrar taka einhvern tímann
enda.“
Tímabundið áhlaup
Morgunblaðið/Einar Falur
Ólafur Jóhann: „Hvað ég verð
hérna lengi er óvíst.“
HAGNAÐUR Samherja hf. á síðasta
ári nam 1.879 milljónum króna sem
er rúmum 19% undir meðalspá fjár-
málafyrirtækjanna sem var 2.331
milljónir króna. Hagnaður fyrir af-
skriftir (EBITDA) nam 2.997 millj-
ónum króna sem er um 7% lægra en
spáð hafði verið fyrir um. Framlegð
af rekstrinum minnkaði úr 28% í
23% á milli ára. Í tilkynningu frá
Samherja segir að minni framlegð
megi rekja til styrkingar íslensku
krónunnar.
„Ég tel að mikil styrking íslensku
krónunar sé óeðlileg og hafi veruleg
áhrif á afkomu og vaxtarmöguleika
íslenskra útflutnings- og ferðaþjón-
ustufyrirtækja. Ég tel slæmt fyrir
atvinnulífið í landinu að Seðlabank-
inn reyni ekki að hafa meiri áhrif á
gengi og stöðugleika íslensku krón-
unnar en raun ber vitni síðustu tvö
árin,“ segir Þorsteinn Már Baldvins-
son, forstjóri Samherja hf.
Að sögn Þorsteins er rekstrarnið-
urstaðan nokkuð lakari en vænst
hafi verið. „Það er ljóst að framlegð í
rekstri félagsins er minni en gert var
ráð fyrir í þeim áætlunum sem við
kynntum á aðalfundi félagsins í
fyrra, en þá áætluðum við EBITDA
3.400 milljónir króna, en raunin varð
3.000 milljónir,“ segir Þorsteinn.
Samstæðan samanstendur af móð-
urfélagi og dótturfélögunum On-
ward Fishing Company Ltd. í Skot-
landi, Íslandslaxi hf., Sæsilfri hf,
Íslandsbleikju ehf., Silfurstjörnunni
hf. og Víkurlaxi ehf. Ekki er beitt
verðleiðréttum reikningsskilum en í
tilkynningu frá Samherja segir að
hefði það verið gert væri hagnaður
ársins 63,9 milljónum króna meiri,
auk þess sem eigið fé félagsins væri
205,5 milljónum króna hærra.
Áhrif styrkingar krónu
vanmetin í afkomuspá LÍ
Greiningardeild Landsbankans
spáði Samherja um 485 milljóna
króna meiri hagnaði en raun varð.
Spá Greiningar LÍ gerði ráð fyrir
um 18% framlegð á 4. ársfjórðungi
en raunin varð um 13,7%. „Af þess-
um orsökum er framlegð talsvert
undir væntingum. Helsti munurinn
varð á framlegð landvinnslu en hún
lækkaði úr um 14,8% á 3. ársfjórð-
ungi í 3,6% á þeim 4.
Meginskýring á samdrættinum á
framlegð landvinnslunnar er styrk-
ing krónu á móti helstu viðskipta-
myntum Samherja. Að öllu saman-
teknu voru tekjur og framlegð af
landvinnslu undir væntingum sem
rekja má til snarprar styrkingar
krónu á 4. ársfjórðungi og afskriftir
voru talsvert hærri en gert hafði ver-
ið ráð fyrir í afkomuspá,“ segir í mati
Greiningar LÍ á uppgjörinu.
Heildareignir 22 milljarðar
Í árslok 2002 voru heildareignir
samstæðunnar 22 milljarðar króna,
þar af námu fastafjármunir um 15,8
milljörðum og veltufjármunir um 6,1
milljarði króna. Handbært fé frá
rekstri nam 2.762 milljónum króna.
Töluverðar breytingar urðu á eign-
um samstæðunnar á síðasta ári og
námu fjárfestingar í félögum alls um
3,3 milljörðum króna, þar af 2,5
milljörðum í dóttur- og hlutdeildar-
félögum. Einnig voru gerðar breyt-
ingar á skipastóli Samherja, þrjú
skip seld og tvö ný keypt í staðinn,
en þær fjárfestingar námu alls um
1,4 milljörðum króna.
Starfsemi á sviði fiskeldis er nú í
fyrsta sinn tekin inn í samstæðuupp-
gjör Samherja hf. en að sögn Þor-
steins stendur til að færa eignarhluti
Samherja í fiskeldisfyrirtækjum í
eitt félag.
Launakostnaður Samherja á árinu
2002 var um 3,5 milljarðar króna og
stöðugildi voru um 800. Þorsteinn
Már segist í tilkynningu telja ástæðu
til að geta þess, „í ljósi umræðu í
þjóðfélaginu um að sjávarútvegurinn
greiði óverulegar fjárhæðir til sam-
félagsins,“ að Samherji greiði á
þessu ári ríflega hálfan milljarð í op-
inber gjöld, þar af um 270 milljónir í
tekjuskatt, 200 milljónir króna í
tryggingagjald og 60 milljónir króna
í gjöld af aflaheimildum.
Aðalfundur Samherja hf. verður
haldinn í Nýja bíói á Akureyri 3. apr-
íl næstkomandi kl. 15. Stjórn Sam-
herja leggur til við fundinn að
greiddur verði 20% arður til hluthafa
vegna ársins 2002.
Afkoma Samherja
undir væntingum
!!"
# $
!
"!"
# # $
$
%
&"
"'
(
)
!
) (
!(
(
&%
'
%&#'(%
&) *+*,(%
# $-
$
ÍSLANDSBANKI jók hlut sinn í
Fjárfestingarfélaginu Straumi og á
nú 35,5% hlut í félaginu. Mest við-
skipti voru með bréf Straums í
Kauphöll Íslands í gær eða fyrir um
219 milljónir króna. Lokaverð bréf-
anna hélst óbreytt og er 3,15.
Bæði Íslandsbanki og Straumur
munu halda aðalfundi í næstu viku.
Íslandsbanki á mánudag og Straum-
ur á föstudag.
Gengi Búnaðarbanka Íslands
verður 5,05 í útboði á 9,11% hlut Rík-
issjóðs Íslands sem hefst kl. 10 í dag.
ÍSB eykur
hlut sinn í
Straumi
!
"#
$"#%
$ &
'
(""'
)"#'* +!&,- # '"
("&
. "
/"
+#" )"0
1
'2'"#'"
.
/
$
!
0$ !!0
&
.("1"
"
. "
/" $ & +!&,- # '"
1
"01+
1
3"4'10
#/ (5""/". "
+#"
$"#%
'2'"#'"
)
# $
!
$ !!0
&
Gleymdist að
geta heimildar
MEÐ grein í Viðskiptablaði Morg-
unblaðsins í gær undir yfirskriftinni
„Hvað er Linux?“ láðist að geta
heimildar. Greinin var byggð á efni
af heimasíðunni www.linux.is. Beðist
er velvirðingar á þessu.
SEÐLABANKI Evrópu lækkaði
stýrivexti í gær um 25 punkta og
nema þeir nú 2,5%. Stýrivextirnir
hafa ekki verið lægri síðan bankinn
tók til starfa en eru nú jafnlágir og í
apríl 1999. Í hálffimm fréttum Bún-
aðarbankans kemur fram að á evru-
svæðinu hefur verið töluverður sam-
dráttur í útflutningi og atvinnuleysi
hefur aukist.
Markaðsaðilar bjuggust því við
meiri lækkun þar sem 25 punkta
lækkun er ekki talin nægjanleg til að
koma efnahagslífinu aftur á réttan
kjöl. Viðbrögð markaðarins voru því
á þá leið að hlutabréf og skuldabréf
lækkuðu í verði. Seðlabanki Evrópu
lækkaði vexti síðast í desember síð-
astliðnum. Alls hefur bankinn lækk-
að stýrivexti sex sinnum síðan 2001.
Seðlabanki Bretlands ákvað í gær
að halda stýrivöxtum sínum óbreytt-
um.
Seðlabanki
Evrópu
lækkar vexti
♦ ♦ ♦