Morgunblaðið - 07.03.2003, Qupperneq 16
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
16 FÖSTUDAGUR 7. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
VALGERÐUR Sverrisdóttir, við-
skipta- og iðnaðarráðherra, opnaði
á miðvikudag nýja upplýsingaveitu
Lánstrausts hf. Ráðherra sagði í
ávarpi sínu að hún teldi opnun
upplýsingaveitunnar mjög mik-
ilvægt mál fyrir viðskiptalífið og
neytendur í landinu. „Ég er sann-
færð um að þessi nýja upplýs-
ingaveita skiptir viðskiptalífið
miklu máli og mun stuðla að því
að tapaðar kröfur verði ekki eins
miklar og verið hefur hingað til,
sagði Valgerður. Ráðherra rakti
að útlánatöp ættu þátt í því háa
vaxtastigi, sem atvinnulíf og neyt-
endur búa við, og sagði að með
því að nota upplýsingar á borð við
þær sem er að finna í upplýs-
ingaveitu Lánstrausts hf. geti
bankastofnanir og fyrirtæki dreg-
ið verulega úr útlánatöpum.
Í upplýsingaveitu Lánstrausts
hf., www.lt.is, fá viðskiptavinir
fyrirtækisins aðgang að fjölþætt-
um fjárhagsupplýsingum, sem not-
aðar eru við ákvarðanatöku um
lánveitingar, reikningsviðskipti og
val á samstarfsaðilum í við-
skiptum.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Reynir Grétarsson, framkvæmdastjóri Lánstrausts, Valgerður Sverris-
dóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, og Sigurður Ágústsson, markaðs-
stjóri Lánstrausts, skoða upplýsingaveituna.
Lánstraust með nýja
upplýsingaveitu
ENTERPRISE Solutions A/S, dótt-
urfyrirtæki Opinna kerfa í Dan-
mörku, og Delta Consulting Holding
A/S, hafa undirritað viljayfirlýsingu
um kaup á öllu hlutafé í Delta
Teamco A/S og Delta Consulting
A/S.
Frosti Bergsson, stjórnarformað-
ur Opinna kerfa, segir að félagið skil-
greini sig sem norrænt upplýsinga-
tæknifyrirtæki. „Fyrir ári
stofnuðum við þetta fyrirtæki í Dan-
mörku, Enterprise Solutions, sem
hefur gengið mjög vel. Við höfum síð-
an haft augun opin fyrir hentugu fé-
lagi sem myndi passa að kaupa og
sameina fyrirtækinu. Við þekkjum
vel til þessara fyrirtækja,“ segir
hann.
Eignarhlutur
Opinna kerfa 72%
Að því er fram kemur í fréttatil-
kynningu frá Opnum kerfum er gert
ráð fyrir að eignarhlutur Opinna
kerfa í sameinuðu fyrirtæki verði
72%. Eigendur Delta, sem jafnframt
eru starfsmenn þess, muni eiga 20%
hlut og núverandi meðeigendur að
Enterprise 8%. Stefnt er að því að
ljúka áreiðanleikakönnun fyrir
næstu mánaðamót, kaupsamningur
verði þá undirritaður og hluti kaup-
verðs greiddur á næstu 12 mánuðum.
„Delta Teamco og Delta Consult-
ing hafa starfað í um 20 ár og eru
starfsmenn nú 12. Velta fyrirtækj-
anna var á síðasta ári um 250 m.kr.
og rekstrarhagnaður (EBITDA) um
40 m.kr. Gert er ráð fyrir svipaðri af-
komu í ár. Delta Teamco er þjónustu-
fyrirtæki og leggur áherslu á neteft-
irlitskerfið HP OpenView,
afritunar-lausnir og þjónustu við HP
UNIX og HP 3000 tölvukerfi. Stór
hluti tekna Delta kemur frá föstum
þjónustusamningum. Delta Consult-
ing er ráðgjafarfyrirtæki með
áherslu á sérhæfðar lausnir á sviði
forritunar og hönnunar net- og tölvu-
kerfa. Helsti samstarfsaðili fyrir-
tækjanna er Hewlett-Packard.
Enterprise Solutions A/S, en
starfsmenn þess eru nú 10, er sam-
starfsaðili HP á danska markaðnum
og leggur aðaláherslu á sölu á stórum
UNIX- og Intel-lausnum, ásamt af-
ritunarbúnaði og gagnageymslum.
sÞannig passa félögin vel saman
og eiga eftir sameiningu að geta veitt
viðskiptavinum sínum betri og heild-
stæðari þjónustu,“ segir í fréttatil-
kynningu frá Opnum kerfum.
Hyggst kaupa dönsk fyrirtæki
Aukin umsvif
Opinna kerfa
Járnblendi-
félagið
afskráð
Hagnaður félags-
ins 70 milljónir
á síðasta ári
HLUTABRÉF Íslenska járnblendi-
félagsins verða afskráð af aðallista
Kauphallar Íslands eftir lokun
markaða í dag þar sem Elkem ASA
hefur eignast yfir 90%. hlutafjár í fé-
laginu og farið fram á innlausn á
hlut annarra hluthafa.
Samkvæmt upplýsingum frá Ís-
lenska járnblendinu hefur Elkem
ákeðið að miða innlausnarverðið við
gengið 1,15.
Íslenska járnblendifélagið skilaði
6,4 milljónum norskra króna í hagn-
að eftir skatta á síðasta ári eða sem
nemur tæpum 70 milljónum ís-
lenskra króna. Árið áður var hins
vegar 14,2 milljóna tap á rekstrinum
eða sem nemur um 150 milljónum ís-
lenskra króna í tap. Tekjur félagsins
drógust saman um tæp 9%, fóru úr
sem nemur 5,4 milljörðum íslenskra
króna 2001 í um 4,9 milljarða 2002.
Í tilkynningu frá félaginu segir að
rýrnun rekstrartekna sé einkum til
komin vegna lægra verðs á kísiljárni
og hækkunar á gengi norsku krón-
unnar gagnvart dollar og evru á síð-
asta ári. Heildareignir félagsins
námu í árslok 2002 um 820 millj-
ónum norskra króna eða um 8,9
milljörðum íslenskra króna. Í árslok
2001 voru eignirnar um 9,8 milljarð-
ar íslenskra króna. Skuldir lækkuðu
um milljarð íslenskra króna milli ár-
anna 2001 og 2002. Í árslok 2001
námu skuldir félagsins 5,5 milljörð-
um íslenskra króna en höfðu lækkað
í 4,5 milljarða íslenskra króna í lok
árs 2002.
Íslenska járnblendifélagið gerir
nú upp í norskum krónum en í til-
kynningu segir að styrking norsku
krónunnar og þeirrar íslensku gagn-
vart evru og dollar hafi haft neikvæð
áhrif á afkomu félagsins.
Umskipti á
viðskipta-
jöfnuði
Á ÁRINU 2002 var 600 milljóna
króna afgangur á viðskiptajöfnuði
við útlönd. Á árinu 2001 var 29 millj-
arða króna halli og 69 milljarða
króna halli á árinu 2000. Á fjórða
ársfjórðungi 2002 var viðskiptahall-
inn 900 milljónir króna en 6,9 millj-
arða króna afgangur var á sama
fjórðungi 2001.
Útflutningur vöru og þjónustu
jókst um 4,3% frá fyrra ári en inn-
flutningur minnkaði um 1,6%, hvort
tveggja reiknað á föstu gengi. Sam-
kvæmt upplýsingum frá Seðlabanka
Íslands nam hallinn á þáttatekjum
(laun, vextir og arður af fjárfestingu)
14,3 milljörðum króna á árinu 2002
en var 24,4 milljarðar króna árið áð-
ur. Lægri skuldastaða og vaxta-
lækkun á erlendum lánamörkuðum
olli þessum bata ásamt auknum arði
af erlendum fjárfestingum Íslend-
inga.
Auking á gjaldeyrisforða
Bein erlend fjárfesting innlendra
aðila nam 23,8 milljörðum króna og
erlend verðbréfakaup voru 28,2
milljarðar króna. Aðrar fjárfesting-
ar, svo sem viðskiptakröfur, inn-
stæður og þó einkum lán innlendra
banka til erlendra aðila, námu 37,2
milljörðum.
Gjaldeyrisforði Seðlabankans
jókst um 5,7 milljarða króna á liðnu
ári. Á móti þessu fjárútstreymi
koma fjárfestingar erlendra aðila á
Íslandi og erlendar lántökur í formi
skuldabréfa og erlendra bankalána.
Skuldabréfin voru aðallega gefin út
á erlendum mörkuðum en erlendir
aðilar keyptu skuldabréf sem útgef-
in eru hér á landi fyrir ríflega 10
milljarða króna á árinu 2002. Sam-
tals var innstreymi áhættufjár-
magns erlendra aðila til landsins um
13 milljarðar króna og hreint fjár-
innstreymi vegna skuldabréfa, lána
og annarra peningalegra skulda nam
76 milljörðum króna á árinu 2002.
Erlend staða þjóðarbúsins var
neikvæð um 562,6 milljarða króna í
árslok 2002 en hún var neikvæð um
594 milljarða króna í árslok 2001.
Lækkun hreinnar skuldastöðu staf-
ar af gengishækkun krónunnar þar
sem jafnvægi ríkti í viðskiptum við
útlönd en á móti vó verðlækkun á er-
lendum hlutabréfum. Erlend verð-
bréfaeign í árslok var áætluð 170
milljarðar króna en var 203 milljarð-
ar króna í árslok 2001. Erlend verð-
bréfaeign hefur því lækkað umtals-
vert þrátt fyrir mikil verðbréfakaup
á árinu 2002.
312 milljóna
hagnaður
á Þórshöfn
HAGNAÐUR Hraðfrystihúss Þórs-
hafnar á árinu 2002 nam 312 millj-
ónum króna, eftir skatta. Hagnaður
fyrir afskriftir og fjármagnsliði var
461 milljón, en rekstrartekjur ársins
námu 1.764 milljónum og rekstrar-
gjöld 1.303 milljónum. Árið áður var
tap á rekstri félagsins eftir skatta,
upp á 23 milljónir króna. Hagnaður
fyrir afskriftir og fjármagnsliði var
aftur á móti meiri árið 2001 en 2002,
eða 546 milljónir króna.
Veltufé samstæðunnar frá rekstri
nam 358 milljónum á árinu, en var
306 milljónir árið áður. Eigið fé fé-
lagsins var 260 m.kr. í lok árs 2002,
en var neikvætt í árslok 2001 sem
nemur 56 milljónum. Eigið fé jókst
því um 316 m.kr. á árinu, en eigin-
fjárhlutfallið 31. desember 2002 var
13,34%.
Gengishagnaður vegna hækkunar
á gengi krónunnar nam 195 m.kr., en
á árinu áður varð gengistap upp á
220 milljónir. Heildarskuldir, að frá-
dregnum veltufjármunum, minnk-
uðu um 456 milljónir á árinu og
námu 1.321 m.kr. í árslok.
♦ ♦ ♦
Fyrir
flottar
konur
Bankastræti 11 sími 551 3930