Morgunblaðið - 07.03.2003, Síða 17

Morgunblaðið - 07.03.2003, Síða 17
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. MARS 2003 17 SAMÞYKKT var á aðalfundi Þor- móðs ramma-Sæbergs hf., sem hald- inn var á Siglufirði síðastliðinn föstu- dag, 28. febrúar, að greiddur verði 50% arður á nafnverð hlutfjár vegna ársins 2002. Hlutafé félagsins nemur 1.300 milljónum króna og munu arð- greiðslur því verða samtals 650 millj- ónir. Á stjórnarfundi Þormóðs ramma- Sæbergs hinn 19. febrúar síðastlið- inn var samþykkt það markmið stjórnar félagsins að á árunum 2004, 2005 og 2006 verði stefnt að greiðslu arðs sem nemur 50% af nafnverði hlutafjár. Hagnaður Þormóðs ramma-Sæ- bergs á árinu 2002 nam 1.067 millj- ónum króna en árið áður var tap fé- lagsins 33 milljónir. Áætlanir félagsins gera ráð fyrir að hagnaður á þessu ári verði 632 milljónir króna. Hluthafar á síðustu áramótum voru 512 talsins en þeir voru 644 í ársbyrjun 2002. Á síðustu áramótum áttu tveir hluthafar yfir 10% eign- arhlut í félaginu, en þeir eru Ráeyri ehf. með 46,0% hlut og Marteinn Haraldsson ehf. með 10,6% hlut. Þær breytingar voru samþykktar á stjórn Þormóðs ramma-Sæbergs á aðalfundinum, að Gunnlaugur S. Gunnlaugsson kom inn í aðalstjórn en Atli Árnason fór úr aðalstjórn en er í varastjórn félagsins. Aðrir stjórnarmenn voru endurkjörnir, en þeir eru Róbert Guðfinnsson, Jón Þorvaldsson, Marteinn Haraldsson og Svavar B. Magnússon. Þormóður rammi-Sæ- berg greiðir 50% í arð HAGNAÐUR Fiskmarkaðs Ís- lands hf. nam 54 milljónum króna á síðasta ári eftir skatta. Árið áður var hagnaður félags- ins 43 milljónir. Í tilkynningu frá Fiskmark- aði Íslands segir að árið 2002 hafi verið mjög gott rekstrarár og að rekstrarhorfur fyrir árið 2003 séu þokkalegar. Það sem ráði mestu um afkomu ársins sé hvernig aflabrögð verði hjá við- skiptabátum fiskmarkaðarins og þróun fiskverðs. Hins vegar hafi styrking íslensku krónunn- ar og fall Bandaríkjadals haft veruleg áhrif til lækkunar á fiskverði, í íslenskum krónum, undanfarna mánuði, sem þýði lægri tekjur fyrir félagið. Segir í tilkynningunni að gert sé ráð fyrir að félagið verði áfram rekið með hagnaði á árinu 2003, þó varhugavert sé að gefa út spá um hversu mikill hann verður á þessu stigi. Til þess séu óvissuþættir of marg- ir, m.a. þróun gjaldmiðla, fisk- gengd, útgefnar aflaheimildir sem og hvort samþjöppun afla- heimilda heldur áfram eður ei. Rekstrartekjur Fiskmarkað- ar Íslands á árinu 2002 námu 422 milljónum króna en 440 milljónum árið áður. Rekstrar- gjöld lækkuðu milli ára úr 356 milljónum í 335 milljónir. Fjár- munaliðir voru jákvæðir um 8 milljónir en neikvæðir um 20 milljónir árið 2001. Hagnaður af reglulegri starfsemi jókst úr 44 milljónum á árinu 2001 í 65 milljónir í fyrra. Á árinu 2002 rak félagið upp- boðsmarkað fyrir fisk á Akra- nesi, Arnarstapa, Grundarfirði, Ólafsvík, Reykjavík, Rifi, Stykkishólmi og Þorlákshöfn. Seld voru 39.936 tonn af fiski fyrir 6.576 millónir króna og var meðalverð á kíló 164,66 krónur. Árið áður voru seld 36.760 tonn af fiski fyrir 5.981 milljónir króna og var meðal- verð á kíló 162,70 krónur. Fiskmark- aður Ís- lands hf. hagnast um 54 milljónir ERTU Í BRÚÐKAUPS- HUGLEIÐINGUM?

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.