Morgunblaðið - 07.03.2003, Qupperneq 19
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. MARS 2003 19
TVEIMUR íröskum sendi-
mönnum hjá Sameinuðu þjóð-
unum var vísað úr landi í
Bandaríkjunum í gær. Voru
þeir sakaðir um njósnir og
hafa bandarísk stjórnvöld
skorað á ríkisstjórnir margra
ríkja, allt að 60 samkvæmt
ónefndum heimildum, að fara
að dæmi þeirra og reka úr
landi íraska njósnara. Tara
Rigler, talsmaður utanríkis-
ráðuneytisins, neitaði því, að
brottreksturinn væri tengdur
hugsanlegri innrás í Írak.
Hryðjuverk
í Kólombíu
AÐ minnsta kosti sex manns
týndu lífi og 70 særðust er bíl-
sprengja sprakk í bænum
Cucuta í Kólombíu í fyrradag.
Grunur leikur á, að vinstri-
sinnaðir skæruliðar hafi kom-
ið sprengjunni fyrir til að
hefna þess, að stjórnvöld hafa
látið úða kókaínakra með eitri
en skæruliðarnir hafa miklar
tekjur af eiturlyfjasölu.
Kocharian
endurkjörinn
ROBERT Kocharian, forseti
Armeníu, var endurkjörinn í
síðari umferð forsetakosning-
anna í fyrradag. Hlaut hann
67,5% atkvæða en andstæð-
ingur hans, Stepan Demirch-
ian, 32,5%.
Stuðnings-
menn Dem-
irchians
saka stjórn-
völd um að
hafa haft
rangt við í
kosningun-
um og var
búist við, að
nokkur þúsund þeirra myndu
koma saman í gær til að mót-
mæla niðurstöðunni.
Aukið at-
vinnuleysi
ATVINNULEYSI í Þýska-
landi í febrúar var 11,3% eða
4,7 milljónir manna. Hækkaði
tala atvinnulausra um rúm
83.000 í mánuðinum og er
410.000 hærri en í febrúar í
fyrra. Atvinnuleysi í Dan-
mörku er einnig á uppleið og
mældist það 5,5% af vinnuafl-
inu í janúar. Í janúar í fyrra
voru 140.900 manns án at-
vinnu en nú 153.600 manns.
Hraðamet á
Netinu
SETT hefur verið nýtt hraða-
met í flutningi gagna á Net-
inu. Fólst það í því að flytja 6,7
gígabæti nærri 11.000 km leið,
frá Sunnyvale í Bandaríkjun-
um til Amsterdam í Hollandi,
á innan við mínútu. Svöruðu
gögnin til tveggja DVD-kvik-
mynda í fullri lengd og var
flutningshraðinn til jafnaðar
923 megabitar á sekúndu.
Hraðinn var með öðrum orð-
um 3.500 sinnum meiri en ger-
ist og gengur á breiðbandinu.
Getur þetta komið að gagni á
mörgum sviðum, til dæmis
þegar læknar eða aðrir þurfa
að bera saman bækur sínar í
mikilvægum aðgerðum.
STUTT
Íraskir
sendimenn
reknir
Kocharian
LAGT hefur verið til innan Evr-
ópusambandsins, að viðurlög við
mengun frá skipum verði hert
verulega og á hana litið sem glæp-
samlegt athæfi. Kemur tillagan frá
framkvæmdastjórninni, sem vill
láta mengunarafbrot varða fang-
elsisvist.
Eftir Prestige-slysið úti fyrir
ströndum Spánar í nóvember síð-
astliðnum lögðu dómsmála- og inn-
anríkisráðherrar ESB til, að við-
urlögin yrðu hert og
framkvæmdastjórnin er nú að
fylgja því eftir. Ætlar sambandið
einnig að beita sér fyrir þessu á al-
þjóðavettvangi í því skyni að koma
lögum yfir þá, sem gerast brotleg-
ir, og draga úr hættu á miklum ol-
íuslysum.
Skömmu eftir Prestige-slysið
komu fram kröfur um að banna
umferð allra olíuskipa með einfald-
an byrðing en á fundi samgöngu-
ráðherra Evrópusambandsins í
desember síðastliðnum var lítil
sem engin samstaða um það. Var
ástæðan sú, að það hefði komið sér
mjög illa fyrir sum ríki og alveg
sérstaklega fyrir Grikki. Fengu
þeir því framgengt, að tillögunni
var frestað en henni var þó ekki
kastað fyrir róða.
Viðurlög við
mengun verði hert
Brussel. AFP.
www.nowfoods.com