Morgunblaðið - 07.03.2003, Qupperneq 20
ERLENT
20 FÖSTUDAGUR 7. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
HEIMURINN mun standa frammi
fyrir alvarlegum vatnsskorti eftir
fáeina áratugi, er fólksfjölgun,
mengun og veðurfarsbreytingar
hafa svipt milljarða manna aðgangi
að lífsnauðsynlegustu nátt-
úruauðlindinni, eftir því sem fullyrt
er í niðurstöðum skýrslu sem ný-
komin er út á vegum UNESCO,
Menningarstofnunar Sameinuðu
þjóðanna.
„Af öllum þeim félagslegu og
náttúrutengdu vandamálum sem
mannkynið á við að etja er skort-
urinn á vatni það sem snertir mest
kjarna lífsafkomu okkar og jarð-
arinnar í heild,“ sagði Koichiro
Matsuura, framkvæmdastjóri
UNESCO, við kynningu á skýrsl-
unni í París á miðvikudag.
„Enginn heimshluti mun fara
varhluta af þessari þróun, sem
snertir alla þætti lífsins, frá heilsu-
fari barna til hæfni ríkja til að
tryggja næg matvæli fyrir íbúana,“
segir í skýrslunni, World Water
Development Report, sem ber und-
irtitilinn „Vatn fyrir fólk, vatn fyrir
lífið“.
„Vatnsbirgðir fara minnkandi á
sama tíma og eftirspurnin fer hrað-
vaxandi. Á næstu 20 árum er reikn-
að með að meðalbirgðir vatns á
hvern jarðarbúa muni minnka um
þriðjung,“ segir þar.
Fólksfjölgun meginmeinið
Skýrslunni er lýst sem ýtarleg-
ustu samantekt á ástandi fersk-
vatnsbirgða heimsins, en hún var
samin ekki sízt til að þjóna sem
grundvöllur umræðna á stórri al-
þjóðaráðstefnu um vatn, sem
UNESCO hefur boðað til í Japan
síðar í þessum mánuði.
Í útreikningum skýrslunnar er
því spáð að árið 2050 muni á bilinu
tveir milljarðar manna í 48 löndum
upp í sjö milljarðar manna í 60
löndum þjást af ferskvatnsskorti.
Hver raunin verður er að mestu
leyti undir því komið hve fólksfjölg-
unin verður hröð og því hvernig
stjórnvöldum mun ganga að hamla
gegn mengun og sóun.
Jafnvel þótt dregið hafi úr hraða
fólksfjölgunar er því enn spáð að
mannkynið verði orðið fjölmennara
en níu milljarðar árið 2050, en það
var 6,1 milljarður árið 2001.
Sérstökum áhyggjum er lýst af
ástandinu í Asíu, þar sem nú þegar
býr um 60% mannkyns, en aðeins
36% ferskvatnsforða heimsins er að
finna.
Þótt vatn sé það efni sem finnst í
ríkustum mæli á jörðinni er 97,47%
þess bundið í söltum sjó. Og um
tveir þriðju alls ferskvatns er bund-
ið í jöklum og sífönnum.
Grænlendingar
vatnsríkastir
Samkvæmt lista sem birtur er í
skýrslunni yfir þau lönd og héruð
sem tölfræðilega hafa yfir mestum
vatnsbirgðum að ráða á hvern íbúa
er þar Grænland í efsta sæti, þá
Alaska, þá Franska Gvæana og í
fjórða sæti er Ísland, með 609.319
rúmmetra af vatni á hvern íbúa á
ári. Í neðsta sæti á þessum lista er
Kúveit, með 10 rúmmetra af fersk-
vatni á hvern íbúa á ári.
Finna má nánari upplýsingar um
skýrsluna á slóðinni
www.unesco.org/water/wwap.
Reuters
Palestínumenn sækja sér vatn í brunn á Vesturbakkanum. Stundum hefur því verið spáð, að næstu stórátök í
Miðausturlöndum muni snúast um vatn en skorturinn á því eykst með ári hverju.
Óttast mikinn vatns-
skort víða um heim
París. AFP.
SUMARIÐ 2001 klifruðu tveir bandarískir
fíkniefnasalar, Warren Smith og Michael
Robinson, yfir fangelsismúr í Tennessee og
hurfu sjónum manna, segir í grein í The
Baltimore Sun. Einu ummerkin sem þeir
skildu eftir sig voru reipi og fuglahræða í
grenndinni en þeir höfðu rænt fötunum af
henni. En strax um haustið höfðu bandarískir
lögreglumenn rakið slóð tvímenninganna og
fundið þá í ferðamannaborg í Brasilíu. Þeir
notuðu til þess vandlegt eftirlit með peninga-
tilfærslum, ræddu einnig við kunningja
mannanna og gátu smám saman búið til
trausta mynd af lifnaðarháttum og venjum
þeirra.
Fleiri dæmi hafa ratað í fjölmiðla. Deborah
Sutherland, auðugur læknir frá Suður-
Karólínu, var ákærð fyrir fíkniefnabrot en
flúði land. Hún fannst á Nýja-Sjálandi þar
sem hún starfaði á læknamiðstöð í borginni
Kaitaia. Sutherland var framseld í fyrra.
Og mikið var fjallað um mál Ira Einhorns
árið 2001, sem var þekktur fyrir uppreisn
gegn hefðbundnum gildum á sjöunda ára-
tugnum. Hann var í október sl. dæmdur sek-
ur um morð á unnustu sinni árið 1977. Ein-
horn flúði til Evrópu 1981 en fannst loks í
gamalli vindmyllu sem breytt hafði verið í
íbúðarhús í Suður-Frakklandi. Þar bjó hann
með sænskri eiginkonu sinni.
„Heimurinn hefur breyst“
Brasilíska lögreglan handtók áðurnefnda
menn, Smith og Robinson, og fyrir nokkrum
vikum var Smith framseldur til heimalands-
ins. Robinson tókst hins vegar að notfæra sér
uppreisn í brasilíska fangelsinu til að strjúka
og leikur enn lausum hala. En Bandaríkja-
menn eru vongóðir. „Það er hægt að flýja en
enginn getur lengur falið sig,“ segir Cassie
Rowntree, sem stjórnaði leitinni að Smith og
Robinson. „Heimurinn hefur breyst.“
Mál tvímenninganna er dæmi um hundruð
mála sem bandarískir lögreglumenn hafa
leyst á síðustu árum. Ræða má um hægfara
byltingu í vinnuaðferðum sem notaðar eru við
að leita uppi glæpamenn um allan heim. Í
fyrra náðust 375 bandarískir afbrotamenn
sem höfðu flúið til útlanda, 1995 voru þeir að-
eins 252. Talið er að allt að 8.000 séu enn í fel-
um. Beitt er nýrri tækni, alþjóðlegt samstarf
hefur aukist á þessu sviði og lögð er meiri
áhersla en áður á að elta slíka menn uppi.
Fyrir aðeins áratug var oft litið svo á í
Bandaríkjunum að kæmist afbrotamaður úr
landi tæki því ekki að reyna að finna hann á
ný. Nú er jafnvel farið aftur í saumana á 10–
15 ára gömlum málum sem nær allir voru
búnir að gleyma og voru farin að rykfalla.
Fyrsta stigið er að fá greinagóðar upplýs-
ingar um það hvernig umræddir menn eru,
um siði og vinnuaðferðir þeirra, hvaða áhuga-
mál þeir hafa. Hvar þeir vilji helst búa, hvað
þeir borði, hvernig svefnvenjur þeirra eru en
samtímis er fylgst vel með nánustu ætt-
ingjum og vinum. Ný tækni og samstarf gerir
lögreglumönnum auk þess kleift að fá aðgang
að upplýsingakerfi lögreglu í öðrum löndum
og rekja peningahreyfingar, símtöl og tölvu-
póst.
Ekkert þægindalíf
Rowntree tókst ásamt samstarfsmönnum
sínum að rekja slóð Smith og Robinson um
sambandsríkið Georgíu suður til Flórída. Þar
fengu lögreglumennirnir vísbendingu um að
mennirnir tveir hefðu farið til Brasilíu. Í ljós
kom að Robinson átti bróður sem einmitt var
um þetta leyti í Brasilíu. Ekki hefur verið
greint nákvæmlega frá því hvað gerðist en
látið í það skína að bróðirinn hafi óafvitandi
leitt lögregluna á slóð afbrotamannanna.
Lífið í felum er því ekki lengur þægilegt,
ekki er hægt að nota farsíma, greiðslukort
eða persónuskilríki, sérstaklega eru skilríkin
varasöm ef þeim fylgir ljósmynd. Aldrei má
gera mistök, aldrei sofna á verðinum. Einna
helst er hægt að fela sig með þessum hætti
sums staðar í fátækum löndum eða á vafa-
sömum hótelum. En nokkrir flóttamenn hafa
á síðustu árum einfaldlega gefist upp, staul-
ast inn í bandarískt sendiráð og sagt að þeir
vildu komast aftur heim.
Á flótta með upplýsinga-
samfélagið á hælunum
Lögregluyfirvöld í Bandaríkjunum notfæra sér rafrænar upplýs-
ingar og alþjóðlegt samstarf gegn afbrotamönnum sem flýja land
’ Hægfara bylting ívinnuaðferðum sem not-
aðar eru við að leita
uppi glæpamenn út um
allan heim. ‘
MIKIL óánægja
kraumar innan Kristi-
lega þjóðarflokksins í
Noregi en skoðana-
kannanir sýna, að hann
nýtur nú aðeins stuðn-
ings 5,5% kjósenda.
Hafa margir frammá-
menn í flokknum á orði,
að hann verði að hætta
stjórnarsamstarfinu en
leiðtogi flokksins, Kjell
Magne Bondevik, er
forsætisráðherra.
Það eru einkum tals-
menn flokksins á lands-
byggðinni og í sveitar-
stjórnum, sem eru
uggandi, og sumir þeirra, til dæmis
Oddvar Skaiaa, leiðtogi Kristilega
þjóðarflokksins á Austur-Ögðum,
segir, að rætist ekki fljótt úr fyrir
flokknum verði hann að segja sig úr
ríkisstjórn. Kom þetta fram í Aften-
posten í gær.
Margir segja lítið gengi flokksins
stafa af aðhaldsaðgerðum hins opin-
bera, sem hafi bitnað verulega á
byggðarlögunum, en aðrir segja, að
það sé of mikil einföldun. Málefni
flokksins hafi einfaldlega fengið of
lítinn hljómgrunn hjá
samstarfsflokkunum,
Hægriflokknum, Mið-
flokknum og Venstre.
Kristilegi þjóðar-
flokkurinn hefur
meirihluta í einni
sveitarstjórn,
Skjervøy, og leiðtogi
hans þar, Roy Waage,
er ekki í neinum vafa:
„Síðastliðin 20 ár
hefur fylgi flokksins
verið jafnt og stöðugt
en nú er kominn í það
alvarlegur brestur.
Ástæðan er sú, að við
erum í ríkisstjórn, sem
einkennist af hægristefnu.
Við verðum að koma okkur þaðan
burt sem fyrst,“ segir Waage og
bætir við, að Kristilegi þjóðarflokk-
urinn eigi meira sameiginlegt með
jafnaðarmönnum en frjálshyggj-
unni.
Ekki eru þó allir á þessu máli og
Øyvind Dahl, leiðtogi flokksins á
Þelamörk, tekur þannig til orða, að
flokkurinn hafi gengið í „hjónaband“
með Hægriflokknum og Venstre og
verði að halda það út.
Kristilegi þjóðarflokkurinn í Noregi
Margir vilja
slíta stjórnar-
samstarfinu
Bondevik
DÁNARDÓMSTJÓRI Bandaríkja-
hers hefur komist að þeirri nið-
urstöðu að tveir afganskir fangar
hafi dáið af völdum barsmíða þegar
þeir voru í haldi Bandaríkjahers í
Bagram-herstöðinni í Afganistan í
desember.
Roger King, talsmaður Banda-
ríkjahers í Afganistan, staðfesti
þetta í gær en sagði úrskurð dán-
ardómstjórans þó ekki endanlegan
og að rannsókn málsins stæði enn
yfir. Gert er ráð fyrir að henni ljúki
síðar í mánuðinum.
Mennirnir höfðu verið í haldi í
stöðinni í um það bil viku þegar
þeir dóu „eftir að hafa orðið fyrir
þungum höggum“, að sögn dóm-
stjórans.
Bandaríkjaher hefur ekki skýrt
frá nöfnum fanganna en The New
York Times segir að þeir séu afg-
anskir.
Mannréttindasamtök hafa sakað
Bandaríkjaher um að beita fanga í
Afganistan og á Guantanamo á
Kúbu líkamlegu ofbeldi en banda-
rísk yfirvöld vísa því á bug.
Taldir hafa dáið af
völdum barsmíða
Kabúl. AFP.