Morgunblaðið - 07.03.2003, Side 23
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. MARS 2003 23
BORGARRÁÐ hefur samþykkt til-
lögu umhverfis- og heilbrigðisnefnd-
ar þess efnis að umsjón eyja á Sund-
um og Kollafirði, þ.m.t. Viðey,
Akurey, Þerney og Engey, verði fal-
in Umhverfis- og heilbrigðisstofu,
sem hefur umsjón með útivistar-
svæðum í borginni. Rekstur menn-
ingarstarfsemi í Viðey verður þó
áfram í höndum Minjasafnsins.
Á fundi umhverfis- og heilbrigð-
isnefndar á dögunum lögðu fulltrúar
D-lista fram bókun þar sem lagt er
til að kannaðar verði hugmyndir um
að auglýsa eyjarnar til frekari leigu
eða sölu en sú tillaga var felld.
Jórunn Frímannsdóttir, fulltrúi
D-lista í nefndinni, bendir á að hluti
eyjanna sé í leigu og spyrja megi af
hverju borgaryfirvöld eigi að sjá um
viðhald og þann kostnað sem til fell-
ur vegna þeirra.
„Það sem vildum koma að þarna
var að þetta yrði skoðað frekar og
þá verði athugað með að leigja eyj-
arnar frekar þar sem leigutakar
verði að sjá um allt viðhald og úti-
vistarsvæðin. Eða ef eyjarnar eru
seldar, sem væri kannski það al-
besta, þá væri hægt að gera það með
ákveðnum kvöðum,“ segir Jórunn.
Fjallað um hvernig
skuli nýta eyjarnar
Kolbeinn Óttarsson Proppé, for-
maður umhverfis- og heilbrigðis-
nefndar, segist ekki sjá neina
ástæðu til að selja eyjarnar við
Reykjavík.
Metnaðarfull stefnumótunarvinna
hafi farið fram um framtíð eyjanna
og ekkert hafi komið fram í þeirri
vinnu sem benti til þess að rétt væri
að selja. „Þar að auki finnst mér
eðlilegt að borgin eigi þetta. Þetta
eru náttúruperlur í borgarlandinu,“
segir Kolbeinn.
Í nýlegu minnisblaði Umhverfis-
stofu kemur fram að samningar sem
hafi verið gerðir um afnot af æða-
varpi í Engey og Þerney virðast út-
runnir og þar með lausir. Skoða
þurfi stöðu allra samninga og taka
ákvörðun um hvað eigi að gera varð-
andi leigu á hlunnindum. Í minn-
isblaðinu er lagt til að samstarfs-
hópur verði settur á fót til að
ákvarða með hvaða hætti eigi að
nýta eyjarnar.
Kolbeinn segir að farið verði í það
á næstunni að skipa umræddan
samstarfshóp.
Morgunblaðið/Golli
Viðey verður framvegis í umsjá Umhverfisstofu en rekstur menningar-
starfsemi heyrir áfram undir Minjasafnið.
Viðey og fleiri
eyjar í umsjá
Umhverfisstofu
Engin ástæða til að selja eyjarnar að
mati formanns umhverfisnefndar
Sund
BÆJARSTJÓRI Seltjarnarness
hefur undirritað samstarfssamning
bæjaryfirvalda og sóknarnefndar
Seltjarnarneskirkju um eflingu
barna- og æskulýðsstarfs í bænum.
Í tilkynningu frá Seltjarnarnesbæ
segir að æskulýðsstarf kirkjunnar
hafi vaxið mjög hin síðari ár og sé
með því öflugasta sem þekkist meðal
kirkna í prófastsdæminu. Nærri láti
að ríflega helmingur unglinga á Sel-
tjarnarnesi taki þátt í starfinu með
einum eða öðrum hætti. Með und-
irritun samstarfssamnings til
þriggja ára eru framlög bæjarins til
æskulýðsstarfsins aukin og er samn-
ingnum ætlað að tryggja öflugt og
markvisst barna- og æskulýðsstarf á
Nesinu.
Bærinn
styrkir æsku-
lýðsstarf
Seltjarnarnes
AÐALSKIPULAG Mosfellsbæjar,
sem samþykkt var á fundi bæjar-
stjórnar í síðasta mánuði, er nú kom-
ið á vef bæjarins. Með því að smella á
flipann „Aðalskipulag“ vinstra meg-
in á síðunni er hægt að lesa grein-
argerð og forsendur skipulagsins og
skoða uppdrætti af því.
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar sam-
þykkti aðalskipulagið á fundi sínum
12. febrúar sl. með breytingum frá
áður auglýstri tillögu. Alls barst 61
athugasemd með 84 atriðum auk
tveggja undirskriftarlistalista. At-
hugasemdirnar gáfu tilefni til breyt-
ingar á auglýstri tillögu.
Aðalskipu-
lagið á Netinu
Mosfellsbær
♦ ♦ ♦
Nýr listi
www.freemans.is
Ertu me› atvinnutæki
á heilanum?
– h lut i a f Í s landsbanka
K i r k j u s a n d i 1 5 5 R e y k j a v í k g l i t n i r . i s s í m i 4 4 0 4 4 0 0
Glitnir er sérfræ›ingur í fjármögnun atvinnutækja. Rétt val á fjármögnun
getur skipt miklu um heildarkostna› vi› fjárfestingu. Glitnir b‡›ur fjórar
ólíkar lei›ir vi› fjármögnun atvinnutækja. Umsóknir eru afgreiddar á
skjótan hátt flegar nau›synleg gögn liggja fyrir.
Haf›u samband vi› rá›gjafa Glitnis e›a kíktu á www.glitnir.is og fá›u a›sto›
vi› a› velja flá fjármögnunarlei› sem hentar best.
Glitnir traustur samstarfsa›ili í fjármögnun atvinnutækja.