Morgunblaðið - 07.03.2003, Side 27

Morgunblaðið - 07.03.2003, Side 27
LANDIÐ MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. MARS 2003 27 EINS og flestum mun kunnugt hafa orðið miklar breytingar í mjólkur- framleiðslu á landinu á undanförnum árum. Í Árnessýslu hefur orðið svip- uð þróun og víða annars staðar á landinu. Samkvæmt upplýsingum hjá Guðmundi Ægi Theodórssyni, hagfræðingi hjá Mjólkurbúi Flóa- manna, hefur innleggjendum mjólk- ur fækkað frá árinu 1969, þegar þeir voru hvað flestir, úr 473 í 169 inn- leggjendur nú. Árið 1969 var innlegg framleiðenda hjá búinu 16.726.641 lítri en á síðasta ári lögðu bændur í Árnessýslu inn 21.755.396 lítra mjólkur hjá MBF. Meðalnyt kúa í einstökum sýslum var hæst í Árnes- sýslu árið 2002, eða 5189 lítrar eftir kú. Margir bændur eru með 6 til 7 þúsund lítra eftir kú að meðaltali og dæmi eru um að meðalnyt hafi farið yfir 7000 lítra hér í Árnessýslunni. Bændur þakka þessa auknu nyt einkum mikilli endurræktun túna, bættri heyverkun og meiri kjarnfóð- urgjöf. Einnig kynbótum stofnsins sem stöðugt er unnið að með ná- kvæmu skýrsluhaldi. Nokkur ný og stór fjós hafa verið byggð í sýslunni á undanförnum ár- um þar sem tölvutækni stýrir kjarn- fóðurgjöf og mjöltum. Á síðari árum hafa einnig víða ver- ið gerðar miklar endurbætur á fjós- um, þau stækkuð, settir sérstakir legubásar í fjósin, notaðar nýjar að- ferðir við hey og kjarnfóðurgjafir og gjörbreytt aðstaða við mjaltir í sér- stökum mjaltabásum. Stærstu búin eru með 70 til 80 kýr og geta hjón hirt um slíkan fjölda kúa auk tilheyr- andi gripa í uppeldi við bestu að- stæður. Það gefur auga leið að tæknibylt- ingin í landbúnaðinum hefur kostað sitt, auk þess sem margir hafa þurft að kaupa mjólkurkvóta. Þeir fjár- munir verða ekki greiddir á fáum vikum. Morgunblaðið/Sigurður Sigmunds Sveinn Hannes Sveinsson, bóndi á Hrafnkelsstöðum í Hreppum, er einn þeirra sem hefur breytt fjósi sínu og getur komið fyrir 16 kúm í mjaltabásinn samtímis. Meðalnyt kúa var hæst á bæjum í Árnessýslu í fyrra. Aukin nyt og hagræðing í mjólkurframleiðslu Hrunamannahreppur Alltaf á þriðjudögum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.