Morgunblaðið - 07.03.2003, Page 29

Morgunblaðið - 07.03.2003, Page 29
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. MARS 2003 29 ÍSLENSKI dansflokkurinn heldur til Beirút í Líbanon nú um helgina og sýnir þar þrjú dansverk eftir jafnmarga höfunda. Flokkurinn kemur fram á einni virtustu hátíð í Mið-Austurlöndum, Al Bustan Festival en hún fagnar nú 10 ára af- mæli. Tíu listahátíðir í Evrópu hafa til- nefnt listhópa frá sínu landi til þess að koma fram á Al Bustan Festival í tilefni afmælisins og var Íslenski dansflokkurinn tilnefndur af Listahátíð í Reykjavík. Verkin þrjú sem Íslenski dans- flokkurinn sýnir eru NPK, eftir list- dansstjóra flokksins, Katrínu Hall, verkið Elsa, eftir Láru Stef- ánsdóttur, sem hlaut fyrstu verð- laun í alþjóðlegri danskeppni í Helsinki sumarið 2001 og Black Wrap eftir hollenska danshöfund- inn Ed Wubbe en verkið var frum- sýnt sem hluti af sýningu ID í febr- úar sl. Hlé verður gert á sýningunni Lát hjartað ráða för sem ÍD stendur fyrir í Borgarleikhúsinu en næsta sýning verður sunnudaginn 16. mars og eru þá þrjár sýningar eftir. Fleiri sýningarferðalög eru á döfinni á þessu ári. Meðal annars mun flokkurinn koma fram á Hol- land Dance Festival í nóvember. Nánari upplýsingar um hátíðina í Beirút eru á albustanfestival.com. Frá sýningu Íslenska dansflokksins. Íslenski dansflokk- urinn sýnir í Beirút ROKKAÐ í Vittula er bók sem grípur mann samstundis. Hún fer af stað með miklum krafti í svonefndum prologus sem er fyndinn, áhrifamikill og mjög eftirminnilegur. Þá taka við ævintýri í uppvexti Matta og Niila sem búa í smáþorpinu Pajala í Torne- dal á landamærum Svíþjóðar og Finnlands en hverfið kallast Vittula. Fólkið á þessum norðurhjara er í mikilli kreppu: „Uppvöxtur okkar einkenndist af skorti. Ekki efnisleg- um, við höfðum nóg til að bjarga okk- ur, heldur skorti á sjálfsmynd. Við vorum engir. Foreldrar okkar voru engir. Forfeður okkar höfðu verið al- gerlega þýðingarlausir í sænskri sögu. Þeir fáu forfallakennarar sem tóku sig upp frá hinni raunverulegu Svíþjóð gátu ekki stafað eftirnöfn okkar, hvað þá borið þau fram. … Við höfðum finnskan hreim án þess að vera Finnar, sænskan hreim án þess að vera Svíar“ (51). Sjálfsmyndar- kreppa íbúa Tornedals tengist nýjum straumum í þjóðlífinu, tæknin heldur innreið sína, búskaparhættir breytast og hefðbundin hlutverkaskipting kynjanna sem ríkt hefur öldum sam- an verður skyndilega ekki sjálfsögð lengur. Landsbyggðin lætur í minni pokann fyrir þéttbýlinu, rokkið sigrar og unga fólkið flytur á brott. Niila, besti vinur Matta, tilheyrir sérstrúarsöfnuði laestidiana, þöglu og nægjusömu fólki sem trúir því að lífið sé táradalur. Trúarofstæki safnaðar- ins og hörkulegum boðskap hans er t.d. lýst svo: „Þessi orð, þessi lifandi orð sem ófu Sannleikann orð fyrir orð, myndir af illsku, svikum, syndum sem reyndu að leynast í moldinni en voru rifnar upp með sínum fúlu rótum og hristar eins og ormétnar rófur frammi fyrir söfnuðinum“ (27–8). Foreldrar Niila eru vonsvikið undir- málsfólk, fátækir og illgjarnir og skeyta skapi sínu á börnunum. Vin- skapur hans og Matta er náinn og sannur en þeir eru mjög ólíkir og ná saman í aðdáun á rokkinu. Niila megnar ekki að rísa gegn ofbeldinu og bælingunni heima fyrir öðruvísi en með þrjóskulegri þögn og hann ber með sér feigð og óhamingju. Heimilis- aðstæður Matta eru skárri en foreldr- ar hans eru fulltrúar gamalla gilda; pabbinn hefur náð þeim markmiðum í lífinu sem hann setti sér: að vera sterkur, fjárhagslega sjálfstæður og ná sér í konu (113). Matti gæti fetað í fótspor hans ef hann kærði sig um, hann sigraði t.d. glæsilega í keppni um hver gæti verið lengst í sjóðheitu gufubaði og sannaði þar með karl- mennsku sína og hreysti (132). Hann er líka efnilegur brennivínsbelgur en gítargutl hans er hins vegar ekki karl- manni sæmandi. Rokkað í Vittula er mjög skemmti- leg aflestrar og stíllinn víða mynd- rænn og lifandi, í afbragðsgóðri þýð- ingu Páls Valssonar, t.d. þegar fyrsta skóladeginum er lýst: „Uppi undir þaklistanum héngu Bókstafirnir. Hræðilegur her stólpa og króka sem teygði sig veggja á milli. Við þá áttum við að kljást og sigra hvern af öðrum, leggja þá flata í skrifbækurnar okkar og þvinga fram hljóð“ (47). Sögumað- ur er ærlegur og hlýr í fortíðar- og heimþrá sem á hann sækir. Hann ger- ir góðlátlegt grín að persónum sög- unnar og finnskri þjóðarsál Torne- dals, t.d. í skemmtilegum lýsingum á veiðimennsku þeirra og húsbygging- um (214–216). Margir kaflarnir eru alveg frábærir, t.d. 3. kaflinn um veru Matta í miðstöð Prjónaskólans en sá kafli smellur óvænt að sögulokunum; 12. kaflinn um rottuveiðarnar er svo magnaður að stæk lyktin af úldnum rottuhræjum stígur upp af blaðsíðun- um; og 20. kafli sem segir frá afmæli afans er óborganleg lýsing á finnsku fylleríi, karlrembu, þjóðarstolti og þjáningu. Þar mætast gamli og nýi tíminn, unga fólkið og eldri kynslóðin, og Matta verður ljóst að hlutdeild hans í heimi hefðar, vana og öryggis er lokið, framtíðin er annars staðar, óviss og tregafull. Sagan fjallar um leysingar, þegar nýir tímar koma til Vittula, spennan leitar upp á yfirborðið, óvæntur kraft- urinn þeytir öllu til hliðar og molar þykkan ísinn. Tónlist Bítlanna leikur stórt hlutverk í leysingunum, líkt og í hinni fallegu bók Jóns Halls Stefáns- sonar Risafurur og tíminn (2001) sem einnig segir frá uppvexti, kynþroska, sérkennilegu fólki – og bítlaplötu. Þegar Matti og Niila standa við Torneána og horfa á hana rífa brúna með sér í leysingunum æpir Matti: „Rock’n’ roll music!“ og þeir skilja hvor annan fullkomlega (78). Leys- ingarnar skola burt bernsku- og ung- lingsárum og sögumaður horfir á eftir þeim með ljúfsárum söknuði. Vorleysing í Vittula BÆKUR Skáldsaga eftir Mikael Niemi. Bókin var tilnefnd til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs 2001. Páll Valsson þýddi úr sænsku, bók- in heitir á frummálinu Populär musik från Vittula. 254 bls. Forlagið 2002. ROKKAÐ Í VITTULA Steinunn Inga Óttarsdóttir JOSÉ Hierro (f. 1922) lést 21. des- ember sl. Hann naut lengi við- urkenningar sem eitt af helstu skáldum Spánar og hróður hans fór vaxandi með árunum. Að minnast og dreyma var José Hierro mikilvægt. Í ljóði yrkir hann um að byrja að dreyma aftur: „…Ég sé mig / líkt og fjarlægt vatn, / líkt og fljót drauma.“ Minnið sýnir okkur yfirborð þeirra hluta sem við höfum glatað, taldi Hierro, og að manninum væri ekki auðið að höndla andrá lífs- reynslunnar. Hierro lagði áherslu á að lesand- inn minntist ljóða hans ekki sem ljóða heldur stunda í lífi sínu. Ljóðmál José Hierros var alla tíð einfalt og ljóð hans síður en svo tor- ræð. Hierro var fæddur í Madríd. Fjöl- skyldan fluttist til Santander á Norður-Spáni og þar birti skáldið fyrsta ljóð sitt fimmtán ára að aldri. Hann var fljótlega í andstöðu við stjórn Francos og það olli því að hann var dæmdur í fangelsi 1939 fyrir undirróður og losnaði ekki það- an fyrr en 1944. Eftir það settist hann að í Valencia þar sem hann bjó við fátækt og þurfti að stunda ýmis láglaunastörf. Á sjötta áratugnum fluttist hann til Madríd ásamt konu sinni. Hann fékk vinnu hjá bókaforlagi og gerðist einnig útvarpsmaður. Skáldskapur hans vakti smám saman meiri eft- irtekt og 1990 hlaut hann eftirsótt bókmenntaverðlaun (Premio Nacional de las Letras Espanolas). Meðal þeirra bóka eftir Hierro sem vöktu hvað mesta athygli var Bók ofskynjananna frá 1966. Í fyrstu bókinni Jörð án okkar (1946) er ljóst að súrrealisminn hef- ur sett svip á skáldið, en það sem einkenndi hann alla tíð var það jafn- vægi sem hann fann á milli fag- urfræðilegra sjónarmiða og fé- lagslegra viðhorfa. Hierro er þess vegna ekki beinlínis í röð skálda (flest þeirra voru yngri en hann) sem ástunduðu félagslegan skáldskap og ortu ádeiluljóð. En Hierro er tví- mælalaust í hópi samfélagsskálda enda viðurkenndi hann frásögnina í ljóði og ekki er fjarri lagi að bendla hann við raunsæi. Hann lærði af gömlu meisturunum sem kenndir voru við Kynsóð 27 (Alberti, Aleix- andre, García Lorca) en gekk óhikað til móts við Kynslóðina frá 1936 og jafnvel enn yngri skáld. Guðbergur Bergsson sem þýtt hefur nokkur ljóða Hierros (Hið ei- lífa þroskar djúpin sín, 1992) segir réttilega um Hierro: „Þótt José Hierro hafi verið þeirrar skoðunar, meðan á einræðinu stóð, að skáldið sé vitni að atburðum síns tíma eða líðandi stundar, hefur viðhorf hans breyst á síðustu árum á þá lund, að skáldið sé vitni að tímaleysi sínu.“ Út er komin kilja, Antología poé- tica, hjá Alianza forlaginu, úrval ljóða Hierros frá fyrstu bók til hinn- ar síðustu. Sama forlag gaf út kilju 16. desember í fyrra, í tilefni þess að 100 ár voru þá liðin frá fæðingu Rafaels Alberti (1902–1999); Sobre los ángeles y otros nefnist hún. Alberti lifði flesta ef ekki alla fé- laga sína af Kynslóð 27, en meðal nánustu vina hans var García Lorca. Alberti og Hierro voru um margt ólík skáld en eiga þó ýmislegt sam- eiginlegt. Þess má geta að út er komin ævi- saga litlu systur García Lorca, Isa- bel García Lorca, þar sem hún minn- ist m.a. tónskáldsins Manuels de Falla og skáldanna Luis Cernuda og Jorge Guillén. Isabel lést í fyrra. Ævisagan nefnist Recuerdos Míos og útgefandi er Tusquets. Bókin hef- ur fengið rómuð ævisagnaverðlaun. Að minnast og dreyma Spænska skáldið José Hierro. Spænska skáldið José Hierro er látið í fæðing- arborg sinni Madríd. Hierro (f. 1922) var meðal kunnari skálda Spánar. Jóhann Hjálm- arsson minnist Hierro sem sat í fangelsi 1939– 1944 og átti áfram erfiða daga að því loknu en hlaut viðurkenningu sem skáld og m.a. ein af æðstu bókmenntaverð- launum Spánar. johj@mbl.is EINKASÝNING á nýjum verkum eftir listmálarann Helga Þorgils Friðjónsson verður opnuð í Lista- safni Reykjavíkur – Kjarvalsstöðum í kvöld kl. 20. Helgi Þorgils hefur öðlast mikla og almenna viðurkenn- ingu hér á landi og verið virkur þátt- takandi í listalífinu í meira en ald- arfjórðung, bæði sem skapandi listamaður, sýningarstjóri og gallerí- isti. Helgi Þorgils hefur einnig vakið athygli erlendis fyrir listsköpun sína og verk hans eru sýnd hjá virtum galleríum á meginlandi Evrópu. Hann hefur haldið fjölda einkasýn- inga hér á landi og víða erlendis, eins og á Ítalíu, Spáni, Hollandi, Þýska- landi, Sviss og á öllum Norðurlönd- unum auk þess sem verk hans hafa verið á samsýningum um allan heim. Formaður menningarmálanefnd- ar, Stefán Jón Hafstein, opnar sýn- inguna og tónlistarmennirnir Egill Ólafsson og Björn Thoroddsen flytja nokkur lög. Rætt verður við Helga Þorgils í Lesbók á morgun. Helgi Þorgils sýnir ný verk Helgi Þorgils: Kjallaksstaðir. Úr 52 mynda röð. GAGNASAFN MORGUNBLAÐSINS mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.