Morgunblaðið - 07.03.2003, Side 31
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. MARS 2003 31
ÍSLENSKIR leiklistarnemar undir
forystu Alexíu Bjargar Jóhann-
esdóttur sviðsettu Píkusögur í
Lundúnum á V-daginn fyrir
skemmstu.
Alls eru sex íslenskir leiklist-
arnemar við Arts Educational-
leiklistarskólann í London og út-
skrifast þrjú þeirra í vor, þau
Alexía Björg, Ólafur Steinar Krist-
jánsson og Margrét Sverrisdóttir.
Þau undirbúa nú lokaverkefni sitt
sem er uppsetning á leikriti Hen-
riks Ibsens, Frúin frá hafinu. Alexía
fer þar með aðalhlutverkið og Ólaf-
ur og Margrét eru einnig í stórum
hlutverkum.
Alexía sagði í samtali við Morg-
unblaðið að sýningin á Píkusögum
hefði verið flutt af 5 leikkonum sem
allar nema við skólann. „Þetta var
með mjög alþjóðlegu yfirbragði því
við vorum tvær íslenskar, og ein frá
Zimbabve, ein frá Svíþjóð og ein
bresk. Við létum allan ágóða af sýn-
ingunni renna til kvennaathvarfs
sem rekið er hér í hverfinu. Okkur
hefur síðan verið boðið að koma
með sýninguna á Haifa-leiklist-
arhátíðina í Zimbabve í apríl og er-
um að kanna möguleikana á því að
fara, hvort okkur tekst að fjár-
magna ferðina. Það kemur í ljós á
næstunni.“
Þær fluttu Píkusögur í Lundúnum. Margrét Sverrisdóttir er önnur frá
vinstri og Alexía Björg Jóhannesdóttir önnur frá hægri.
Fluttu Píkusögur
í Lundúnum
ÁSKRIFTARDEILD netfang: askrift@mbl.is, sími 569 1122
La
n
d
lis
t/
E
R
A
N
ekkert
brudl-
Opnum klukkan
tíu í dag og
tíu á morgun
Coca Cola alla helgina
99
Tveir lítrar
af Coca Cola
kr.
Pottasýning
Heitir pottar um helgina
Sérfræðingar á
staðnum veita ráðgjöf
um stærðir, gerðir,
litaval og uppsetningu
á heitum pottum
Kaffi og kleinur - og
drykkir fyrir krakkana
Við sýnum úrval af pottum fyrir sumarhúsið og sólpallinn
Laugardag og sunnudag frá 11-15
í sýningarsal Vatnsvirkjans, Ármúla 21
Vatnsvirkinn býður blöndunartæki, hreinlætistæki, sánaklefa
og sturtuklefa og auk þess ýmiss konar lagnaefni fyrir
húsbyggjendur og byggjendur sumarhúsa
Ármúla 21 108 Reykjavík Sími 533 2020
Fy
rs
to
g
fre
m
st
/M
ix
a
FÍ
T