Morgunblaðið - 07.03.2003, Side 43
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. MARS 2003 43
LÍFEYRISSPARNAÐUR er
langtímasparnaður og lokaárang-
urinn eini mælikvarðinn á það
hvernig til hefur tekist. Sá sem
bindur lífeyrissparnað sinn í hluta-
bréfum verður því að vera undir
það búinn að sveiflur geti orðið
milli ára í ávöxtun. Reynsla und-
anfarinna áratuga sýnir að þegar
til lengri tíma er litið hafa hluta-
bréf almennt skilað meiri ávöxtun
en aðrar sparnaðarleiðir. Engin
trygging er hins vegar fyrir því að
svo verði einnig á komandi áratug-
um og þess vegna hefur Kaupþing
fjölgað fjárfestingarleiðum í lífeyr-
issparnaði sínum til muna og hvatt
viðskiptavini sína til þess að velja
sér þá samsetningu áhættu og
mögulegrar ávöxtunar sem best
hentar.
Salvör Nordal vekur athygli á
því í Morgunblaðinu sl. sunnudag
að í þeirri fjárfestingarleið sem
hún hefur valið, leið II í Séreign-
arsjóði Kaupþings, hafi ávöxtun
verið neikvæð á síðustu þremur
árum. Á þeirri leið er helmingur
fjárfestinga í erlendum hlutabréf-
um, 15% í innlendum hlutabréfum
og 35% í skuldabréfum. Augljóst
er að ávöxtun í þessari leið viðbót-
arsparnaðar sveiflast að miklu
leyti með þróun á verði erlendra
hlutabréfa og væntanlega er flest-
um ljóst að þar hefur mikið hrun
orðið á undanförnum árum. Raun-
ávöxtun Heimsvísitölu hlutabréfa
(Morgan Stanley World Index), í
íslenskum krónum, var mínus 7,8%
árið 2001 og mínus 39,4% árið 2002
og fara þarf um 70 ár aftur í tím-
ann til að finna dæmi um samsvar-
andi lækkanir. Þetta skýrir vand-
ann sem Kaupþing banki og Salvör
eiga við að stríða á þessu sviði.
Valkostum sjóðfélaga innan vé-
banda Kaupþings hefur fjölgað
verulega enda mikið úrval fjárfest-
ingarleiða í boði. Hafa þessar leið-
ir verið kynntar ítarlega fyrir við-
skiptavinum með markpósti,
auglýsingum og úthringingum og
þeir hvattir til að hafa samband,
leita ráðgjafar og velja sér síðan
fjárfestingarstefnu við hæfi. Til að
auðvelda ákvörðunina enn frekar
er flutningur á milli sjóða ókeypis.
Séreignarsjóður Kaupþings, sem
bæði Salvör og undirritaður eru
rétthafar í, hefur frá árinu 2001
boðið upp á fimm fjárfestingarleið-
ir. Í þeirri áhættumestu er fjárfest
eingöngu í hlutabréfum, en í þeirri
áhættuminnstu er eingöngu fjár-
fest í innlánum. Tvær af þessum
fimm leiðum voru með jákvæða
ávöxtun á síðasta ári og fyrir þá
sem ekki vilja miklar sveiflur í
ávöxtun á lífeyrissparnaði sínum
er sjálfsagt að fara í aðra hvora
þeirra. Raunvextir á annarri leið-
inni, leið V, sem eingöngu geymir
fé á innlánsreikningum, eru í dag
6,65%. Innlánsvextir eru að vísu
breytilegir vextir en Kaupþing
hefur skuldbundið sig til þess að
greiða betri vexti en helstu keppi-
nautar allt þetta ár. Hin leiðin, leið
IV, fjárfestir 85% af eignum sínum
í skuldabréfum, mest skuldabréf-
um með ábyrgð ríkissjóðs, en að-
eins 10% í erlendum hlutabréfum
og 5% í innlendum hlutabréfum.
Á undanförnum árum hefur ráð-
gjöf um fjárfestingarstefnu lang-
tímasparnaðar, bæði hér á landi og
erlendis, breyst talsvert í ljósi
reynslunnar á alþjóðlegum hluta-
bréfamörkuðum. Þau sjónarmið
sem réðu mestu á síðasta áratug
síðustu aldar eru ekki lengur þau
einu sem eiga upp á pallborðið í
dag. Hjá Kaupþingi, hvort heldur
sem er í Séreignarsjóði Kaup-
þings, Frjálsa lífeyrissjóðnum eða
Vista lífeyrissparnaði, er boðið upp
á fleiri og varfærnari leiðir en fyrr
og áhersla lögð á að hver og einn
sjóðfélagi velji ávöxtunarleið – og
um leið áhættuflokk – við hæfi.
Ungu fólki sem er að hefja lífeyr-
issparnað er gjarnan ráðlagt að
ávaxta hluta af sparnaði sínum í
hlutabréfum. Jafn sjálfsagt er að
velja öruggari leiðir eftir því sem
nær dregur útborgun lífeyris. Með
nákvæmu vali á fjárfestingarleið
má laga áhættu að ólíkum vilja og
aðstæðum en einnig er hægt að
velja svokallaða Ævilínu sem
minnkar sjálfkrafa áhættuna í
safninu eftir því sem viðskiptavin-
urinn verður eldri.
Sem dæmi um árangur þeirrar
endurskipulagningar sem átt hefur
sér stað í kjölfar hrunsins á al-
þjóðamörkuðum nefni ég Frjálsa
lífeyrissjóðinn, en í honum eru
flestir viðskiptavina lífeyrissparn-
aðar Kaupþings. Sjóðurinn notar
þrjár mismunandi fjárfestingar-
leiðir. Ef ávöxtun hans á síðasta
ári er borin saman við aðra sam-
bærilega sjóði, þ.e. lífeyrissjóði í
vörslu annarra banka, kemur í ljós
að tvær af þremur deildum hans
skila bestu ávöxtun allra og ein
þeirra skilar næstbestu ávöxtun
allra. Lífeyrissparnaður er sam-
starfsverkefni sjóðfélaga og bank-
ans en þó verður aldrei horft
framhjá því lykilatriði að við-
skiptavinurinn verður sjálfur að
velja fjárfestingarstefnu fyrir líf-
eyrissparnað sinn og bera ábyrgð
á því vali. Starfsfólki Kaupþings er
það hins vegar kappsmál að vel
takist til. Kaupþing banki tengir
laun starfsmanna sem koma að
stýringu fjármuna við þann árang-
ur sem næst fyrir hönd viðskipta-
vina þeirra. Með aðlögun að nýjum
aðstæðum og fjölgun kosta hefur
okkur tekist að snúa vörn í sókn.
Vonandi á Salvör Nordal, eins og
tugþúsundir annarra viðskiptavina
okkar, eftir að njóta góðs af þeirri
sérþekkingu sem Kaupþing ræður
yfir og þeim vinnubrögðum sem
tíðkast við rekstur lífeyrissjóða á
vegum félagsins.
Veljum lífeyrissparnaði okkar
fjárfestingarstefnu við hæfi
Eftir Hafliða
Kristjánsson
„… við-
skiptavin-
urinn verður
sjálfur að
velja fjár-
festingarstefnu fyrir líf-
eyrissparnað sinn og
bera ábyrgð á því vali.“
Höfundur er forstöðumaður
Lífeyrissparnaðar Kaupþings,
framkvæmdastjóri Frjálsa
lífeyrissjóðsins og rétthafi í
Séreignarsjóði Kaupþings.
ÞAÐ berast furðulegar fréttir
þessa dagana. Því hefur verið fleygt
að borið hafi verið mikið fé á for-
sætisráðherrann okkar og formann
Sjálfstæðisflokksins gegn því að
ákveðið fyrirtæki fengi frá honum
frið. Mál þetta verður að segja að sé
hið furðulegasta. Þetta færir okkur
þó heim sanninn um það sem ég hef
lengi sagt um forsætisráðherrann
og formann flokksins míns: Davíð
Oddsson er ekki í stjórnmálum til
þess að skara eld að eigin köku,
heldur vegna þess að hann vill
stjórna. Það gerir hann líka betur
en margir aðrir, eins og sjá má á
farsælum ferli hans í stól forsætis-
ráðherra. Hann hefur sérstakt lag á
að segja hlutina þannig að menn
fara sáttir frá borði og erfitt hefur
andstæðingum Sjálfstæðisflokksins
reynst að grípa hann í bólinu á
grundvelli yfirlýsinga hans, svo var-
kár er forsætisráðherrann í því sem
hann lætur frá sér fara. Því hallast
ég að þeirri skoðun, vegna feng-
innar reynslu af málflutningi Davíðs
Oddssonar á umliðnum stjórnarár-
um, að það sé að marka það sem
hann segir. Það hefur komið mér á
óvart hinn óvarkári málflutningur
gamals samstjórnarmanns míns frá
fyrri árum í stjórn Sambands ungra
sjálfstæðismanna, Hreins Loftsson-
ar. Það er hálfgert stílbrot á mynd
þeirri sem ég hef ávallt haft af
Hreini. Ég er þó að vona að mál-
flutningur Hreins helgist af þeirri
klemmu sem hann hlýtur óhjá-
kvæmilega að vera í vegna stöðu
sinnar sem stjórnarformaður
Baugs. Vonast ég því til að fá fljót-
lega til baka þann fyrri mann sem
ég veit að Hreinn hefur að geyma,
áður en langt um líður, kannski eftir
næsta aðalfund hjá Baugi. Guð gefi
að menn fari óskaddaðir að mestu
frá þessari hildi og við sameinumst
um að gera veg Sjálfstæðisflokksins
enn meiri en hingað til við næsta
kjör til Alþingis.
Furðulegar
fréttir
Eftir Þorstein
Halldórsson
Höfundur er formaður Sjálfstæðis-
félagsins Baldurs í Kópavogi.
„Davíð
Oddsson er
ekki í stjórn-
málum til
þess að
skara eld að eigin
köku ...“
Á BLAÐAMANNAFUNDI sem
Orkuveita Reykjavíkur hélt þann
18. febrúar 2003 var upplýst að
fyrirtækið hefur lagt til að fram-
kvæmdum fyrir um 1200 til 1700
milljónir króna verði flýtt þannig
að meginþungi þeirra verði á ár-
unum 2003 og 2004 í stað 2005 og
2006. Um er að ræða undirbúning
að stækkun varmavers á Nesja-
völlum, ýmis verkefni í dreifikerfi,
vatnsbólum og borholum, lagningu
ljósleiðaranets til Akraness og
gróðursetningar- og frágangsverk-
efni. Einnig kom fram að mörg
störf sem af þessu skapast verði
ætluð ungmennum og skólafólki
m.a. á Akranesi.
Það sem er merkilegt við þessa
tillögu er að fyrirhugað er að flýta
útbreiðslu á ljósleiðaraneti Orku-
veitunnar til Akraness, en það er
framkvæmd upp á um 50 milljónir
króna. Þarna sannast enn einu
sinni hve góð ákvörðun það var
fyrir íbúa Akraness að Akranes-
veita var sameinuð Orkuveitu
Reykjavíkur, en það hefur meðal
annars leitt til þess að orkuverð
hefur lækkað um allt að 30% í
bæjarfélaginu. Vegna ákvörðunar
stjórnar Orkuveitunnar um að
flýta fyrrgreindum verkefnum
samþykkti atvinnumálanefnd
Akraness eftirfarandi bókun þann
19. febrúar 2003:
„Atvinnumálanefnd Akranes-
kaupstaðar fagnar þeirri ákvörðun
stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur að
flýta framkvæmdum við lagningu
ljósleiðaranets til Akraness. Slík
framför á tæknisviðinu mun vafa-
laust hafa jákvæð og hvetjandi
áhrif á fyrirtæki og stofnanir á
Akranesi og stuðla að nýsköpun og
bættum rekstrarskilyrðum at-
vinnulífsins á staðnum. Einnig
fagnar nefndin auknum útgjöldum
til verkefna er tengjast gróður-
setningu og frágangsverkefnum á
starfssvæði Orkuveitunnar.“
Þetta er stórfrétt fyrir alla sem
búa á Akranesi því þessi fram-
kvæmd mun hafa mikil áhrif á
möguleika íbúa bæjarfélagsins til
að tengjast upplýsingaveitum og
verða mikilvæg fyrir fyrirtæki sem
eru á Akranesi eða vilja flytja
þangað. Möguleikar munu opnast
til að koma á fullkomnu fjarskipta-
kerfi sem verður stafrænt með
möguleikum á myndlyklum fyrir
sjónvarp auk mjög öflugra tölvu-
tenginga, útvarps og talsíma.
Gert er ráð fyrir að á næstu ár-
um muni allt að 80% heimila í
landinu tengjast ljósleiðara og nú
þegar er gert er ráð fyrir að ljós-
leiðari sé lagður inn í öll ný hverfi
ásamt hverfum þar sem lagnir eru
endurnýjaðar. Sveitarstjórnar-
menn eiga ekki að sitja hjá í um-
ræðum um framfaramál eins og
hér er á ferðinni. Í málefnasamn-
ing núverandi meirihluta bæjar-
stjórnar Akraness segir meðal
annars:
„Stuðlað verði að því í samvinnu
við þau þjónustufyrirtæki sem við
á að breiðbandsvæða öll fyrirtæki
og heimili á Akranesi.“
Af þessu má sjá að meirihlutinn
í bæjarstjórn Akranes hefur skýra
framtíðarsýn og beitir áhrifum sín-
um m.a. í stjórn Orkuveitu
Reykjavíkur til þess að hrinda
henni í framkvæmd.
Upplýsinga-
hraðbrautin
til Akraness
Eftir Magnús
Guðmundsson
Höfundur er bæjarfulltrúi
Framsóknarflokksins á Akranesi.
„Sveitar-
stjórnar-
menn eiga
ekki að sitja
hjá í um-
ræðum um framfaramál
eins og hér er á
ferðinni.“
ÞEGAR þú ert þreyttur, vonlaus,
einmana eða dapur, horfðu þá í aug-
un á frelsaranum þínum Jesú Kristi.
Þegar þér finnst þú yfirgefinn, beitt-
ur órétti, niðurlægður eða auðmýkt-
ur, þá er svo gott að mega horfa í
augun á Jesú. Hann stendur með þér
því að hann ber raunverulega um-
hyggju fyrir þér. Hann var sjálfur
yfirgefinn, niðurlægður og auðmýkt-
ur og það saklaus. Hann veit því og
skilur allra best hvernig þér líður.
Hann skilur tilfinningar þínar af því
að hann þekkir þær. Hann finnur
raunverulega til með þér.
Að vera elskaður út af lífinu
Eftir því sem þú horfir lengur og
dýpra í augun á Jesú munt þú finna
að þú ert elskaður. Þú munt finna að
þú ert elskaður falslausri, raunveru-
legri elsku. Þú munt finna að þú ert
elskaður út af lífinu. Elskaður af
sjálfu lífinu.
Hann dæmir þig ekki
Hann vill fyrirgefa þér allar þínar
misgjörðir, hverja synd. Hann vill
reisa þig upp úr djúpinu og hjálpa
þér að horfa framan í dagana. Hann
vill að þú lærir að fyrirgefa sjálfum
þér og sættast við sjálfan þig. Hann
kom til að frelsa þig, ekki til að
dæma þig. Hann elskar þig dýpri,
raunverulegri og innihaldsríkari
elsku en mannshugurinn nær að
skynja eða meðtaka. Hann elskar þig
út af lífinu. Hann sem er Vegurinn,
Sannleikurinn og Lífið sjálft. Þú ert
því elskaður af sjálfu lífinu.
Þetta er skrítið, finnst þér það
ekki? En þetta er bara svona, og það
er frábært. Og það besta er það, að
við þurfum ekkert að skilja. Bara að
hvíla í þessum dásamlegu orðum
frelsarans og fyrirheitum.
Fyrirgefðu sjálfum þér
Jesús vill að þú elskir og virðir
sjálfan þig og fyrirgefir sjálfum þér.
Aðeins þannig getur þú elskað, virt
og fyrirgefið öðrum.
Horfðu því í augun á Jesú. Eftir
því sem þú horfir lengur og dýpra í
augun á honum munt þú smám sam-
an finna, læra, skynja og meðtaka að
þú ert elskaður óendanlega djúpri og
raunverulegri elsku. Elskaður út af
lífinu. Elskaður af sjálfu lífinu.
Hvíldu í honum. Komdu með áhyggj-
ur þínar til hans. Hann þekkir þig.
Hann skilur þig. Hann finnur til með
þér. Í hans augum ert þú óendanlega
dýrmætur. Hann vill og getur létt af
þér byrðunum því að hann býðst til
að bera þær með þér. Treystu hon-
um fyrir öllum þínum málum. Hann
veit og skilur. Og taktu nú eftir.
Hann dæmir þig ekki. Elska hans er
flekklaus, náð hans og kærleikur al-
gjör.
Hann sagði: „Komið til mín, allir
þér sem erfiði hafið og þungar byrð-
ar og ég mun veita yður hvíld.“ Og
hann hét því að vera með þér allar
stundir, alla þína daga, allt til enda
veraldar.
Horfðu í augun á Jesú
Eftir Sigurbjörn
Þorkelsson
„Elska hans
er flekklaus,
náð hans og
kærleikur
algjör.“
Höfundur er rithöfundur og fram-
kvæmdastjóri Laugarneskirkju.
Mikið úrval af
fallegum
rúmfatnaði
Skólavörðustíg 21, Reykjavík, sími 551 4050