Morgunblaðið - 07.03.2003, Qupperneq 44
44 FÖSTUDAGUR 7. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
I
I
Fjármála- og skrif-
stofustjóri óskast
Skipafélag á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir
að ráða fjármála- og skrifstofustjóra til
starfa. Við leitum að samviskusömum og
áreiðanlegum einstaklingi með háskólapróf
eða mikla reynslu af fjármálum og bókhaldi.
Helstu verkefni eru: Ábyrgð á bókhaldi
félagsins, fjárstýring, launagreiðslur,
skýrslugerð, umsjón með upplýsingakerfi
og rekstri skrifstofu.
Starfshlutfall er 60—75%.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf
fljótlega. Umsóknum skal skila inn á auglýs-
ingadeild Morgunblaðsins, merktum:
„Skipafélag", fyrir 14. mars nk.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
FÉLAGSSTARF
Gönguferð með bæjarfulltrúum
Sjálfstæðisflokksins um:
Grundir, Sjáland og
Ásahverfi
Taktu þátt í hressandi gönguferð laugardag-
inn 8. mars með bæjarfulltrúum Sjálfstæðis-
flokksins.
Mæting kl. 10.00 við hjólabrettapallana fyrir
neðan Sjávargrund.
Komdu hugmyndum þínum á framfæri við
bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins.
Kaffiveitingar í boði Kökubankans að göngu
lokinni.
VERUM BLÁTT - ÁFRAM
Stjórn Sjálfstæðisfélagsins í Garðabæ
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR
Kópavogsbúar
Bæjarmálafundur
Sjálfstæðisfélag Kópavogs býður til opinna funda
um bæjarmál með aðal- og varabæjarfulltrúum
á laugardagsmorgnum milli kl. 10.00 og 12.00
í Hamraborg 1, 3. hæð.
Á morgun, laugardaginn 8. mars, verða Halla
Halldórsdóttir, bæjarfulltrúi og formaður leikskóla-
nefndar, og Bragi Michaelsson, varabæjarfulltrúi
og varaformaður félagsmálaráðs, gestir fundarins.
Allir velkomnir.
Sjálfstæðisfélag Kópavogs.
Aðalfundur Guðmundar
Runólfssonar hf.
Fundarboð
Aðalfundur Guðmundar Runólfssonar hf.
vegna starfsársins 2002 verður haldinn í húsa-
kynnum félagsins miðvikudaginn 12. mars
2003 kl. 14.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Tillaga stjórnar um arðgreiðslu.
3. Heimild til kaupa á eigin bréfum.
4. Önnur mál löglega upp borin.
Fyrir hönd Guðmundar Runólfssonar hf.
Guðmundur Smári Guðmundsson,
framkvæmdastjóri.
Aðalfundur Tanga hf.
verður haldinn laugardaginn 22. mars
nk. kl. 14.00 í félagsheimilinu Miklagarði,
Vopnafirði.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 15. grein
samþykkta félagsins.
2. Tillaga um heimild til félagsstjórnar til kaupa
á eigin hlutum skv. 55. grein hlutafélaga-
laga.
3. Önnur mál, löglega upp borin.
Endanleg dagskrá, tillögur og ársreikningur
fyrir árið 2002, ásamt skýrslu endurskoðenda,
mun liggja frammi á skrifstofu félagsins viku
fyrir aðalfund.
Fundargögn verða afhent á fundarstað.
HÚSNÆÐI ERLENDIS
Barcelóna — Menorca
Íbúð til leigu í Barcelóna og
á Menorca. Vetrarfrí/sumarfrí.
Uppl. gefur Helen í síma 899 5863.
NAUÐUNGARSALA
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eign verður háð á skrifstofu
embættisins í Hafnarstræti 1, Ísafirði, sem hér segir:
Dýrfirðingur ÍS-58, sk.nr. 1730, þingl. eig. Þórður Sigurðsson, gerð-
arbeiðendur Byggðastofnun og Sjóvá-Almennar tryggingar hf.,
þriðjudaginn 11. mars 2003 kl. 9:00.
Sýslumaðurinn á Ísafirði,
6. mars 2003.
Anna Svava Þórðardóttir,
fulltrúi.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum sem hér segir:
Fjarðargata 14, efri hæð, Þingeyri, þingl. eig. Viktor Pálsson og Sól-
veig Sigríður Guðnadóttir, gerðarbeiðandi Ísafjarðarbær, þriðjudag-
inn 11. mars 2003 kl. 11:20.
Hafnarstræti 20, 0101 og 0102, Ísafirði, þingl. eig. Stefán Óskarsson,
gerðarbeiðendur Byggðastofnun, Ísafjarðarbær og Vátryggingafélag
Íslands hf., þriðjudaginn 11. mars 2003 kl. 9:30.
Hrannargata 2, 0102, Ísafirði, þingl. eig. Katrín Jónsdóttir, gerðarbeið-
endur Seljaskóli og Vátryggingafélag Íslands hf., þriðjudaginn
11. mars 2003 kl. 10:00.
Skipagata 4, Suðureyri, þingl. eig. Magnús ehf., gerðarbeiðandi
Tollstjóraembættið, þriðjudaginn 11. mars 2003 kl. 13.00.
Sýslumaðurinn á Ísafirði,
6. mars 2003.
Anna Svava Þórðardóttir,
fulltrúi.
TILKYNNINGAR
SKIPULAGS- OG BYGGINGARSVIÐ
Auglýsing um breytingu á
Aðalskipulagi Reykjavíkur
2001-2024
og deiliskipulag í Reykjavík
Færsla Hringbrautar, undirgöng undir Snorra-
braut, tillaga að breytingu á Aðalskipulagi
Reykjavíkur 2001-2024.
Í samræmi við 21. gr. skipulags- og byggingar-
laga nr. 73/1997, með síðari breytingum, er hér
með auglýst til kynningar tillaga að breytingu á
Aðalskipulagi Reykjavíkur 2001-2024 varðandi
undirgöng undir Snorrabraut við gatnamót
Snorrabrautar, Bústaðvegar, Miklubrautar og
Hringbrautar.
Tillagan gerir ráð fyrir að heimilt verði að gera
undirgöng undir Snorrabraut á umræddum stað
til þess að auka umferðaröryggi gangandi og
hjólandi vegfarenda um gatnamótin til austurs og
vesturs sem og á svæðið sunnan Hringbrautar
þ.m.t. á íþróttasvæði Vals. Nánar er gerð grein
fyrir fyrirhugaðri staðsetningu undirganganna í
deiliskipulagtillögu þeirri sem auglýst er til
kynningar hér að neðan.
Færsla Hringbrautar, frá Rauðarárstíg að
Þorfinnstjörn, tillaga að deiliskipulagi.
Í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingar-
laga nr. 73/1997, með síðari breytingum, er hér
með auglýst til kynningar tillaga að deiliskipulagi
vegna færslu Hringbrautar.
Tillagan tekur til svæðis sem nær frá Rauðarár-
stíg í austri að Þorfinnstjörn í vestri og afmarkast
svæðið til norðurs af núverandi legu Hring-
brautar og til suðurs af fyrirhugaðri legu götunnar
sem kemur til með að liggja undir núverandi brú
á Bústaðaveginum sunnan við Umferðar-
miðstöðina og Læknagarð, auk helgunarsvæða.
Skipulagi er frestað af svæðinu þar sem
Umferðarmiðstöðin stendur og lóð Land-
spítalans, milli núverandi legu Hringbrautar og
fyrirhugaðrar legu hennar.
Megin tilgangur skipulagsins er að sameina lóð
Landspítalans auk þess að bæta umferðaröryggi
og aðgengi akandi og gangandi vegfarenda að
spítalanum. Að sama skapi mun umferð verða
greiðari og öruggari um gatnamót Hringbrautar,
Snorrabrautar, Miklubrautar og Bústaðavegar.
Einnig mun færslan draga úr óæskilegum
áhrifum umferðarinnar á íbúðahverfið í sunnan-
verðum Þingholtunum s.s. hávaða- og loft-
mengun.
Helstu breytingar eru þær að legu Hringbrautar
er breytt og hún færð til suðurs undir núverandi
brú á Bústaðaveginum sunnan við Umferðar-
miðstöðina og Læknagarð en við það breytast öll
gatnamót á þessum kafla m.a. verður gatna-
mótum Rauðarástígs og Hringbrautar lokað.
Núverandi Hringbraut breytist í tveggja akreina
safngötu úr fjögurra akreina stofngötu. Vegna
framkvæmdanna þarf hús nr. 16 við Miklubraut
að víkja en húsið nr. 18-20 getur staðið áfram þar
til kemur að 2 áfanga framkvæmdanna en um
hann er ekki fjallaði í skipulagi þessu. Þá þarf
leikskólinn Sólbakki að víkja, hluti hússins að
Eskihlíð 2-4 sem og húsin að Vatnsmýrarvegi 28
og 35. Þá gerir tillagan ráð fyrir allverulegum
breytingum á göngustígakerfi svæðisins. Nánar
vísast til tillögunnar og annarra kynningargagna.
Tillögurnar liggja frammi á skipulags- og
byggingarsviði Reykjavíkurborgar í Borgartúni 3,
virka daga kl. 10.00 – 16.00 frá 7. mars 2003 til
22. apríl 2003. Eru þeir sem telja sig eiga
hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér
tillögurnar. Kynningargögn er einnig að finna á
heimasíðu skipulags- og byggingarsviðs,
skipbygg.is. Ábendingum og athugasemdum við
þær skal skila skriflega til Skipulags- og
byggingarsviðs (merkt skipulagsfulltrúa) eigi
síðar en 22. apríl 2003.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins
frests, teljast samþykkja tillögurnar.
Reykjavík, 7. mars 2003.
Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur.
SMÁAUGLÝSINGAR
KENNSLA
Nám í svæða- og viðbragðs-
fræðum í Svæðameðferðaskóla
Þórgunnu byrjar mánudaginn
10. mars frá 17-21. Ath. vegna
forfalla eru núna tvö pláss laus.
Upplýsingar og innritun í símum
552 1850, 562 4745 og 896 9653.
FÉLAGSLÍF
I.O.O.F. 12 183378½ 9.0.
I.O.O.F. 1 183378 Dd.
Í kvöld kl. 21.00 fjallar Ása
Briem um indverska tónlist í
húsi félagsins, Ingólfsstræti 22.
Á laugardag kl. 15-17 er opið
hús með fræðslu og umræðum,
kl. 15.30 í umsjón Sigríðar Ein-
arsdóttur „Vel þér veg þinn
(með tónlist).“
Á sunnudögum kl. 17-18 er
hugleiðingarstund með leið-
beiningum fyrir almenning.
Hugræktarnámskeið Guðspeki-
félagsins verður framhaldið
fimmtudaginn 13. mars kl. 20.30
í umsjá Birgis Bjarnasonar:
„Opið spjall um hugrækt II“.
Starfsemi félagsins er öllum
opin.
gudspekifelagid.is
mbl.is
ATVINNA