Morgunblaðið - 07.03.2003, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. MARS 2003 47
RAFVÉLA
VERKSTÆÐI
Vagnhöfði 21 • 110 Reykjavík
Sími: 577 4500 • www.velaland
velaland@velaland.is
d
es
ig
n.
is
2
00
3
EDDUSKÁKMÓTINU, sem haldið
var til minningar um Guðmund J.
Guðmundsson, lauk með sigri ofur-
stórmeistarans Michael Gurevich
(2.634) eftir spennandi keppni í loka-
umferðunum. Hann hlaut 8 vinninga í
9 skákum, en tefldar voru atskákir.
Bestum árangri íslensku skákmann-
anna náðu þeir Hannes Hlífar Stef-
ánsson (2.569), Helgi Ólafsson (2.475)
og Sigurbjörn J. Björnsson (2.267).
Þeir höfnuðu í 13.–21. sæti með sex
vinninga. Sigurbjörn hlaut jafnframt
verðlaun fyrir bestan árangur skák-
manna með minna en 2.400 skákstig,
en hann sigraði franska stórmeistar-
ann Igor Nataf (2.545) í lokaumferð-
inni. Fyrir lokadag mótsins var Jó-
hann Hjartarson í 4.–9. sæti, hálfum
vinningi á eftir efstu mönnum. Skák-
áhugamenn, sem fjölmenntu í Borg-
arleikhúsið, fylgdust því spenntir
með honum í næstsíðustu umferð
þegar hann mætti Michael Adams
(2.734), sjötta sterkasta skákmanni
heims. Skákin virtist stefna í jafntefli
í hróksendatafli, en eftir góða tafl-
mennsku Jóhanns lék hann óná-
kvæmum leik sem kostaði hann skák-
ina. Þar með hvarf vonin um að sjá
Íslending í efstu sætum mótsins.
Lokastaða efstu manna:
1. Michail Gurevich 8 v.
2.–3. Ivan Sokolov, Emil Sutovsky
7 v.
4.–12. Joel Lautier, Alexei Shirov,
Michael Adams, Loek Van Wely,
Predrag Nikolic, Jaan Ehlvest, Eti-
enne Bacrot, Victor Bologan, Jan
Votava 6½ v.
13.–21. Bartlomiej Macieja, Vesel-
in Topalov, Luke McShane, Hannes
Hlífar Stefánsson, Helgi Ólafsson,
Michal Krasenkow, Nick De Firmian,
Sigurbjörn Björnsson, Tomas Oral 6
v.
22.–29. Pavel Tregubov, Jóhann
Hjartarson, Þröstur Þórhallsson,
Henrik Danielsen, Harriet Hunt,
Regina Pokorna, Páll Þórarinsson,
Jón Viktor Gunnarsson 5½ v.
30.–45. Stefán Kristjánsson, Tóm-
as Björnsson, Magnús Úlfarsson,
Bragi Þorfinnsson, Björn Þorfinns-
son, Sigurður Páll Steindórsson, Sig-
urður Daði Sigfússon, Ingvar Ás-
mundsson, Guðmundur Gíslason,
Viktorija Cmilyte, Bergsteinn Ein-
arsson, Igor Nataf, Nikolay Vlassov,
Jón Garðar Viðarsson, Þorsteinn
Þorsteinsson, Nataliya Andreeva 5 v.
46.–56. Helgi Áss Grétarsson,
Benedikt Jónasson, Kristján Eð-
varðsson, Snorri Bergsson, Bragi
Halldórsson, Guðlaug Þorsteinsdótt-
ir, Magnús Pálmi Örnólfsson, Björn
Freyr Björnsson, Sverrir Örn
Björnsson, Guðfríður Lilja Grétars-
dóttir, Lárus Knútsson 4½ v. o.s.frv.
Þátttakendur á mótinu voru 102.
Mótið var skipulagt af Skákfélaginu
Hróknum.
Mörg góð afrek voru unnin á
mótinu og hinir erlendu stórmeistar-
ar áttu oft í vök að verjast gegn tit-
illausum Íslendingum sem fengu
kærkomið tækifæri til að etja kappi
við suma af frægustu skákmeisturum
heims. Eitt af því sem stendur upp úr
er þó tvímælalaust sigur Helga Ólafs-
sonar gegn fjórða sterkasta skák-
manni heims, Veselin Topalov (2.743).
Það er fljótlegt að telja upp þá sem
teljast sterkari en hann: Garry Kasp-
arov (2.847), Vladimir Kramnik
(2.809) og Viswanathan Anand
(2.753). Það er því ljóst að það er ekki
lítið afrek að sigra Topalov og Helgi
gerði það á sannfærandi hátt.
Hvítt: Helgi Ólafsson
Svart: Veselin Topalov
Sikileyjarvörn
1. e4 c5 2. c3 d5 3. exd5 Dxd5 4. d4
Rf6 5. Rf3 Bg4 6. dxc5 Dxc5 7. Ra3
a6 8. Be3 Dc7
Eftir 8...Dd5 9.Be2 Dxd1+
10.Hxd1 Rbd7 11.Rc4 e6 12.h3 Bh5
13.Bf4 b5 14.Rd6+ Bxd6 15.Bxd6
Re4 16.Ba3 Rdc5 17.g4 Bg6 18.Re5
Hc8 19.f3 Rg3 20.Hh2 náði Helgi mun
betra tafli í 1. einvígisskákinni við
Hannes Hlífar Stefánsson um Ís-
landsmeistaratitilinn í atskák 2003.
9. Da4+ Bd7!?
Nýjung. Venjulega er leikið 9. –
Rbd7 (9. – Rc6 10. 0-0-0 e6 11. Rb5
Db8 12. Rbd4 Dc8 13. Rxc6 Dxc6 14.
Dxc6+ bxc6), t.d. 10. Bf4 Dc8 11. Re5
e6 12. Rxg4 Rxg4 13. Bg3 Rgf6 14.
Rb1 Be7 15. Rd2 0-0 16. Be2 b5 17.
Dc2 b4 18. c4 Rc5 19. 0-0 Hd8 20.
Hfd1, jafntefli (Potkin-Bu Xiangzhi,
Goa 2002).
10. Rb5 Dc8 11. Re5 Rd5 12. 0-0-0
Rxe3?!
Ekki er annað að sjá en að svartur
haldi sínu eftir 12. – e6, t.d. 13. Hxd5
exd5 14. Bb6 Bxb5 15. Bxb5+ axb5
16. Dxa8 Bd6 17. Rf3 0-0 o.s.frv.
13. fxe3 Rc6 14. Rxd7 axb5 15.
Db3 Dc7 16. Bxb5 e6
17. Hd3 Bd6 18. Hhd1 Bxh2 19. a4
h5 20. Kb1 h4 21. Dc4!
Áætlun Helga er einföld og áhrifa-
rík. Við hótuninni 21. Dc5, ásamt 22.
Rb6 er lítið að gera fyrir svart.
21. – 0-0-0 22. Dc5 g6 23. Bxc6
Dxc6
Eða 23. – bxc6 24. Rb6+ Kb8 25.
Hd7 Hxd7 26. Hxd7 Bd6 27. Hxd6
Hh5 28. Db4 c5 29. Db5 Dxd6 30.
Rc4+ Kc7 31. Rxd6 og hvítur vinnur.
24. Rb6+ Kc7 25. De7+ Kxb6 26.
Hxd8 De4+ 27. H1d3 Be5 28. Kc1 h3
29. a5+ Kb5
Eftir 29. – Ka6 30. Hxh8 hxg2 31.
Ha8+ Kb5 32. Dd7+ Dc6 33. Dxc6+
bxc6 34. Hd1 Bh2 35. Kd2 g1D 36.
Hxg1 Bxg1 37. b4 vinnur hvítur enda-
taflið með skiptamun yfir.
30. Dd7+
Hvítur getur einnig unnið skákina
með 30. H8d5+! exd5 (30. – Dxd5 31.
Hxd5+ exd5 32. Dxb7+ Kc5 33.
Db6+ Kc4 34. Kc2 d4 35. Dc6+ mát)
31. Dxb7+ Kxa5 32. Hxd5+ Dxd5 33.
Dxd5+ Ka6 34. Dxe5 hxg2 35. Df6+
Kb5 36. Dg5+ Kb6 37. Dxg2 o.s.frv.
30. – Kxa5 31. Hxh8 hxg2 32.
Ha8+ Kb6 33. Dd8+ Bc7 34. Hd6+
Kb5 35. Dd7+ Dc6 36. Hxc6 g1D+
37. Kc2 Dg2+ 38. Kb3 Dxc6 39. c4+
Kb6 40. Dxf7 Dd6
Eða 40. – De4 41. Ha4 Dxe3+ 42.
Ka2 og hvítur á vinningsstöðu.
41. Dxg6 De5 42. Dd3 Kc6 43. He8
Bd6 44. Dd4 Df5 45. Hd8 Bc5
Eftir 45. – De5 46. Hxd6+ Dxd6 47.
Dxd6+ Kxd6 48. Kc3 Ke5 49. Kd3 á
hvítur auðunnið peðsendatafl.
46. Dd7+ Kb6 47. Db5+ og svartur
gafst upp, því að hann verður mát: 47.
– Ka7 (47. – Kc7 48. Hd7+ Kb8 49.
Dxb7+) 48. Da5+.
Helgi átti einungis eftir 38 sekúnd-
ur á klukkunni þegar Topalov gafst
upp!
Kvennamót
VISA hafið
Tvö mót hófust í Saltfisksetrinu á
miðvikudagskvöld, en það eru Tafl-
félag Garðabæjar og Skákfélags
Grindavíkur sem standa fyrir mótun-
um. Fyrst ber að telja fyrsta alþjóð-
lega kvennamótið, VISA-mótið, með
þátttöku Íslands, Noregs og Evrópu-
meistara Frakka. Þá hófst á sama
tíma Skákmót Þorbjarnar-Fiskaness
með þátttöku sömu liða og sameig-
inlegs liðs Taflfélags Garðabæjar
(TG) og Skákfélags Grindavíkur
(SG).
Úrslit einstakra viðureigna í fyrstu
umferð VISA mótsins:
Ísland - Frakkland
Guðlaug Þorsteinsdóttir - Karelle
Bolon 1-0
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir -
Caroline Cochet ½-½
Anna Björg Þorgrímsdóttir - Mat-
hilde Choisy 0-1
Áslaug Kristinsdóttir - Valerie
Maupin 0-1
Hörkubarátta var á öllum borðum,
en franska liðið er mjög jafnt og má
segja að það hafi ráðið úrslitum. Lilja
náði jafntefli eftir mikla baráttu gegn
Evrópumeisturunum. Guðlaug vann í
spennandi skák. Anna Björg lenti í
vandræðum í byrjun tafls og tapaði.
Mikil barátta einkenndi skák Áslaug-
ar, en hin efnilega Valerie vann að
lokum.
Í fyrstu umferð skákmóts Þor-
bjarnar-Fiskaness sigraði TG/SG
Noreg 2½-1½:
Sylvia Johnsen - Björn Jónsson
½-½
Torill Hagesæther - Skúli H. Sig-
urðarson 0-1
Anita Hersvik - Leifur I. Vilmund-
arson 0-1
Gro Ferkingstad - Samuel Her-
mannsson 1-0
TG/SG slapp fyrir horn, því Norð-
menn voru með unnið á fyrsta borði,
en góð barátta Björns Jónssonar skil-
aði dýrmætum sigri. Skúli tefldi vel
og vann örugglega sem og Gro á 4
borði. Skák Leifs og Anitu var mjög
skemmtileg, en útsjónarsemi Leifs
skilaði vinningi og þar með sigri í við-
ureigninni.
Kramnik efstur
í Linares
Vladimir Kramnik er efstur á stór-
meistaramótinu í Linares eftir 10 um-
ferðir, en öllum skákum níundu og tí-
undu umferðar lauk með jafntefli.
Staðan á mótinu er þessi:
1. Kramnik 5½ v. af 9
2. Leko v. 5 v. af 8
3. Kasparov 5 v. af 9
4. Anand 4½ v. af 8
5.–6. Radjabov og Ponomariov 3½
v. af 9
7. Vallejo Pons 3 v. af 8
Meistaramót Hellis
hefst á mánudag
Meistaramót Taflfélagsins Hellis
hefst 10. mars klukkan 19.30. Mótið
er 7 umferða opið kappskákmót.
Þetta er í 12. sinn sem mótið fer fram,
en núverandi skákmeistari Hellis er
Björn Þorfinnsson sem jafnframt
hefur oftast orðið meistari félagsins
eða fjórum sinnum. Mjög vegleg og
fjölbreytt verðlaun eru í boði.
Umhugsunartíminn verður 1½
klst. á 36 leiki og 30 mínútur (gæti
breyst) til að ljúka skákinni. Mótið er
öllum opið. Mótið er reiknað til al-
þjóðlegra skákstiga. Teflt er á mánu-
dögum, þriðjudögum og fimmtudög-
um. Skráning:
Heimasíða: www.hellir.is (skrán-
ingarform á hægri hluta síðunnar).
Tölvupóstur: hellir@hellir.is.
Sími: 861 9416 (Gunnar).
Skráning á mótstað fyrir 19.30
Aðalverðlaun:
1. verðlaun: 25.000.
2. verðlaun: 15.000.
3. verðlaun: 10.000.
Aukaverðlaun:
Skákmeistari Hellis: Chess Assiss-
ant 7 (nýjasta útgáfa).
Besti árangur undir 2.000 skák-
stigum: Chess Assissant 7 (nýjasta
útgáfa).
Besti árangur undir 1.800 skák-
stigum: 5.000.
Besti árangur undir 1.600 skák-
stigum: 5.000.
Besti árangur stigalausra: Skák-
klukka eða taflsett.
Unglingaverðlaun: 3 efstu kepp-
endurnir 15 ára og yngri fá vegleg
bókaverðlaun.
Stúlknaverðlaun: 3 efstu keppend-
urnir 15 ára og yngri fá vegleg bóka-
verðlaun.
Hver keppandi hefur aðeins rétt á
einum aukaverðlaunum. Stig verða
látin ráða um aukaverðlaun verði
skákmenn jafnir í verðlaunasætum.
Þátttökugjald:
Félagsmenn kr. 2.000; Aðrir 2.500.
Unglingar 15 ára og yngri: Fé-
lagsmenn: 1.500; Aðrir 2.000.
Umferðatafla:
1. 10. mars, kl. 19.30.
2. 13. mars, kl. 19.30.
3. 17. mars, kl. 19.30.
4. 18. mars, kl. 19.30.
5. 20. mars, kl. 19.30.
6. 24. mars, kl. 19.30.
7. 27. mars, kl. 19.30.
SKÁK
Borgarleikhúsið
EDDUSKÁKMÓTIÐ
3.–5. mars 2003
Gurevich sigraði á
Edduskákmótinu
Daði Örn Jónsson
Bragi Kristjánsson
dadi@vks.is
Nýliðabrids á föstudögum
Síðasta föstudag mættu 9 pör og
spiluðu 18 spila Monrad barómeter.
Úrslit urðu þessi:
Þórir Jóhannsson – Eiríkur Eiðsson 92
Jóhannes Jónsson – Jón Jóhannsson 81
Kristján Nielsen – Sigurbjörn Haralds. 78
Ásta Jónsdóttir – Halldóra Ólafsdóttir 76
Næsta spilakvöld hjá nýliðunum
verður föstudaginn 7. mars kl. 20.
Spilað er í Síðumúla 37, 3. hæð. Allir
sem kunna undirstöðuatriðin í
bridds eru velkomnir. Umsjónar-
maður er Sigurbjörn Haraldsson og
aðstoðar hann við að finna spila-
félaga fyrir þá sem mæta stakir.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson