Morgunblaðið - 07.03.2003, Qupperneq 49
DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. MARS 2003 49
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
FISKAR
Afmælisbörn dagsins:
Þið eruð sjálfstæð, látið ekki
ráðskast með ykkur og
dragið oft viðteknar venjur í
efa. Þið njótið samt vinsælda
vegna persónutöfra. Árið
framundan er ár íhugunar.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Í dag er heppilegt að slappa
vel af. Það er einnig gott að
versla, einkum að kaupa per-
sónulega hluti.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Hópar eiga vel við þig í dag
því fólk laðast að þér. Þetta
er því heppilegur dagur fyrir
fundi og hópíþróttir.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
í dag er gott að ræða við for-
eldra, yfirmenn eða þá sem
ráða. Þú ræður við allar stöð-
ur sem koma upp.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þetta verður viðburðaríkur
dagur. Þú vilt gera eitthvað
óvenjulegt. Að minnsta kosti
getur þú hagað þér eins og
ferðamaður í heimaborg
þinni.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Í dag er heppilegt að ræða
við mikilvægt fólk eða for-
eldra um sameiginlegar
tekjur, eignir og verðbréf.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Það gengur vel að ræða við
maka eða nána vini í dag.
Umræðurnar gætu snúist um
stjórnmál, trúmál eða erlend
ríki. Hlustaðu á aðra.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Ekki leggja það ríka áherslu
á skipulag að þú fælir aðra
frá þér. Þú vilt ráða en aðrir
vilja einnig hafa hugarró.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Í dag er heppilegt að fara í
veislur, daðra eða skemmta
sér. Þú vilt vera innan um
aðra. Njóttu íþrótta, kvik-
mynda og lista.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þótt þú hafir gaman af því að
tala við aðra í dag þarft þú
einnig að einbeita þér að fjöl-
skyldunni og heimilinu. Þú
veist að ef þú beitir þér geng-
ur allt betur.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú hefur sterka þörf til að
ræða við aðra í dag þar sem
þér liggur ýmislegt á hjarta.
Þú finnur einnig fyrir eirð-
arleysi. Reyndu að fá útrás
fyrir orkuna.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Í dag er gott að kaupa hluti
fyrir heimilið eða fjölskyld-
una. Kauptu eitthvað sem
gerir lífið þægilegra.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Sólin er í fiskamerkinu og í
góðu sambandi við tunglið í
nautsmerkinu og því ert þú í
góðu formi í dag. Samband
þitt við systkini, ættingja og
aðra sem þú umgengst oft er
gott.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
SOFÐU, UNGA ÁSTIN MÍN
Sofðu, unga ástin mín,
– úti regnið grætur.
Mamma geymir gullin þín,
gamla leggi og völuskrín.
Við skulum ekki vaka um dimmar nætur.
Það er margt sem myrkrið veit,
– minn er hugur þungur.
Oft ég svarta sandinn leit
svíða grænan engireit.
Í jöklinum hljóða dauðadjúpar sprungur.
Sofðu lengi, sofðu rótt,
seint mun bezt að vakna.
Mæðan kenna mun þér fljótt,
meðan hallar degi skjótt,
að mennirnir elska, missa, gráta og sakna.
Jóhann Sigurjónsson
LJÓÐABROT
ÁRNAÐ HEILLA
50 ÁRA afmæli. Í dagföstudaginn 7. mars
er fimmtug Anna Kristine
Magnúsdóttir, blaðamaður,
Ránargötu 29, Reykjavík.
Afmælisbarnið biður þá sem
huga á að gleðja hana með
kveðju á afmælisdaginn, að
láta Umhyggju, félag til
stuðnings langveikum börn-
um Laugavegi 7, Reykjavík
njóta þess.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman í Bessastaðakirkju
hinn 28. desember sl. af sr.
Helgu Soffíu Konráðsdóttur
þau Hólmfríður Bjarnadótt-
ir og Martin Eineborg.
Heimili þeirra er í Svíþjóð.
Svipmyndir/Fríður Eggertsdóttir
ÞAÐ má deila um leiðina
sem NS völdu til að
ferðast upp í sex hjörtu, en
áfangastaðurinn óumdeild-
ur, því slemman er allgóð:
Suður gefur; allir á
hættu.
Norður
♠ 854
♥ 7643
♦ Á
♣ÁKG109
Suður
♠ ÁDG
♥ ÁDG2
♦ 754
♣D76
Vestur Norður Austur Suður
– – – 1 grand
Pass 2 lauf Pass 2 hjörtu
Pass 4 tíglar* Pass 4 grönd
Pass 5 hjörtu Pass 6 hjörtu
Pass Pass Pass
Eftir 15–17 punkta
grandopnun suðurs spyr
norður um háliti og stekk-
ur síðan í fjóra tígla við
tveimur hjörtum til að
sýna slemmuáhuga og
stuttan tígul. Sumir segja
að slíkt sé vafasamt með
blankan ás, en í þessu til-
felli sér suður að spilin
falla vel saman og keyrir í
slemmu.
Útspilið er tígull. Sagn-
hafi spilar hjarta úr borði í
öðrum slag og austur kem-
ur strax með kónginn. Er
málið leyst?
Næstum því en þó er ör-
lítil hætta á ferðum. Ef
kóngurinn er stakur, eins
og líklegt má teljast er
vafasamt að taka slaginn
strax. Segjum að þetta sé
legan:
Norður
♠ 854
♥ 7643
♦ Á
♣ÁKG109
Vestur Austur
♠ K73 ♠ 10962
♥ 10985 ♥ K
♦ D1062 ♦ KG983
♣83 ♣542
Suður
♠ ÁDG
♥ ÁDG2
♦ 754
♣D76
Vissulega mætti trompa
tígul tvisvar í blindum, en
laufið nýtist ekki sem
skyldi og sagnhafi neyðist
til að svína í spaðanum.
Örugga vinningsleiðin er
að dúkka hjartakónginn.
Austur spilar væntanlega
spaða, sem suður tekur
með ás. Trompar svo tígul,
fer heim á tromp og sting-
ur aftur tígul. Spilar loks
laufi á drottningu, tekur
tromp vesturs og síðan sjá
lauf blinds um afganginn.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
1. Rf3 Rf6 2. d4 e6 3. g3 b6 4.
Bg2 Bb7 5. c4 Be7 6. Rc3
Re4 7. Bd2 Bf6 8. O-O O-O
9. Hc1 d5 10. cxd5 exd5 11.
Bf4 Rxc3 12. bxc3 Ra6 13.
e4 dxe4 14. Rd2 g5 15. Be3
He8 16. f4 exf3 17. Bxf3 Bd5
18. Bxd5 Dxd5 19. Hxf6
Hxe3 20. Dg4 He6
21. Hf5 Dc6 22.
Dxg5+ Hg6 23. Dh5
Hf8 24. Rf3 f6 25.
Rh4 Hg7 26. Dh6
Rb8 27. Hh5 f5 28.
Df4 De4 29. Hf1
Dxf4 30. Hxf4 Hg4
31. Hfxf5 Rd7 32.
Hxf8+ Rxf8 33. Kf2
Rd7 34. Rf5 Kh8 35.
Kf3 Hg8 36. Hh6
Hf8 37. g4 Rf6 38. c4
Kg8 39. Kf4 Hf7 40.
g5 Re8 41. Ke5 Hd7
42. Ke6 Hf7
Staðan kom upp á
ofurmótinu í Linares sem
stendur nú yfir. Garry
Kasparov (2847) hafði hvítt
gegn Ruslan Ponomarjov
(2734). 43. Hf6! Rxf6 og
svartur gafst upp um leið.
44. gxf6 Kf8 45. Rh6 gætu
t.d. orðið skemmtileg lok á
skákinni. 3. umferð í Þor-
bjarnar-Fiskaness mótinu
hefst í Saltfisksetrinu í
Grindavík kl. 19.30 í dag.
Áhorfendur eru velkomnir.
Skák
Umsjón Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
MEÐ MORGUNKAFFINU
Ég hef haft það miklu betra upp á síðkastið, læknir.
Hvað heldurðu að geti verið að mér?
Bara einn eftir í
viðbót!
Ungbarnanudd fyrir barnið þitt
Heilsusetur Þórgunnu
Skipholti 50c • s. 562 4745 – 896 9653.
YOGA
Ný námskeið hefjast 10. mars.
Kennari er Arnhildur S. Magnúsdóttir sem m.a. byggir námskeiðin á sinni
eigin reynslu. Tilgangur námskeiðsins er að takast á við daglegt líf
að nýju með aðstoð yoga, styrkja sig líkamlega og andlega
auk þess að sættast við líkamann.
Námskeiðin verða haldin í sal Lífssýnar í Bolholti 4, 4. hæð v, Reykjavík.
fyrir alla sem eru að ganga
í gegnum eða hafa lokið
krabbameinsmeðferð
Skráning og upplýsingar eru hjá Arnhildi í síma 895 5848.