Morgunblaðið - 07.03.2003, Side 55

Morgunblaðið - 07.03.2003, Side 55
Myndin gerist einn örlagaríkan sólahring og fjallar um þegar barnsfaðir söguhetjunnar gengur að eiga nýja konu. „Gekk alveg kjánalega vel“ ÁRNI Ólafur Ásgeirsson útskrif- aðist úr kvikmyndaskóla Póllands í Lodz árið 2001 (þaðan sem kanónur pólskrar kvikmyndalistar, Roman Polanski og Krzysztof Kieslowski, útskrifuðust). Hann hefur unnið ná- ið með öðrum íslenskum leikstjórum eins Róberti Douglas og Degi Kára en á dögunum var frumsýnd fyrsta stuttmynd hans eftir útskrift, hin tuttugu og fimm mínútna langa Dagur Önnu eða Annas Dag. Árni hefur annars unnið fjölda mynda, bæði utan skóla og innan og var stuttmynd hans, P.S. sýnd á Cannes í fyrra. Hver var nú tilurð þessarar myndar? „Ég komst í kynni við fyrirtækið Cosmo Film í Danmörku og þeir spurðu mig hvort ég væri með eitt- hvað í farteskinu. Ég átti þá þetta handrit. Eitt leiddi af öðru og það var í raun slembilukka að þessi mynd skyldi komast á koppinn í Danmörku. Það er Cosmo sem stendur að þessu úti en Pegasus hérna heima. Norræni kvikmynda- og sjónvarpsjóðurinn kemur einnig að þessu.“ Hvernig fékkstu leikkonuna Iben Hjejle til liðs við þig? (Hún lék aðal- hlutverkið í Síðasti söngur Mifune og á móti John Cusack í myndinni Ást í plötubúð (High Fidelity)) „Þegar það var ákveðið að gera myndina í Danmörku fór ég út í Að- alvídeóleiguna og leigði allar dansk- ar myndir sem voru á boðstólum þar. Ég kannaðist við Iben og fannst hún passa best við það sem ég hafði í huga. Við höfðum svo samband við hana og af einhverjum undarlegum ástæðum sagði hún já (hlær). Ég átti nú frekar von á neii en jái. Hún sagði hins vegar að það væru einhverjir punktar í handrit- inu sem minntu hana á sjálfa sig.“ Hvenær kláruðuð þið myndina? „Við kláruðum hana í síðasta mánuði. Hún var tekin í haust. Það er búið að sýna hana í Danmörku og þetta er í fyrsta skipti sem hún er sýnd í öðru landi. Ég kom því sér- staklega heim til landsins til að vera viðstaddur sýninguna en ég bý sem stendur í Varsjá.“ Hvernig gekk að vinna myndina? „Það gekk alveg kjánalega vel að gera þessa mynd. Þetta var ótrú- lega átakalaust þannig að klisjan um blóð, svita og tár gufaði upp. Kannski er þetta undantekningin sem sannar regluna. Ég verð þó að nefna að það var mjög vel staðið að öllu frá hendi framleiðenda og hóp- urinn sem vann með mér var frá- bær.“ Hvað er svo framundan? „Ég er með mína draumóra en ég get ekkert sagt til um hvernig þeir eiga eftir að fara. Mig langar hins vegar til að gera næstu mynd hérna heima … mér hefur ekki enn tekist að gera mynd heima á Íslandi!“ Dagur Önnu verður sýnd kl. 18 í Háskólabíói Stuttmyndin Dagur Önnu eftir Árna Ó. Ásgeirsson sýnd í Háskólabíói Iben Hjejle sem Anna. Árni Ólafur Ásgeirsson. Dagur Önnu er sýnd í Háskólabíói kl. 18 í dag. TENGLAR ..................................................... www.cosmo.dk arnart@mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. MARS 2003 55 Í KVÖLD munu Austfirðingar gleðj- ast á Players, Kópavogi, þegar fram koma tvær helstu sveitir ausfirskrar poppsögu, Súellen og Dúkkulísur. Dúkkulísurnar unnu Músíktil- raunir árið 1983 og gaf enn fremur út tvær breiðskífur, plötu sam- nefnda sveitinni árið 1984 og Í létt- um leik árið 1986. Súellen var stofnuð fyrir tuttugu árum og áttu m.a. smellinn „Elísa“ og breiðskífuna Í örmum nætur, sem út kom árið 1990. Þá ber að geta þess að Súellen- liðar eru á leiðinni í hljóðver þar sem þeir ætla að taka upp þrjú ný lög, og fara þau á plötu sem út kem- ur með hausti en þar verða og eldri lög. Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson mun snúa tökkum hvað nýju lögin varðar. Fleiri Austfirðingar munu bregða á leik um kvöldið, m.a. Búálfarnir frá Neskaupstað, Magni „Á móti sól“, Tommi „Rokkabillýbandið“ Tomm og Djúpulaugar Hálfdán. Súellen og Dúkkulísur Austfirðingaball

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.