Morgunblaðið - 13.03.2003, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. MARS 2003 45
Atvinnutækifæri
— eigin rekstur
Matvælafyrirtæki óskar eftir samstarfsaðila
er gæti tekið að sér í verktöku verkefni við
framleiðslu. Um er að ræða verkhluta, tengdan
fuglasöfnun í eldishúsum félagsins.
Þetta getur verið tilvalið verkefni fyrir þá,
er hefja vilja eigin atvinnurekstur.
Starfsvettvangur er Suður- og Suðvesturland.
Þeir, sem hafa áhuga á verkefninu, vinsamleg-
ast sendi nafn og símanúmer til augldeildar
Mbl. fyrir 21. mars 2003, merkt: „T — 851.“
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR
Aðalfundur
Aðalfundur KR-Sports hf. verður haldinn
fimmtudaginn 20. mars 2003 í Kornhlöðunni,
Bankastræti, og hefst fundurinn kl. 15.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. samþykktum
félagsins.
2. Tillaga um heimild til stjórnar um aukningu
hlutafjár
3. Önnur mál löglega borin upp.
FYRIRTÆKI
Fjárfestar
Við leitum fjárfesta til að kaupa með okk-
ur öflugt og gott fyrirtæki með mikla
möguleika. Vinsamlegast hafið sam-
band í síma 821 5657 eða 699 6002.
KENNSLA
Nám í læknisfræði
í Ungverjalandi 2003
Almennt námi í læknisfræði á ensku, tann-
lækningum og lyfjafræði við University
Medical School of Debrecen í Ungverjalandi.
Nú eru meira en 200 nemendur frá Skandi-
navíu og Íslandi við nám í háskólanum.
Inntökupróf fara fram í Reykjavík þann 24. maí.
Nánari upplýsingar fást hjá: Dr. Omer Hamad, M.D.
H-4003 Debrecen, P.O. Box 4, Hungary.
Sími: +36 209 430 492, fax: +36 52 439 579.
Netfang: omer@elender.hu
Heimasíða: http://www.tinasmedical.com
TIL SÖLU
Lagerútsala
Bjóðum 40% AFSLÁTT AF ÖLLUM LEIK-
FÖNGUM. Einnig bjóðum við 25% kynningar-
afslátt af öllum expresso kaffivélum. Buxna-
pressur á kr. 19.500, takmarkað magn. Ódýrar
brauðristar, 2ja og 4ra sneiða. Remington-
hleðslurakvél ásamt nefháraklippum og rak-
spíra á tilboði, nú kr. 12.000, áður kr. 17.500.
Einnig höfum við varahluti í Moulinex: Filter
í djúpsteikingarpotta, ryksugupoka, gler í
örbylgjuofna, glerkönnur í Krups- og Moulinex-
kaffivélar o.fl. Ýmislegt fleira er á boðstólum
á mjög hagstæðu verði.
Opið er frá kl. 9.00 til 12.00 og kl. 13.00 til 17.00
alla daga, lokum föstudaga kl. 16.00.
Lítið við og gerið góð kaup. Kredit- og debet-
kortaþjónusta. Missið ekki þetta tækifæri.
I. Guðmundsson ehf.,
Skipholti 25, 105 Reykjavík.
TILBOÐ / ÚTBOÐ
ÚU T B O Ð
13249 Lyf fyrir sjúkrahús
Blóðstorkuþáttur VIII
— rammasamningsútboð
Ríkiskaup, fyrir hönd Sjúkrahúsapóteksins ehf.,
óska eftir tilboðum í lyf, nánar tiltekið ATC-flokk
B02B D 02 — Blóðsorkuþáttur VIII.
Útboðsgögn verða til sýnis og sölu mánudaginn
17. mars. Verð útboðsgagna 3.500 kr. Opnun
tilboða 22. apríl 2003 11.00.
UPPBOÐ
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins á Hörðuvöllum
1, Selfossi, þriðjudaginn 18. mars 2003 kl. 10.00 á eftirfarandi
eignum:
Breiðamörk 8, Hveragerði. Fastanr. 221-0078. Eig. skv. þingl. kaup-
samn. Steina Rósa Björgvinsdóttir, gerðarbeiðandi Hveragerðisbær.
Dynskógar 30, Hveragerði. Fastanr. 221-0159, þingl. eig. Steingrímur
Ingason, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður.
Gljúfurárholt, Ölfusi. Landnr. 171707, þingl. eig. Örn Karlsson, gerð-
arbeiðendur Lífeyrissjóðurinn Framsýn og Vátryggingafélag Íslands
hf.
Hveramörk 2, Hveragerði. Fastanr. 221-0530, þingl. eig. Ólöf Jóns-
dóttir, gerðarbeiðandi Hveragerðisbær.
Oddabraut 10, Þorlákshöfn, fastanr. 221-2574, þingl. eig. Magnús
Georg Margeirsson, gerðarbeiðandi sýslumaðurinn á Selfossi.
Öndverðarnes 1, lóð nr. 211, Grímnes- og Grafningshreppi. Fastanr.
224-3752, þingl. eig. Garðar Guðnason, gerðarbeiðandi Tollstjóra-
embættið.
Sýslumaðurinn á Selfossi,
12. mars 2003.
SMÁAUGLÝSINGAR
FÉLAGSLÍF I.O.O.F. 5 1833138 Brk.
Landsst. 6003031319 VII
I.O.O.F. 11 1833138½
Í kvöld kl. 20 Lofgjörðarsam-
koma. Umsjón Valborg Kristj-
ánsdóttir. Sheila Fitzgerald talar.
Allir hjartanlega velkomnir.
www.fi.is
Aðalfundur Ferðafélags Ís-
lands verður haldinn í kvöld,
fimmtudagskvöldið 13. mars, í
FÍ-salnum, Mörkinni 6, kl. 20.00.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundar-
störf. Vinsamlega sýnið félags-
skírteini við innganginn.
Fimmtudagur 13. mars
Almenn samkoma í Þríbúðum,
Hverfisgötu 42, kl. 20.00.
Mikill söngur og vitnisburðir.
Prédikun: Owe Lindesär.
Allir hjartanlega velkomnir.
Dagskráin næstu viku:
Föstudagur 14. mars
Opinn AA-fundur kl. 20.00.
Mánudagur 17. mars
ungSaM kl. 19.00.
www.samhjalp.is
mbl.is
ATVINNA
Ný keppni bridsfélaga
Bridsfélag Hafnarfjarðar og
Bridsfélag Barðstrendinga/kvenna
tóku upp á þeirri nýbreytni að
spila sveitakeppni milli félaganna
og stefnt er að því að sú keppni
verði að árlegum viðburði í starf-
semi félaganna. Ísak Örn Sigurðs-
son sendi okkur pistil um keppni
félaganna og fer hann hér á eftir:
Mánudaginn 10. mars síðastlið-
inn heimsóttu Barðstrendingar/
konur Hafnfirðinga í glæsilegum
spilasal að Flatahrauni 3. Keppnin
fór fram á 9 borðum og spilaðir
voru tveir 16 spila leikir. Árangur
paranna var jafnframt reiknaður í
Butler af talnaglöggum keppnis-
stjóra Hafnfirðinga, Björgvin Má
Kristinssyni.
Barðstrendingar/konur höfðu
betur í þessari viðureign, sigruðu
með rúmlega 50 stiga mun, en
Hafnfirðingar hyggja eflaust á
hefndir þegar þeir endurgjalda
heimsóknina eftir nokkrar vikur.
Tvö pör frá Barðstrendingum
enduðu langefst í Butlerútreikn-
ingnum, Ómar Olgeirsson-Guð-
björn Þórðarson og Leifur Kr. Jó-
hannesson-Már Hinriksson. Leifur
og Már skoruðu 2,38 impa að með-
altali í spili, en Ómar og Guðbjörn
2,53 impa. Ómar og Guðbjörn áttu
stórleik í fyrri leiknum, skoruðu
þá 4 impa að meðaltali í spili. Eft-
irfarandi spil átti þar þátt í góðri
skor þeirra félaga:
Norður
♠ K8652
♥ ÁK76
♦ Á9
♣84
Vestur Austur
♠ D4 ♠ 10
♥ D532 ♥ 1084
♦ K652 ♦ DG10
♣743 ♣G102
Suður
♠ ÁG973
♥ G9
♦ 8
♣ÁKD93
Norður var gjafari og NS á
hættu. Guðbjörn, sem sat í norður,
opnaði á einum spaða og Ómar
stökk í tvö grönd til að sýna spað-
astuðning og áhuga á slemmu.
Guðbjörn sagði 3 tígla, Ómar 4
lauf, Guðbjörn fjögur hjörtu og
Ómar spurði um ása með fjórum
gröndum. Guðbjörn sýndi 3 ása
með 5 laufum (trompkóngur talinn
sem ás), Ómar sagði 5 grönd til að
sýna áhuga á alslemmu og Guð-
björn sýndi kónginn í hjarta með 6
hjörtum. Það nægði Ómari til þess
að segja alslemmu í spaða sem var
ekki vandamál að vinna. Þess má
geta að Leifur og Már voru meðal
fárra sem einnig náðu alslemm-
unni í spaða. Barðstrendingar/kon-
ur vilja nota þetta tækifæri og
koma á framfæri þakklæti til
Hafnfirðinga fyrir höfðinglegar
móttökur.
Evrópumótið
í Menton
14. til 28. júní 2003
Frá og með þessu ári verða
haldin opin Evrópumót í öllum
flokkum nema flokki yngri spilara
annað hvert ár.
Spilaður er tvímenningur og
sveitakeppni og fer þetta fyrsta
mót fram í Menton í Frakklandi.
Skráning og allar upplýsingar um
mótið hjá BSÍ s. 587 9360. Skrán-
ingarfrestur er til 30.apríl.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson