Morgunblaðið - 19.03.2003, Blaðsíða 8
FRÉTTIR
8 MIÐVIKUDAGUR 19. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
flísar og parket á tilboði
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
H
U
S
20
56
2
0
3/
20
03
SUAVE VERSAY - Veggflísar
20x25 sm, beige og hvítt
Verð áður: 1.990 kr./m2
Verð núna: 1.195 kr./m2
SUAVE - Gólfflísar
20x20 sm, beige og hvítt
Verð áður: 1.990 kr./m2
Verð núna: 1.195 kr./m2
Verðfall á nokkrum tegundum af parketi.
Lamella Askur Rustik Aðeins 3.290 kr./m2
Lamella Kirsuberjaviður Aðeins 4.390 kr./m2
Lamella Merbau Klassic Aðeins 3.490 kr./m2
Lamella Jatoba Klassic Aðeins 3.990 kr./m2
Baðmotta
Vnr. 8051129.
Verð áður: 2.919 kr.
Verð nú: 1.995 kr.
Hvort sem þú ætlar að breyta, bæta, lagfæra eða byggja heimili þitt frá grunni þá finnurðu það sem þig vantar í
Húsasmiðjunni. Þar færðu líka alltaf lipra þjónustu og góð ráð hjá fagmönnum okkar. Velkomin í Húsasmiðjuna.
40%
AFSLÁ
TTUR
Nei, áttu ekki þær nýju, fröken? Maður þarf nú að vera með fullri reisn lengur en í 4 tíma ef
þetta á að takast.
Svarfdælskur mars
Lenda á ránni
og fá klórningu
DAGANA 21. og 22.mars nk. verðurhaldin árleg
menningarhátíð í Dalvík-
urbyggð sem ber heitið
Svarfdælskur mars. Til að
kynnast þessari tilteknu
hátíð nánar ræddi Morg-
unblaðið við Svanfríði Jón-
asdóttur alþingismann,
sem er í forsvari fyrir há-
tíðina.
– Segðu okkur fyrst eitt-
hvað sögulegt um þessa
menningarhátíð …
„Fyrst smáskýring á
heitinu. Við dönsum svarf-
dælskan mars og höldum
hátíðina í mars. Það er
svarfdælskur mars! Menn-
ingarhátíðir byggjast auð-
vitað alltaf á því sem fólk
vill varðveita úr sögunni
og taka með sér inn í framtíðina.
Við viljum viðhalda danshefðinni,
að taka marsinn, sem er enn lif-
andi á svæðinu, og við viljum líka
að fólk haldi áfram að skemmta
sér við að spila brús. Og svo syngj-
um við saman og höfum málþing
um eitthvað áhugavert úr menn-
ingu okkar.“
– Hversu gömul er þessi dans-
hefð Svarfdælinga og hver er
munurinn á ykkar mars og venju-
legum mars?
„Ætli marsinn sé ekki frá þeim
tíma að Íslendingar fóru að dansa
aftur og var þá dansaður um allt
land. Hann hefur hins vegar lifað
lengur og betur hér en annars
staðar þannig að við fórum að
eigna okkur hann og kalla svarf-
dælskan. Annars er þetta blanda
af dansi og samkvæmisleikjum
sem eiga það flestir sameiginlegt
að geta, ef vel tekst til, gefið hinu
ástfangna pari færi á að snertast,
jafnvel dansa saman. Með öllu
getur það tekið einhverja klukku-
tíma að taka allan marsinn og er
jafnan samfelld gleði.“
– Fyrir tilstilli hverra er þessi
menningarhátíð haldin?
„Eigum við ekki bara að segja
að áhugafólk um að viðhalda hinu
besta úr hefðinni standi að hátíð-
inni. Og þeir eru býsna margir.
Ég hef hins vegar haldið utan um
þetta ásamt þeim Hjörleifi Hjart-
arsyni, kennara og fjöllistamanni,
og Friðriki Friðrikssyni, spari-
sjóðsstjóra Sparisjóðs Svarfdæla
á Dalvík.“
– Hverjir taka þátt í hátíðinni,
ungir sem aldnir, heimamenn sem
brottfluttir?
„Það er svo skemmtilegt að
þessi hátíð hefur orðið tilefni fyrir
ýsma að koma á æskuslóðirnar til
að taka þátt í hátíðinni með ýms-
um hætti. Þannig er það orðinn
fastur liður að Söngfélagið sunnan
heiða, sem er kór brottfluttra
Svarfdælinga sem búa á höfuð-
borgarsvæðinu, kemur norður og
tekur þátt í tónleikum með ein-
hverjum kóranna í byggðarlaginu,
en hin ríka sönghefð er líka eitt af
því sem við viljum vekja athygli á
og rækta. Núna eru starfandi fjór-
ir blandaðir kórar og
karlakór ásamt barna-
kórum í byggðarlagi
sem telur um tvö þús-
und manns. Og allir
góðir. Og hátíðin er
þannig að flestir finna eitthvað við
sitt hæfi; brús, dans, söng eða hið
talaða mál.“
– Hvaða fyrirbæri er þetta
brús?
„Brús er spil sem hefur verið
lengi og mikið spilað á svæðinu.
Þótt það sé spilað með venjuleg-
um spilum er t.d. ekki allur spila-
stokkurinn notaður og spilagildin
eru önnur. Og athafnir og orð-
ræða í kringum spilamennskuna
er líka sérstök. Þannig beiða
menn upp, lenda á ránni og geta
fengið klórningu. Og skemmta sér
ógurlega, með látum. Nú berast
sögur af æfingakvöldum þar sem
fólk á öllum aldri býr sig undir
keppnina, sem er heimsmeistara-
keppni, enda ekki vitað um brús-
spil víða. Við viljum hvetja þá sem
vilja taka þátt til að hafa samband
við Hjörleif. Og það er rétt að taka
það fram að brús er jafnan kennd-
ur til hliðar við keppnina.“
– Hvað er helst um dagskrána
að segja?
„Við byrjum með brúsmótinu á
föstudagskvöldinu klukkan 21 á
Rimum. Á laugardag verður síðan
málþing klukkan 13 á sal Dalvík-
urskóla um þjóðsögur og álaga-
bletti í byggðinni. Gunnar Stef-
ánsson verður með fyrirlestur um
þjóðsögur og Jóhann Daníelsson
og Sveinbjörn Steingrímsson
fræða okkur um álagabletti. Nem-
endur í Dalvíkurskóla taka líka
þátt, bæði með upplestri þjóð-
sagna og sýningu á verkum sem
tengjast efninu. Klukkan 16 verða
síðan tónleikar í Dalvíkurkirkju
og Söngfélagið sunnan heiða kem-
ur fram. Þar mun Söngfélagið
m.a. frumflytja „Stemmur“ eftir
Gunnstein Ólafsson, byggt á níu
íslenskum stemmum, og verður
Ólafur Kjartan Sigurðarson for-
söngvari og Pétur Björnsson
kvæðamaður. Kór Dalvíkurkirkju
mun flytja nýja útsetn-
ingu Krzysztofs Olzaks
á laginu „Ég á þessi
föt“ eftir Atla Heimi
Sveinsson. Kórarnir
munu auk eigin flutn-
ings syngja nokkur lög saman.
Sem sagt afar spennandi dagskrá.
Og um kvöldið, klukkan 21, tök-
um við svo marsinn á Rimum und-
ir stjórn Ingu Möggu við undirleik
hljómsveitar Hafliða Ólafssonar.
Við hvetjum auðvitað alla íbúa
Dalvíkurbyggðar og aðra þá sem
vilja gleðjast með okkur á svarf-
dælskum mars(i) að koma og vera
með.“
Svanfríður Jónasdóttir
Svanfríður Jónasdóttir er
kennari frá KHÍ og kenndi með
hléum 1974–1995 við Dalvík-
urskóla. Sat í bæjarstjórn Dal-
víkur 1982–90 og 1994–98. Vara-
þingmaður 1983–91 og
þingmaður frá 1995. Aðstoð-
armaður fjármálaráðherra
1988–91. Hefur setið í ýmsum
stjórnum og nefndum, m.a. í
fyrstu stjórn Menningarsjóðs
Svarfdæla. Hefur skrifað fjölda
blaðagreina sem hún geymir á
http://jafnadarmenn.is/
svanfridur/. Er gift Jóhanni Ant-
onssyni viðskiptafræðingi og
eiga þau þrjá uppkomna syni.
Blanda af
dansi og
leikjum