Morgunblaðið - 19.03.2003, Síða 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. MARS 2003 9
UNNIÐ er að viðgerð á mjölflutn-
ingaskipinu Trinket í þurrkví Orms
og Víglundar í Hafnarfjarðarhöfn
en það var nærri strandað þegar
það missti stýri á siglingu frá
Grindavík fyrir um mánuði síðan.
Eiríkur Ormur Víglundsson hjá
Vélsmiðju Orms og Víglundar segir
að Trinket hafi reynst mikið
skemmt, bæði stýrisbúnaður,
skrúfa, öxull og eins hafi botn
skipsins reynst vera mikið
skemmdur. Hann segir áætlaðan
viðgerðartíma upphaflega hafa
verið fjórar vikur en þær geti orðið
fimm. „Skipið var fulllestað mjöli
en við erum með mjög öfluga kví
og getum lyft mjög þungum skip-
um þannig að það var í sjálfu sér
ekkert mál. Vandinn var frekar
skipið sjálft, þ.e. hvort það væri
byggt til þess að hægt væri að lyfta
því fulllestuðu. Það gekk hins veg-
ar með því að byggja sérstaklega
undir skipið.“ Eiríkur Ormur segir
Trinket ekki vera mjög þungt skip,
það vegi um 3.000 tonn lestað en
þeir taki mun þyngri skip í kvína.
Aðspurður segir Eiríkur Ormur
verkefnastöðuna hafa verið mjög
lélega undanfarna mánuði. „Geng-
ið er svo hátt skráð og útlending-
arnir eru bókstaflega að jarða okk-
ur. Fyrir átta mánuðum síðan
vorum við komnir á góðan skrið en
síðan hefur alllt breyst með hækk-
un krónunnar. Menn versla einfald-
lega þar sem ódýrast er.“
Mun sigla
fulllestað
úr kvínni
Morgunblaðið/Sverrir
„ÞEIR voru það fljótir á vettvang á
litla bátnum frá Sandgerði að það var
engin hætta á ferðum,“ sagði Sigur-
björn Berg, skipstjóri á Gunnhildi ST
29, sem fékk gríðarstóra netadræsu í
skrúfuna í gærmorgun fyrir utan
Hafnir á Suðurnesjum. „Það hefði þó
skapast hætta á að okkur hefði rekið
upp í fjöru ef ég hefði þurft að bíða all-
an tímann eftir stóra skipinu,“ sagði
hann. Sigurbjörn var ásamt tveimur
skipverjum sínum á útleið á áttunda
tímanum í gærmorgun þegar gömul
net í einni flækju á floti í sjónum og
full af þara festust í skrúfunni svo að
það steindrapst á vél Gunnhildar, sem
er 8 tonna bátur. Sigurbjörn kallaði
þá eftir aðstoð og brugðu björgunar-
sveitarmenn á litlum slöngubát frá
Sandgerði skjótt við. Þeim tókst að
taka Gunnhildi í tog og halda henni
frá ströndinni og fyrirbyggja strand.
Stærra björgunarskip, Hannes Þ.
Hafstein, kom síðan á vettvang klukk-
an 9.25 og dró Gunnhildi inn til hafnar
þar sem skorið var úr skrúfunni. Gott
veður var þegar óhappið varð og hélt
áhöfn Gunnhildar til veiða eftir há-
degið. Báturinn er óskemmdur að
sögn Sigurbjörns.
Fékk stóra
netadræsu í
skrúfuna
Forsala miða og borðapantanir alla virka daga kl. 13:00-19.00.
Sími 533 1100 - fax 533 1110 - www.broadway.is - broadway@broadway.is
• Þau syngja, dansa
og þjóna þér !
• Þau láta þig hlæja, dansa
og syngja!
• Ekki missa af þessari sýningu !
• Þau eru Le'Sing!
Verð kr. 2.500 + matur
Litla sviðið opnar klukkan 19.30 .
Sýningin hefst
stundvíslega kl. 20:00.
Erum með glæsilega sali
fyrir fermingar- og brúðkaupsveislur!
Sýningar 21. mars uppselt. 22. mars fá sæti laus.
28. mars. 29. mars uppselt. 4. apríl fá sæti laus. 11. apríl.
12. apríl fá sæti laus. 19. apríl. 25. apríl. 26. apríl.
Ný sending
Úlpur og léttir frakkar
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—16.00.
Þýsk jakkaföt 18.600
Ný sending
Laugavegi 34, sími 551 4301
Hallveigarstíg 1 (Iðnaðarmannahúsið) • sími 588 4848
Opið mán.-fös. kl. 11-18, laugard. kl. 11-16
Toppar og TRY ME buxur
í miklu úrvali.
Verið velkomin