Morgunblaðið - 19.03.2003, Page 15
ÍRAKSDEILAN
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. MARS 2003 15
TONY Blair, forsætisráðherra Bret-
lands, varði í gær þá ákvörðun sína að
halda áfram undirbúningi hernaðar í
Írak þótt öryggisráð Sameinuðu þjóð-
anna hefði ekki samþykkt nýja álykt-
un sem heimilaði sjálfkrafa að her-
valdi yrði beitt. Hann sagði að ef ekki
yrði látið til skarar skríða gegn stjórn
Saddams Husseins myndu aðrir
„harðstjórar“ fá þau hættulegu skila-
boð að þeir gætu þróað gereyðingar-
vopn án þess að þeim yrði refsað.
Blair sagði í ræðu á breska þinginu
að íraska þjóðin myndi þjást mest ef
hervaldi yrði ekki beitt gegn Saddam
Hussein. „Hverjir munu fagna og
hverjir gráta ef við köllum hermenn
okkar heim núna?“ spurði hann.
Aðstoðarráðherrar
segja af sér
Forsætisráðherrann bætti við að
Saddam Hussein myndi stóreflast ef
hersveitirnar yrðu fluttar af Persa-
flóasvæðinu og íraska þjóðin yrði skil-
in eftir „í ógn og skelfingu“.
„Ég mun ekki taka þátt í því að fara
þá leið,“ sagði hann. „Nú dugar ekki
að vera á báðum áttum. Nú þarf þing-
ið að vísa leiðina, sýna að við munum
styðja það sem við teljum rétt.“
Þetta var ein af mikilvægustu ræð-
um sem Blair hefur flutt á pólitískum
ferli sínum vegna mikillar andstöðu í
þingliði Verkamannaflokksins við
stríð í Írak án stuðnings öryggisráðs
Sameinuðu þjóðanna. Aðstoðar-
heilbrigðisráðherrann Philip Hunt
lávarður, John Denham aðstoðarinn-
anríkisráðherra og tveir aðstoðar-
menn ráðherra létu af embætti í gær
vegna deilunnar.
Daginn áður hafði Robin Cook,
fyrrverandi utanríkisráðherra, sagt
af sér sem leiðtogi stjórnarinnar á
þinginu. Denham kvaðst láta af emb-
ætti vegna þess að hann teldi að ör-
yggisráð Sameinuðu þjóðanna þyrfti
að samþykkja fyrirbyggjandi árásir.
Clare Short, ráðherra alþjóða-
þróunaraðstoðar, sem hafði hótað af-
sögn, ákvað hins vegar að vera áfram
í stjórninni. Hún kvaðst enn vera
„mjög gagnrýnin“ á framgöngu
stjórnarinnar í Íraksmálinu en sagði
að það væri til marks um „hugleysi“
að segja af sér.
„Fáránlegt“ að trúa Írökum
Blair sagði það engum vafa undir-
orpið að hætta væri á því „útlagaríki“
sem hafa komið sér upp gereyðing-
arvopnum hæfu samstarf við hryðju-
verkasamtök. Ef Bretar kölluðu her-
lið sitt á Persaflóasvæðinu heim gæti
það einnig gefið Bandaríkjastjórn
„ærnustu ástæðu sem hægt er að
hugsa sér“ til að fara eigin leiðir í al-
þjóðamálum.
Forsætisráðherrann færði rök fyr-
ir því að afstaða breska þingsins til
hernaðar í Írak myndi hafa mikil
áhrif á tengsl Sameinuðu þjóðanna,
Evrópusambandsins og Bandaríkj-
anna á næstu árum. Hann kvaðst
vera „hryggur“ yfir því að Jacques
Chirac, forseti Frakklands, skyldi
hafa verið staðráðinn í því að beita
neitunarvaldi Frakka í öryggisráðinu
gegn nýrri ályktun og haldið til
streitu kröfu sinni um að vopnaeft-
irlitinu í Írak yrði haldið áfram.
„Það er ekki hægt að saka okkur
um óþolinmæði,“ sagði Blair. „Sann-
leikurinn er sá að þolinmæði okkar
hefði átt að vera á þrotum fyrir mörg-
um vikum og mánuðum og jafnvel ár-
um.“
Forsætisráðherrann sakaði Íraka
um að hafa leynt gereyðingarvopnum
með „lygum og blekkingum“ og sagði
þá hafa hindrað störf vopnaeftirlits-
mannanna. Það væri „öldungis fárán-
legt“ að trúa því að Írakar hefðu af-
vopnast af sjálfsdáðum eftir að
eftirlitsmennirnir fóru frá Írak árið
1998.
Íhaldsflokkurinn styður
stefnu Blairs
Blair hvatti þingheim til að sýna
„að við munum takast á við harð-
stjórana og hryðjuverkamennina sem
stofna lífi okkar í hættu … að við
höfum þor til að gera hið rétta“.
Iain Duncan Smith, leiðtogi Íhalds-
flokksins, lýsti yfir stuðningi við
stefnu stjórnarinnar í málinu og sagði
fulla ástæðu til að ætla að Saddam
Hussein gæti ógnað öryggi Bretlands
og teldi sig hafa ástæðu til þess.
Charles Kennedy, leiðtogi Frjáls-
lyndra demókrata, taldi hins vegar að
ekki hefðu verið færð nógu sterk rök
fyrir því að hefja hernað í Írak án
stuðnings öryggisráðsins.
Samkvæmt nýrri skoðanakönnun,
sem breska dagblaðið Guardian birti í
gær, hefur stuðningurinn við stríð í
Írak aukist um níu prósentustig með-
al Breta frá því í síðasta mánuði. 38%
aðspurðra sögðust styðja hernað en
andstæðingar stríðs voru þó fleiri, um
44%.
Reuters
Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, ræðir stefnu stjórnarinnar í Íraksmálinu á breska þinginu í gær.
Tony Blair
ver stefnuna í
Íraksmálinu
London. AFP.
Segir hættulegt að senda harðstjór-
um þau skilaboð að þeir geti komist
upp með að þróa gereyðingarvopn