Morgunblaðið - 19.03.2003, Side 20
AKUREYRI
20 MIÐVIKUDAGUR 19. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Samvera
eldri borgara
Samvera eldri borgara verður nk. fimmtudag 20. mars kl. 15:00
Gestur samverunnar verður Elín Antonsdóttir, jafnréttisfulltrúi,
og mun hún ræða um „lífið, tilveruna og jafnréttismál“. Kvartettinn
„Hin fjögur fræknu“ kemur í heimsókn og syngur nokkur lög.
Að venju verður helgistund og léttar veitingar.
Allir velkomnir.
Glerárkirkja
Föstuvaka verður í Akureyr-
arkirkju í kvöld, miðvikudags-
kvöldið 19. mars kl. 20.30.
Beðið verður fyrir friði og lesnir
textar sem bregða upp myndum af
tilgangsleysi og hörmungum stríðs.
Prestur er séra Jóna Lísa Þor-
steinsdóttir og lesarar Heiðdís
Norðfjörð, Jón Ingi Hákonarson og
Laufey Brá Jónsdóttir.
Kór Akureyrarkirkju syngur undir
stjórn Björns Steinars Sólbergs-
sonar. Einsöngvari er Sigríður Að-
alsteinsdóttir, mezzósópran, og und-
irleik annast Eyþór Ingi Jónsson.
Í DAG
FREYVANGSLEIKHÚSIÐ frum-
sýnir annað kvöld, fimmtudags-
kvöld, 20. mars nýtt íslenskt leikrit
um kímniskáldið Káin, eftir séra
Hannes Örn Blandon, prófast Ey-
firðinga. Hannes Örn sagðist hafa
undirbúið sig vel og unnið mikla
heimildarvinnu áður en hann samdi
leikritið, allar hans tómstundir hafi
farið í að semja þetta verk. Leik-
ritið fjallar um uppvaxtarár Káins í
Eyjafirði, flutning vestur um haf
og líf hans þar. Við sögu koma vin-
ir Káins og skáldbræður, Stephan
G. og Guttormur J. Guttormsson
sem og aðrir samtíðarmenn. Ljóð-
um Káins og vísum eru gerð góð
skil og hafa Hannes og Eiríkur
Bóasson tónlistarstjóri sýningar-
innar samið tónlist við kveðskap-
inn. Séra Hannes var spurður
hvers vegna hann hefði ráðist í að
semja verk um Káin og sagði hann
að þeir Leifur Guðmundsson, sem
er formaður Freyvangsleikhússins,
hefðu velt töluvert vöngum og
þetta hefði orðið niðurstaðan þar
sem hann hafi verið mikill Eyfirð-
ingur og ort meðal annars mjög
fallegt ljóð um Staðarbyggðarfjall-
ið. ,,Ég hef víða leitað fanga á und-
anförnum mánuðum, settist svo
niður að lokum og lét pennann
vinna.“ Þá sagði Hannes að hann
vonaði að persónuleiki Káins kæmi
skýrt fram í verkinu. „Þetta var
ekkert auðvelt, eiginlega mjög erf-
itt en afar skemmtilegt og ég hef
notið hverrar stundar. Svo erum
við með toppfólk á öllum sviðum.“
Um tuttugu leikarar koma fram í
sýningunni og leikstjóri er Saga
Jónsdóttir, vildi Hannes Örn koma
því sérstaklega á framfæri að hún
hefði sýnt mikla þolinmæði við æf-
ingar og uppsetningu á leikritinu.
Sýningin hefst kl. 20.30 í Frey-
vangi, Eyjafjarðarsveit.
Morgunblaðið/Benjamín Baldursson
Hannes Örn Blandon í hlutverki Káins, Leifur Guðmundsson sem Stephan G.
Stephansson og Hjálmar Arinbjarnarson í hlutverki Guttorms Guttormssonar.
Freyvangsleikhúsið frumsýnir
nýtt íslenskt verk
Kímniskáldið Káinn
ÓLAFUR Rúnar Ólafsson, skipta-
stjóri í þrotabúi Íslandsfugls í Dalvík-
urbyggð, hitti starfsfólk fyrirtækisins
að máli í fyrradag og fór yfir stöðu
mála. Unnið var hjá fyrirtækinu á
mánudag og þriðjudag og sagði Ólaf-
ur Rúnar að einhverjir yrðu að störf-
um í dag, miðvikudag, við frágang.
„Svo er framhaldið óljóst, t.d. hvort
slátrað verður í lok vikunnar, það
verður væntanlega ákveðið í dag,“
sagði Ólafur Rúnar.
Stjórn Íslandsfugls óskaði eftir að
fyrirtækið yrði tekið til gjaldþrota-
skipta nú fyrir helgi, en helsta ástæða
þess var viðvarandi taprekstur, sem
rekja má til ástands á kjötmarkaði
þar sem offramboð er ríkjandi.
Skiptastjóri sagði hlutverk sitt að
fá sem mesta peninga úr þeim verð-
mætum sem fyrir hendi væru í fyr-
irtækinu og þær leiðir sem helst
koma til greina er að selja rekstur í
einu lagi eða þá í afmörkuðum ein-
ingum. Ólafur Rúnar sagði ekki ljóst
nú hvor kosturinn yrði ofan á. Hann
nefndi að rekstur kjúklingabús væri
þó þess eðlis að ef hann stöðvaðist
yrði erfiðara en ella að koma honum í
gang á ný.
Framhaldið
óljóst
Gjaldþrot
Íslandsfugls
NIÐURSTAÐA kærunefndar jafn-
réttismála í máli Soffíu Gísladóttur
var til umræðu á síðasta fundi jafn-
réttis- og fjölskyldunefndar. Tals-
verðar umræður urðu um málið og
að gefnu tilefni, eins og segir í bókun
nefndarinnar, og leggur hún áherslu
á að leitað verði ráðgjafar jafnrétt-
isfulltrúa ef bæjarstjórn eða fag-
nefndir ráða í störf hjá Akureyr-
arbæ.
Soffía sótti um stöðu deildarstjóra
íþrótta- og tómstundadeildar en
karlmaður var ráðinn í stöðuna. Mál-
ið fór fyrir kærunefnd jafnréttis-
mála, sem úrskurðaði að Akureyr-
arbær hefði með ráðningunni brotið
lög um jafna stöðu kvenna og karla.
Þótti Soffía, að mati kærunefndar,
standa karlinum framar, m.a. hvað
varðar menntun og reynslu. Soffía
hefur ákveðið að höfða ekki mál gegn
Akureyrarbæ, né krefjast bóta.
Bærinn hefur heldur ekki boðið
henni bætur.
Björn Snæbjörnsson formaður
jafnréttis- og fjölskyldunefndar
sagði að miðað við það sem á undan
væri gengið, legði nefndin mikla
áherslu á að farið væri betur ofan í
þessa hluti en hingað til hefur verið
gert. „Þannig að menn séu ekki að fá
svona hluti upp á borðið enn og aftur.
Það er orðið mjög neikvætt fyrir
bæjarfélagið að varla sé ráðið í stöð-
ur án þess að málið sé kært til kæru-
nefndar jafnréttismála. Hins vegar
má svo alltaf deila um úrskurð
nefndarinnar. En við viljum meina
að fara þurfi betur ofan í hlutina og
leita þá til þeirra sem hafa þekkingu
á jafnréttismálum, eins og t.d. jafn-
réttisfulltrúinn okkar.“
Björn sagði að í úrskurði kæru-
nefndar jafnréttismála væri vitnað
mjög stíft í jafnréttisáætlun Akur-
eyrarbæjar. „Ef of sterkt er að orði
kveðið í jafnréttisáætluninni, er það
þá eitthvað sem menn verða að
skoða. Jafnréttisáætlunin er í endur-
skoðun, m.a. með það að markmiði
að gera hana svipaða og fjölskyldu-
stefnuna, með ábyrgðaraðila og
fleira.“
Jafnréttis- og fjölskyldunefnd
Akureyrarbæjar
Leitað verði ráð-
gjafar jafnréttisfull-
trúa við ráðningar
klukkustund að ná tökum á eldinum
en fjölmennt lið slökkviliðsmanna
naut aðstoðar starfsmanna fram-
kvæmdadeildar bæjarins við
slökkvistarfið. Hann sagði að þarna
hefði getað farið verr enda jarðveg-
urinn óvenju þurr miðað við árstíma
og mikil sina. „Þetta var rosalega
SLÖKKVILIÐ Akureyrar barðist
við sinueld í Lækjargili í Innbænum
á Akureyri um miðjan dag í gær.
Íbúi þar var að kveikja í rusli við hús
sitt en missti tökin á eldinum með
þeim afleiðingum að það kviknaði í
sinu við garðinn og breiddist hann
hratt út og upp eftir hlíðinni á bak
við húsið. Mikinn reyk lagði frá
brunanum til norðurs og að sögn
Ingimars Eydal aðstoðarslökkvi-
liðsstjóra barst einhver reykur inn í
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
Tæknimenn á FSA brugðust skjótt
við og slökktu fljótlega á loftræsti-
kerfi spítalans og komu þannig í veg
fyrir frekari reykmettun þar og
ekki kom til þess að flytja þyrfti fólk
af sjúkrahúsinu. Þá barst reykur í
nálæg hús sem reykurinn fór yfir.
Ingimar sagði að eftir að fyrstu
menn komu á staðinn hefði verið
kallað eftir aukamannskap og meira
vatni.
Hann sagði það hafa tekið um
magnaður eldur og menn höfðu á
orði að þetta hefði frekar minnt á
skógareld en sinubruna. Eldtung-
urnar voru allt að metraháar og
mönnum leist því ekki á blikuna á
tímabili. Þetta fór vel en minnir okk-
ur á það að menn eiga ekki að vera
að fikta með eld úti í náttúrunni.“
Mikill sinueldur í Lækjargili
Slökkviliðsmenn á Akureyri berjast við sinubrunann í Lækjargili.
Morgunblaðið/Kristján
Mikinn reyk lagði frá brunanum og liðaðist hann yfir bæinn til norðurs, austan við Fjórðungssjúkrahúsið.