Morgunblaðið - 19.03.2003, Page 25
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. MARS 2003 25
SKATTAR á tekjur einstaklinga
(tekjuskattur til ríkis og útsvar til
sveitarfélaga) hafa hækkað veru-
lega síðan núverandi skattkerfi var
tekið upp árið 1988 og hefur hækk-
unin orðið mest á lægri launin.
Skattbyrðin á lægstu laun hefur
líka aukist mikið þó miðað sé við
hækkun frá árinu 1990 eða frá
árinu 1994 þrátt fyrir að skatthlut-
fall staðgreiðslu hafi lækkað frá
báðum þessum árum.
Þetta skýrist af því að skattleys-
ismörk hafa í gegnum tíðina dregist
verulega aftur úr launaþróun þann-
ig að greiddur er skattur af stærri
hluta tekna en áður, svo þó að
skatthlutfall staðgreiðslu lækki
dugar það ekki til, þannig að skatt-
byrði (skattar sem hlutfall af
tekjum) hækkar. Þetta hefur þyngt
skattbyrði hinna lægst launuðu
mest.
1988–2003
Skattur er aðeins greiddur af
tekjum yfir skattleysismörkum.
Skattleysismörk voru 44.182 kr. á
mánuði árið 1988 en nú eru þau
69.585 kr. Ef þau hefðu aðeins
hækkað eins og verðlag á þessum
tíma væru þau nú 96.009 kr. eða
26.424 kr. hærri en þau eru í dag.
Ef þau hefðu hinsvegar fylgt launa-
vísitölu væru þau nú 108.509 kr.
Frá árinu 1988 hefur skatthutfall
einnig hækkað úr 35,2% í 38,5% svo
ljóst er að skattar á tekjur hafa
hækkað síðan þá. Mest er hækk-
unin þó á lægstu tekjurnar vegna
lægri skattleysismarka að raun-
gildi.
Dæmi
Tökum dæmi af einstaklingi sem
var með 44.182 kr. í tekur árið 1988
og var því alveg við skattleysis-
mörkin. Ef tekjur hans hefðu að-
eins hækkað eins og verðlag, þ.e.
stóðu í raun í stað miðað við kaup-
mátt og náðu því ekki að fylgja
launaþróun í landinu, væru þær í
dag 96.009 kr. Þar sem hann var
við skattleysismörkin 1988 greiddi
hann ekki skatt og því fóru 0%
launa hans í skatt á tekjur það ár.
Hinsvegar greiðir hann 10.190 kr. í
skatt vegna tekna sinna nú í ár, eða
10,6% tekna sinna. Þessi 10,6% er
aukin skattbyrði á þessum tíma þó
tekjur hans séu þær sömu að raun-
virði. Skattleysismörk þyrftu því að
hækka fyrir hann í 96.009 kr. svo
hann stæði í stað (sjá töflu).
Það skal tekið fram að hjá þeim
sem eru yngri en 70 ára og greiða
því enn í lífeyrissjóð hafa skattar á
lægri laun líka hækkað þó í minna
mæli sé þar sem iðgjaldshluti laun-
þega í lífeyrissjóð er nú undanþeg-
inn skatti á tekjur. Sá sem hefði
sömu tekjur og í dæminu hér að of-
an þarf þá að greiða 8.706 kr. eða
9,1% tekna sinna í skatt 2003 þó
hann greiddi ekkert árið 1988.
1990–2003
Þrátt fyrir að tekjuskattshlutfall-
ið hafi lækkað frá árinu 1990 eða úr
39,75% í 38,55% árið 2003 hafa
skattar hækkað verulega á lægstu
tekjur vegna þróunar skattleysis-
marka. Skattleysismörkin hækkuðu
úr 53.988 kr. á mánuði árið 1990 í
69.585 kr. árið 2003 en það var ekki
nærri nóg. Ef þau hefðu aðeins
hækkað eins og verðlag þessi ár
ættu þau að vera 84.340 kr. árið
2003. Ef þau hefðu hækkað eins og
launavísitalan þennan tíma ættu
þau að vera 110.208 kr.
Við getum tekið dæmi um eldri
borgara þar sem laun hækkuðu að-
eins jafnmikið og verðlag þ.e. stóðu
í raun í stað miðað við kaupmátt og
náðu því ekki að fylgja launaþróun í
landinu. Ef hann var með 64.012 kr.
á mánuði í tekjur árið 1990 þá væru
tekjur hans nú, uppfærðar með
verðlagi 100.000 kr. Hann greiddi
þá 3.989 kr. eða 6,2% tekna sinna í
skatt árið 1990 en greiðir nú 11.722
kr. eða 11,7% tekna sinna í sama
skatt. Skattbyrði hans hefur því
aukist verulega þrátt fyrr lækkun
skattprósentunnar. Fyrir þennan
mann þyrfti skattprósentan að
lækka úr 38,55% í 20,49% miðað við
óbreytt skattleysismörk svo hann
hækkaði ekki í skattbyrði. Þetta
sýnir hve varasamt er að líta ein-
ungis á skatthlutfall staðgreiðslu.
1994–2003
Þrátt fyrir að skatthlutfall stað-
greiðslu hafi lækkað frá árinu 1994
úr 41,84% í 38,55% árið 2003 hafa
skattar á tekjur þeirra sem eru yfir
70 ára og með lægri tekjur hækkað.
Dæmi
Sá einstaklingur sem var með
74.923 kr. árið 1994 greiddi 7.418
kr. á mánuði í skatt á tekjur eða
9,9% tekna sinna. Ef tekjur hans
hefðu aðeins hækkað eins og verð-
lag þ.e. staðið í raun í stað miðað
við kaupmátt og því ekki náð að
fylgja launaþróun í landinu væru
þær nú orðnar 100.000 kr. Þessi að-
ili greiðir nú 11.725 kr. á mánuði í
skatt á tekjur eða 11,7% af tekjum
sínum. Skatthlutfallið þyrfti því að
lækka í 32,56% hjá þessum aðila
svo hann héldi eftir jafn miklu af
tekjum sínum. Í raun greiða allir
þeir yfir 70 ára sem eru með rúm-
lega 155.000 kr. á mánuði og minna
hærri tekjuskatta en áður þó að
tekjur þeirra hafi hækkað minna en
laun almennt.
Enn og aftur: Skatthlutfall stað-
greiðslu eitt og sér segir lítið sem
ekkert um skattbyrði. Það þarf að
skoða samspil skatthlutfalls og
skattleysismarka til að sjá hve hátt
hlutfall tekna fer í skatt.
Skattar hafa
hækkað á
lægri tekjur
Eftir Einar Árnason
og Ólaf Ólafsson
„Skatthlutfall stað-
greiðslu eitt og sér seg-
ir lítið sem ekkert um
skattbyrði.“
Einar er hagfræðingur og Ólafur er
formaður Félags eldri borgara.
4
)?@)A
#
ABB
3
"%
# " % " = ( "%
% C-.C/
,C0*0
-
!
"#
"
$#%
2
<
% "< % % C*,C*,) # =
# ""%%=; = ( Í FEBRÚAR sl. flutti ég erindi
á ráðstefnu Háskóla Íslands um
rannsóknir í félagsvísindum. Í er-
indinu var á það bent að hinn
óeðlilega langi byggingartími
Náttúrufræðahúss, níu ár í stað
tveggja, hafi kostað Háskóla Ís-
lands stórfé. Þessi framkvæmd
væri m.ö.o. dæmi um mistök í innri
hagstjórn Háskóla Íslands.
Hinn 9. mars sl. ritar formaður
byggingarnefndar Náttúrufræða-
húss, prófessor Brynjólfur Sig-
urðsson, grein í Morgunblaðið þar
sem hann gerir athugasemdir við
þessar niðurstöður. Röksemdir
Brynjólfs eru tvíþættar. Í fyrsta
lagi telur hann að nauðsynlegur
byggingartími Náttúrurfræðahúss
sé umfram þau tvö ár, sem ég mið-
aði við. Í öðru lagi telur hann að
ég hefði átt að taka tillit til mark-
aðsaðstæðna á byggingartíma. Á
þessum grundvelli fullyrðir Brynj-
ólfur að ekki hafi verið um viðbót-
arkostnað vegna hins langa bygg-
ingartíma að ræða og að
niðurstöður mínar um að innri
hagstjórn HÍ hafi brugðist í þessu
máli séu rangar.
Er byggingartíminn ekki
óeðlilega langur?
Í grein Brynjólfs er því haldið
fram, að eðlilegur byggingartími
Náttúrufræðahúss sé miklu lengri
en tvö ár. Hann viðurkennir að
vísu, að tæknilega hefði verið unnt
að ljúka verkinu á tveimur árum.
Hins vegar eigi þá eftir að taka til-
lit til hönnunartíma, þess að húsið
er tæknilega margbrotið og ástand
á byggingarmarkaði sveiflukennt,
en allt þetta lengi byggingartím-
ann.
Nú vill svo vel til, að ekki er
þörf á að karpa um þetta mál. Á
byggingartíma Náttúrurfræðahúss
hefur ekki ósvipuð bygging risið á
sömu slóðum í Vatnsmýrinni.
Þetta er bygging Íslenskrar erfða-
greiningar, deCODE Genetics.
Þetta nús er næstum tvöfalt
stærra en Náttúrufræðahúsið. Það
er ekki síður vandað og marg-
brotið og hýsir enn viðkvæmari
starfsemi. Auk þeirra rannsókn-
arstofa, sem bæði húsin hafa, er í
húsi Íslenskrar erfðagreiningar af-
skaplega umfangsmikið og dýrt
tölvu- og gagnagrunnskerfi, sem á
sér enga hliðstæðu í Náttúru-
fræðahúsi.
Hús Íslenskrar erfðagreiningar
er m.ö.o. bæði miklu stærra og
þjónar að minnsta kosti jafnmikl-
um og sennilega talsvert meiri vís-
indalegum og tæknilegum kröfum
en Náttúrufræðahúsið. Samt var
byggingartími húss Íslenskrar
erfðagreiningar vel innan við tvö
ár. Frá því að hafist var handa við
að grafa grunn var byggingartím-
inn 15 mánuðir. Að meðtöldum
hönnunartíma var byggingartím-
inn 19 mánuðir.
Það er því í hrópandi mótsögn
við fyrirliggjandi staðreyndir að
halda því fram að nauðsynlegur
byggingartími Náttúrufræðihúss
sé langt umfram tvö ár, hvað þá
níu ár. Miðað við bygginartíma
húss Íslenskrar erfðagreiningar er
sá tveggja ára byggingartími, sem
miðað var við í mínum reikningum,
meira að segja ríflegur.
Mikilvægt er að átta sig á því,
að byggingartími húss Íslenskrar
erfðagreiningar er ekki einsdæmi.
Til þess að spara fjármagnskostn-
að og auka byggingarhagkvæmni
er það jafnan keppikefli skyn-
samra stjórnenda að stytta bygg-
ingartíma eins og unnt er. Af þess-
um sökum eru flestar stórbygg-
ingar nú til dags reistar á mjög
skömmum tíma. Það er algerlega
ný hagfræði að hagkvæmt sé að
draga byggingarframkvæmdir á
langinn.
Hagstæðir verksamningar
Hin röksemd Brynjólfs lýtur að
hagstæðum verksamningum. Til
þess að sú röksemd Brynjólfs sé
skiljanleg verður að gera ráð fyrir
því að hinn langi byggingartími
hafi leitt til hagkvæmari samninga.
Það ætti þá jafnframt að þýða, að
byggingarframkvæmdir hafi verið
í öfugu hlutfalli við eftirspurn og
verð á byggingarmarkaði.
Þegar litið er yfir byggingarferil
Náttúrufræðahúss kemur hins
vegar ekkert slíkt í ljós. Bygging-
arframkvæmdir eru tiltölulega litl-
ar (100 m. kr. árlega) á árunum
1995–7 þegar verðlag var hagstætt
á byggingarmarkaði, en tiltölulega
miklar (200 m. kr. árlega) á ár-
unum 1998–2000, þegar bygging-
arverðlag fór mjög hækkandi.
Hafi markmiðið verið að nýta
sveiflur á byggingarmarkaði til að
byggja sem ódýrast, eins og
Brynjólfur heldur fram, hefði aug-
ljóslega verið hagkvæmast að
ljúka byggingunni á árunum
1995–7 í stað þess að draga hana
svo á langinn sem raun ber vitni.
Lokaorð
Brynjólfur heldur því fram að
staðhæfingar mínar um of langan
byggingartíma Náttúrufræðahúss
standist ekki. Með því er hann að
segja að níu ára byggingartími
þessa húss sé eðlilegur. Ég tel á
hinn bóginn að um þetta atriði
þurfi ekki að deila. Fjölmörg dæmi
frá hliðstæðum stórbyggingum
innanlands sanni, að byggingu á
borð við Náttúrufræðahúsið sé
hæglega unnt að hanna og reisa á
jafnvel skemmri tíma, en ég gerði
ráð fyrir.
Í framhaldi af þessu heldur
Brynjólfur að sú staðhæfing mín
að innri hagstjórn Háskóla Íslands
hafi brugðist í þessu máli sé röng.
Ég tel á hinn bóginn að málflutn-
ingur hans í þessu máli sé vísbend-
ing um að innri hagstjórn Háskóla
Íslands hvað þessar byggingar-
framkvæmdir snertir hafi jafnvel
verið enn veikari en ég gerði ráð
fyrir. Illt er að gera kostnaðarsöm
mistök. Verra er að kannast ekki
við þau sem gerð hafa verið.
Að verja hið
óverjanlega
Eftir Ragnar
Árnason
Höfundur er prófessor í hagfræði
í viðskipta- og hagfræðideild Há-
skóla Íslands.
„…byggingu
á borð við
Náttúru-
fræðihúsið
sé hæglega
unnt að hanna og reisa
á jafnvel skemmri tíma
en ég gerði ráð fyrir.“
(C
5 #
AB5D
4
B?)B5#
DEF
G; % ..C/*
"% /0**
" (<#
"< "
% "< %
% %< "%
% = ( # "
J # " 7"%
"( %
% "
= ( "%
/0**
/0*0
/00
/00/
/00
/00,
/00.
/00+
/00-
/00)
/00*
/000
,K
..C/*
+,C+/)
-/C.+*
-+C-,0
-*C*0
)C*))
)/C0,,
),C/+*
).C* )-C/+)
))C. *C*+
*.C0*
*0C)/-
0.C 0-C ..C/*
.0C,-)
+,C0**
+*C)+
-C/..
+)C.))
+)C/0,
+*C./-
+*C+ +*C.--
+0C*-)
-C*.*
-,C.**
-+C/,
-)C.-*
-0C+*+
.C/+
)C.)
-C**0
)C0.+
/,C. /.C).
/.C).
/-C*,
/)C-0/
/)C++)
/0C,)
C-/
.C+*.
-C++-
-C. ,+
,)
).
,0
)0
,0
)0
,0
*+
./
,.
./
*.
./
0,
./
0.
./
,0
,*
,.
,*
,)
,*
)-
,*
+.
,*
++
/C+--
C0)
C)./
,C/--
+C+.
-C/-)
-C/*/
-C* )C0*
-C*+/
)C,)-
)C0 0C+ /C,+
/C/*)
..C/*
+/C0+/
+*C.*-
-C*0*
-.C0 -+C,,)
-+C)--
--C0))
-)C0)-
-*C*+0
)C+),
)C)/
)-C/0
*C/*)
*,C)*0
*+C*
0J
.
*J
.
.
)J
)
*J
*
-J
*
.J
0
/J
0
-J
*
*J
0
0
.J
/
-J
/
0J
/
-J
&> #;(% "< % , % 0-C0 "% "( %
C3
% C-C.,.
&" '9%%
& #!(
$
"<!# " B
%
C
K3 " B
%
/J=;%%
" #
!#,C
mbl.isFRÉTTIR