Morgunblaðið - 19.03.2003, Page 36
MINNINGAR
36 MIÐVIKUDAGUR 19. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
✝ Kristján MarinóFalsson fæddist á
Akureyri 15. júlí
1956. Hann lést á
heimili sínu 5. mars
síðastliðinn. Foreldr-
ar hans voru Falur
Friðjónsson húsa-
smiður á Akureyri, f.
1. des. 1926, frá Síla-
læk í Aðaldal og Guð-
rún Lovísa Marinós-
dóttir, f. 20. sept.
1930, d. 16. mars
1980, frá Litla-Ár-
skógssandi. Systur
Kristjáns eru: 1) Sig-
urvina Kristjana, býr í Hafnarfirði
gift Ástþóri Harðarsyni, synir
þeirra eru: Daði, f. 1980, Sigmund-
ur Pétur, f. 1983 og Ævar Ísak, f.
1990. Fyrir hjónaband átti Sigur-
vina Elvu Björk Ein-
arsdóttur, f. 1972, og
Þóri Má Einarsson, f.
1974. 2) Katrín, f.
1954, d. 1994, bjó í
Reykjavík. 3) Sigríð-
ur Hrönn, f. 1964,
býr á Akureyri.
Kristján var ógift-
ur og barnlaus.
Kristján ólst upp á
Akureyri og Litla-
Árskógssandi. Stúd-
ent frá M.A. Stund-
aði háskólanám um
tíma í Finnlandi og
var þar búsettur í 5
ár. Eftir heimkomuna vann hann
ýmis störf en þó lengst af á Amt-
bókasafni Akureyrar.
Útför Kristjáns fór fram í kyrr-
þey.
Það var kalt í veðri og vindurinn
gnauðaði um glugga þegar mér barst
sú fregn að norðan að aldavinur
minn hann Daddi, væri horfinn yfir
móðuna miklu – bráðkvaddur.
Það eru mörg minningarbrotin
sem seytla um hugann þegar ég rifja
upp kynni mín af þessum mæta
manni.
Ég kynntist Dadda eins og hann
var jafnan kallaður, einn vetur fyrir
nær 30 árum síðan. Ég kom þá til
Akureyrar með námskeið í lyfting-
um. Það var eftirminnilegur hópur
ungra og vaskra drengja sem ég
kynntist þá í gamla Vallarhúsinu.
Vinátta og frískleiki var sá andi sem
var í fyrirrúmi þegar afreksmenn
framtíðarinnar tóku þar á stöngum.
Þarna voru t.d. þeir Freysi, Gúndi,
Hjörtur Gísla, Danni langi og svo
auðvitað Daddi með rauða ljóns-
makkann – allt piltar sem áttu eftir
að setja svip á bæjarlíf Akureyrar
um árabil.
Í 10-15 ár var Daddi geysiharður
við æfingar og tók miklum framför-
um. Hann náði því marki að verða
margfaldur Akureyrar- og Íslands-
meistari í bæði lyftingum og kraft-
lyftingum auk annarra titla sem hon-
um hlotnuðust. Daddi var einnig
góður sundmaður á yngri árum og
var alhliða þjálfaður íþróttamaður
sem hann bjó að alla ævi síðar.
Um nokkurra ára skeið bjó hann í
Finnlandi með finnskri stúlku en
þegar upp úr því slitnaði kom hann
aftur heim á skerið.
Daddi var stúdent að mennt og var
sérstaklega seigur í tungumálum.
Ég minnist þess að eftir dvölina í
Finnlandi var hann altalandi á
finnsku og talaði hana jafnvel reip-
rennandi upp úr svefni, – og geri aðr-
ir betur.
Nú þegar ég minnist Dadda þá
veit ég að ég dreg upp óskýrari
mynd af honum en ég hugði enda
þótt minningarnar og myndbrotin
séu mörg. Daddi var sjálfur fremur
dulur og hleypti fáum að sér. Það var
ljóst að upp úr þrítugu gekk hann
ekki heill til skógar andlega. Þegar
þunglyndið fór að herja á hann velkt-
ist hann um í stormviðrum lífsins í
þjóðfélagi fullu af fordómum ásamt
ríkjandi illgirni, öfund og rógburði.
Daddi sjálfur var ætíð hjartahreinn
maður sem aldrei mælti styggð-
aryrði um nokkra sálu og mun vand-
fundinn slíkur maður hér á klaka
vorum. Þrátt fyrir sín veikindi vann
Daddi í Amtsbókasafninu í mörg ár.
Þar sýslaði hann í andlegum málefn-
um sem hvöttu hann sjálfan til verka.
Þó nokkuð af ljóðum eftir hann birt-
ist af og til í Lesbók Morgunblaðsins.
Síðustu árin vann hann í bikara-
deildinni á gullsmíðaverkstæðinu hjá
góðvini sínum Flosa sem ásamt
Haddý studdi hann alla tíð gegnum
þykkt og þunnt.
Daddi var í raun mikill húmoristi
og eitt minningarbrot er það að þeg-
ar skjóðuþyngd hans fór að síga vel á
annað hundraðið og við Rúnar fjósi
fórum að kalla hann Dadda diet, þá
var hann sá fyrsti sem fannst það til-
valið og fyndið.
Eins og oft vill verða þegar fjar-
lægð verður milli vina þá hittumst
við Daddi ekki oft hin seinni ár. Þó
hittumst við stundum heima hjá
Gvendi Sig. og Hrönn en þau reynd-
ust honum afar vel þegar mistur
sjúkdómsins sótti á hann.
Nú þegar Daddi er horfinn á braut
með tímans straumi og ég paufast
áfram hérna megin um stundir, þá
kveð ég góðan vin með þeirri full-
vissu að á þeirri vegferð sem nú hef-
ur tekið við hjá honum muni honum
farnast vel.
Kári Elíson.
KRISTJÁN MARINÓ
FALSSON
KIRKJUSTARF
LJÓÐSKÁLDIN Elísabet Jökuls-
dóttir, Sigmundur Ernir Rúnarsson
og Þorsteinn frá Hamri lesa úr
verkum sínum í Neskirkju á föst-
unni.
Um árabil hefur verið í Nes-
kirkju sérstakt helgihald á mið-
vikudögum á föstunni þar sem
Passíusálmar séra Hallgríms Pét-
urssonar eru í fyrirrúmi og verður
svo áfram.
Nú, eins og á liðnu ári, eru kölluð
til nútímaskáld með það fyrir aug-
um að þau kynni úr verkum sínum
ljóð þar sem fram kemur glíman
við lífið og tilveruna, bölið og þján-
inguna. Þar með er gerð tilraun til
samtals skálda í sögu og samtíð.
Helgihaldið er fært inn í nútímann
og þráðurinn forni spunninn áfram.
Í Biblíunni er að finna útbreidd-
ustu ljóðabók veraldar, Davíðs-
sálma, auk annarra ljóða og sálma
sem eru eins og ívaf vítt og breitt í
textum þeirrar einstöku bókar.
Iðja skálda nútímans er ekki eðl-
isólík iðju þeirra innblásnu manna
sem rituðu hina helgu bók. Nú sem
fyrr er það hæfileikinn til að undr-
ast og óttast, gleðjast og skelfast
andspænis Guði og gangverki lífs-
ins, sem er drifkraftur listar og
menningar.
5. mars sl. las Elísabet Jökuls-
dóttir, 19. mars les Sigmundur Ern-
Skáld á föstu
í Neskirkju
Morgunblaðið/Jim Smart
Neskirkja
Íslandsmót
í paratvímenningi
Íslandsmót í paratvímenningi verð-
ur spilað helgina 22.–23. mars í Síðu-
múla 37. Spilaður verður barómeter,
allir við alla, en fjöldi spila fer eftir
þátttöku. Spilamennska hefst kl. 11
báða dagana. Keppnisstjóri verður
Björgvin Már Kristinsson. Skráning í
s. 587-9360 eða www.bridge.is
Félag eldri borgara
í Hafnarfirði
Spilaður var tvímenningur hjá
bridsfélagi eldri borgara Hafnarfirði
föstudaginn 7. mars sl. Úrslit urðu
þessi.
1 Jón Sævaldsson – Ólafur Gíslason 99
2 Ásgeir Sölvason – Guðni Ólafsson 85
3 Sverrir Jónsson – Sófus Berthelsen 78
Þriðjudaginn 11. mars urðu úrslit
þessi:
1 Oddur Jónsson – Katarínus Jónsson 139
2 Sævar Magnúss. – Bjarnar Ingimarss. 137
3 Árni Guðmundss. – Hera Guðjónsd. 127
Bridsfélag Akraness
Tvær síðustu umferðirnar í Akra-
nesmótinu í sveitakeppni voru leiknar
hinn 13. mars. Fjórar sveitir börðust
um titilinn svo spennan var mikil og
loft lævi blandið. Í fyrri umferðinni
tapaði sveit Tryggva Bjarnasonar illa
fyrir sveit Árna Bragasonar 23–7, á
sama tíma unnu Öldungarnir sína
andstæðinga 25–4 og Hársnyrting
Vildísar sína 25–5. 22–8-sigur í seinni
umferðinni dugði Árna ekki til sigurs
því Hársnyrting Vildísar og Öldung-
arnir gerðu 15–15-jafntefli sem dugði
Vildísarmönnum til sigurs í mótinu.
Endanleg röð efstu sveita er því:
Í 3. sæti Öldungarnir með 323 stig,
í 2. sæti Sveit Árna Bragasonar með
335 stig og Akranesmeistarar 2003
Hársnyrting Vildísar með 337 stig.
Sigursveitin er skipuð þeim Guð-
mundi Ólafssyni, Hallgrími Rögn-
valdssyni, Jóni Viðari Jónmundssyni,
Þorvaldi Pálmasyni, Sveinbirni Eyj-
ólfssyni og Lárusi Péturssyni.
Bridsfélag Selfoss og nágrennis
Þriðja kvöldið af fjórum í Sigfús-
armótinu var spilað fimmtudaginn 13.
mars sl. Þessi pör skoruðu mest:
Hörður Thorarensen–Vilhjálmur Þ. Pálss. 37
Kristján Már Gunnarss.–Björn Snorras. 28
Ólafur Steinason–Guðjón Einarsson 23
Sigurður Vilhjálmsson–Gísli Þórarinsson 15
Staða efstu para að loknum 3
kvöldum er þessi:
Kristján Már Gunnarss.–Björn Snorras. 90
Anton Hartmannss.–Pétur Hartmannss. 62
Gísli Hauksson–Magnús Guðmundsson 32
Sigurður Vilhjálmss.–Gísli Þ./Grímur M. 26
Bridsfélag Kópavogs
Það er svo sannarlega hörð barátta
um efstu sætin í þriggja kvölda
vortvímenningi félagsins, þar sem tvö
beztu kvöldskor gilda til sigurs.
Hæstu skor sl. fimmtudag fengu:
NS:
Inga Lára Guðmundsd. – Unnur Sveinsd. 246
Guðlaugur Sveinsson– Jón Stefánsson 241
Jens Jensson – Jón Steinar Ingólfsson 240
AV:
Ármann J. Lárusson – Villi JR 277
Hallgrímur Hallgr. – Hermann Friðr. 271
Heimir Tryggvas. – Leifur Kristjánss. 251
Staða efstu para:
Hallgrímur H. – Hermann F. 120,14%
Ármann J. Láruss. – Villi JR 119,91%
Erla Sigurjónsd. – Sigfús Þórðars. 117,82%
Suðurlandsmótið í tvímenningi
Suðurlandsmótið í tvímenningi
2003 var spilað að Heimalandi undir
Eyjafjöllum laugardaginn 15. mars sl.
Úrslit urðu þessi:
Guðjón Einarsson–Ólafur Steinason 163
Helgi Hermanns.–Kjartan Jóhanns. 107
Anton Hartmannss.–Pétur Hartmannss. 103
Gísli Þórarinss.–Gunnar Þórðars. 77
Helgi G. Helgason–Vilhjálmur Þ. Pálsson 75
Bergur Pálsson–Sigurjón Pálsson 60
Jón S. Pétursson–Höskuldur Gunnarsson 42
Bridsdeild Félags
eldri borgara í Reykjavík
10. mars var spiluð þriðja og síð-
asta umferð í hraðsveitakeppni 2003
með þátttöku 10 sveita. Sigurvegari
varð sveit Björns E. Péturssonar,
sem hlaut 1608 stig. Með honum í
sveit voru Haukur Sævaldsson,
Bjarni Ásmunds og Þröstur Sveins-
son. Röð næstu sveita var þannig:
Sveit Sigurðar Pálssonar 1602
Sveit Olívers Kristóferssonar 1597
Sveit Þorsteins Laufdal 1566
Sveit Tómasar Jóhannssonar 1510
Tvímenningskeppni spiluð
fimmtud. 13. mars. Spilað var á 12
borðum. Meðalskor 216 stig.
N-S.
Júlíus Guðmundss–Rafn Kristjánsson 283
Aðalbjörn Bened.–Leifur Jóhanness. 260
Sæmundur Björnss.–Olíver Kristóferss. 254
A-V.
Eysteinn Einarss.–Kristján Ólafss. 270
Ólafur Ingvarss.–Friðrik Hermannss. 256
Halla Ólafsd.–Þórhildur Magnúsd. 254
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Það aldin út er sprungið
og ilmar sólu mót,
sem fyrr var fagurt sungið
af fríðri Jesse rót.
Og blómstrið það á þrótt
EYGLÓ
ÁSTVALDSDÓTTIR
✝ Eygló Ástvalds-dóttir fæddist í
Vestmannaeyjum 22.
ágúst 1958. Hún lést
á gjörgæsludeild
Landspítalans í Foss-
vogi 15. febrúar síð-
astliðinn og var útför
hennar gerð frá
Hallgrímskirkju 26.
febrúar.
að veita vor og yndi
um vetrar miðja nótt.
(M. Joch.)
Móðursystir mín,
Eygló Ástvaldsdóttir,
sem ég mat svo mikils,
er farin. Ég var ekki há
í loftinu þegar ég man
fyrst eftir okkur sam-
an. Hún heillaði mig
strax og á hrifningu
mína bar aldrei
skugga. Ég man eftir
fjölskylduferðum til
Stokkseyrar; í mínum
huga var aðalatriðið að
hitta hana frænku. Að veiða með
henni hornsíli sem ég ætlaði að taka
með heim. Að fara niður í fjöru að
finna kuðunga. Að vera með henni,
hlusta og tala saman. Hún gaf mér
fermingarskóna sína og mér fannst
ég eiga allan heiminn. En svo urðu
kaflaskil. Fjölskylda mín fluttist út á
land, en frænka og hennar fólk fóru
suður. Ég varð unglingur, en hún
eiginkona og móðir – en eftir sem
áður uppáhaldsfrænkan. Gift og
fjögurra barna móðir geislaði hún af
æskufjöri og þrótti. Hún tók uppeld-
ishlutverk sitt alvarlega og þau Jói
voru samstiga í hvívetna, enda lentu
þau aldrei í öngstræti.
Enginn veit sína ævina fyrir.
Eygló frænka mín veiktist og ekki
varð aftur snúið. Nú er hún meðal
þeirra sem áður voru farnir og ég
trúi því að henni líði þar vel. Ég mun
ætíð minnast hennar með gleði og
þakklæti, og ég mun sakna hennar
sárt. Jóa, Halldóri, Hildi, Eyþóri og
Vilberg sendi ég innilegar samúðar-
kveðjur og bið guð að gefa þeim
styrk og kjark til þess að takast á
við lífið. Góðar og traustar minning-
ar fylla ekki tómarúmið, en þær
hjálpa.
Ég vil kveðja Eygló frænku með
fallegum ljóðlínum eftir Hannes
Pétursson:
Ég fel þig dauðans dul og ró
því djúpi sem er hulið mér.
Helena Kristín.
Þökkum öllum, sem sýndu okkur samúð og
hlýhug við andlát og útför föður okkar og
tengdaföður,
MAGNÚSAR GUÐMUNDSSONAR
Snorrabraut 58.
Einnig færum við þakkir til starfsfólks annarrar
hæðar Droplaugarstaða.
Hallgrímur Magnússon,
Vigdís Magnúsdóttir, Egill Már Guðmundsson.
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
ÞORSTEINN DAVÍÐSSON,
Faxaskjóli 16,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni fimmtu-
daginn 20. mars kl. 13.30.
Björg Þorsteinsdóttir,
Davíð Þorsteinsson,
Halldóra Þorsteinsdóttir, Guðmundur E. Sigvaldason,
barnabörn og barnabarnabörn.
MINNINGARGREINUM þarf
að fylgja formáli með upplýsing-
um um hvar og hvenær sá sem
fjallað er um er fæddur, hvar og
hvenær dáinn, um foreldra
hans, systkini, maka og börn og
loks hvaðan útförin verður gerð
og klukkan hvað. Ætlast er til að
þetta komi aðeins fram í formál-
anum, sem er feitletraður, en
ekki í greinunum sjálfum.
Formáli
minningar-
greina