Morgunblaðið - 19.03.2003, Page 42
DAGBÓK
42 MIÐVIKUDAGUR 19. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn:
Goðafoss og Selfoss
koma og fara í dag.
Mánafoss kemur í
dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Selfoss fór frá
Straumsvík í gær.
Bootes kemur í dag.
Fréttir
Mæðrastyrksnefnd
Reykjavíkur Skrif-
stofa s. 551 4349, opin
kl. 14–17.
Mannamót
Árskógar 4. Kl. 9–12
bað og opin handa-
vinnustofa, kl. 13–
16.30 opin smíða- og
handavinnustofa.
Bólstaðarhlíð 43. Kl.
9–12 glerlist, kl. 9–16
handavinna, kl. 10–
10.30 Búnaðarbank-
inn, kl. 13–16.30
bridge/vist, kl. 13–16
glerlist.
Félagsstarfið, Dal-
braut 18–20. Kl. 10
leikfimi, kl. 14.30
bankaþjónusta, kl.
14.40 ferð í Bónus.
Félagsstarfið Dal-
braut 27. Kl. 8–16 opin
handavinnustofan, kl.
9 silkimálun, kl. 13–16
körfugerð, kl. 10–13
opin verslunin, kl. 11–
11.30 leikfimi, kl. 13.30
bankaþjónusta.
Félagsstarfið, Hæð-
argarði 31. Kl. 9–16.30
postulínsmálun, kl.
13–16.30 módelteikn-
ing.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 9.30 hjúkr-
unarfræðingur á
staðnum, kl. 10–12
verslunin opin, kl. 13
föndur og handavinna,
kl. 13.30 enska.
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ. Kl. 9.30
stólaleikfimi, kl. 10.15
og 11.10 leikfimi, kl.
13 handavinnuhornið,
kl. 13.30 trésmíði.
Félag eldri borgara
Kópavogi. Viðtalstími í
Gjábakka kl. 15–16.
Skrifst. í Gullsmára 9
opin kl 16.30–18.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraun-
seli, Myndlist kl. 10–
16, línudans kl. 11,
glerskurður kl. 13,
pílukast kl. 13.30,
Gaflarakórinn kl.
16.30.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Forsetinn kemur í
heimsókn kl. 14. Söng-
félag FEB kóræfing
kl. 17.
Félag eldri borgara,
Suðurnesjum Selið,
Vallarbraut 4, Njarð-
vík. Kl. 14 félagsvist.
Gerðuberg, fé-
lagsstarf. Kl. 9–16.30
vinnustofur opnar,
10.30 gamlir leikir og
dansar, frá hádegi
spilasalur opinn, kl.
13.30 kóræfing.
Gjábakki, Fannborg 8.
Handavinnustofan op-
in, kl. 9.30 boccia og
glerlist, kl. 13 glerlist
og félagsvist, kl. 16
hringdansar, kl. 17.
bobb, kl. 15.15 Gleði-
gjafarnir syngja.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9 vefnaður, kl.
10 ganga, kl. 13–16
handavinnustofan.
Hraunbær 105. Kl. 9
handavinna, búta-
saumur, útskurður, kl.
11 banki, kl. 13 bridge.
Hvassaleiti 58–60. Kl.
9 föndur, kl. 9 og kl.
10 jóga, kl. 15 teiknun
og málun.
Norðurbrún 1. Kl. 9–
16.45 opin vinnustofa,
kl. 9–12 tréskurður,
kl. 10–11 sam-
verustund, kl. 13–
13.30 banki, kl. 14 fé-
lagsvist. Messa á
morgun kl. 10.30.
Vesturgata 7. Kl.
8.25–10.30 sund, kl.
9.15–16 myndmennt,
kl. 12.15–14.30 versl-
unarferð kl. 13–14
spurt og spjallað, kl.
13–16 tréskurður.
Vitatorg. Kl. 8. 45
smíði, kl. 10 bókband
og bútasaumur, kl. 13
handmennt og kóræf-
ing, kl. 13–16 föndur,
kl. 13.30 bókband, kl.
12.30 verslunarferð.
Sjálfsbjörg, Hátúni
12. Kl. 19.30 fé-
lagsvist.
ITC-deildin Fífa.
Fundur í kvöld kl.
20.10 í Safnaðarheimili
Hjallakirkju, Álfaheiði
17.
Vinahjálp, brids spilað
á Hótel Sögu í dag kl.
13.
Félag kennara á eft-
irlaunum. Skákhóp-
urinn í Kennarahúsinu
kl. 14 í dag. Bók-
menntahópurinn
heimsækir Þjóð-
skjalasafnið, fimmtud.
20. mars, kl. 13.50.
Skógræktarfélag
Kópavogs aðalfund-
urinn kl. 20 í kvöld í
Félagsheimili Kópa-
vogs, Fannborg 2, kl.
20.
Lomber-klúbburinn
Tótus. Opið lomber-
spilakvöld kl. 19.30 í
kvöld á veitingahúsinu
Diner-inn Ármúla 21.
Lífeyrisþegadeild
SFR. Skemmtifund-
urinn verður laugard.
22. mars kl. 14 í fé-
lagsmiðstöðinni Grett-
isgötu 89, 4. hæð, þátt-
taka tilkynnist í s.
525 8340.
Bókmenntaklúbbur
Hana-nú fundur á
Bókasafni Kópavogs
kl. 20.
Í dag er miðvikudagur 19. mars,
78. dagur ársins 2003. Orð dags-
ins: Verið ávallt glaðir í Drottni.
Ég segi aftur: Verið glaðir.
(Fil. 4, 4.)
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI er áhugamaður umgönguferðir og finnst fátt
ánægjulegra en að spássera úti með
einhverjum skemmtilegum vini sín-
um. Það er ekki nóg með að gangan
sé líkamlega holl heldur er hún líka
góð fyrir sálina.
Í skammdeginu heldur Víkverji
sig á upplýstum gangstéttum í
byggð. Þegar vorar og sólargang-
urinn lengist eru göngustígarnir
meðfram sjónum eftirlæti Víkverja.
Uppbygging gangstíganna í borg-
inni og nágrannasveitarfélögum er
þjóðþrifaverk. Fyrir utan holla
hreyfingu ber margt áhugavert fyrir
augu manns á göngunni. Skemmti-
legar viðbætur við göngustígana á
síðustu árum eru listaverk sem
prýða gönguleiðirnar, t.d. í Skerja-
firði og bekkir úr rekaviði á Sel-
tjarnarnesinu. Þá eru vatnspóstar
komir á nokkra staði, til að mynda
við Ægisíðu og norðanvert Seltjarn-
arnes. Seltirningar hafa reyndar
gert gott betur og settu upp í sumar
er leið ljósmyndir af fjallasýninni frá
norðanverðu Nesinu og merktu heiti
fjalla og heiða. Maður getur stoppað
í björtu veðri, horft á fegurðina sem
blasir við og rifjað upp heitin á því
sem fyrir augu ber. Eins og skáldið
sagði eykst gildi landslagsins hafi
maður heiti þess. Víkverji myndi
hins vegar aldrei ganga svo langt að
segja að landslag væri lítils virði ef
það væri ekki á því nafn.
x x x
VINUR Víkverja fór í Orkuna umdaginn og keypti bensín eins og
hann er vanur. Upphæðin sem hann
setti í sjálfsalann stemmdi síðan
ekki við bensínverðið þegar búið var
að dæla á bílinn og hann átti því að
fá til baka á annað hundrað krónur.
Fram að þessu hefur hann getað far-
ið í Hagkaup og fengið greitt til
baka. Nú þurfti hann að láta starfs-
mann Hagkaupa fá bensínkvittunina
sem átti annars að fara í bókhaldið.
Vininum fannst óþægilegt að missa
nótuna sína og sagði að hann nennti
ekki að standa í þessu og myndi leita
annað næst.
x x x
KUNNINGI Víkverja var í vik-unni að bjástra við að taka
nagladekkin undan fjölskyldubíln-
um. Maki Víkverja sem sér um
dekkjamál fjölskyldunnar hætti að
nota nagladekk fyrir fimm árum
þegar það rann upp fyrir honum að
naglarnir komu kannski að notum
sjö til tíu daga yfir veturinn. Fyrir
utan hávaðann sem fylgir akstri á
nagladekkjum á auðum vegum þá er
það mengandi að spæna upp malbik
og steypu, fullyrðir hann. Þeir sem
settu negld dekk undir bílinn í haust
hljóta að hafa fengið bakþanka því
það er hálffurðulegt að aka á þessum
mengunartúttum í borginni þar sem
varla hefur sést föl á jörðu í allan
vetur.
Morgunblaðið/Þorkell
McDonalds
ÉG vil koma á framfæri
ánægju minni með þjón-
ustuna á McDonalds í
Skeifunni en óánægju með
þjónustuna á McDonalds í
Kópavogi. Í Kópavogi var
ég látin bíða í hálftíma eftir
matnum og var ekki beðin
afsökunar á biðinni. Eins
eru XL-borgararnir í Skeif-
unni stærri og betri en í
Kópavogi. Ég er yfirleitt
ánægð með McDonalds,
þar fást góðar franskar og
góður matur. En súkku-
laðihristingurinn sem alltaf
er verið að auglýsa virðist
aldrei vera til.
Sem sagt, McDonalds í
Skeifunni fær stóran plús
en McDonalds í Kópavogi
þarf að athuga sinn gang.
Sigrún Guðlaugsdóttir.
Brot á vinnulögum?
Í ÚTVARPINU var sagt
frá að alþingismenn hefðu
verið á fundum allan dag-
inn 13. mars og svo frá kl.
11 um kvöldið til 6 um
morguninn. Flokkast þetta
ekki sem brot á vinnulögum
og hvíldartímum? Eru eng-
ar reglur um þetta hjá
þingmönnum?
Guðmundur Bergsson.
Þakkir
ÉG vil senda Ríkisútvarp-
inu þakkir mínar fyrir frá-
bæra útvarpsstöð sem er
bæði fræðandi, menningar-
leg og uppbyggileg. Ég
held að svona útvarpsstöð
sé einstök í heiminum.
Hlustandi.
Pétur og úlfurinn
KONAN sem hringdi í
byrjun mars og spurði um
barnabókina Pétur og úlf-
urinn er vinsamlega beðin
að hringja í sama símanúm-
er aftur.
Tapað/fundið
Grá hliðartaska með
skólabókum týndist
GRÁ, frekar stór hliðar-
taska, með skólabókum og
fartölvu (Texas Instru-
ments) týndist við Karla-
götu sl. fimmtudag. Taskan
er eiganda mikils virði þar
sem allt námsefni vetrarins
var í töskunni og tölvunni.
Skilvís finnandi vinsamlega
hafi samband í síma
697 6933. Fundarlaun.
Gullarmband týndist
GULLARMBAND með
hlekkjum týndist líklega í
Húsadýragarðinum eða á
leiðinni frá Vesturgötu að
Kaplaskjólsvegi sl. sunnu-
dag. Skilvís finnandi hafi
samband í síma 552 0553.
Geisladiskahulstur
týndist
Geisladiskahulstur fyrir
u.þ.b. 40 diska týndist síð-
astliðinn miðvikudag ann-
aðhvort í Kópavogi eða
Garðabæ. Skilvís finnandi
hafi samband í síma
698 6402.
Svartur fress
í óskilum
SVARTUR fressköttur
með bláa ól hefur verið í
óskilum í Ásgarði sl. 2 vik-
ur. Upplýsingar í síma
553 0615.
Dýrahald
Páfagaukur
týndist
LÍTILL blár gárapáfa-
gaukur týndist um helgina í
Teigahverfi í Reykjavík.
Hans er sárt saknað. Finn-
andi vinsamlegast hringi í
síma 822 0167.
Köttur í óskilum
við Nökkvavog
SÉRLEGA gæfur, brönd-
óttur köttur hefur verið að
þvælast við Nökkvavog síð-
ustu mánuði. Í fyrstu var
hann með ól sem á stóð m.a.
Leopold og Holtavegur. Ól-
inni er hann búinn að glata
en þeir sem þekkja til hans
og geta hjálpað honum að
komast heim til sín eru
beðnir um að hringja í síma
892 7958.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
DÓTTIR mín hefur borið
út Fréttablaðið í 1 1⁄2 ár og
þegar hinir nýju eigendur
(hverjir sem þeir nú eru)
tóku við útgáfu blaðsins
skrifaði hún undir ráðning-
arsamning sem ég taldi hið
besta mál. Í þessum ráðn-
ingarsamningi segir m.a. í
starfslýsingu: Útburður á
Fréttablaðinu og öðrum
blöðum og bæklingum sem
fylgja því.
Þegar dóttir mín skrif-
aði undir þennan samning
hafði hún einstaka sinnum
þurft að bera út aukablöð
eða bæklinga og allt í góðu
með það. Nú er aukningin
á þessum aukaútburði orð-
in það mikil að það er und-
antekning ef ekki er eitt-
hvert aukablað eða
bæklingur sem bera þarf
út með Fréttablaðinu.
Þrátt fyrir þessa auknu
vinnu borgar Fréttablaðið
ekki krónu meira í laun til
blaðbera og mér hefur ver-
ið tjáð að það standi ekki
til.
Það er alveg öruggt að
eigendur Fréttablaðsins fá
borgað fyrir þennan auka-
útburð sem þeir koma á
blaðberana sína. Væri ekki
sanngjarnt að blaðberar
fengju hærri laun fyrir sí-
fellt meiri vinnu?
Fjóla Kristjánsdóttir.
Á blaðburðarfólk
að standa undir rekstri?
LÁRÉTT
1 gagnlegur hlutur, 8
bætir, 9 aðgæta, 10 út-
deili, 11 drekka, 13 að
baki, 15 iðja, 18 sveðja,
21 dauði, 22 þukla á, 23
duglegur, 24 hugs-
anagang.
LÓÐRÉTT
2 aðgæsla, 3 lóga, 4
grípa, 5 knappt, 6 óhapp,
7 afkvæmi, 12 magur, 14
hest, 15 róa, 16 hindra,
17 flandur, 18 hvassan
odd, 19 púkinn, 20 tungl.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 spjör, 4 kunna, 7 ræpan, 8 ræðin, 9 díl, 11
kæna, 13 firð, 14 skera, 15 kuti, 17 tala, 20 æða, 22 enn-
ið, 23 nýrað, 24 afurð, 25 akkur.
Lóðrétt: 1 sprek, 2 Japan, 3 rönd, 4 karl, 5 niðji, 6 ann-
að, 10 ígerð, 12 asi, 13 fat, 15 kveða, 16 tinnu, 18 afrek,
19 arður, 20 æðið, 21 anga.
Krossgáta 6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Á heimasíðu Ögmund-ar Jónassonar, al-
þingismanns og verka-
lýðsleiðtoga, kennir
ýmissa grasa. M.a. geta
lesendur lagt spurn-
ingar fyrir þingmanninn
og lætur hann sig ekki
muna um að ráða
drauma þeirra.
Þannig sendir „Haffi“
Ögmundi draum, sem
gengur út á umræður á
ríkisstjórnarfundi, þar
sem blikar á blá merki á
enni ráðherranna, sem
líkjast vörumerki Chiq-
uita-banana. Ráðherrar
eru sammála um að
sækja fyrirmyndir að
skattlagningu Alcoa til
Mið-Ameríku. „Við þetta
þótti mér glampa á
Chiquita merkin á enn-
um ráðherranna. Nú
spyr ég, Ögmundur.
Hvað þýðir þessi draum-
ur? Skyldi hann boða
góða bananauppskeru á
komandi ári? Eða skyldi
þetta vita á gott og sól-
ríkt sumar eða er þetta
einfaldlega til marks um
að bananastuð verði í
landinu á komandi ár-
um?“ spyr Haffi.
Ögmundur svarargrafalvarlegur: „Þú
gerir að gamni þínu og
það finnst mér ágætt.
Ég myndi draga þá
ályktun af draumnum að
jafnvel þótt bananar séu
ágætir þá eigi það við
um þá eins og aðra
fæðu, að þeir eru fyrst
og fremst ágætir í hófi.
Hið sama gildir um mat-
aræði manna og um at-
vinnulífið, að fjölbreytni
er nauðsynleg. Ríkis-
stjórnin hefur hins veg-
ar eins og við vitum
heldur einhæfan smekk
varðandi atvinnustefn-
una. Þegar grannt er
skoðað kann draumur-
inn að vara við því að
við gerumst of einhæf í
atvinnuháttum. Ég vona
að þetta sé ekki fyrir-
boði um að stjórnvöld
ætli nú þjóðinni að
leggjast í stórfellda ban-
anarækt. Það væri mjög
óklókt en fyrir því feng-
ist án efa samþykki
stjórnarflokkanna á Al-
þingi og stórra aðila á
vinnumarkaði. Þar er
gagnrýnisþröskuldurinn
ekki alltaf ýkja hár.
Haft hefur verið á orði
að Samtök atvinnulífsins
myndu mæla með sam-
yrkjubúskap í sovéskum
anda ef ríkisstjórninni
byði svo við að horfa.
Eftir Kárahnjúka-
umræðuna trúi ég þessu
vel.“
Hvað hefur Ögmundurá móti bananarækt?
Ef duttlungar sögunnar
hefðu hagað því svo til,
að á Íslandi væru rækt-
aðir bananar í stórum
stíl á opinberum sam-
yrkjubúum og við það
ynnu félagsmenn BSRB,
leikur varla nokkur vafi
á að Ögmundur Jónas-
son myndi verja atvinnu-
greinina með kjafti og
klóm, jafnvel þótt ban-
anarnir þrifust ekki
nema við raflýsingu og
reisa þyrfti svo sem eins
og eina Kárahnjúka-
virkjun til að knýja
gróðurhúsalampana. En
það er sem betur fer
bara draumsýn.
STAKSTEINAR
Draumaráðningar,
bananar og virkjanir