Morgunblaðið - 19.03.2003, Qupperneq 44
ÍÞRÓTTIR
44 MIÐVIKUDAGUR 19. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Á LAUGARDAGINN var
brotið blað í 125 ára sögu
enska knattspyrnufélagsins
Bolton Wanderers. Þegar
gengið var til leiks gegn
Sunderland í úrvalsdeildinni
var enginn enskur leikmaður í
byrjunarliði félagsins.
Fremstur fór íslenski fyrirlið-
inn Guðni Bergsson og á eftir
honum gengu fjórir Frakkar,
tveir Danir, Finni, Jamaíku-
maður, Spánverji og Nígeríu-
maður. Varnarmaðurinn Sim-
on Charlton, sem hefur verið
„síðasti Móhíkaninn“ í liði
Bolton að undanförnu, gat
ekki leikið með vegna
meiðsla.
Níu af þessum ellefu er-
lendu leikmönnum eru lands-
liðsmenn sinnar þjóðar, nú-
verandi eða fyrrverandi, og
auk Guðna með sína 77 lands-
leiki eru þarna kappar á borð
við markahrókinn Youri
Djorkaeff, sem varð heims-
meistari með Frökkum 1998,
og Jay-Jay Okocha, lykil-
maður Nígeríu um árabil.
Enginn enskur í
byrjunarliði Bolton
Guðni Bergsson
GUÐNI Bergsson sagði í samtali við Bolton Evening
News að það væri vissulega sérstakt að enginn ensk-
ur leikmaður var í byrjunarliði Bolton en þjóðerni
leikmanna skipti ekki máli. „Ég held að hugarfarið
sé rétt í liðinu. Flestir okkar eru reyndir atvinnu-
menn og við vitum hvers er krafist af okkur. Við vilj-
um spila hver fyrir annan, fyrir knattspyrnustjórann
og fyrir Bolton Wanderers,“ sagði Guðni. Hann var
að vonum ánægður með mikilvægan útisigur, 2:0, en
sagði að þar væri ekki hægt að láta staðar numið.
„West Ham náði í gott stig gegn Everton á útivelli og
við eigum eftir að mæta þeim. Það er mikið eftir enn,
liðið nýtti sér reynsluna í leiknum í Sunderland en
nú þurfum við að mæta með sama hugarfari í þá
leiki sem eftir eru,“ sagði Guðni Bergsson.
Þjóðerni skiptir
ekki máli
ATLI Sveinn Þórarinsson lagði
upp mark sænska liðsins Örgryte
sem gerði jafntefli við Ventspils frá
Lettlandi, 1:1, í æfingaleik í Hollandi
á mánudag. Atli Sveinn hefur leikið
á miðjunni hjá Örgryte að undan-
förnu, ekki í vörninni eins og hingað
til, og fengið góða dóma fyrir
frammistöðu sína.
ELLERT B. Schram, forseti
Íþrótta- og Ólympíusambands Ís-
lands, var eftirlitsmaður Knatt-
spyrnusambands Evrópu á leik Bas-
el og Juventus í meistaradeild
Evrópu sem fram fer í kvöld. Leikið
er á Saint-Jakob Park í Basel, nýj-
um og glæsilegum leikvangi, en
Grindvíkingar léku einmitt opnunar-
leikinn á honum þegar þeir mættu
Basel í Intertoto-keppninni fyrir
tveimur árum.
GLENN Roeder, knattspyrnu-
stjóri West Ham, segist hafa vísað á
bug tilboði frá Reading um að fá
Paulo di Canio leigðan út leiktíðina
og segir það út í hött. Reading er í
harðri baráttu um sæti í úrvalsdeild-
inni. Di Canio á ekki upp á pallborðið
hjá Roeder um þessar mundir.
DARREN Moore, félagi Lárusar
Orra Sigurðssonar í vörn West
Brom, verður frá keppni í níu mán-
uði vegna meiðsla í hné sem hann
hlaut er hann var að kljást við Jimmy
Floyd Hasselbaink í viðureign West
Brom og Chelsea á laugardaginn.
SHAQUILLE O’Neal skoraði 42
stig fyrir LA Lakers þegar lið hans
vann LA Clippers, 102:85, í nágran-
naslag í NBA-deildinni í körfuknatt-
leik í fyrrinótt. Þetta var 23. sigur
Lakers í síðustu 25 viðureignum lið-
anna.
SHAQ sagðist hafa ætlað sér að
skora 53 stig í leiknum. „Ég sá í blöð-
unum fyrir leikinn að mig vantaði 53
stig til að komast í 20 þúsund stig
samtals í deildinni. Ég lagði mig all-
an fram til að ná þeirri tölu til að
vera laus við þá pressu. Nú verð ég
bara að ná henni gegn uppáhalds-
liðinu mínu,“ sagði Shaq og glotti en
Lakers mætir erkióvinum sínum í
Sacramento aðfaranótt föstudags.
ÞÓR úr Þorlákshöfn, undir stjórn
Birgis Mikaelssonar, tryggði sér um
helgina rétt til að leika í úrvalsdeild-
inni í körfuknattleik í fyrsta sinn í
sögu félagsins. Þór er 21. félagið sem
leikur í úrvalsdeildinni, en hún var
sett á laggirnar 1978.
LEE Mills, sóknarmaður Íslend-
ingafélagsins Stoke City, varð fyrir
nokkrum meiðslum í bílslysi um
helgina og óvíst er hvort hann leikur
meira með liðinu á tímabilinu.
MILLS, sem gekk til liðs við Stoke
frá Coventry eftir áramótin, var á
heimleið eftir leik gegn Sheffield
United á laugardaginn þegar hann
ók á kyrrstæða bifreið sem hafði bil-
að á hraðbraut skammt frá Stoke-
borg. Hann slapp við alvarleg
meiðsli en áverkarnir sem hann
hlaut voru þó nægir til að hann verð-
ur frá æfingum og keppni um sinn.
FÓLK
Jafnt var fyrstu mínúturnar ogekki að sjá að stormur væri í að-
sigi. Breiðhyltingar voru afslappaðir
og hittu ágætlega en
þegar þeir náðu 15:11
sögðu heimamenn
hingað og ekki
lengra. Þeir snar-
bættu eigin vörn og í sókninni fór
Damon Johnson mikinn svo að ÍR-ing-
ar neyddust til að þjarma betur að
honum inni í teignum. Það er ekki
hentugt þegar leikin er svæðisvörn
eins og ÍR gerir yfirleitt, hvað þá gegn
skyttuliði eins og Keflavík enda hóf
Guðjón Skúlason að raða niður körfum
án þess að ÍR-ingar fengju rönd við
reist. Þegar þeir svo lögðu áherslu á að
stöðva Guðjón tók Magnús Gunnars-
son við en Edmund Saunders vildi þá
líka vera með í veislunni og tróð bolt-
anum með tilþrifum hvað eftir annað í
körfuna. Eftirleikurinn var því auð-
veldur og Keflvíkingar leyfðu sér að
spila síðari hálfleikinn afslappaðir en
það mega Breiðhyltingar eiga að þeir
gáfust ekki upp og spiluðu af krafti þar
til yfir lauk.
„Við ætluðum að fá boltann inn í
teig og byrjum á því til að ÍR-ingar
þyrftu að bakka inn í teiginn – það
gerðu þeir en um leið opnast kant-
arnir mikið enda voru flest skot okkar
alveg út við kant,“ sagði stórskyttan
Guðjón eftir leikinn en hann var
stigahæstur Keflvíkinga og gerði sex
þriggja stiga körfur. „Við skoðuðum
mikið hvað við gerðum rangt innfrá,
sérstaklega í sókninni, því hún klikk-
aði fyrst og fremst, og löguðum það
svo um munar. Sjötíu stig í fyrri hálf-
leik er rosalega mikið í úrslitakeppni
og svo var vörnin frábær. Seinni hálf-
leikur þróaðist eins og við var að bú-
ast, það er erfitt að halda fjörtíu stiga
forskoti. Við vorum alveg tilbúnir fyr-
ir þennan leik og það kom ekki til
greina að tapa á heimavelli og falla úr
leik,“ bætti Guðjón við og var ánægð-
ur með að fá tækifæri til að hefna
harma sinna gegn Njarðvík. „Auðvit-
að er þetta nýtt mót en fyrsti leik-
urinn er mjög mikilvægur, það má
engu klúðra og það fæst sálfræðilegt
tak með sigri þó það þurfi að vinna
þrjá. Njarðvík er heitasta liðið núna
og þetta verður mjög erfitt.“ Sem fyrr
segir fór Guðjón mikinn og Damon
skilaði sínu með 20 stigum ásamt tíu
stoðsendingum en þeir tveir skoruðu
31 af 36 fyrstu stigum leiksins. Magn-
ús Gunnarson var einnig drjúgur með
5 þriggja stiga körfur en alls skoruðu
Keflvíkingar 16 slíkar körfur í 31 til-
raun, þar af 13 af 22 í fyrri hálfleik.
Edmund Saunders tók 15 fráköst og
varði þrjú skot.
Hjá ÍR voru Ómar Sævarsson með
12 fráköst og Sigurður Þorvaldsson
bestir. Eiríkur átti góða spretti með 7
fráköst og 4 stoðsendingar en minna
sást af Hreggviði Magnússyni og
Eugene Christopher. „Eftir átta mín-
útur í fyrri hálfleik var leikurinn bú-
inn, svo einfalt er það,“ sagði Eggert
Garðarsson þjálfari ÍR eftir leikinn.
„Það snerist alveg við frá fyrri leikn-
um og maður skilur það ekki, það er
enginn munur nema annað hús og af
hverju getum við ekki spilað jafn vel
og í Breiðholtinu. Það er ekki nema 48
tímar síðan við litum vel út en núna
eins og byrjendur. Við erum með
marga unga stráka og þeir brotnuðu
niður þegar Keflvíkingar tóku á rás.“
Þjálfarinn sagði sína menn reynsl-
unni ríkari eftir veturinn. „Veturinn
hefur verið sveiflukenndur og stöðug-
leiki okkar helsti andstæðingur, það
má segja að við höfum verið stöðugir í
óstöðugleikanum því við höfum unnið
tvo leiki en tapað tveimur og aldrei
náð að komast á sigurgöngu. Við för-
um oft hátt upp eftir tvo sigra en bít-
um líka frá okkur eftir tvö töp. Von-
andi var þetta samt lærdómsríkt og
við byggjum á þessu á næsta tímabili
en ég býst við að flestir verði áfram
reynslunni ríkari,“ sagði Eggert.
Keflvíkingar
kafsigldu ÍR
TÓLF mínútna skrautsýning Keflvíkinga gerði allar vonir ÍR-inga um
að komast áfram í úrslitakeppnina að engu þegar liðin mættust
syðra í gærkvöldi. Þá skoruðu heimamenn 51 stig á móti 8 en
glæsilegar troðslur ásamt kröftugri baráttu um fráköst slógu síðan
öll vopn úr höndum gestanna enda munaði 42 stigum í leikhléi. Síð-
ari leikurinn var því sem næst formsatriði en gestunum tókst samt
að minnka skaðann til að bjarga afganginum af heiðrinum og Kefla-
vík vann 115:84.
Stefán
Stefánsson
skrifar
„SÁ „gamli“ á bekknum sagði mér
að brjóta á Stevie Johnson áður en
hann færi í þriggja stiga skotið – ég
ætlaði að brjóta á honum en tókst að
ná af honum boltanum áður en hann
fór í skotið,“ sagði hinn tvítugi Axel
Kárason leikmaður Tindastóls en
hann gerði út um sigurvonir Hauka
er nokkrar sekúndur lifðu af leikn-
um í stöðunni 87:84, er hann náði
boltanum af Stevie Johnson.
Faðir Axels, Kári Marísson, er
liðsstjóri Tindastóls og gaf syni sín-
um góð ráð á lokakafla leiksins.
Axel hafði í nógu að snúast í
rimmunni gegn Haukum þar sem
hann hafði það hlutverk að gæta
Bandaríkjamannsins. „Ég er nokkuð
ánægður með hvernig til tókst, hann
er gríðarlega sterkur líkamlega og
er allur blár og marinn eftir barn-
inginn. Ég fékk ákveðið hlutverk
gegn Stevie og átti ekki að spila
neina hjálparvörn. Þessi leikaðferð
gekk vel upp hjá okkur og sigurinn
var sætur þar sem við höfum ekki
leikið vel eftir áramót,“ sagði Axel.
Fórum erfiðu leiðina
Kristinn Friðriksson leikmaður og
þjálfari Tindastóls var stoltur af sínu
liði en hann dró vagninn í síðari hálf-
leik þegar mest á reyndi. „Já, þetta
hefur gengið ágætlega að und-
anförnu hjá mér sem leikmanni en
ég er samt sem áður afar ánægður
með hvernig við brugðumst við í
lokakafla leiksins,“ sagði Kristinn
hógvær, en hann skoraði alls átta
þriggja stiga körfur í leiknum og
margar þeirra langt utan af velli.
„Við fórum erfiðu leiðina, þar sem
takmarkið var að leggja þá að velli í
fyrsta leiknum á Ásvöllum. Það
tókst ekki og við settum upp nýja
áætlun sem gekk eftir. Það má segja
að við höfum klárað þessa rimmu
með glans og glæsibrag.“
Ætlaði að
brjóta á Stevie
UNDANÚRSLITIN í úrvals-
deild karla í körfuknattleik
hefjast um næstu helgi en
þar mætast annars vegar
Grindavík og Tindastóll og
hins vegar Keflavík og
Njarðvík.
Til að komast í úrslita-
leikina um Íslandsmeist-
aratitilinn þarf að vinna
þrjá leiki svo undan-
úrslitaeinvígin geta farið í
fimm leiki.
Pétur Hrafn Sigurðsson,
framkvæmdatjóri Körfu-
knattleikssambands Íslands,
sagði við Morgunblaðið í
gærkvöldi að öllu óbreyttu
mundu deildarmeistarar
Grindavíkur og Tindastóll
mætast í Grindavík klukkan
16 á laugardaginn og Kefla-
vík og Njarðvík í íþrótta-
húsinu í Keflavík klukkan
19.15 á sunnudagskvöldið.
Undanúrslit-
in hefjast um
næstu helgi
HINN 36 ára gamli Gian-
franco Zola hefur skákað
bæði Jimmy Floyd Hass-
elbaink og Eiði Smára
Guðjohnsen þegar tölfræði
sóknarmanna Chelsea í
ensku úrvalseildinni eru
skoðaðar og bornar saman
við síðasta keppnistímabil.
Zola hefur skorað 12 mörk
í deildinni á yfirstandandi
leiktíð en Eiður Smári og
Hasselbaink hafa skorað 9 mörk
hver. Á síðasta keppnistímabili
skoraði Zola 3 mörk í deildinni,
Hasselbaink 23 og Eiður Smári 14.
Zola stendur þeim Hasselbaink
og Eiði framar hvað varðar fjölda
skota sem endað hafa í netinu.
19% skota Zola hafa end-
að í markinu en 16% hjá
þeim Hasselbaink og Eiði.
Á síðustu leiktíð voru töl-
urnar þannig að 21%
skota Eiðs Smára enduðu
með marki, 19% hjá
Hasselbaink og 8% hjá
Zola.
Í þriðja tölfræðiþætt-
inum, það er fjöldi stoð-
sendinga, er ítalski
„töframaðurinn“ efstur
þremenninganna. Zola er með 6
stoðsendingar í úrvalsdeildinni í
vetur, Hasselbaink 5 og Eiður
Smári 3, en á síðustu leiktíð áttu
Eiður Smári og Hasselbaink 6 tals-
ins og Zola 3.
Zola skákar
Eiði Smára og
Hasselbaink
Gianfranco
Zola