Morgunblaðið - 19.03.2003, Síða 45

Morgunblaðið - 19.03.2003, Síða 45
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. MARS 2003 45 ÞAÐ var þungt yfir leikmönnum Hauka eftir tapleikinn gegn Tinda- stól enda liðið farið í „sumarfrí“ eftir að hafa endað í þriðja sæti deild- arinnar. Stevie Johnson var að von- um vonsvikinn með niðurstöðuna en var þá þegar farinn að huga að næstu leiktíð. „Ég mun skoða hvað stendur mér til boða í sumar en þessi úrslit munu hvetja mig til dáða – ég er með beiskt bragð í munninum sem ég get aðeins losnað við með því að mæta til leiks á næstu leiktíð sem leikmaður Hauka,“ sagði Banda- ríkjamaðurinn en hrósaði samt sem áður félögum sínum í Haukaliðinu. „Það var ekki búist við neinu af okk- ur og allir hafa talið að árangur liðs- ins sé aðeins einum leikmanni að þakka. Það er ekki rétt og mér hefur liðið mjög vel í herbúðum Hauka. Tindastólsliðið hafði meiri vilja þeg- ar mest á reyndi og ég hefði getað sent boltann oftar á samherja mína þegar allt að þrír leikmenn reyndu að stöðva mig í vörninni. Ég verð að hrósa varnarleik Tindastóls og þeir fundu ákveðna veikleika í okkar liði sem við þurfum að laga,“ sagði Stev- ie Johnson.  PAUL Dickov, sóknarmaður Leic- ester City, verður ekki með skoska landsliðinu gegn því íslenska á Hampden Park 29. mars. Dickov, sem hefur skorað grimmt fyrir Leic- ester í vetur, þarf að gangast undir aðgerð á nára og verður frá keppni næstu þrjár vikurnar.  DICKOV, sem er næstmarkahæsti leikmaður ensku 1. deildarinnar með 18 mörk, lék ekki gegn Íslandi síð- asta haust en Archie Gemmill, sér- legur útsendari Skota í Englandi, hefur mælt eindregið með því við Berti Vogts, landsliðsþjálfara, að hann nýti krafta Dickovs betur með landsliðinu.  DAVID Seaman, markvörður, fór ekki með Arsenal til Spánar í gær en ensku meistararnir mæta þar Val- encia í kvöld í meistaradeild Evrópu í knattspyrnu. Seaman gat ekki leik- ið með Arsenal gegn Blackburn í ensku úrvalsdeildinni um helgina vegna tognunar og í gærmorgun kom í ljós að hún er alvarlegri en fyrst var talið.  STUART Taylor verður því áfram í marki Arsenal í kvöld en þessi 22 ára gamli piltur hefur mátt horfa upp á fjölmarga markverði koma til félagsins til reynslu í vetur. Einn þeirra, hinn sænski Rami Shaaban, var keyptur, en hefur verið lengi frá vegna meiðsla. Varamarkvörður í kvöld verður 19 ára strákur úr ung- lingaliði félagsins, Craig Holloway.  PATRICK Vieira, fyrirliði Arsen- al, fór með liðinu til Spánar en það kemur ekki í ljós fyrr en skömmu fyrir leikinn í kvöld hvort hann getur leikið vegna meiðsla í hné. Sol Campbell, miðvörðurinn sterki, er á svipuðu róli en hann er meiddur í há- sin.  VALENCIA þarf að tryggja sér sigur til að komast áfram í 8 liða úr- slit. Ef Arsenal tapar og Roma vinn- ur Ajax, er Arsenal komið áfram. Möguleikarnir eru margir, því að öll liðin fjögur eiga möguleika á að kom- ast áfram – og það fer eftir hvernig úrslit leikja verða, hvaða tvö lið fara áfram.  SÆNSKI sóknarleikmaðurinn Henrik Larsson, miðherji Celtic, hefur svarað neyðarkalli frá Svíþjóð, Já. Þjálfarar sænska liðsins – Tommy Söderberg og Lars Lager- bäck, höfðu samband við Larsson, sem tilkynnti að hann væri hættur að leika með sænska landsliðinu eftir tap fyrir Senegal á HM sl. sumar, til að fá hann til að skipta um skoðun. Ástæðan fyrir því er að Zlatan Ibr- ahimovic, leikmaður Ajax, er í leik- banni þegar Svíar mæta Ungverjum í undankeppni EM 2. apríl í Búda- pest og aðrir sóknarmenn sænska liðsins hafa verið meiddir.  LARSSON, sem er 31 árs og hefur leikið 72 landsleiki fyrir Svía, sagðist ekki geta skorast undan kalli þeirra félaga. Larsson verður í sviðsljósinu með Celtic á morgun í UEFA-leik gegn Liverpool á Anfield. FÓLK HEINER Brand, landsliðsþjálfari Þýskalands í handknattleik, teflir fram nokkrum ungum leikmönnum í vináttuleik gegn Íslendingum í Berlín á laugardaginn. Þjóðverjar hita upp fyrirt leikinn gegn Íslandi með leik gegn Frökk- um í Mulhouse í Alsace í kvöld. Landsliðshópurinn Brands er þann- ig skipaður: Markverðir: Henning Fritz, Kiel (123 landsleikir), Christian Ramota, Lemgo (110), Carsten Lichtlein, Grosswallstadt (9). Aðrir leikmenn: Florian Kehr- mann, Lemgo (95), Christian Zeitz, Kronau/Östringen (47), Christian Schöne, Magdeburg (7), Christian Rose, Wallau-Massenheim (60), Markus Baur, Lemgo (157), Steffen Weber, Wallau-Massenheim (49), Pascal Hens, Wallau-Massenheim (46), Jan-Olaf Immel, Wallau- Massenheim (65), Stefan Kretzsch- mar, Magdeburg (199), Adrian Wagner, HSV Hamborg (16), Seb- astian Preiss, Kiel (6), Stephan Just, Eisenach (12), Christian Schwarz- er, Lemgo (264), Klaus-Dieter Pet- ersen, Kiel (307). Bandaríkjamaðurinn Clifton Cook og Kristinn Friðriksson þjálfari Tindastóls tóku til sinna ráða í stöðunni 70:59 í lok þriðja leikhluta og skiptust á að skora næstu 22 stig liðsins og áður en stuðningsmenn Hauka vissu af var staðan orðin 76:83 gestunum í vil og aðeins sex mínútur eftir af leiknum. Stevie Johnson og Sævar Har- aldsson reyndu að klóra í bakkann á lokakafla leiksins en það dugði ekki til. Johnson fékk knöttinn í hend- urnar þegar um 7 sekúndur lifðu af leiknum í stöðunni, 84:87, og gat jafnað með þriggja stiga skoti. Axel Kárason úr liði Tindastóls var á öðru máli og náði að slá knött- inn úr höndum Johnson áður en hann náði að koma sér í skotstöðu. Axel lét einnig að sér kveða í sóknarleiknum en var sem límdur á bringu Stevie Johnson frá fyrstu mínútu til þeirrar síðustu og sá til þess að gera Johnson erfitt um vik. Barátta Axel var aðdáunarverð enda Johnson gríðarlega sterkur leikmaður og einn besti erlendi leik- maður Íslandsmótsins – ef ekki sá besti. Haukar naga sig eflaust í handarbökin þessa stundina er þeir rifja upp atburði gærkvöldsins. Lið- ið hafði leikinn í hendi sér í fyrri hálfleik og allt þar til að fjórði leik- hluti hófst. Það læðist að manni sá grunur að óttinn við að „tapa“ leikn- um hafi náð yfirhöndinni í kolli flestra leikmanna liðsins þegar gest- irnir náðu að klóra í bakkann. Og að sama skapi var „kæruleysið“ alls- ráðandi í röðum Tindastóls á loka- kaflanum þar sem þeir Kristinn Friðriksson og Clifton Cook höfðu taugar til þess að framkvæma hlut- ina án þess að huga að afleiðing- unum. Kristinn lét þriggja stiga skotin „vaða“ á körfuna úr ótrúlegustu færum enda hefur það verið „vöru- merki“ hans í gegnum tíðina. Þjálf- arinn skoraði sex slíkar í síðari hálf- leik eftir að hafa skorað tvær þrigga stiga körfur í fyrsta leikhluta. Clifton Cook var einnig afar öfl- ugur í liði Tindastóls og virðist geta leyst úr erfiðum þrautum með snún- ingum og fettum sínum. Cook brýst mikið í gegnum varnir andstæðinga Tindastóls og nýtir færi sín vel enda skoraði hann alls 39 stig í leiknum. Kristinn, Cook og Axel skoruðu 90% af stigum liðsins. Eins og áður segir bar Stevie Johnson Haukaliðið á herðum sér í leiknum og skoraði 36 stig og tók 14 fráköst. Vörn Tindastóls lagði höfuðáherslu á að stöðva kappann og tókst ætlunarverkið þrátt fyrir að hann hafi skorað 36 stig. Sævar Haraldsson lét mikið að sér kveða í fyrsta leikhluta en missti aðeins móðinn þegar á leið. Það vantaði eldmóð í Haukaliðið þegar mest á reyndi og virtist engin þeirra hafa sjálfstraust til þess að framkvæma hlutina í sóknarleiknum þegar Stevie Johnson var kominn í vandræði. Árangur Tindastóls kemur mörg- um í opna skjöldu og virðist liðið leika „betur“ á útivelli en í „Síkinu“ á Sauðárkróki. Það ætti að henta liðinu vel í framhaldinu þar sem Grindvíkingar bíða handan við horn- ið í undanúrslitum. Haukar áttu engin svör þegar mest á reyndi og sannaðist margkveðin vísa að einn leikmaður getur ekki unnið leiki upp á eigin spýtur. Stevie Johnson er vissulega magnaður leikmaður en „stoðkerfið“ í liði Hauka hneig sem deig á ögurstundu. GUNNAR Magnússon mun þjálfa meistaraflokk karla í handknattleik hjá Víkingi næsta vetur og tekur hann við af Birgi Sigurðssyni sem hefur þjálfað liðið í vetur. Að sögn Magnúsar Jónssonar, for- manns handknattleiksdeildar félagsins, er ekki búið að ganga endanlega frá ráðningu Gunnars en það verður gert á næstu dögum. Gunnar er þjálf- ari kvennaliðs Fylkis/ÍR nú um stundir en hann er kunnugur í Víkinni þar sem hann þjálfaði mikið yngri flokka. „Gunnar kemur ekkert að ókunnu húsi þegar hann kemur til okkar því hann þjálfaði hér yngri flokka í nokkur ár og þekkir því þessa stráka sem eru í meistaraflokki núna og hefur þjálfað þá flesta,“ sagði Magnús. Gunnar tekur við Víkingum Með beiskt bragð í munni Þjóðverjar hita upp fyrir Íslandsorrustu í Alsace Morgunblaðið/Golli Michail Antropov og Helgi R. Viggósson fagna hér sætum sigri á Haukum á Ásvöllum í gær. Haukar réðu ekki við Kristin og Cook RIMMUR Hauka og Tindastóls í vetur hafa verið með ólíkindum jafnar og varð engin breyting þar á þegar liðin áttust við í oddaleik í átta liða úrslitum Intersportdeildarinnar í körfuknattleik í gærkvöld í Hafnarfirði. Gestirnir frá Sauðárkróki höfðu tromp í erminni á lokakafla leiksins og tryggðu sér sigur, 89:85, og mæta deild- armeistaraliði Grindavíkur í undanúrslitum. Haukar virtust hafa leikinn í hendi sér allt þar til í upphafi fjórða leikhluta en þá fóru hjólin að snúast hjá norðanmönnum sem litu aldrei um öxl eftir það. Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.