Morgunblaðið - 19.03.2003, Side 47

Morgunblaðið - 19.03.2003, Side 47
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 19. MARS 2003 47 SIR Alex Ferguson, knatt- spyrnustjóri Manchester United, vonast til að Arsenal komist áfram í Meistaradeildinni. Ekki er það nú samt af einskærri góðmennsku: „Vonandi kemst Arsenal áfram því það þýðir fleiri leiki fyrir liðið og meira álag,“ segir hann. United og Arsenal eru að berjast um sigur í ensku úrvalsdeildinni og fleiri lið koma raunar inn í þá bar- áttu. „Það yrði eitt af mestu afrek- um mínum ef við yrðum meistarar. Bæði vegna þess hvernig talað hef- ur verið um að Arsenal myndi vinna og ekki síður vegna mikilla meiðsla hjá okkur fyrir áramótin,“ segir Ferguson. Arsenal er tveimur stigum á und- an United og spennandi lokabar- átta framundan. „Lokaspretturinn verður spennandi, en það er undir okkur komið hvort við verðum meistarar. Ef við vinnum alla leik- ina sem eftir eru verðum við meist- arar,“ segir Ferguson en United mætir Arsenal á Highbury í Lund- únum 15. apríl.  HANNES Jón Jónsson, hand- knattleiksmaður hjá Naranco á Spáni, gerði þrjú mörk fyrir lið sitt þegar það tapaði 27:20 á heimavelli fyrir Anaitasuna.  INDRIÐI Sigurðsson lék allan leikinn fyrir Lilleström og Davíð Þór Viðarsson síðasta stundarfjórð- unginn þegar liðið burstaði Ham- Kam, 5:0, í æfingaleik í gær. Þjóð- verjinn Uwe Rösler skoraði tvö marka Lilleström í leiknum.  HELGI Valur Daníelsson var á meðal varamanna Peterborough þegar liðið tapaði, 2:1, á heimavelli á móti Wycombe í ensku 2. deildinni í gærkvöldi.  AGANEFND evrópska knatt- spyrnusambandins úrskurðaði í gær Senegalann El-Hadji Diouf, leik- mann Liverpool, í tveggja leikja bann vegna atviks sem átti sér stað í leik Liverpool og Celtic í 8 liða úr- slitum UEFA-keppninnar í síðustu viku. Diouf hrækti á stuðningsmenn Celtic og var atvikið kært til UEFA.  LIVERPOOL tók einnig hart á málinu og sektaði Diouf um tveggja vikna laun auk þess sem ákveðið var að tefla leikmanninum ekki fram í síðari leiknum við Celtic sem fram fer á Anfield á fimmtudaginn.  GARY Speed getur ekki leikið með Newcastle í kvöld þegar liðið mætir Barcelona í Meistaradeild Evrópu. Newcastle eygir smá von um að komast áfram en liðið verður að vinna Börsunga og stóla á að Int- er nái ekki að vinna Leverkusen.  SNYRTILEG klipping Keflvíking- urliðsins þegar það mætti ÍR í gær- kvöldi vakti athygli. Magnús Gunn- arsson reið á vaðið og klippti sig mjög stutt og hinir fylgdu fordæmi hans. Allir nema Arnar Freyr Jóns- son, yngsti leikmaðurinn, sem vildi halda sínu strípum en eldri menn- irnir sögðu hann ekki sleppa.  NOKKUR stór hópur stuðnings- manna Tindastóls var mættur til þess að styðja við bakið á sínum mönnum og eins og sannir Skagfirð- ingar sungu þeir af miklum krafti á meðan á leiknum stóð. Eftir leikinn hélt gamanið áfram og var þá fjölda- söngur með gítarundirleik fyrir utan íþróttahúsið á Ásvöllum.  KRISTINN Friðriksson, Clifton Cook og Axel Kárason skoruðu sam- tals 78 stig fyrir Tindastólsliðið gegn Haukum og skiptu þrír aðrir leikmenn á milli sín þeim ellefu stig- um sem uppá vantaði. Kristinn skor- aði alls átta þriggja stiga körfur eða jafnmargar og allt Haukaliðið gerði í leiknum.  SCOTTIE Pippen framherji Port- land í NBA-deildinni verður frá keppni og æfingum næsta mánuðinn. Pippen, sem hefur skoraði 11 stig að meðaltali í leik, þarf að gangast und- ir aðgerð á hné en hann hefur misst af fjórum síðustu leikjum liðsins. FÓLK HILMAR Þórlindsson, handknatt- leiksmaður hjá Cangas á Spáni hefur gert starfslokasamning við félagið og væntir þess að koma heim fljótlega eftir helgina. „Þetta er besti kosturinn,“ sagði Hilmar í samtali við Morgunblaðið í gær en hann hefur átt í meiðslum í vetur og svo að segja ekkert leikið með félaginu frá því að hann gekk til liðs við það síðla síðasta sumar. „Hérna ytra fæ ég ekki neina hjálp í þeim meiðslum sem ég er glíma við,“ sagði Hilmar og bætti því við að boðið um starfsloka- samning við félagið hefði komið skyndilega upp en í samtali við Morgunblaðið í fyrradag sagðist Hilmar ekki vera á heimleið. „Ég talaði við forseta félagsins í gærkvöldi [mánudagskvöldið] og hann spurði mig einfaldlega hvað ég vildi, hvort ég hefði áhuga á að vera áfram hjá félaginu, fara heim eða fara til annars félags. Ég ákvað bara að fara heim, það er besti kosturinn fyrir mig,“ sagði Hilmar. Hvort hann léki hér á landi eða utan lands á næsta vetri sagði Hilmar vera of snemmt að segja til um, það yrði bara að koma í ljós. Leikurinn fór rólega af stað, áfyrstu 5 mínútum leiksins skor- uðu gestirnir úr Grindavík aðeins 2 stig en KR-ingar náðu sér heldur ekki á strik þó stigaskor þeirra hafi verið heldur skárra, 7 stig. En þessi taugatitringur í upphafi leiks rann af leikmönnum beggja liða og batnaði stigaskor þeirra til muna fram af öðrum leikhluta en þá skildu þessi fimm stig liðin að, 18:13. Í öðrum leikhluta náðu KR-ingar mest 10 stiga forskoti, 25:15 en með miklu harðfylgi tókst Grindvíkingum að minnka muninn niður í eitt stig, 27:26, en staðan var 30:28 í leikhléi. KR-ingar, með Jessicu Stomksy í broddi fylkingar, tóku mikinn sprett í upphafi síðari hálfleiks, rifu sig frá Grindvíkingum og virtust vera að gera út um leikinn. En Grindvíking- ar voru ekki komnar bæjarleið til að láta taka sig í bakaríið og þær Yovnne Shelton og Sigríður A. Ólafs- dóttir gerðu KR-ingum grikk hvað eftir annað. Þá var Ósvaldi Knudsen, þjálfara KR nóg boðið, hann tók leikhlé, hvatti leikmenn til dáða og þeir gerðu 19 stig á móti 9 og tryggðu sér góðan sigur. Jessica Stonmsky fór mikinn í liði KR í þessum leik. Hún var lang stigahæst og hirti að auki 18 fráköst, 14 í vörn og 4 í sókn. Frábær leik- maður sem ekki lætur mikið yfir sér en er ótrúlega drjúg þegar upp er staðið. Þá lék Helga Þorvaldsdóttir mjög vel í sterku KR-liði. Grindvíkingar þurfa að bæta leik sinn nokkuð fyrir næstu viðureign. Vörnin var ágæt en skotnýtingin var ekki nægilega góð og það þurfa þeir að bæta. Yovnne Shelton var allt í öllu í liði Grindavíkur en þær Stef- anía Ásmundsdóttir og Sigríður Ólafsdóttir léku sömuleiðis vel. ÍSLANDSÆVINTÝRI enska knattspyrnumannsins Lees Sharpes hefur vakið mikla at- hygli í heimalandi hans og víð- ar. Það þykir saga til næsta bæjar að Sharpe, sem lék í átta ár með Manchester Unit- ed, auk þess að spila átta sinn- um fyrir Englands hönd, skuli vera á leið í lítið íslenskt fiski- þorp til að spila frammi fyrir nokkur hundruð áhorfendum. Allir helstu fjölmiðlar Bret- landseyja og Norðurlanda, dagblöð og netmiðlar, hafa sagt frá Sharpe og Grindavík. Það er því óhætt að segja að ævintýri bræðranna Jóns Gauta og Sigurbjörns Dag- bjartssona, sem eru mennirnir á bakvið Íslandsför Sharpes, sé að þróast upp í mikla kynn- ingu á Íslandi. Íslandsför Sharpes vekur athygli Ferguson vonar að Arsenal komist áfram í Evrópukeppninni Morgunblaðið/Golli Helga Þorvaldsdóttir, leikmaður KR, í baráttu við Söndru Guðlaugsdóttur, fyrirliða Grindavíkur. KR-sigur í spennuleik KR-stúlkur sigruðu Grindavík, 71:55, í fyrsta leik liðanna í fjögurra liða úrslitum 1. deildar kvenna í körfuknattleik, en liðin mættust í KR-húsinu í gærkvöldi. Þrátt fyrir þennan mikla mun á lokatölum var jafnræði með liðunum lengst af leiks og var leikurinn mjög spennandi allt fram á síðustu stundu. Ingibjörg Hinriksdóttir skrifar Hilmar á heimleið frá Spáni AGANEFND KKÍ veitti í gær ÍR áminningu vegna atviks í heimaleik liðsins við Keflavík í úrslitakeppni Íslandsmóts karla á sunnudag. Eig- inkona leikmanns ÍR gekk þá inn á völlinn og að leikmanni Keflavíkur, sem var að búa sig undir að taka vítaskot, og hellti yfir hann skömm- um. Hún gekk síðan óáreitt aftur til sætis síns en starfsmenn ÍR á leikn- um aðhöfðust ekkert. Í úrskurði aganefndar segir m.a.: „Aganefnd leggur áherslu á að forráðamenn ÍR sjái til þess að starfsmönnum kappleikja á vegum félagsins séu settar strangar reglur um eftirlits- hlutverk sitt. Umsjónaraðila leiks ber skylda til að tryggja öryggi leikmanna og dómara leiks og m.a. verja þá fyrir ágangi áhorfenda.“ Áminning vegna eiginkonu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.