Morgunblaðið - 19.03.2003, Page 48
KVIKMYNDIR
48 MIÐVIKUDAGUR 19. MARS 2003 MORGUNBLAÐIÐ
SEKTARKENNDIN er hvar-
vetna til staðar í nýjustu mynd
hins þeldökka Spikes Lee, sem að
þessu sinni beinir sjónum að
þremur hvítum ungum mönnum í
borginni hans, New York. Sektin
plagar þá alla þrjá í mynd sem
segir frá síðasta sólarhringnum í
lífi þeirra áður en aðalpersónan,
Monty Brogan (Edward Norton),
hefur sjö ára afplánun fyrir eitur-
lyfjasölu. Hann þarf að ganga frá
sínum málum, veraldlegum og til-
finningalegum, áður en múrinn
gleypir hann. Kveðja bestu vini
sína frá barnæsku, verðbréfasal-
ann Frank (Barry Pepper) og
menntaskólakennarann Jacob
(Philip Seymour Hoffman) og ekki
síst föður sinn, bareigandann og
fyrrum slökkviliðsmanninn James
(Brian Cox). Slíta tengslin við
rússnesku mafíuna, sem hefur séð
honum fyrir dópinu. Erfiðasta
raunin sem bíður hans á þessum
síðustu klukkustundum er uppgjör
við Naturelle (Rosario Dawson),
kærustuna sem elskar hann og
Monty hefur alls enga ástæðu til
að gruna um græsku – en einhver
honum nákominn kom eiturlyfja-
lögreglunni á sporið.
Lee svíkur ekki aðdáendur sína
þótt hann breyti útaf vananum
hvað snertir litarhátt aðalpersón-
anna þriggja. Við erum stödd í
mannlífsdeiglu New York-borgar
miðri, viðfangsefnið sammannlegt;
ást, vinátta, eftirsjá, sekt. Ástar-
saga Montys og Naturelle er
sterkust og athyglisverðust. Þau
eru af ólíkum kynþáttum, hann af
írskum, hún komin af Púertóríkön-
um. Slíkt skapar ekki vandamál í
heimsborginni. Það gera hinsvegar
orð Kostya (Tony Siragusa), félaga
hans, rússneska glæpamannsins
sem læðir gruninum að Monty að
það hafi verið Naturelle sem sagði
til hans. Böndin milli feðganna eru
sterk og tilfinningarík líkt og vin-
átta þremenninganna. Frank ásak-
ar sig fyrir að hafa ekki reynt að
forða vini sínum frá ógæfunni áður
en allt var um seinan og deilir á
Naturelle fyrir sama sinnuleysi.
Jacob á í sálarangist yfir löngun
sinni til Mary (Anna Paquin), ungs
nemanda síns en leiðir þeirra allra
liggja saman á skemmtistað um
kvöldið.
Líkt og fleiri verk Lees er sam-
hengið flöktandi án þess að það
skemmi fyrir áhorfandanum. Frá
upphafi til enda er undirliggjandi
kvíðaspenna sem er mögnuð með
tónlist Terence Blanchard og
kuldalegri kvikmyndatöku Rodrig-
os Prieto. Tökustaðirnir eru vítt
og breitt um neðri hluta Manhatt-
an, m.a. við sárið eftir tvíbura-
turnana, sem hefur táknræna
merkingu í átakanlegri sorgar-
sögu. Lee skapar ekki trúverðugar
persónur né heildarmynd en á
marga firnasterka kafla, líkt og er
Monty lætur hina ólíku íbúa borg-
arsamfélagsins fá það óþvegið í
speglinum – þar sem hann horfir
að lokum á sig einan og yfirgefinn.
Lokakaflinn þar sem við sjáum
hvað gat „næstum því gerst“, und-
ir sögumennsku hins magnaða
Cox, er sláandi flétta fallegs
draums og grimms veruleikans.
Framúrskarandi vel samsettur
leikhópur er vörumerki merkustu
kvikmyndagerðarmanna New
York; Lee, Martin Scorsese og
Woody Allen. Á því er engin
breyting; Cox, Hoffman og Pepp-
er, að ógleymdum Dawson og
hinni athyglisverðu Paquin, skila
öll glöggum og vel sköpuðum per-
sónum. Eftir bragðdaufa frammi-
stöðu í myndum einsog Rauða
drekanum, minnir Norton aftur
hressilega á hvað hann er næmur
og hárfínn leikari og túlkar ótrú-
verðuga og illa útskýrða persónu
góða drengsins sem gerðist dópsali
þannig að hún verður ljóslifandi.
Allar aðrar persónur myndarinnar
eru ekki síður dregnar til ábyrgð-
ar á falli Montys Brogan.
Komið að skuldadögum
KVIKMYNDIR
Sambíóin
Leikstjóri: Spike Lee. Handrit: David
Benioff. Kvikmyndatökustjóri: Rodrigo
Prieto. Tónlist: Terence Blanchard.
Aðalleikendur: Edward Norton, Philip
Seymour Hoffman, Barry Pepper, Rosario
Dawson, Anna Paquin, Brian Cox, Tony
Siragusa. 130 mín. Touchstone. Banda-
ríkin 2002.
Á SÍÐUSTU STUNDU (25TH HOUR) Edward Norton fer fyrir sterkum leikarahópi í Á síðustu stundu.
Sæbjörn Valdimarsson
Hundalíf 2: Depill í
Lundúnum
(101 Dalmatians 2: Patch’s
London Adventure)
Teiknimynd
Bandaríkin 2003. Sammyndbönd VHS/
DVD. Öllum leyfð (73 mín.) Leikstjórn Jim
Kammured, Brian Smith. Leikraddir
Laddi, Felix Bergsson o.fl.
ÞAÐ kemur ekki á óvart að þeir
hjá Disney hafi metnað til að vilja
fylgja eftir einni af sínum dýrmæt-
ustu perlum, hinni ríflega 40 ára
gömlu Hundalífi. Um leið liggur við
að hægt sé að tala um fífldirfsku að
ætla að reyna að gera slíkt, svo vel
sé. En blessunarlega sleppur útkom-
an fyrir horn og vel það. Í þessu
skemmtilega framhaldi sem fram-
leitt var gagngert til útgáfu á mynd-
bandi og mynddiski er þráðurinn
tekinn upp þar sem skilið var við
hann; Pongó orðinn ráðsettur fjöl-
skyldufaðir 101 hvolps og lífið geng-
ur sinn vanagang. Depill litli er
yngstur og því sá hundraðasti og
fyrsti í röðinni. Eðlilega finnst hon-
um hann hverfa í fjöldann, að enginn
taki eftir sér, enda gleymist hann
gjarnan í öllum látunum. Því dreym-
ir hann um að vera
einstakur, rétt eins
og Þrumufleygur,
ofurhundurinn sem
fjölskyldan dáist að
á sjónvarpsskján-
um. Þegar Grimm-
hildur Grámann
lætur á ný á sér
kræla og gerir enn
eina tilraun til að
ná sér í eftirlætis skinnið sinn kemur
allt í einu til kasta Depils að bjarga
systkinum sínum og foreldrum og
nýtur hann þar óvæntrar aðstoðar
frá sjálfum Þrumufleygi, sem er
kannski ekki alveg sama hetjan og á
skjánum.
Hundalíf 2 er bráðskemmtileg
ekta Disney-teiknimynd sem ég hef
sannreynt að gagntektur yngstu
áhorfendurna. Er það ekki líka til-
gangurinn? Skarphéðinn Guðmundsson
Myndbönd
Hundalífið
er lotterí
EN gaman að sjá færeyska kvik-
mynd! Og ekki er verra þegar hún
er bara býsna áhugaverð. Hér segir
frá tveimur ungum konum, Rannvá
og Barbu, sem koma heim til Fær-
eyja, eftir að hafa (að mér skildist)
unnið sem fyrirsætur víða í Evrópu.
Þær telja sig miklar heimskonur og
eru vel hrokafullar þegar þær
leggja í ferð um eyjuna til að gera
upp fjölskyldumál sín, sem og til-
gangur heimferðarinnar er. En
brátt bráir af þeim og við sjáum að
undir niðri eru þær ósköp aumar og
varnarlausar.
Ég verð að viðurkenna að fyrst
fannst mér erfitt að komast inn í
myndina. Stelpurnar voru hrokafull-
ar og hleyptu engum að sér. Líka
fannst mér erfitt að skilja bakgrunn
þeirra og þrár. Smám saman komu
þó hlutirnir í ljós, og stelpurnar
urðu virkilega heillandi og sömuleið-
is bílstjóri þeirra um eyjuna, hann
Rúni.
Katrin vill greinilega segja frá
ýmsu varðandi Færeyjar í þessari
mynd. Það virðist erfitt hversu lítið
landið er, og því þrengir að fólki
sem er ekki nákvæmlega einsog
aðrir eða hefur nýjar hugmyndir um
hlutina. Það var forvitnilegt að sjá
að frændur okkar færeyskir eru
ólíkari okkur en ég áleit. Þeir virð-
ast mun guðhræddari og líta barn-
eignir fyrir hjónaband mun alvar-
legri augum en við. En mesta
áherslu leggur Katrin á hversu
óheillavænar Færeyjar eru ungum
konum. Ef þær verða óléttar bíður
þeirra ekkert annað en hjónaband,
og í flestum þeirra virðast karl-
mennirnir vera fullir alla daga,
timbraðir fyrir framan sjónvarpið
eða flúnir frá öllu saman. Og ef þær
eiga sér draum geta þær gleymt
honum. Ég veit ekki hvernig þetta
er í raun, en myndin er séð með
augum ungra kvenna sem vilja
meira en bleiuþvott og uppvask.
Vissulega er mikill byrjendabrag-
ur á Bye Bye Bluebird hvað snertir
handrit, tæknivinnu og leik. En
verkið er samt sem áður heillandi
lítil mynd, og greinilegt að leikstjór-
inn hefur fullt að segja. Svo það er
spennandi að sjá hvaða sögu Katrin
Ottarsdóttir segir okkur næst.
Hrokafullar,
varnarlausar
KVIKMYNDIR
Háskólabíó – Norrænir bíódagar
Leikstjórn og handrit: Katrin Ottarsdóttir.
Kvikmyndataka: Jörgen Johansson. Aðal-
hlutverk: Hildigunn Eyðfinsdóttir, Sigri
Mitra Gaini, Johan Dalsgaard, Elin K.
Mouritsen, Birita Mohr. 97 mín. Dan/
Fær. Den Danske Film Institut 1999.
FARVEL ÞRÖSTUR (BYE BYE BLUEBIRD)
Hildur Loftsdóttir
fim 20/3 kl. 21, AUKAS. Örfá sæti
föst 21/3 kl. 21, UPPSELT,
lau 22/3 kl, 21, Örfá sæti
fim 27/3 kl. 21, AUKAS. UPPSELT
föst 28/3 kl, 21, UPPSELT
lau 29/3 kl, 21, UPPSELT
föst 4/4 kl, 21, Nokkur sæti
lau 5/4 kl. 21, Laus sæti
föst 11/4 kl, 21, Nokkur sæti
fim 17/4, SJALLINN AKUREYRI
lau 19/4, SJALLINN AKUREYRI
FORSALA Á MIÐUM Í SJALLANN FER
FRAM Í PENNANUM/EYMUNDSSON
GLERÁRTORGI.
Stóra svið
PUNTILA OG MATTI e. Bertolt Brecht
Frumsýning fi 20/3 kl 20 UPPSELT
2. sýn fi 27/3 kl 20 gul kort
3. sýn su 30/3 kl 20 rauð kort
4. sýn fi 3/4 kl 20 græn kort
5. sýn su 6/4 kl 20 blá kort
Fi 10/4 kl 20, Su 13/4 kl 20
LÁT HJARTAÐ RÁÐA FÖR
ÍSLENSKI DANSFLOKKURINN - Þrjú ný verk
eftir Katrínu Hall, Láru Stefánsd. og Ed Wubbe
Su 23/3 kl 20,
Lau 29/3 kl 20
Fö 4/4 kl 20
ATH: Síðustu sýningar
SÖNGLEIKURINN SÓL & MÁNI
eftir Sálina og Karl Ágúst Úlfsson
Fö 21/3 kl 20, UPPSELT
Lau 22/3 kl 20,
Fö 28/3 kl 20,
Lau 5/4 kl 20
Lau 12/4 kl 20
HONK! LJÓTI ANDARUNGINN
e. George Stiles og Anthony Drewe
Gamansöngleikur fyrir alla fjölskylduna
Su 23/3 kl 14
ALLRA SÍÐASTA SÝNING
Nýja svið
Þriðja hæðin
Litla svið
Miðasalan er opin frá kl. 13-18 og fram að sýningu sýningardaga. Sími miðasölu opnaður kl. 10 virka daga.
Fax 568 0383 - midasala@borgarleikhus.is
Miðasala 568 8000
RÓMEÓ OG JÚLÍA e. Shakespeare
í samstarfi við VESTURPORT
Fö 21/3, fyrirhuguð sýning fellur niður.
Mi 26/3 kl 20,
Mi 2/4 kl 20
MAÐURINN SEM HÉLT AÐ KONAN HANS
VÆRI HATTUR
eftir Peter Brook og Marie-Hélène Estienne
Fö 21/3 kl 20, Fö 28/3 kl 20, Su 30/3 kl 20,
Su 5/4 kl 20
PÍKUSÖGUR eftir Eve Ensler
Lau 22/3 kl 20, Lau 29/3 kl 20
STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN
í samstarfi við SJÓNLEIKHÚSIÐ
Leikrit með söngvum - og ís á eftir!
Lau 22/3 KL. 14, UPPSELT
Lau 29/3 kl 14 UPPSELT, Lau 29/3 kl 15 UPPSELT
Lau 5/4 kl 14
KVETCH eftir Steven Berkoff
í samstarfi við Á SENUNNI
Su 23/3 kl 20, Lau 29/3 kl 20, Lau 5/4 kl 20
Takmarkaður sýningarfjöldi
sýnir í Tjarnarbíói
Undir hamrinum
„Frábær skemmtun". SA, DV.
fös. 21. mars kl. 20
sun. 23. mars kl. 20
lau. 29. mars kl. 20
fim. 10. apríl kl. 20
Frítt fyrir börn 12 ára og yngri.
Miðapantanir allan sólarhringinn
í s. 551 2525 eða á hugleik@mi.is
Miðasala er opin frá kl. 10-16 virka daga,
kl. 14-17 um helgar, frá kl. 19 sýningardaga.
Ósóttar pantanir seldar 4 dögum fyrir sýningar.
Sími 562 9700. beyglur@simnet.is
„Engum er hollt að hlæja
samfellt í lengri tíma“
S. H Mbl
Kvöldverður fyrir og eftir sýningar
Fim 20/3 kl 21
Fös 21/3 kl 21
Fös 28/3 kl 21
Fim 3/4 kl 21Síðustu
sýningar
TRY ME buxur
í miklu úrvali
Hallveigarstíg 1
588 4848www.nowfoods.com