Morgunblaðið - 10.04.2003, Page 1
REIÐI, hamslaus fögnuður, undrun
og stjórnleysi ríkti á götum Bagdad-
borgar í gær þegar ljóst varð að dag-
ar Saddams Husseins Íraksforseta á
valdastóli væru taldir. Laust fyrir
klukkan þrjú að íslenskum tíma í
gærdag sameinuðust óbreyttir borg-
arar í Bagdad og bandarískir her-
menn á bryndreka um að rífa niður
risastóra styttu af forsetanum í mið-
borginni. Á sama tíma og helsta
táknmynd stjórnar forsetans steypt-
ist af stalli sínum treystu hersveitir
Bandaríkjamanna yfirráð í miðborg-
inni og lögðu undir sig helstu stjórn-
arbyggingar. Þeir George Bush
Bandaríkjaforseti og Tony Blair, for-
sætisráðherra Bretlands, fögnuðu
rás atburða og sögðu hana „sögu-
lega“ en lýstu jafnframt yfir því að
yfirvegunar væri þörf þar eð átök-
unum í Írak væri ekki lokið.
Uppreisn í Saddam-borg
Fyrstu merki um að stjórn Sadd-
ams forseta væri í dauðateygjunum
sáust snemma í gærmorgun þegar
„umsjónarmenn“ erlendra blaða-
manna í Bagdad, menn sem fylgt
hafa þeim hvert fótmál og ritskoðað
fréttir þeirra, mættu ekki til starfa.
Erlendir fréttamenn gátu því í gær í
fyrsta skipti farið frjálsir ferða sinna
um Bagdad og sent frá sér fréttir án
afskipta yfirvalda. Á sama tíma bár-
ust af því fréttir að hafin væri upp-
reisn gegn stjórn forsetans í Bagdad,
einkum í austurhlutanum þar sem
shía-múslimar, kúgaður meirihluti í
Írak, búa í fátækrahverfum er nefn-
ast Saddam-borg. Lögreglu- og ör-
yggissveitir virtust horfnar sem og
allir helstu ráðamenn. Réttum þrem-
ur vikum eftir að stríðið í Írak hófst
var ljóst að stjórn Saddams Huss-
eins var að líða undir lok.
Í hverfum shía-múslima hrópuðu
menn vígorð gegn Saddam forseta
og formæltu honum og stjórn hans.
Myndir af forsetanum voru brennd-
ar og á þeim traðkað. Víða fögnuðu
menn hersveitum Bandaríkjamanna
er þær komu inn í Bagdad úr öllum
áttum og héldu til miðborgarinnar. Á
stöku stað dansaði fólk á götunum og
kastaði blómum til hermanna, að
sögn fréttamanna breska útvarpsins,
BBC. Aðrir lofuðu Bandaríkjamenn
og Bush forseta.
Rán og stjórnleysi
Viðbrögðin voru þó ekki fögnuður
einn. Allsherjar stjórnleysi ríkti víða
í Bagdad er menn fóru um rænandi
og ruplandi. Ráðist var inn í opinber-
ar byggingar og þær „hreinsaðar“ af
öllum verðmætum. Birgðageymslur
voru tæmdar, bifreiðum í eigu Sam-
einuðu þjóðanna stolið. Múgur
braust inn í verslanir og í einhverjum
tilfellum vörðu eigendur þeirra sig
með því að beita skotvopnum. Sér-
fræðingar í málefnum Íraks sögðu að
þessi viðbrögð ættu ekki að koma á
óvart, þar færi allslaust fólk sem
sætt hefði kúgun áratugum saman
undir stjórn Saddams Husseins og
Baath-flokksins.
Fregnir frá Kúrdahéruðum í
norðri hermdu að þar hefði alþýða
manna einnig fagnað á götunum.
Sýndar voru sjónvarpsmyndir frá
borginni Arbil og var mikil gleði sögð
ríkja þar og víðar í norðurhlutanum.
Talsmenn herstjórnar Breta og
Bandaríkjamanna voru varfærnir í
yfirlýsingum sínum. Bentu þeir á að
enn veitti íraskur liðsafli mótspyrnu
víða í landinu og því færi fjarri að
átökum í Írak væri lokið. Eins og því
til sannindamerkis blossaði upp bar-
dagi við háskólann í Bagdad en hon-
um virtist lokið í gærkvöldi.
Þeir Bush Bandaríkjaforseti og
Tony Blair, forsætisráðherra Bret-
lands, tóku í sama streng. Talsmaður
Bush hafði eftir forsetanum að stríð-
inu væri ekki lokið og hættuástand
ríkti enn. Donald Rumsfeld, varnar-
málaráðherra Bandaríkjanna, sagði
ljóst að söguleg umskipti hefðu átt
sér stað sem ættu eftir „að móta
framtíð þessa heimshluta“. Enn ætti
eftir að finna Saddam forseta og syni
hans eða „eiga við þá“. „Bandaríkja-
menn gleðjast með írösku þjóðinni,“
sagði ráðherrann.
Sendiherra Íraks hjá Sameinuðu
þjóðunum sór af sér tengsl við Sadd-
am forseta í gærkvöldi og kvaðst
telja að stríðinu væri lokið. „Leikn-
um er lokið, ég vonast eftir friði.“
Stjórn Saddams fallin
Reuters
Stytta af Saddam Hussein rifin af stalli sínum í miðborg Bagdad í gær. Táknrænt þótti að óbreyttir borgarar brugðu kaðli um styttuna og reyndu að rífa
hana niður. Það tókst ekki fyrr en bandarískir hermenn komu til aðstoðar. Bandaríkjamennirnir lögðu um tíma bandaríska fánann yfir höfuð styttunnar
en fjarlægðu hann skömmu síðar. Var þá gömlum fána Íraks vafið um háls styttunnar en hann var einnig fjarlægður áður en þetta tákn stjórnarinnar féll.
Fögnuður og undrun á götum Bagdad Varfærin
viðbrögð Blair og Bush Búist við frekari átökum
Stríð í Írak: „Í hugann kom fall Berlínarmúrsins“
Undrun og vonbrigði í arabaheiminum 16/22
ÍRASKIR stjórnarandstöðu-
hópar telja sig hafa upplýs-
ingar um, að Saddam Hussein
hafi lifað af
árásina á
veitingahús í
Bagdad síð-
astliðinn
mánudag og
hafi hann síð-
an flúið úr
borginni með
að minnsta
kosti öðrum syni sínum.
CNN-sjónvarpsstöðin hafði
þetta eftir Ahmad Chalabi,
leiðtoga Íraska þjóðarráðsins,
en samkvæmt upplýsingum
hans, sem eru óstaðfestar, flýði
Saddam til borgarinnar Baq-
ubah, sem er norðaustur af
Bagdad. Þar er eða var mjög
stór herstöð.
Bandarískar og breskar
leyniþjónustustofnanir greinir
raunar á um það hvort Saddam
hafi yfirgefið veitingahúsið en
þær fyrrnefndu segja, að hann
hafi farið inn og ekki komið út
áður en sprengjunum var
varpað. Þær bresku eða MI6
fullyrða hins vegar, að hann
hafi farið úr húsinu fyrir árás-
ina.
Bandarískir embættismenn
sögðu í gær, að ekki hefði orð-
ið vart við nein fjarskipti milli
íraskra embættismanna og
engin merki um, að Íraksstjórn
hefði stjórn á „einu eða neinu“.
Saddam
flúinn frá
Bagdad?
STOFNAÐ 1913 98. TBL. 91. ÁRG. FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 2003 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
FRÉTTASKÝRENDUR sögðu í
gær ljóst að mikil óvissa og spenna
ríkti í Írak. Gera mætti ráð fyrir að
einstakir herflokkar Íraka myndu
áfram halda uppi mótspyrnu auk
þess sem vera kynni að Saddam
Hussein hefði enn ekki háð síðasta
bardaga sinn. Sökum þessa beindist
athyglin að Tikrit, heimaborg for-
setans, um 150 kílómetra norður af
Bagdad. Fregnir hermdu í gær að
gerðar hefðu verið loftárásir á
borgina sem er helsta valdamiðstöð
Saddams forseta og Baath-flokks-
ins. Þar er til varnar Adnan-her-
fylkið, líklega um 15.000 manna
liðsafli. Þá var óljóst í gærkvöldi
hversu víðtæk uppreisnin væri og
t.a.m. ekki vitað hvort sunnítar,
trúflokkur múslima sem Saddam
Hussein tilheyrir, hefðu einnig risið
upp gegn stjórninni.
Óvissa og spenna