Morgunblaðið - 10.04.2003, Qupperneq 10
FRÉTTIR
10 FIMMTUDAGUR 10. APRÍL 2003 MORGUNBLAÐIÐ
EFTIR langar og strangar samningaviðræður
á mánudag og þriðjudag náðist samkomulag á
þriðjudagskvöld um öll meginatriðin varðandi
aðlögun samningsins um Evrópska efnahags-
svæðið að stækkun Evrópusambandsins til
austurs. Samkomulagið er þó ekki formlega frá-
gengið. Í gær voru samkomulagsdrögin kynnt í
svokölluðum EFTA-starfshópi ráðherraráðs
ESB í Brussel og hafa aðildarríkin frest til kl. 9
árdegis í dag að koma athugasemdum á fram-
færi. Einnig fóru samninganefndir EFTA-
ríkjanna yfir stöðuna með stjórnvöldum heima
fyrir. Í dag hefst samningafundur kl. 10 í Bruss-
el og er gert ráð fyrir að þar náist samkomulag
formlega.
Samið til fimm ára
Eins og Morgunblaðið hefur áður greint frá,
náðist samkomulag um að EFTA-ríkin greiði
samtals tæplega 234 milljónir evra, eða um 19,6
milljarða íslenzkra króna, á ári í þróunarsjóði til
styrktar fátækari ríkjum Evrópusambandsins.
Evrópusambandið hafði farið fram á að þetta
framlag yrði að þessu sinni varanlegt, en til
þessa hefur tvisvar sinnum verið samið til fimm
ára í senn um framlag EFTA-ríkjanna í þróun-
arsjóð. EFTA-ríkin höfðu það hins vegar fram
að enn gildir samkomulagið til fimm ára, þ.e.
2004–2009, en að því tímabili loknu á að fara
fram endurmat á þörfinni fyrir styrki til fátæk-
ari ríkjanna, samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins.
Tvískipt framlag
Framlag EFTA-ríkjanna skiptist í tvennt.
Annars vegar skipta Noregur, Ísland og Liech-
tenstein með sér að greiða 120 milljóna evra
sameiginlegt framlag. Þar af koma 6 milljónir
evra, eða rétt um hálfur milljarður króna, í hlut
Íslands. Noregur greiðir bróðurpartinn af af-
ganginum, 114 milljónum evra. Liechtenstein
greiðir um 600.000 evrur, rúmlega 50 milljónir
króna.
Hins vegar greiðir Noregur sérstaklega aðr-
ar tæplega 114 milljónir evra. Samtals nemur
framlag Noregs því um 227 milljónum evra, eft-
ir því sem Morgunblaðið kemst næst, rúmlega
19 milljörðum króna.
Nærri helmingur fer til Póllands
Sameiginlega framlag EFTA-ríkjanna
þriggja rennur til allra tíu ríkjanna, sem ganga í
ESB á næsta ári og þar að auki til ríkjanna
þriggja, sem til þessa hafa notið þessara
styrkja, þ.e. Spánar, Portúgals og Grikklands.
Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins fer
nærri helmingur af sjóðnum til verkefna í Pól-
landi, en tæplega fimmtungur fer til verkefna í
núverandi ESB-ríkjunum þremur.
Verkefni á sviði hitaveitu
og sjávarútvegs
Talsvert var togazt á um hvers konar þróun-
arverkefni skyldi styrkja í fátækari löndunum.
EFTA-ríkin reyndu að koma því svo fyrir að
hluti þeirra styrkja, sem veittir verða, kæmu
aftur inn í hagkerfi þeirra, með því að fyrirtæki
í EFTA-ríkjunum fengju verkefni við að að-
stoða fátæku löndin. Þannig náðist samkomulag
um að styrkja verkefni á sviði bættrar auðlinda-
nýtingar og -stjórnunar, en þar sjá menn fyrir
sér að íslenzk sjávarútvegsfyrirtæki geti orðið
að liði. Jafnframt á að styrkja verkefni á sviði
umhverfisverndar og ákvæði um að draga úr
mengun og auka notkun endurnýjanlegrar orku
er sérsaumað í kringum hagsmuni íslenzkra
fyrirtækja, sem veita ráðgjöf á sviði jarðvarma-
nýtingar og hitaveitu. Þá á að styrkja verkefni á
sviði heilsugæzlu, menningarmála, lýðræð-
isþróunar, menntunar og starfsþjálfunar.
Hið sérstaka, tvíhliða framlag Noregs mun
eingöngu renna til nýju aðildarríkjanna tíu, en á
að fara til svipaðra verkefna og sameiginlega
framlagið. Þetta fyrirkomulag gerir Norð-
mönnum kleift að færa til peninga, sem þeir
styrkja Austur-Evrópuríkin nú með hvort sem
er.
Fallið frá kröfu um heimild
til fjárfestinga í sjávarútvegi
Á síðustu stigum samningaviðræðnanna var
harðast deilt um það hvernig bæta skyldi Nor-
egi og Íslandi missi markaðsaðgangs fyrir sjáv-
arafurðir þegar Austur-Evrópuríkin tíu gengju
í ESB. Fyrirsjáanlegt var að háir tollar legðust
þá á ýmsar sjávarafurðir, sem hafa verið toll-
frjálsar samkvæmt fríverzlunarsamningum
EFTA við þessi ríki.
Þrátt fyrir að aldrei hafi verið nein formleg
tenging milli samninga um fjárframlög og um
tollamálin, herma heimildir Morgunblaðsins að
viðunandi niðurstaða í peningamálunum hafi
gert að verkum að ESB sýndi meiri samnings-
vilja varðandi tollana. Þannig féll ESB frá kröfu
sinni um að ESB-borgarar fengju heimild til að
fjárfesta í íslenzkum og norskum sjávarútvegi,
sem hafði verið kynnt sem ófrávíkjanlegt skil-
yrði fyrir því að slaka til varðandi markaðsað-
ganginn.
Endurskilgreining tollflokka
og tollfrjáls innflutningskvóti
Mikilvægasta tilslökun ESB út frá íslenzkum
hagsmunum er endurskilgreining tollflokka,
sem hefur í för með sér að síldarsamflökin
margumtöluðu (samföst flök, fiðrildi) flokkast
framvegis sem „flök“ og bera þar af leiðandi
engan toll í stað 15% tollsins, sem nú gildir.
Aukinheldur fær Ísland 950 tonna tollfrjálsan
innflutningskvóta á heilfrystri síld, sem á að
gilda í fimm ár, frá 2004 til 2009, en þá verður
hann endurskoðaður, að því er Morgunblaðið
kemst næst.
Norðmenn fá einhverja niðurfellingu tolla á
síldarsamflökunum og þar að auki tollfrjálsan
kvóta í fleiri tegundum vegna fjölbreyttari út-
flutnings til Austur-Evrópuríkja, t.d. á makríl
og frystum síldarafurðum.
Dregið úr tollum á innflutning
landbúnaðarvara til Noregs
Þá féllst Noregur á að auka tollfrjálsan inn-
flutningskvóta á nokkrum landbúnaðarafurðum
frá ESB, einkum berjum til sultugerðar, epla-
safa o.fl. Þessi aukning er ekki sízt tilkomin
vegna krafna Svíþjóðar.
Greiðslur endur-
skoðaðar
eftir fimm ár
Meginatriði samkomulags EFTA-ríkjanna og
Evrópusambandsins um aðlögun EES-samningsins
að stækkun ESB liggja nú fyrir. Ólafur Þ. Steph-
ensen rekur hvað í samkomulaginu felst.
olafur@mbl.is
Morgunblaðið/Sigurgeir
ÚTFLUTNINGUR Íslendinga á
síldarsamflökum til þeirra 10 landa í
Austur-Evrópu sem sótt hafa um að-
ild að Evrópusambandinu hefur vaxið
jafnt og þétt og ríflega fjögurhundr-
uðfaldast á síðustu fjórum árum.
Árið 1999 voru flutt út ríflega 53
tonn af síldarsamflökum til um-
ræddra landa en á síðasta ári voru
flutt út 21.337 tonn. Útflutningsverð-
mæti samflakanna nam á síðasta ári
ríflega 1.870 milljónum króna. Á síð-
asta ári voru flutt út um 43 þúsund
tonn af sjávarafurðum til landa Aust-
ur-Evrópu og nam verðmæti þeirra
um 3.713 milljónum króna (fob). Síld-
arsamflök eru þannig um helmingur
þeirra sjávarafurða, bæði í magni og
verðmætum, sem Íslendingar selja til
umræddra landa.
Tollar eru hins vegar teknir af cif-
verðmæti afurðanna og varlega áætl-
að nam útflutningsverðmæti síldar-
samflaka um 2.226 milljónum króna á
síðasta ári. 15% tollur er á síldarsam-
flökum til landa Evrópusambandsins
en náist endanlegt samkomulag milli
EFTA og ESB um niðurfellingu tolla
á samflök má áætla að Íslendingar
komist hjá því að greiða um 334 millj-
ónir króna í tolla af samflökunum á
þessu ári, verði útflutningurinn sá
sami og í fyrra.
Þess ber þó að geta að margar
þeirra sjávarafurða sem fluttar eru
til A-Evrópulanda bera ekki tolla í
ESB, t.d. mjöl og lýsi. Síldarsamflök
hefðu þannig borið um 90% þeirra
heildartolla sem Íslendingar hefðu
greitt af þessum útflutningi á síðasta
ári ef ESB-tollur hefði verið kominn
á.
Stöðugur markaður
Síldarsamflök, þ.e. samföst flök,
gjarnan kölluð „fiðrildi“ eða „flaps-
ar“, eru flutt út með roði og bera 15%
toll inn til landa Evrópusambandsins.
Roðlaus síldarflök eru jafnan flutt út
„einföld“ en eru flutt tollfrjálst til
ESB.
Þess ber þó að geta að á tímabilinu
frá 15. febrúar til 15. júlí eru engir
tollar á samflökum til ESB-landa.
Þetta tímabil hentar hins vegar ís-
lenskum útflytjendum ekki vel, þar
sem síldarvertíðin hér við land hefst í
september og fáir framleiðendur í
stakk búnir til að sitja með birgðir
fram í febrúar.
Hilmar Júlíusson, deildarstjóri hjá
SÍF, segir ýmsar ástæður fyrir því að
útflutningur á síldarsamflökum hafi
aukist svo mjög til Austur-Evrópu á
undanförnum árum. Nærtækasta
skýringin sé vitanlega að þar er ekki
lagður tollur á flökin. Eins hafi fram-
leiðsla á samflökum aukist með til-
komu nýrra skipa sem frysti flökin
um borð. Hann áætlar að um 60% af
heildarframleiðslu síldarsamflaka á
síðasta ári hafi verið fryst úti á sjó.
Það þýði jafnframt að mun hærra
hlutfall aflans sé nú framleitt til
manneldis en áður.
Hilmar segir stóran markað fyrir
síldarsamflök í Austur-Evrópu en
telur þó ekki líklegt að útflutningur
héðan muni aukast meira en orðið er.
„Markaðurinn hefur verið tiltölulega
stöðugur. Við höfum verið að vinna
markaðshlutdeild af Norðmönnum
síðustu misseri en framboð þaðan
hefur vissulega alltaf áhrif á eftir-
spurnina. Eins veltur þetta líka mjög
á aflabrögðunum hér heima. En ég á
ekki von á að við sjáum viðlíka aukn-
ingu í útflutningnum og síðustu ár.“
Gott starf unnið
Friðrik J. Arngrímsson, fram-
kvæmdastjóri Landssambands ís-
lenskra útvegsmanna, fagnar því að
áfram verði tollfrelsi á síldarsamflök-
um til hinna nýju aðilarríkja ESB,
enda samflökin mikilvægasta útflutn-
ingsvara okkar til viðkomandi landa.
„Það hefur verið lögð mikil og góð
vinna í málið undir forystu Halldórs
Ásgrímssonar utanríkisráðherra við
að ná þessu fram og því ber að fagna.
Það er ljóst að samninganefndin var í
þröngri stöðu, vegna ósveigjanleika
Evrópusambandins og óbilgjarnra
krafna þess. Það verður að teljast
undarlegt að við skulum lenda í verri
stöðu gagnvart ríkjum sem höfum nú
tvíhliða samninga við, þegar þau
ganga í Evrópusambandið,“ segir
Friðrik.
Gríðarlega mikilvægt
Samherji hf. flutti á síðasta ári út
um 13 þúsund tonn af sjófrystum
síldarflökum, þar af um 9 þúsund
tonn af samflökum. Einar Eyland,
sölu- og markaðsstjóri hjá Samherja,
segir að tilkoma fjölveiðiskipanna
Vilhelms Þorsteinssonar EA og Þor-
steins EA hafi þannig breytt öllu
varðandi þessa framleiðslu, enda hafi
fyrirtækið ekki flutt út nein samflök
fyrir þremur árum. Hann segir næga
eftirspurn eftir samflökum í Austur-
Evrópu, til dæmis taki bara pólski
markaðurinn árlega við um 100 þús-
und tonnum. „Það var því gríðarlega
mikilvægt að fá þessa tolla fellda nið-
ur. Hefði það ekki tekist hefðu kaup-
endurnir orðið að breyta sínu fram-
leiðsluferli og það hefði getað orðið
þrautin þyngri. Síldarflökin eru til-
tölulega ódýr afurð og því hefði verið
útilokað að ná fram 15% verðhækkun
á henni eða sem næmi tollinum.
Markaðsaðstæður hefðu gjörbreyst
hefði til þess komið og sala stórlega
dregist saman. Okkar viðskiptavinir,
sem í langflestum tilfellum eru fram-
leiðendur, fagna því þessari niður-
stöðu. Í Austur-Evrópu er mikil hefð
fyrir neyslu á síld og þar eru notaðar
gamlar verkunaraðferðir sem fram-
leiðendur vilja alls ekki breyta. Þeir
gera því kröfu um að fá síldina með
roði og roðdraga hana sjálfir ef þann-
ig ber undir, enda vinnuaflið tiltölu-
lega ódýrt.“
Útflutningur síldarsamflaka
hefur fjögurhundruðfaldast
Ánægja hjá hagsmunaaðilum með
fyrirliggjandi samkomulag „VIÐ TELJUM það ásættan-
lega niðurstöðu miðað við stöðu
okkar í þessum samningum að
við þurfum að
greiða 500
milljónir í þró-
unarsjóð Evr-
ópusambands-
ins,“ segir
Halldór Ás-
grímsson utan-
ríkisráðherra
um fyrirliggj-
andi sam-
komulagsdrög
EFTA-ríkjanna og Evrópu-
sambandsins. „Við teljum það
jafnframt mikilvægt að þessi
sjóður kemur til með að styðja
við jarðhitaverkefni í nýju að-
ildarríkjunum sem við teljum
að geti orðið mjög gagnlegt í
samstarfi okkar við þessar
þjóðir.“
Hvað varðar sjávarútveginn
segir Halldór að Ísland hafi
lagt megináherslu á tollfrelsi
en ekki kvóta. „ESB féllst á
sjónarmið okkar varðandi mik-
ilvægustu afurðina, síldina. Það
skiptir okkur mjög miklu máli.
Ég tel að þessi niðurstaða sé
varnarsigur í málinu.“
Halldór gerði ríkisstjórninni
og utanríkismálanefnd Alþingis
grein fyrir stöðu samninganna í
fyrradag og segir viðbrögðin
hafa verið mjög góð. „Það var
einróma álit manna að það væri
rétt að ganga til þessara samn-
inga.“
Halldór Ásgrímsson
Halldór
Ásgrímsson
Niður-
staðan
varnar-
sigur